24 stundir - 12.09.2008, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Styrktaraðilar mínir
standa enn þétt við bakið
á́ mér en auðvitað lít ég djúpt í
eigin barm ef illa fer núna.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Ég er eins tilbúinn í þennan
slag og ég get orðið held ég og
nú látum við skeika að sköp-
uðu,“ sagði Sigurpáll Geir
Sveinsson, kylfingur í Kili í
Mosfellsbæ, en hann stendur
sig hvað best þeirra fimm ís-
lensku keppenda sem nú taka
þátt í úrtökumótinu fyrir Evr-
ópumótaröðina í golfi en auk
hans hófu leik á þriðjudaginn
var þeir Heiðar Davíð Braga-
son, Stefán Már Stefánsson,
Sigurþór Jónsson og Arnór
Ingi Finnbjörnsson.
Hausinn er annað mál
Sigurpáll er ekki að reyna
sig á úrtökumóti fyrsta sinni.
Hann reyndi það sama fyrir
ári á þeim sama þýska velli og
hann leikur á nú. „Það kemur
til af því að mér finnst gott að
vera hér og spila enda gerðist
ekkert annað á síðasta ári en
að þetta andlega var ekki al-
veg með á nótunum. Spila-
mennskan var ekkert hræði-
leg. Ég veit alveg hvað ég get
með hvaða verkfæri sem er og
kann að nota það. Hausinn er
svo stundum annað mál.“
Á því virðist Sigurpáll hafa
fundið lausn því fyrstu hring-
ir hans þessa vikuna hafa ver-
ið ólíkt betri en í fyrra og
hann er enn eini Íslending-
urinn með raunhæfa mögu-
leika á að komast í þann 32
manna hóp sem fer áfram frá
Fleesensee á annað stig úr-
tökumótanna.
Fyrsti hring sinn spilaði
Sigurpáll á 72 höggum eða
pari vallarins. Alls ekki
hræðilegt nema hvað efsti
maður var á tíu höggum
undir. Annan hring sinn tók
Sigurpáll á 66 höggum og
komst við það í 19-26 sætið
en aðeins 32 efstu menn öðl-
ast keppnisrétt á öðru stigi
úrtökumótsins sem hefst síð-
ar í mánuðinum. Þegar 24
stundir fóru í prentun í gær
var ekki ljóst á hvaða skori
Sigurpáll hafði skilað sér í
hús að loknum þriðja keppn-
isdegi. Hann byrjaði ekki vel
og lék fyrri 9 holurnar á 3
höggum yfir pari.
Að loknum þriðja keppn-
isdegi var keppendum fækk-
að og þeir sem voru 7 högg-
um á eftir efsta manni fengu
að halda áfram.
Gríðarlega hörð keppni er
á úrtökumótinu fyrir Evr-
ópumótaröðina á hverju ári.
Rúmlega 800 kylfingar eru
skráðir til leiks á 1. stig úr-
tökumótsins sem fram fer á
6 völlum víðsvegar um Evr-
ópu.
Um 120 af þeim komast
áfram á 2. stigið en þar
mæta til leiks einnig þeir
sem hafa leikið á Áskorenda-
mótaröðinni á þessu keppn-
istímabili. Á 2. stigi mæta til
leiks rúmlega 300 kylfingar
og aðeins 25% af þeim kom-
ast á lokaúrtökumótið.
Sigurpáll Geir Sveinsson stendur sig vel í Þýskalandi
„Það er nú eða aldrei“
Léttur á fæti
Sigurpáll á
sæmilega
möguleika.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Munurinn á mér nú og fyr-
ir ári er að nú tel ég mig vera
í miklu betra andlegu jafn-
vægi og ekki eins spenntur
og stressaður og ég var fyrir
ári,“ segir Örn Ævar Hjart-
arson, kylfingur úr Golf-
klúbbi Suðurnesja, sem ólíkt
hinum fimm Íslendingunum
sem reyna að komast inn á
Evrópumótaröðina keppir í
Englandi á sama stað og í
fyrra en þá réð hann ekki við
spennuna og spilaði illa.
Sami völlur – minni
pressa
Örn Ævar telur þennan
umrædda völl, Oxfordshire,
engu að síður henta sér mun
betur en til að mynda sá
völlur er aðrir Íslendingar
reyna sig á í Þýskalandi. „Í
fyrsta lagi þekki ég völlinn
vel frá því í fyrra og auðvitað
tek ég æfingahringi nú um
helgina en hann hentar mér
mjög vel. Brautirnar eru
breiðar og grínin sömuleiðis
en hann er mun lengri en til
að mynda völlurinn í Flee-
sensee sem hinir strákarnir
völdu að spila á.“
Reynslan góður kennari
Venjan er kannski sú í líf-
inu að brennda barnið forð-
ist eldinn oftast nær og því
undarlegt að Örn Ævar velji
völlinn í Oxford en þátttak-
endur hafa úr allnokkrum
völlum að velja vítt og breitt.
„Það er trúin á sjálfan mig
sem skiptir máli. Ég er allt
annar andlega en fyrir ári
enda hef ég spilað talsvert á
atvinnumannamótum á þeim
tíma sem liðinn er. Í fyrra
var ég einn stressbolti og hélt
að heimurinn færist ef ég
næði ekki árangri en nú lít
ég þetta öðrum augum og
fyrir vikið er taugaspennan
minni og ég stjórna henni
betur. Þess utan er ég hundr-
að prósent viss um að spilið
mitt er nógu gott og ég hef
verið að sveifla vel að und-
anförnu. Reynslan kemur
mér vonandi til góða.“
Stöðutékk ef illa gengur
Örn Ævar setti sér það
þriggja ára markmið á síð-
asta ári að komast inn á Evr-
ópumótaröðina. Fyrsta til-
raun gekk ekki upp en
aðspurður hvað gerist ef
markmiðið næst ekki nú seg-
ir Örn það ekki breyta
miklu. „Ég á alveg að geta
farið einu sinni enn og fjár-
hagslega er staðan allt í lagi.
Styrktaraðilar mínir standa
enn þétt við bakið á mér en
auðvitað lít ég í eigin barm
ef þetta fer illa núna. Það
verður að koma í ljós.“
Örn Ævar Hjartarson reynir öðru sinni við Evrópumótsdrauminn
Í góðu andlegu jafnvægi
Örn Ævar Hefur leik á 1. stigi úr-
tökumóts fyrir Evrópumótaröðina
nú á þriðjudaginn.
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Föstudagur 12. september 2008
Krakkar úr Háteigsskóla
fara á þýska leiklistarhátíð.
»Meira í Morgunblaðinu
Frumsamið verk
Tölvuleikjaframleið-
andinn CCP hannar nýjan
alþjóðlegan leik.
» Meira í Morgunblaðinu
Sirkus kemur fyrir
Alveg ótrúlega góðir og
einfaldir veisluréttir.
» Meira í Morgunblaðinu
Fljótlegt og gott
Lækjargata 2 rifin í
frumeindir og flutt annað.
» Meira í Morgunblaðinu
Uppbygging í borg
Heldur rýr uppskera á
sjálfu ári kartöflunnar.
» Meira í Morgunblaðinu
Og kartaflan