24 stundir


24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 31

24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 31
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 31 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Þetta hefur verið gott grillsumar,“ segir Oddur Árnason, verksmiðju- stjóri Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli. Fyrirtækið kynnir fram- leiðslu sína á Landbúnaðarsýning- unni á Hellu um helgina: nýjungar sem hafa komið á markaðinn und- anfarið og hafa fengið góðar við- tökur neytenda. Þar má meðal annars nefna sérkryddað folalda- kjöt sem hefur slegið í gegn og ver- ið einkar vinsælt á grillið. Með keim villibráðar Oddur segir að í tímans rás hafi hrossakjöt almennt verið mjög vanmetið sem afurð og yfirleitt ekki nýtt nema sem reykt og saltað. Þetta megi vafalaust rekja til þess að mörgum þótti og þykir raunar enn ekki við hæfi að borða kjöt af hestum – sem séu um svo margt nánir mannfólkinu. Eigi að síður sé folaldakjötið ljúffengt og lystugt eins og best hafi sannast í sumar þegar SS kom á markaðinn með kjötið sérkryddað. „Við erum að framleiða krydd- legna vöðva og kótilettur sem unn- ið er úr læri og hrygg. Síðan notum við frampartinn í saltkjöt og reyk. En í sumar höfum við lagt meg- ináhersluna á kryddaða kjötið sem mörgum þykir hafa keim villibráð- arinnar líkt og til dæmis hrein- dýrakjöt,“ segir Oddur. Þá er eitt af flaggskipum í vöruflóru SS létt- reykt og kryddlegið lambalæri með villiberjablöndu og hefur selst vel í sumar. Markaðurinn kallar á nýjungar Oddur bætir við að hverskonar vöruþróun sé mikilvægur þáttur í starfi SS enda kalli markaðurinn jafnan eftir nýjungum. Kryddlegið nautakjöt sé eitt af því sem Slát- urfélagið hafi komið með nýtt á markaðinn í ár og eins villi- hvítlaukslambalæri og villikrydd- aðar tvírifjur úr lambi. Grískar grísasneiðar, tröllapylsur og grill- þrenna með þremur pylsuteg- undum hafi sömuleiðis fengið góð- ar viðtökur neytenda sem Oddur segir að sé starfsmönnum SS mikil hvatning á þeirri braut að bjóða neytendum upp á fleiri nýjungar og veisluföng sem vinsælda njóta. Fremstir í flokki Framleiðsla SS hefur fengið ýmsar viðurkenningar og kjötiðnaðarmenn félagsins þykja góðir. Oddur Árnason er annar frá vinstri í efri röð. Ýmsar nýjungar í framleiðslu SS Sérkryddað folaldakjöt hefur slegið í gegn ➤ Sérkryddað folaldakjöt slær ígegn. ➤ Hrossakjöt er vanmetin afurð. ➤ Grísasneiðar og grillþrennaeru afar vinsælir réttir. ➤ Margar nýjungar eru vænt-anlegar á markaðinn. NÝTT HJÁ SS Sláturfélag Suðurlands er í stöðugri vöruþróun og kemur oft með nýjungar inn á markaðinn. Á Land- búnaðarsýningunni á Hellu verða kynningar á helstu nýjungum. Má þar nefna sérkryddað folaldakjöt sem notið hefur mikilla vinsælda hjá neytendum. Ljúffengt Eitt af flaggskipum vöru- flóru SS er léttreykt og kryddlegið lambalæri með villiberjablöndu. Ungmennafélagið Vaka mun flytja leikþáttinn Gilitrutt á kvöld- vöku mótsins. Ungmennafélagið var stofnað í Villingaholtshreppi hinn 19. júní 1936 og voru stofn- félagar 40 talsins. Allt frá fyrsta degi hefur félagið verið brautryðj- andi í félagslífi sveitarinnar og má segja að hvert einasta ungmenni sem þar hefur alist upp hafi notið góðs af félaginu í leik og starfi. Í dag eru félagsmenn rúmlega 100 talsins. Ferðalög og skemmtanir Íþróttir og menningarlíf eru viðamiklir þættir í starfinu og eru starfandi innan félagsins þrjár nefndir, íþróttanefnd, skemmti- nefnd og ritnefnd. Félagið stendur fyrir fjölmörgum skemmtunum, ferðalögum og samkomum ár hvert. maria@24stundir.is UMF Vaka flytur leikþáttinn