24 stundir - 19.08.2008, Qupperneq 34
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Kröfur til barna um sjálfstæði
aukast mjög við að byrja í grunn-
skóla en að sama skapi aukast
kröfurnar til foreldra,“ segir Urð-
ur Njarðvík sálfræðingur. Hún
segir reyna á foreldra að undirbúa
börnin enda sé þetta mikil breyt-
ing fyrir þá. Þeir séu vanir því að
vera hræddur og finnast eitthvað
erfitt en að slíkt eigi að ræða við
foreldrana og kennarann svo hægt
sé að leysa málið. Þá er mikilvægt
að undirbúa barnið undir að fara
í íþróttir, kenna því að fara að fara
í sturtu og nota salerni sjálfstætt.
Eins segir hún að mikilvægt sé
að foreldrar gangi með börnunum
fyrstu dagana í skólann og að gera
ekki þá kröfu til barnsins að það
geti gert allt á fyrsta degi. Hún
segir óskastöðu ef fólk geti stytt
vinnudagana sína fyrstu dagana
svo það geti sótt börnin í skólann
því mikið andlegt álag fylgi breyt-
ingunum.
„Jákvætt viðhorf foreldra skiptir
mjög miklu máli. Það að barnið
finni að foreldrarnir séu ekki
stressaðir og að skilaboðin séu
þau að þetta verði skemmtilegt
fyrir barnið og að það ráði við
þetta.“
Jákvætt viðhorf Barnið
þarf að finna að foreldrarnir
séu ekki stressaðir.
Foreldrar þurfa að búa börnin sín undir að byrja í skóla
Skólaganga eykur
kröfur til foreldra
Grunnskólar landsins
verða settir á fimmtudag
en rúmlega 4000 börn
byrja þá í fyrsta bekk.
Skólagöngunni fylgja
miklar breytingar fyrir
börnin en ekki síður fyrir
foreldra sem eru vanir ut-
anumhaldi leikskólanna.
➤ Regla er mjög mikilvæg fyrirbörn, sérstaklega þegar þau
takast á við nýjar aðstæður.
➤ Svefnleysi og óregla á mat-málstímum minnkar getu
þeirra til að takast á við and-
legt álag.
➤ Fyrstu dagana í skólanum ermjög mikilvægt að foreldr-
arnir séu til staðar fyrir börn-
in til skrafs og ráðagerða.
UNDIRBÚNINGUR
passað sé mjög vel upp á börnin í
leikskólunum en nú þurfi þau að
sjá um fleiri hluti sjálf. Börnin
þurfi því meira utanumhald.
Urður segir mikilvægt að for-
eldrar undirbúi barnið fyrir breyt-
ingarnar sem í vændum eru. Þau
þurfi að vita að það sé í lagi að
Ókláraðar ritgerðir þekktur vandi
Það vandamál að fólk ljúki ekki
BA- eða BS-ritgerðum þótt það
hafi lokið við námið að öðru leyti
er jafn gamalt Háskóla Íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Nemendaskrá Háskóla Íslands
hefur fjöldi þeirra þó aldrei verið
tekinn saman en vandinn er vel
þekktur.
Fólk hugsar með sér að það fresti
ritgerðarskrifum og útskrift um
eina önn en í millitíðinni tekur
það til við önnur spennandi verk-
efni og smám saman verður rit-
gerðin bæði fjarlægari og erfiðari
í hugum fólks.
Í Háskóla Íslands er miðað við að
grunnnám taki þrjú ár en frest-
urinn til að ljúka því er fimm ár.
Eftir það fyrnast elstu nám-
skeiðin og það að klára ritgerðina
verður ekki nóg til að ljúka prófi
heldur þarf fólk að sitja aftur
fyrstu kúrsana í náminu.
Það vex fólki í augum og því hef-
ur fjöldi fólks eytt mörgum árum
í háskólanám sem það fær ekki
metið á vinnumarkaðinum og út-
skrifast aldrei. aak
34 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
Opna háskólanum, sem nýlega
var hrint af stað við Háskólann í
Reykjavík, er ætlað að stuðla að
símenntun og þjónustu við at-
vinnulífið.
Rúmlega 400 námskeið eru á
námsskrá Opna háskólans og um
170 kennarar koma að kennslu,
bæði fræðimenn HR og kennarar
erlendra samstarfsháskóla auk
sérfræðinga úr íslensku atvinnu-
lífi.
Einingar Opna háskólans vinna í
dag með mörgum stærstu fyr-
irtækjum landsins, útskrifa fjölda
nemenda með löggildingar-,
starfsréttindi og diplómur, og
brúa bil inn í háskólanám með
einni elstu frumgreinadeild
landsins. Að auki vinnur Opni
háskólinn með fjölda virtra há-
skóla og fræðasetra.
Opinn háskóli við HR
Þrátt fyrir að hefðbundinni
skólagöngu sé lokið er ekki þar
með sagt að fólk hætti að læra.
Margir fara reglulega á námskeið
til að læra nýja íþrótt, dans,
tungumál eða rækta listræna
hæfileika. Hjá Mími símenntun
er boðið upp á fjölbreytt tungu-
málanámskeið en jafnframt nám-
skeið fyrir unglinga í hipphopp,
textagerð og teiknimynda-
sögugerð. Þá er líklegt að heima-
nám margra barna yrði auðveld-
ara ef fleiri færu á stærðfræði-
námskeið fyrir foreldra. aak
Námskeið fyrir
stóra sem smáa
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Barnið er að læra svo margt nýtt, það þarf að
sitja lengi í einu, fær ekki jafn mikinn tíma til
að leika sér.
menntun
Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins, er nýr framsækinn
framhaldsskóli sem byggir á traustum grunni Fjöltækni-
skóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík. Tækniskólinn býður
upp á öflugt og ölbreytt úrval tækni- og iðnmenntunar
ásamt námi til stúdentsprófs. Innan skólans eru ellefu
skólar, hver með sitt sérsvið, sem saman mynda einn
öflugasta framhaldsskóla landsins.
Tækniskólinn leggur ríka áherslu á alþjóðleg samskipti í
námi og starfi sem veitir nemendur og kennurum aukin
tækifæri.
www.tskoli.is
Nýnemar eru boðnir velkomnir í skólasetningu og kynningu á skólanum miðvikudaginn 20. ágúst
að Skólavörðuholti kl 13.30 í matsal nemenda á 3. hæð.
Stundartöflur verða afhentar eldri nemum kl 15.00 sama dag.
Aðstoð við innritun í kvöldskóla fer fram mánudaginn 18. ágúst og þriðjudaginn 19.ágúst milli
klukkan 17:00 – 18.30. Kennarar og skólastjórar hjálpa til við val og samsetningu stundatöflu.
Aðstoðin fer fram í matsal Tækniskólans á Skólavörðuholti og er hann staðsettur á þriðju hæð.
Við hlökkum til að sjá ykkur
starfsfólk Tækniskólans
Bjallan glymur