24 stundir - 12.09.2008, Blaðsíða 13
Listapósturinn
8 . t b l . • 1 3 . á r g a n g u r • 1 2 . s e p t e m b e r 2 0 0 8 • 1 5 2 . t b l . f r á u p p h a f i
Listapósturinn · Útgefandi: Gallerí Fold, listmunasala · Rauðarárstíg 14, 105 Reykjavík · Sími: 551 0400 · fax: 551 0660 · Netfang: fold@myndlist.is · í Kringlunni, 103 Reykjavík · Sími: 568 0400 · Netfang: foldkringlan@myndlist.is ·
Heimasíða Gallerís Foldar og Listapóstsins er: www.myndlist.is · Ritstjóri: Tryggvi P. Friðriksson · Ábyrgðarmaður: Elínbjört Jónsdóttir · Umsjón heimasíðu: Jóhann Á. Hansen · Upplag: 95.000 prentuð eintök fylgja 24 stundum og 3300 rafræn
eintök, send ókeypis til áskrifenda.
Breytingar á uppboðunum
Undanfarið hefur orðið töluverð breyting á fram-
kvæmd listmunauppboðanna hérlendis. Nú er
verkaskráin ásamt myndum af öllum uppboðsverk-
unum aðgengileg á Netinu. Þetta hefur í för með sér
mikið hagræði. Miklu fleiri hafa nú tækifæri til að
skoða það sem boðið er upp og skiptir ekki máli hvar
þeir eru staddir í veröldinni. Mörg þúsund manns
skoða verkin á netinu fyrir uppboðin og um
þriðjungur verkanna selst nú í gegn um forboð á
netinu eða í síma. Þetta gerir það reyndar að verkum
að heldur færri skoða forsýningar og ekki eru alveg
eins margir sem koma á uppboðin.
Gallerí Fold mun á næstunni auka þjónustuna á
Netinu. Innan tíðar verður hleypt af stokkunum
netuppboðum og þar verða seldir listmunir af ýmsu
tagi. Þessi tegund uppboða nýtur æ meiri vinsælda
erlendis.
BOÐSKORT
Opið er í Galleríi Fold virka daga frá kl.10–18, laugardaga frá kl. 11–16, og sunnudaga frá kl. 14–16.
Allir velkomnir á opnunina
Laugardaginn 13. september kl. 15 opnar Lilja Kristjánsdóttir
sýningu í Baksal Gallerís Foldar.
Lilja Kristjánsdóttir
sýnir í Baksal Gallerís Foldar
Lilja Kristjánsdóttir er fædd 1971. Hún stundaði nám við listabraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti
1988–1992, Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1993–1996 og fór sem Nordplusnemi í Konung-
lega listaháskólann í Stokkhólmi 1996.
Eftir að Lilja útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1996 hélt hún áfram að mála
dökkar myndir af fólki. Helstu mótíf hennar voru myndir af ættmennum og fjölskyldu. Í dag eru
forferðaminnin að mestu horfin en ofurmagn nútíma myndtákna komið í staðinn.
Yfirlitssýning á verkum
Braga Ásgeirssonar
á Kjarvalsstöðum
Sýningarinnar er beðið með nokurri eftirvæntingu, enda Bragi
tvímælalaust meðal mestu myndlistarmanna þjóðarinnar síðustu
áratugina. Í tilefni sýningarinnar kemur út vegleg sýningarskrá í
bókarformi, alls um 160 síður. Sýning Braga verður þó ekki í
öllu húsinu þótt full ástæða sé til, en Kjarvalssýning er í annarri
álmu hússins. Þetta minnir á að nauðsynlegt er að huga að
stækkum safnhússins svo það sinni betur hlutvekrki sínu.
Nýir sýningarsalir
Á Menningarnótt voru teknir í notkun tveir nýir sýningarsalir
í Fold á Rauðarárstígnum. Framsalurinn er nú tvöfalt stærri
en áður og kominn er nýr hliðarsalur. Þetta er kærkomin
viðbót. Nú eru sýningrsalirnir í Fold fimm talsins auk annars
sýningarrýmis, samtals á um 600 fermetrum.
Laugardaginn 13. september verður opnuð á
Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum
Braga Ásgeirssonar
Föstudaginn 12. september verður opnuð
á Háskólanum á Bifröst ljósmyndasýning
á verkum Jóhanns Hansen.
Sýningin stendur til 18. október.
Allir velkomnir.
Hjólin í Kína
ljósmyndir Jóhanns Hansen