24 stundir - 12.09.2008, Page 27
Að vísu vó á móti hin meðvitaða
ákvörðun að rúlla r-inu að íslensk-
um sið, til að undirstrika hreiminn,
sem hefði þó mátt vera ögn þykkari.
Þá má einnig hrósa markaðsfólki
Icelandair og 66º Norður, en þessi
tvö fyrirtæki stálu næstum því sen-
unni, svo áberandi voru þau í „hlut-
verkum“ sínum.
Ævintýraheimur Jules Verne er
þó í aðalhlutverki, enda þótt aðeins
brot af honum skili sér í myndina.
Eftir stendur þó hin ágætasta
fjölskylduævintýramynd.
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Það var erfitt að hrista af sér þjóð-
arstoltið sem braust fram þegar
Anita Briem fyllti út í hvíta tjaldið í
Laugarásbíói í fyrrakvöld.
Loksins eigum við alvöru ís-
lenska Hollywood-kvikmynda-
stjörnu, þangað til annað kemur í
ljós.
Jules Verne „remixaður“
Jarðfræðinördinn Trevor fer
ásamt Sean bróðursyni sínum til Ís-
lands þegar skjálftamælar hans sýna
sömu tölur og tíu árum fyrr, þegar
bróðir hans týndist.
Við rætur Snæfells hitta þeir hina
íslensku leiðsögukonu Hönnu, sem
labbar með þeim á toppinn. Þegar
þangað er komið tekur ævintýra-
heimur Jules Verne við með (ó?)
fyrirsjáanlegum afleiðingum.
Anita skilar sínu
Ef ekki væri fyrir framúrstefnu-
lega þrívíddartækni, sem, eh …
öhh … bætir alveg nýrri vídd við
bíóupplifunina, væri þessi æv-
intýramynd vel undir meðallagi.
Tæknin er notuð óspart í byrjun,
með góðum árangri, og stóð und-
irritaður margan gestinn að því að
fálma út í loftið, því á tímabili virt-
ist sem bíómyndin ætlaði að hrifsa
bíógestina til sín.
Hin íslenska Anita Briem stend-
ur sig vel í hlutverki sínu sem ís-
lenskur leiðsögumaður, þó svo
enskur orðaforði og framburður
hennar hafi á tíðum verið merkilega
góður, í ljósi þess að persóna henn-
ar er einangruð íslensk afdalamær.
Undir grænni torfu Þremenningarnir á fleygiferð í iðrum jarðar, vopnuð vasaljósi og í
klæðnaði frá 66º Norður.
Skemmtileg ævintýramynd með íslensku ívafi
Leikstjóri: Eric Brevic.
Aðalhlutverk: Anita Briem, Brendan
Fraser, Josh Hutcherson.
Journey To The
Center Of The Earth
Nú fara lögfræðingar líklega að
velta því fyrir sér hvort tenórinn
Jóhann Friðgeir Valdimarsson sé til
í slaginn við Disney-fyrirtækið.
Glöggur lesandi benti okkur nefni-
lega á að teiknimyndafígúran Bósi
Ljósár úr Toy Story-teiknimynd-
unum þykir sláandi líkur söngv-
aranum og því kannski í lagi að
skoða það betur hvaðan þeir fengu
fyrirmyndina. Finnist einhver
tenging milli Jóhanns og Disney
gæti tenórinn átt von á stjarn-
fræðilegum bótum.
Allar tvífaraábendingar eru vel
þegnar. Sendið okkur tölvupóst á
24@24stundir.is.
Jóhann fyrirmynd Bósa Ljósárs?
