24 stundir - 19.08.2008, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 24stundir
Robert Downey junior sendi DC
Comics tóninn í viðtali við mo-
viehole.net á dögunum.
Þegar talið barst að nýju Batman
myndinni, The Dark Knight, fór
Robert á flug: „Mér leið eins og
bjána þegar ég sá hana, því hún er
eins og Ferrari söguþráðarins og
handrits. Fyrst skildi ég hana
samt ekki, þetta var ekki það sem
ég vildi sjá í bíómynd. En svo í
lokin, þurftu þeir að gera hann að
vonda gæjanum og þá bara, vá,
fattaði ég það allt. Þetta var svo
djöfullega sniðugt. Maður þarf
greinilega að vera með háskóla-
próf til að fatta myndina. En
veistu hvað? Fari DC Comics
fjandans til. Það er allt sem ég hef
að segja.“
Næstu myndir Roberts eru Tropic
Thunder og Iron Man 2. tsk
Robert Downey rífur kjaft
Nýjasta Batman myndin, The
Dark Knight, er orðin fjölsóttasta
kvikmynd sem Warner Bos hefur
dreift á Íslandi, að því er segir í
tilkynningu frá Samfilm.
Hún sló aðsóknarmet á frumsýn-
ingarhelginni en síðasta meti
náði hún um helgina, þegar hún
velti Harry Potter úr sessi á lista
yfir fjölsóttustu Warner Bros
myndirnar, því nú hafa rúmlega
60.000 manns barið hana augum.
The Dark Knight stærsta myndin
Hljómar ekki eins og
rispuð plata DJ Lucca
er lagin við danslögin.
Sander Kleinenberg og DJ Lucca á leið til landsins
Tímamótatörn
hjá Techno.is
Plötusnúðarnir Sander
Kleinenberg og DJ Lucca
eru væntanleg til lands-
ins á vegum Techno.is, en
þau eru tveir af vinsæl-
ustu plötusnúðum heims.
Fjörið fer fram á NASA.
lands til dæmis,“ segir Arnviður
Snorrason hjá Techno.is. Um
Kleinenberg þarf vart að fjölyrða,
enda einn alfrægasti plötusnúður
heims. Hin snoppufríða Dj
Lucca klifrar þó hratt upp met-
orðastigann, enda hefur hún
unnið með mörgu frægu fólki,
t.d. Van Dyk, Sasha og DJ Tiesto.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
22. ágúst og 6. september mun
Techno.is standa fyrir tímamóta-
tónleikum í teknótónlist, þegar
Sander Kleinenberg annars vegar
og hin lostafulla DJ Lucca hins
vegar „transa“ upp trylltan
teknólýðinn á NASA.
Sjaldgæfur heimsviðburður
„Það er afar sjaldgæft að
Sander troði upp í svona litlum
klúbbi og því hægt að tala um
algeran heimsviðburð. Hin fun-
heita DJ Lucca hefur verið að
gera góða hluti einnig, en hún
var valin besti plötusnúður Tékk-
Doyle, Julian Cotterau og Martin
Wheeler, sem sá um tónlist mynd-
arinnar, viðstödd hátíðina.
Mikil lyftistöng
Ljóst er að þessi verðlaun eru
mikil lyftistöng fyrir kvikmyndina
en hún fer í almenna sýningu í
frönskum kvikmyndahúsum á
morgun.
Í enn víðara samhengi er ljóst að
þessi viðurkenning mun skipta
sköpum fyrir gengi Skrapp út því
gæðastimpill frá tímaritinu Variety
hefur löngum geta hjálpað mynd-
um frá lítt þekktum þjóðum að
vekja athygli á sér. Enda er mark-
mið verðlaunanna að styðja sig-
urmyndina til alþjóðlegra vin-
sælda. viggo@24stundir.is
Íslensk-franska kvikmyndin
Skrapp út gerði góða hluti á hinni
svissnesku Locarno-kvik-
myndahátíð en myndin var á laug-
ardaginn heiðruð með hinum svo-
kölluðu Variety Piazza
Grande-verðlaunum.
Studd af Variety
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
þessi tilteknu verðlaun eru veitt á
hinni rótgrónu kvikmyndahátíð en
hátíðin hefur verið haldin á hverju
ári síðan 1946 og nú í 61. skipti.
Piazza Grande-verðlaunin eru
samstarfsverkefni milli skipuleggj-
enda hátíðarinnar og bandaríska
kvikmyndaritsins Variety en það
eru gagnrýnendur þess blaðs sem
velja sigurvegarann. Verðlaunin
draga nafn sitt af Piazza Grande-
„kvikmyndatorginu“ en þar eru
kvikmyndir sýndar undir berum
himni og rúmar torgið um 8.500
manns.
Einungis þær myndir sem sýnd-
ar eru á þessu torgi koma til greina
í sambandi við þessi verðlaun en
allar stærstu myndir hátíðarinnar
eru sýndar þar. Verðlaunin eru
veitt þeirri mynd sem dómnefnd
þykir hafa mikið listrænt gildi en
jafnframt hafa alla burði til að
höfða jafnt til almennings sem fag-
aðila.
Sólveig Anspach, leikstjóri
Skrapp út, tók sjálf við verðlaun-
um á Piazza Grande á laugardags-
kvöldið en ásamt henni voru leik-
ararnir Didda Jónsdóttir, Joy
Skrapp út til Sviss og vann
Piazza Grande Aðalsvið Locarno-kvikmyndahátíðarinnar þar sem 8.500 manns geta
notið kvikmynda undir berum himni.
Sólveig og föruneyti gera það gott í Locarno
FÓLK
24@24stundir.is a
Ljóst er að þessi verðlaun eru mikil lyftistöng fyrir kvik-
myndina en hún fer í almenna sýningu í frönskum kvik-
myndahúsum á morgun.
fréttir