24 stundir - 12.09.2008, Qupperneq 19
Mósaíklistaverkið Skólagangan
verður afhjúpað í Borgaskóla í dag
þegar skólinn fagnar tíu ára afmæli
sínu. Verkið er af tíu börnum að
leik og eru fyrirmyndirnar nem-
endur skólans. „Allir nemendur
skólans settu sína steina í listaverk-
ið þannig að þetta er samvinnu-
verkefni nemenda og starfsfólks
með stuðningi nemenda,“ segir
Inga Þ. Halldórsdóttir, skólastjóri
Borgaskóla.
Síðar um daginn verður mikil
hátíð þar sem leiktæki verða sett
upp og nemendur sjá um
skemmtiatriðin. Inga lofar sann-
kallaðri karnivalstemningu. „Þetta
verður eins og tíu ára afmæli á að
vera. Þegar við verðum 20 ára verð-
um við hátíðlegri.“
Nemendur og starfsmenn
Borgaskóla hafa aðra ástæðu til að
fagna í dag. „Við erum með
vistverndarstefnu sem við erum
alltaf að endurbæta og við fáum
Grænfánann sem viðurkenningu
fyrir það. Það er afskaplega gaman
að fá hann núna á degi umhverf-
isins,“ segir Inga að lokum.
Afmælishátíðin stendur kl. 16-
18 og fer fram í íþróttahúsi og á sal
skólans.
Karnivalstemning
24stundir FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 19
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Félagar í Lionsklúbbi Hafnar-
fjarðar efna til hátíðarhalda í til-
efni af 100 ára afmæli bæjarins á
laugardag. Hátíðina kalla þeir
einfaldlega Gaflaradag en bæj-
arbúar hafa lengi verið kallaðir
Gaflarar. Nafngiftin kom til þegar
ekki var róið vegna veðurs og
milli vertíða. Þá söfnuðust sjó-
menn gjarnan saman undir göfl-
um á verslunar- og pakkhúsa-
svæðinu við höfnina.
Hátíðarhöldin fara fram á
Thorsplani kl. 13-15.
Gaflarinn útnefndur
„Börnum er boðið að teikna og
mála á borðum sem verður komið
fyrir. Þarna verður barnatívolí og
útigrill bæði fyrir börn og full-
orðna,“ segir Gissur V. Kristjáns-
son, talsmaður Lionsklúbbsins.
Hljómsveit verður á staðnum og
leikur létta tónlist.
„Hátíðin nær síðan hámarki þeg-
ar Gaflari ársins verður útnefndur.
Við höfum útnefnt Gaflara ársins í
tíu ár. Það er alltaf mætur Hafnfirð-
ingur sem hefur unnið Hafnfirð-
ingum og Hafnarfjarðarbæ vel,“
segir Gissur og bætir við að í þess-
um hópi séu meðal annars kaup-
menn, kennarar, bæjarstjóri og út-
gerðarmenn. „Við veljum hann
innan klúbbsins og það er alltaf gert
í mjög góðri sátt. Það er nóg af góð-
um Göflurum að velja úr.“
Gaflaradagurinn markar jafn-
framt upphaf fjáröflunar Lions-
klúbbs Hafnarfjarðar og verða
Gaflaramerki seld á hátíðarsvæð-
inu á Thorsplani. „Ágóðinn núna
rennur til Fjarðar sem er íþrótta-
félag fatlaðra í Hafnarfirði,“ segir
Gissur að lokum.
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar heldur Gaflaradag
Það er enginn skortur
á góðum Göflurum
Gaflaradagurinn verður
haldinn hátíðlegur í
Hafnarfirði á laugardag.
Hátíðin nær hámarki þeg-
ar Gaflari ársins verður
útnefndur en mikil leynd
hvílir yfir því hver verður
fyrir valinu.
Gaflaradagur Félagar í
Lionsklúbbi Hafn-
arfjarðar blása til hátíðar. ➤ Lionsklúbburinn heldur Gafl-aradaginn í samvinnu við
bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
➤ Hátíðarhöldin fara fram álaugardag kl. 13-15.
➤ Gaflari ársins verður útnefnd-ur kl. 14.
GAFLARADAGURINN
Fjölbreytt dagskrá verður í
boði á hollvinadegi á Bifröst
laugardaginn 13. september.
Meðal annars kemur hljóm-
sveitin Upplyfting saman á ný
í tilefni dagsins og leika
Magnús Stefánsson og félagar
á tónleikum og dansleik um
kvöldið.
ej
Upplyfting
saman á ný
Danski snillingurinn Mogens
Wenzel Andreasen sem margir
minnast úr Kontrapunktsþátt-
unum vinsælu flytur erindi í
Salnum á sunnudagskvöld.
Erindið fjallar um áhrif nor-
rænna goðsagna á dönsk tón-
skáld seint á 19. öld. Að fyr-
irlestri loknum rifjar hann
upp Kontrapunktsþættina
ásamt íslenskum þátttakend-
unum. Dagskráin hefst kl. 20
og er aðgangseyrir 1.000 kr.
Snillingur úr
Kontrapunkti
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Við höfum útnefnt Gaflara ársins í
tíu ár. Það er alltaf mætur Hafn-
firðingur sem hefur unnið Hafnfirð-
ingum og Hafnarfjarðarbæ vel.
AkureyrarAkademían stendur fyrir afmælismálþingi til heiðurs kart-
öflum laugardaginn 13. september. Tilefnið er ekki eingöngu al-
þjóðlegt ár kartöflunnar í ár, heldur einnig 250 ára ræktunarafmæli
kartaflna á Íslandi og það að 200 ár eru liðin síðan ræktun þeirra hófst
í Búðargilinu á Akureyri. Dagskráin er fjölbreytt enda málþingið hugs-
að sem væn blanda af fræðum, listum, ræktun og matargerð með er-
indum, uppákomum, veisluhaldi og dansi. Málþingið er haldið í Hús-
mæðraskólanum við Þórunnarstræti 99 og hefst kl. 13.
Kartaflan í öllu sínu veldi
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
34
98
9
Nú höfum við opnað nýja Vínbúð í Skútuvogi 2 og
aukum þar með þjónustu okkar við viðskiptavini.
vinbudin.is
helgin