Gilitrutt Brautryðjandi í félagslífi sveitarinnar Á sýningunni mun fjár- og hjarðhundadeild Hundarækt- arfélags Íslands standa fyrir kynn- ingu á þeim tegundum sem til- heyra deildinni auk þess sem border collie verða sýndir á sér- stakri smalahundasýningu. Vinna mjög sjálfstætt „Sýndir verða einn eða tveir hundar á innanhússvæði og sýnt bæði hvernig þeir vinna og hvernig þeim er kennt. Border collie er langalgengasti fjárhundurinn og flestir sauðfjárbændur eiga einn slíkan. Þeir eru mismikið tamdir en svona hundur kemur í margra manna stað við smalamennsku og eru eiginleikar hans að geta unnið mjög sjálfstætt og hægt er að senda slíka hunda langar vegalengdir til að sækja fé og þeir leitast við halda fénu í hóp,“ segir Guðrún Sigurð- ardóttir hjá fjár- og hjarð- hundadeild. maria@24stundir.is Border collie sýndir á smalahundasýningu Í margra manna stað „Hrútar eru þuklaðir í þeim til- gangi að vita hvernig þeir hafa komið undan sumri,“ segir Þórey Bjarnadóttir, sauðfjárrækt- arráðunautur hjá Búnaðarsam- bandi Suðurlands, sem heldur ut- an um hrútaþukl fyrir vana og óvana á Landbúnaðarsýningunni í ár. „Við verðum með fjóra hrúta sem koma við sögu í hrútaþuklinu. Skipt verður í flokk vanra og óvanra þuklara. Þeir vönu fara fag- lega að málum og einbeita sér að atriðum eins og hryggbreidd, læra- dýpt og öðru slíku meðan hinir óvönu gera þetta ef til vill meira til skemmtunar og til þess að kynnast greininni.“ Þórey segir þuklið ekki skapa sérstök óþægindi fyrir hrútana. „Meðan þuklarar athafna sig þarf einn að halda í hrútinn. Sá er kallaður íhaldsmaður. Hrútarnir eru oftast rólegir við þuklið en sætta sig þó illa við ef kúlurnar eru athugaðar.“ Forystusauðir og ferhyrnt fé Á sýningunni verða einnig for- ystusauðir og ferhyrnt fé. „For- ystukindurnar þykja mörgum merkilegar,“ segir Þórey og nefnir að margar sögur séu til af merki- legum forystukindum. „Þær eru mislitar, léttbyggðari og auðþekkt- ar í hóp vegna vakandi atferlis og snöggra hreyfinga.“ dista@24stundir.is Forystusauður Heldur fé til beit- ar og fer fyrir þegar rekið er af fjalli. Hvað er hrútaþukl? Hrútaþukl, forystusauðir og ferhyrnt sauðfé „Við munum verða með 200 fermetra svæði þar sem verður kynnt öll framleiðsla sem rúmast innan garðyrkjunnar og þar er af nógu að taka,“ segir Bjarni Jóns- son, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda, sem verður með eitt allra stærsta plássið á Land- búnaðarsýningunni. Gríðarlegur uppgangur „Á svæðinu hjá okkur verða meðal annars Sölufélag garðyrkju- manna, Þykkvabæjarkartöflur og svo má ekki gleyma lífrænt rækt- aða grænmetinu,“ segir Bjarni og bætir við að plássið sem þau hafi til umráða endurspegli mikilvægi garðyrkjubænda innan landbún- aðarins. „Gróskan hjá garð- yrkjubændum er gríðarleg. Það sem gerðist eftir 2002 er það að það var eitthvað um úreldingu. Margir sem voru með gömul tæki úreltust og hættu. Þeir sem eftir urðu brettu upp ermar og hófu fjárfestingar sem miðuðu að því að auka hagræðingu,“ segir Bjarni og heldur áfram. „Það hefur skilað sér í stærri fyrirtækjum, hagkvæmni í rekstri, mikilli framleiðsluaukn- ingu og ekki síst lægra verði á til dæmis grænmeti fyrir neytendur. Afar dýrmætt vörumerki „Samkvæmt vörumerkjakönnun sem við létum gera í vetur þá er vörumerkið íslenskt grænmeti í topp tíu á íslenskum markaði og þá eru vörumerki eins og kók og pepsí með í reikningnum.“ haukurh@24stundir.is Staða íslensks grænmetis með ólíkindum góð segir Bjarni Jónsson Mikill uppgangur garðyrkjubænda Íslenskt grænmeti Staða þess er með ólíkindum góð.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.