24 stundir - 12.09.2008, Síða 7
24stundir FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 7
EFTIR
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Langdrægar rússneskar sprengi-
flugvélar flugu yfir Atlantshafið í
gær til að taka þátt í heræfingum í
Karíbahafi. Flugvélarnar hafa við-
dvöl á herflugvelli í Venesúela.
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
fagnaði komu Tupolev Tu-160
sprengiflugvélanna og sagðist jafn-
vel vonast til að fá að fljúga annarri
þeirra sjálfur.
Chavez segir að æfingin sé til
marks um að heimurinn sé að þok-
ast frá því að Bandaríkin gnæfi yfir
aðrar þjóðir á alþjóðasviðinu.
„Forysta Kanans er að baki,“ segir
hann.
Ekki síðan í kalda stríðinu
Þetta er í fyrsta sinn sem sem
rússneskar sprengivélar hafa lent á
Vesturlöndum síðan kalda stríðinu
lauk. Þær hófu för sína í norður-
hluta Rússlands og flugu í þrettán
klukkustundir yfir Norður-Íshaf
og Atlantshaf. Interfax hefur eftir
Alexander Drobísjevskí ofursta að
herþotur NATO hafi fylgt sprengi-
vélunum alla leiðina.
„Allt flug flughersins er og hefur
verið í fullu samræmi við alþjóð-
legar reglur um loftferðir yfir al-
þjóðlegu hafsvæði,“ segir Drobísj-
evskí og bætir við að ekki séu
kjarnavopn um borð í vélunum.
„Flugvélarnar munu fara í æfing-
arflug yfir hlutlausu hafsvæði í
nokkra daga, áður en þær snúa til
síns heima.“
Venesúela vígvæðist
Venesúela hefur líkt og Rússland
hagnast feikilega á hækkun olíu-
verðs undanfarið og eru Bandarík-
in einn helsti kaupandi venesú-
elskrar olíu. Ríkisstjórn Chavez
hefur upp á síðkastið nýtt olíu-
gróðann til að kaupa vígbúnað frá
Rússlandi fyrir milljarða Banda-
ríkjadala. Meðal þess sem hefur
verið á innkaupalista Venesúela eru
þyrlur, Kalashnikov-rifflar og orr-
ustuþotur.
Chavez lýsti því yfir í vikunni að
til stæði að festa kaup á rússnesk-
um kafbátum. Þá munu Rússar
hjálpa Venesúela að koma sér upp
loftvarnarkerfi.
Sýna mátt sinn
Auk sprengiflugvélanna tveggja
munu fjögur herskip og kafbátar
vera við æfingar undan ströndum
Venesúela. Þeirra á meðal er beiti-
skipið Pétur mikli og tundurspill-
irinn Tsjabanenkó aðmíráll – tvö
öflugustu skip Rússaflota. Alls
munu um 1.000 hermenn koma að
æfingunum.
„Rússland er að komast aftur á
það stig í afli og alþjóðasamskipt-
um sem það missti því miður við
lok síðustu aldar,“ segir rússneski
aðmírállinn Eduard Baltin.
Heimshorna-
flakk Rússa
Rússneskar sprengifluvélar héldu til Venesúela í gær Sameig-
inleg heræfing rússnesks flug- og sjóhers í Karíbahafinu
➤ Hugo Chavez, forseti Vene-súela, er dyggur bandamaður
Rússa á alþjóðasviðinu.
➤ Að sama skapi nýtir hannhvert tækifæri til að hnýta í
Bandaríkin.
➤ Chavez studdi aðgerðir Rússaí Georgíu einarðlega.
➤ Rússar segja heræfingunaekki tengjast ástandinu í
Georgíu, heldur hafi hún
löngu legið fyrir.
CHAVEZ OG RÚSSLAND
NordicPhotos/AFPSpenntur Hugo Chavez segist hlakka til að fljúga rússneskri sprengiflugvél.
STUTT
● Logar undir Ermarsundi Eld-
ur kviknaði í vöruflutningalest
sem var á leið um Ermarsunds-
göngin síðdegis í gær. Lestin var
komin langleiðina frá Englandi
til Frakklands þegar eldsins
varð vart og var umferð um
göngin samstundis stöðvuð.
Segir lögregla að 32 hafi verið
um borð. Átta þeirra slösuðust
lítillega, en enginn hlaut alvar-
leg meiðsl.
● Lýsir ekki sigri David Petra-
eus, hershöfðinginn sem stýrt
hefur aðgerðum Bandaríkj-
anna í Írak frá febrúar 2007,
segist aldrei munu nota orðið
„sigur“ til að lýsa ástandi
landsins. „Þetta er ekki þess
lags barátta að hægt sé að ná
völdum á hæð, setja niður
fána og snúa heim sigursæll,“
segir Petraeus í viðtali við
BBC.