24stundir FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 27
Leikkonan Pamela Anderson er
ekki par hrifin af varaforsetaefni
Repúplikanaflokksins í Banda-
ríkjunum. Þrátt fyrir að stúlkan
sé frá Kanada virðist hún hafa
sterkar skoðanir á forsetakosn-
ingunum því í nýlegu viðtali
sagðist hún ekki þola Söru Palin
og að hún „sökki“. Ein ástæðan
gæti verið að Pamela er yfirlýstur
dýravinur, en Palin veiðimaður.
bös
Pamela þolir
ekki Söru Palin
Ævintýramyndin Journey to the
Center of the Earth var frumsýnd í
fyrrakvöld í Laugarásbíói fyrir full-
um sal boðsgesta. Aðalleikkona
myndarinnar, Anita Briem, heiðr-
aði gesti með nærveru sinni, en
hún þótti standa sig vel og uppskar
lófaklapp í lokin.
traustis@24stundir.is
Glæsileg Anita tók
sig vel út í kjólnum.
Anita Briem mætti á forsýningu Journey to the Center of the Earth
Uppskar lófa-
klapp bíógesta
Forsýning á myndinni Jo-
urney to the Center of
the Earth fór fram í fyrra-
kvöld, þar sem hin ís-
lenska aðalleikkona
myndarinnar mætti á
svæðið ásamt fjölskyldu.
Í vinnunni Anita kemur
fram í Sjálfstæðu fólki
Jóns Ársæls von bráðar.
Afastelpa Anita
með afa sínum,
Gunnlaugi Briem.
Og ömmustelpa Hjördís
amma og Anita á góðri stund.
Poppkóngur Íslands, Páll Óskar
Hjálmtýsson, fékk afhenta svo-
kallaða stemningarnögl á verð-
launaafhendingu Monitors á
Apótekinu í gær þar sem blaðið
fagnaði eins árs afmæli sínu.
Verðlaunagripirnir eru brons-
eftirmyndir af gítarnöglum.
Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri
blaðsins, afhenti fjórar aðrar slík-
ar neglur. Sign fékk nögl fyrir
dugnað, Iceland Airwaves fékk
nögl fyrir framtakssemi, Mamm-
út fékk nögl fyrir framfarir og
sjónvarpsþátturinn Dagvaktin
fékk nögl fyrir samstarf.
Tólfta tölublaði Monitors var
dreift á staðnum en það prýðir
söngkonan Emilíana Torrini er
talar um nýju plötuna sína í við-
tali við blaðið. Nýr vefur Moni-
tors var einnig opnaður í tilefni
afmælisins en þar munu nokkrir
vefþættir hefja göngu sína. vij
Fékk stemning-
arnöglina
Til þess að fagna eins árs afmæli
sínu hefur útgáfufélagið Kimi Re-
cords ákveðið að gefa áhugasöm-
um lag af væntanlegri breiðskífu
Retro Stefson. Lagið heitir Paul is
Dead og vísar titillinn í þekkta
samsæriskenningu frá áttunda
áratugnum þegar ráðvilltir aðdá-
endur Bítlanna héldu því fram að
Paul McCartney væri dáinn og
staðgengill hefði komið í hans
stað. Á einu ári hefur eyfirska fyr-
irtækið gefið út fimm plötur og
þar á meðal er sívinsæl frumraun
Hjaltalíns. Á næstu mánuðum er
von á tveimur útgáfum til við-
bótar. Þar á meðal frumraun
Retro Stefson er fæst gefins á
kimirecords.net fram yfir helgi.
bös
Kimi gefur lag í
afmælisgjöf
Virkar fljótt og vel
Nauðsynlegt eftir sýklalyfjakúr
Við vandamálum í maga og ristli
Styrkir ónæmiskerfið
Bætir meltinguna og heilsufar
Eykur nýtingu nauðsynlegra
næringarefna
Framleitt í samráði við meltingar-
sérfræðinga. Bragðlaust duft,
þægileg inntaka.
Bowel Biotics+
Einstök blanda fyrir
meltingarveg barna
Fæst í apótekum og heilsubúðum Celsus
7 tegundir mjólkursýrugerla+
Prebiotica Inulin FOS+Trefjar
fyrir BÖRN
TVÍFARINN