24 stundir


24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 29

24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 29
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 29 „Við verðum með smálund þarna og deilum svæði með Hekluskógum, Suðurlandsskógum og Landssambandi skógareigenda og kynnum starfsemi okkar,“ segir Þorbergur H. Jónsson, skóg- arvörður Skógræktar ríkisins á Suðurlandi. „Síðan verður Skóg- rækt ríkisins með kynningu á okkar helstu framleiðsluvörum, en þar ber helst að nefna vörur eins og arinvið, borð, planka, platta úr íslenskum við og trjákurl sem er notað í stíga,“ segir Þorbergur. Spennandi samstarf Á Landbúnaðarsýningunni verður Skógræktin einnig með kynningu á spennandi verkefni sem hún er með í gangi þessa dag- ana. „Skógræktin er í samstarfi við fyrirtæki sem heitir Hestalist sem sérhæfir sig í framleiðslu á spæni fyrir hesthús og kjúklingabú. Við seljum þeim grisjunarvið í verk- smiðjur fyrirtækisins í Mos- fellsbæ. Þetta er svolítið spenn- andi fyrir okkur því þarna erum við allt í einu orðnir framleið- endur á hráefni í miklu meira magni en áður,“ segir Þorbergur og bætir við að samstarfið gangi vel. „Þeir fá frá okkur grisj- unarboli í verksmiðjur sínar. Þar eru þeir spændir niður, þurrkaðir og settir í pakkningar og síðan er þetta notað í hesthúsum.“ Vel samkeppnishæfir Efni af þessu tagi hefur verið flutt inn til landsins til þessa. „Við erum í þeirri einkennilegu stöðu að vera vel samkeppnishæf við Evrópumarkaðinn í framleiðslu á þessu efni. Timburverð í Evrópu hefur aldrei verið hærra og við gætum í rauninni selt miklu meira en við gerum,“ segir Þorbergur en Skógrækt ríkisins fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. haukurh@24stundir.is Spennandi tímar hjá Skógrækt ríkisins Framleiðsla á hráefni Skógrækt í sókn á Íslandi Skógrækt ríkisins tekur þátt í spennandi samstarfsverk- efni sem snýr að framleiðslu á hráefni til spænisframleiðslu í hesthús. Kraftvélar sýna á Hellu! www.kraftvelar.is Kraftvélar taka þátt í landbúnaðarsýningunni sem fram fer á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 22. til 24. ágúst. Þar munu sérfræðingar okkar kynna tæki og tól frá Komatsu, Hinowa, JLG, Topcon o.fl. Vonumst til að sjá sem flesta! Dalvegi 6-8 /// 201 Kópavogi Sími 535 3500///

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.