Rússar hafa lýst sig reiðubúna að
setjast að samningaborðinu um
eldflaugavarnakerfið sem Banda-
ríkin hyggjast reisa í Póllandi og
Tékklandi. Sergei Lavrov, utanrík-
isráðherra Rússlands, segir það þó
háð því að kerfinu sé ekki beint
gegn Rússum.
„Við erum opnir fyrir alvarleg-
um viðræðum. Ef Bandaríkin og
Pólland eru tilbúin að ábyrgjast að
evrópska eldflaugavarnakerfinu sé
ekki beint gegn Rússlandi, þá erum
við reiðubúnir að skoða raunveru-
legar hugmyndir,“ segir Lavrov í
viðtali við Gazeta Wyborcza. „En
við erum að tala um tryggingu,
ekki yfirborðskenndar pólitískar
aðgerðir.“
Hugmyndir Bandaríkjamanna
um eldflaugavarnakerfi í fyrrver-
andi austantjaldsríkjum hafa mætt
harðri andstöðu í Kreml. Þar telja
menn kerfið raska valdajafnvægi á
svæðinu.
Bandaríkin segja að kerfið
myndi aldrei verða nógu öflugt til
að takast á við eldflaugaárás frá
Rússlandi. Tilgangur þess sé að
verjast mögulegum árásum frá
ríkjum á borð við Íran.
andresingi@24stundir.is
Rússar um eldflaugavarnir í Austur-Evrópu
Vilja tryggingu
Samak Sundaravej, sem neyddist
til að segja af sér sem forsætisráð-
herra Taílands fyrir þremur dög-
um, var í gær útnefndur forsætis-
ráðherraefni flokks síns að nýju.
Samak þurfti að segja af sér þeg-
ar dómstóll komst að þeirri nið-
urstöðu að hann hefði gerst sekur
um stjórnarskrárbrot með því að
stýra matreiðsluþætti í sjónvarpi í
ráðherratíð sinni. Dagana áður
höfðu harðvítug mótmæli geisað
víða um Taíland, þar sem afsagnar
Samaks var krafist.
Samak og flokkur hans beygðu
sig undir niðurstöðu réttarins, en
segja að ekkert standi í vegi fyrir
endurkjöri hans.
„Ég þakka flokknum fyrir að
hafa útnefnt mig,“ sagði Samak í
gær. „Ég þigg útnefninguna til að
geta varið lýðræði í landinu.“ aij
Flokkur berst gegn mannabreytingu
Tefla brottreknum
manni aftur fram
Ráðherra í ríkisstjórn Nýju Suð-
ur-Wales í Ástralíu neyddist í gær
til að segja af sér fyrir þá sök að
hafa dansað næstum nakinn í
samkvæmi sem starfsfólk þing-
hússins efndi til.
Matt Brown, sem fór með lög-
reglumál í stjórn ríkisins, við-
urkenndi að framferði sitt hefði
ekki verið „mjög ráðherralegt“ en
gleðskapurinn eða drykkjuveisl-
an umrædda átti sér stað fyrir
þremur mánuðum. Þá klæddi
hann sig úr öllu nema „örstutt-
um“ nærbuxum og sýndi síðan
alls kyns danskúntir uppi á græn-
um leðursófa.
„Ég er bara breyskur maður og
mér urðu á mistök. Fyrir það geld
ég,“ sagði Brown en hann þver-
neitaði að hafa verið með ein-
hverja kynferðislega tilburði við
nafngreinda þingkonu.
Fyrst eftir að Brown hafði stigið
nærbuxnadansinn reyndi hann
að þegja um uppákomuna en
þjóð veit þá þrír vita og þá var
honum ekki sætt lengur. svs
Ekkert má
í Miðengi
Ummæli Eduards Kokoity, for-
seta Suður-Ossetíu, vöktu í gær
spurningar um hvort sjálfstæð-
isyfirlýsing landsins hafi aðeins
verið millileikur í sögu héraðsins.
„Nú erum við sjálfstætt ríki og
getum hlakkað til þess að samein-
ast Norður-Ossetíu og ganga inn
í Rússland,“ sagði hann við
fréttamenn Reuters.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, segir þetta af og frá.
„Suður-Ossetía sækist ekki eftir
að ganga í eina sæng með nein-
um,“ sagði Lavrov. aij
Suður-Ossetía í
Rússland?
Søren Gade, varnarmálaráðherra
Dana, hefur mælt fyrir því að 31.
ágúst verði opinber fánadagur í
Danmörku. Vill hann að dag-
urinn verði helgaður störfum
danskra hermanna á erlendri
grund. Varð þessi dagur fyrir val-
inu þar sem Danir hófu þátttöku
í Flóabardaga 31. ágúst 1990, sem
Gade segir hafa markað tímamót
í starfi hersins. aij
Dannebrog að
húni fyrir dátana