24 stundir - 12.09.2008, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 24stundir
Rauðrófur eru hollar og má
nota þær í salat. Hér kemur einföld
uppskrift að slíku.
Innihald
100 g af hráum rauðrófum
250 g af gulrótum
búnt af vorlauk, fínt sneiddum
50 g kasjúhnetur eða salthnetur
150 g af hreinni jógúrt
Ein teskeið af hunangi og chillí-
og engiferduft.
Skerið rauðrófurnar og gulræt-
urnar niður í grófa bita. Bætið
öðru innihaldi saman við og
blandið vel saman í skál.
Rauðrófusalat
Með nútíma lífsháttum er mikil
eftirspurn eftir tilbúnum mat en þó
virðist landinn æ meðvitaðri um
hollustu og gildi góðs hráefnis.
Grímur Þór Gíslason er frum-
kvöðull í matvælaframleiðslu í Vest-
mannaeyjum en árið 2006 stofnaði
hann fyrirtækið Grímur kokkur
sem sérhæfir sig í tilbúnum fisk-
réttum.
Hollur og góður matur
„Vörumerki okkar stendur fyrir
hollan og bragðgóðan mat sem er
tilbúinn á innan við 5 mínútum,“
segir Grímur kokkur.
Á boðstólum eru fjölbreyttir fisk-
réttir, bæði þjóðlegir réttir og fram-
andi svo sem mexíkóskar fisk-
pönnukökur og grænmetisbuff.
„Þetta kom til því að okkur fannst
þörf á að vera með tilbúna fiskrétti
en framboð var nánast eingöngu af
tilbúnum kjötréttum,“ segir Grím-
ur og bætir við að réttirnir fáist
keyptir í öllum helstu matvöruversl-
unum landsins og séu ennfremur
án rotvarnarefna og MSG.
Börn vilja fisk
Að sögn Gríms eru réttirnir mik-
ið keyptir í mötuneyti fyrirtækja,
skóla og leikskóla. „Eitt af mark-
miðum okkar er að fá börn og ung-
linga til að borða meiri fisk,“ segir
Grímur en réttirnir renna einmitt
ljúflega niður í yngri kynslóðina.
Spurður hvað sé vinsælast segir
hann að þessir gömlu góðu standi
upp úr. „Fólk sækir sérstaklega í
réttina sem mamma og amma
gerðu í gamla daga, svo sem fiski-
bollur og plokkfisk. Við erum þó sí-
fellt að prófa eitthvað nýtt og vor-
um til að mynda að setja
humarsúpu á markað. Við eigum
samstarf við vinnslustöðina í Vest-
mannaeyjum með humarvinnsl-
una.“
Besti fiskur í heimi
„Lykillinn að góðri vöru er gott
hráefni,“ segir Grímur. Það eru bara
fimm mínútur á miðin og Grímur
vill meina að ferskasti fiskur í heimi
fáist í Vestmannaeyjum. Það sé því
tilvalið að fullvinna hann þar í stað
þess að flytja hann allan óunninn úr
landi; atvinna skapist og verðmætið
aukist. Við fyrirtækið starfa 14
manns og eykur starfsemi sem þessi
einnig fjölbreytni í atvinnumögu-
leikum fyrir Vestmannaeyinga.
Þrátt fyrir hið alræmda krepputal
kvartar Grímur ekki og kveður
starfsemina vaxandi.
Fiskréttir Gríms kokks renna ljúflega ofan í landann
Þessir gömlu góðu vinsælastir
Fiskibollur Fiskiboll-
urnar falla vel í kramið hjá
ungum sem öldnum.
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
FRÍ LEGUGREINING
og fagleg ráðgjöf
á heilsu- og
sjúkradýnum
BYLTING Í
SVEFNLAUSNUM
EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM
HAUSTTILBOÐ 10 -50 % AFSLÁTTUR
Fæst í heilsubúðum og matvöruverslunum.
...og þú þarft nánast ekki annað krydd!
Herbamare er létt blanda af
hafsalti og lífrænt ræktuðum
kryddjurtum. Það er notað
jöfnum höndum í matargerð
og sem borðsalt.
Herbamare er kjörið til að krydda
fisk, salöt, egg, grænmeti, súpur,
sósur, pasta, grjón og kjötrétti
og einnig kjörið á allan grillmat.
Herbamare er að sjálfsögðu
algerlega laust við MSG
(monosodium glutamat)
VINSÆLASTA KRYDDBLANDAN ÚR SMIÐJU A. VOGEL