24 stundir - 19.08.2008, Síða 43
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 43
Nemakortið gerir nemendum á framhalds- og
háskólastigi kleift að ferðast endurgjaldslaust
á umhverfisvænan og þægilegan hátt.
Nemendur með lögheimili í Reykjavík, Kópa-
vogi, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ
og Álftanesi eiga rétt á Nemakortinu skólaárið
2008-2009.
Sæktu um Nemakort á www.strætó.is
Deilisíðan The Pirate Bay komst í
fréttirnar í síðustu viku þegar
ítölsk stjórnvöld tóku sig til og
bönnuðu aðgang að síðunni. Int-
ernetþjónustur þar í landi lokuðu
alfarið á síðuna og þurftu for-
svarsmenn hinnar umdeildu vef-
síðu að grípa til ýmissa ráðstaf-
ana til að Ítalar gætu hlaðið niður
að vild.
Þessar aðgerðir ítalskra stjórn-
valda virðast þó hafa haft þver-
öfug áhrif því nú hefur komið í
ljós að umferð Ítala inn á síðuna
hefur aukist eftir að bannið tók
gildi. Samkvæmt tölum frá að-
standendum Pirate Bay hefur að-
sókn Ítala aukist um 5 prósent og
deilivefurinn hefur hækkað sig
um 10 sæti á lista fyrirtækisins
Alexa yfir vinsælustu áfangastaði
ítalskra netverja. vij
Mun vinsælli eftir bannið
Kjafturinn á Roseanne virðist í
réttum hlutföllum við skrokkinn
á henni, því hún fer mikinn á
bloggi sínu þessa dagana.
Fórnarlömb hennar að þessu
sinni eru feðginin Jon Voight og
Angelina Jolie, sem hún gagn-
rýnir fyrir að styðja ekki Obama
í forsetakosningunum ytra:
„Jon Voight er hrædd lítil stelpa
í bleiku ballett-pilsi, sem hagar
sér eins og Obama hafi ráfað inn
úr regnskóginum, með bein í
gegnum nefið og kommúnista-
ávarpið í lendaskýlunni. Þá seg-
ist frú Jolie vera hrifin af McCa-
in, en hún á að kallast upplýst,
eða veit hún ekki að hverjar þær
afrísku dætur hennar sem hún
heldur á í myndatökum, áttu
foreldra sem dóu vegna efna-
hagsaðgerða Repúblikanaflokks-
ins gegn Afríku síðan Reagan var
og hét?
Fjölskyldur þeirra eru fórn-
arlömb öfga-hægri stefnunnar
sem McCain stendur fyrir.
P.S. Það gæti reynst vel fyrir
sjálfsmynd barna þinna, vitandi
að móðir þeirra styður mann af
sama meiði til leiðtoga hins
frjálsa heims.“
Já, það verður ekki skafið af
henni Roseanne. Og hananú.
Roseanne ræðst
á Angelinu Jolie
Knattspyrnumaðurinn og sæta-
brauðið Cristiano Ronaldo var ný-
verið valinn „The ultimate gay
icon“ eða hin fullkomna táknmynd
samkynhneigðra af notendum
vefjarins gaygolddiggers.co.uk. Alls
voru það rúmlega 3.000 samkyn-
hneigðir Bretar sem kusu í kosn-
ingunni og naut Ronaldo mikillar
hylli meðal kjósenda.
Það vekur athygli við þessa
kosningu að Ronaldo hirðir topp-
sætið af Kylie Minogue en hún hef-
ur lengi verið á toppi þessa lista,
sem og annarra um sama málefni.
Hin heimsfræga Judy Garland sat í
þriðja sæti listans.
„Hann lítur út eins og draumur
hvers samkynhneigðs manns eða
konu,“ sagði talskona vefjarins
þegar niðurstaða kosningarinnar
var tilkynnt. „Hann var valinn
knattspyrnumaður ársins, skoraði
42 mörk á síðasta tímabili, og fyrr-
verandi kærasta hans segir að hann
sé hæfileikaríkur utan vallar. Það
virðist allt ganga honum í haginn.“
viggo@24stundir.is
Sykursætur Ronaldo
höfðar til kvenna á öllum
aldri en einnig til samkyn-
hneigðra.
Cristiano Ronaldo vinsæll meðal samkynhneigðra
Hefur sætaskipti
við Minogue
Knattspyrnukappinn
Cristiano Ronaldo var ný-
verið valinn hin full-
komna táknmynd sam-
kynhneigðra af
notendum vefjarins gay-
golddiggers.co.uk.
„Mér finnst að maður eigi að
vera „edgy“ og dansa á línunni.
Það er það sem ég er alltaf að reyna
að gera sem listamaður, það er að
fylgja hjartanu,“ segir Guðmundur
Ingi Þorvaldsson, höfundur barna-
plötunnar Sagan af Eyfa (bönnuð
börnum) sem er nýkomin út. Í
Sögunni af Eyfa er samnefndum
dreng fylgt eftir frá fæðingu til
fimmtán ára aldurs en líf hans er
enginn dans á rósum.
„Þegar hann er sex ára greinist
hann með hvítblæði. Pabbi hans
ætlar að gefa honum beinmerg en
þá kemur í ljós við DNA-greiningu
að pabbi hans er ekki pabbi hans.
Pabbi hans skýtur sig og mamma
hans dettur bara í það. Allt í einu,
á einum degi þá bara hrynur ver-
öld hans.“
Ljóst er að söguþráður sögunnar
er fjarri því að líkast þeim sögum
sem börn heyra nú til dags. Sagan
er nær því að líkjast hinum klass-
ísku Grimms-ævintýrum í nútíma-
útgáfu, þar sem börnum er ekki
hlíft við óþægilegri og dekkri hlið-
um lífsins.
„Ef þú ert að segja eitthvað eða
gagnrýna eitthvað þá hlýtur auð-
vitað einhver að móðgast einhvers
staðar,“ segir Guðmundur að-
spurður hvort hann óttist ekki að
hneyksla eða móðga fólk. „Ef þú
ætlar að gera einhverja list án þess
að móðga neinn og höfða til allra,
þá endarðu bara með Bahama-
lagið. Þú endar bara þar og ég hef
engan áhuga á því.“
Guðmundur er þó ekki bara að
hugsa um listræna sköpun heldur
er boðskapur sögunnar honum of-
arlega í huga.
„Það eru margir foreldrar sem
halda svo í sakleysi barnanna sinna
og hlífa þeim við lífinu og það er
alveg eins með þetta. Þess vegna
heitir sagan „bönnuð börnum“ því
það er svo margt sem gerist hjá
börnum sem ætti að vera bannað
börnum. Mér finnst svo skrýtið
þegar foreldrar neita að fræða
börnin sín um kynferðislegt of-
beldi gagnvart börnum. Því hvern
ætlarðu að vara við því ef ekki
börnin?“ segir Guðmundur Ingi að
lokum. viggo@24stundir.is
Nútíma Grimms-ævintýri
24 stundir/Valdís Thor
Bönnuð barnasaga
Ræðið við börnin
Guðmundur vill að for-
eldrar tali við börnin sín
um óþægilegu mál-
efnin.