24 stundir - 12.09.2008, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 24stundir
„Þulirnir sem lýstu leiknum gegn
Skotum, létu eins og .../... þorps-
fífl á fjórðudeildarleik um 1970.
Það eina sem greindi þessi gáfu-
menni ljósvakans frá fótbolta-
bullunum til forna, var að þeir
höfðu ekkert grjót til að kasta inn
á völlinn.“
Björgvin Valur
bjorgvin.eyjan.is
„Þegar ég var í MR var alltaf
nokkuð um að nemendur (eig-
inlega bara strákar) tækju upp á
því að skrifa með zetu. Þetta þótti
sumum ægilega fínt og töff. Ekki
veit ég hvers vegna. Verra var að í
langflestum tilvikum kunnu þess-
ir spjátrungar ekki að beita z-
reglunum rétt. “
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
„Ég fékk póst áðan frá Gallup.
Fyrsta spurningin snerist um það
af hvaða kyni ég væri. Möguleik-
arnir voru: Kona, Karl, Vil ekki
svara, Veit ekki. Ég held fjanda-
kornið að ef maður veit ekki af
hvaða kyni maður er geti maður
varla verið marktækur um ann-
að.“
Nanna Rögnvaldardóttir
nannar.blogspot.com
BLOGGARINN
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Fyrir ekki svo löngu voru fáir utan
Vestfjarða sem höfðu heyrt af
karlakórnum Fjallabræðrum. Eftir
velheppnaða tónleika á Menning-
arnótt og móttöku handbolta-
landsliðsins á Arnarhóli er nafnið
Fjallabræður nánast á allra vörum.
„Við erum náttúrulega bara ekkert
nema auðmýktin yfir því hversu
vel þetta hefur gengið. Þetta er
náttúrulega mikið boost fyrir
menn sem eru ekki betri söngvarar
en þetta að fá svona mikið að
gera,“ segir Stefán B. Önundarson,
einn meðlima Fjallabræðra. „Ég
held að leyndarmálið á bakvið
þetta sé að við syngjum allir með
pungnum. Það er málið, við syngj-
um bara ofboðslega hátt.“
Koma út úr söng-skápnum
Stefán segir það vera merkilegt
hversu vel kórmeðlimir nái saman
því stakir muni þeir seint teljast
heimsklassa söngvarar. „Allir sem
eru í þessum kór eru svona skápa-
söngvarar, það er að segja, þetta eru
menn sem alla langar til að syngja,
enginn þeirra hefur hæfileika til að
verða næsta rokkstjarna Íslands en
við erum rosalega fínir saman.“
Undanfarið hafa verkefnin bók-
staflega hlaðist upp hjá Fjalla-
bræðrum. Stefán segir að dag-
skráin framundan sé þétt bókuð.
„Við erum að fara í stúdíó á morg-
un að taka upp þrjú ný lög og eitt
jólalag. Við ætlum að vera með
jólalag Fjallabræðra núna fyrir jól-
in.“ Hann bætir því við að það geti
vart verið jól án jólasveina og ættu
Fjallabræður vel að geta fetað í fót-
spor hinna frægu sona Grýlu.
Syngja fyrir fjörðinn
Fjallabræður kalla ekki allt
ömmu sína en það sést glöggt á því
tónleikahaldi sem félagarnir stefna
að í tilefni af 60 ára afmæli Tónlist-
arskóla Ísafjarðar. Þá verður sviðið
býsna óhefðbundið því drengirnir
hyggjast koma fram á miðjum firð-
inum. „Við verðum þar í faðmi
fjalla blárra þar sem við munum
fylla bát af græjum og mönnum og
verðum svo á miðjum pollinum að
syngja fyrir fjörðinn,“ segir Stefán.
Í ljósi þess að Fjallabræður eru
yfir fimmtíu talsins er augljóst að
fleyið þarf að vera veglegt.„Þetta
verður sko enginn árabátur. Þetta
verður skip,“ segir Stefán.
Fjallabræður fara óhefðbundnar leiðir í tónlist sinni
Listin að syngja
ofboðslega hátt
Karlakórinn Fjallabræður
hefur vakið mikla athygli
undanfarna mánuði,
bæði fyrir kraftmikinn
söng og prúðmannlega
framkomu. Drengirnir
eru á leið í hljóðver.
Stefán Syngur ætíð með pungnum.
Mynd/Páll Önundarson
Hávær prúðmenni Lykillinn
að velgengni Fjallabræðra er
að syngja nógu hátt.
HEYRST HEFUR …
Það hefur vakið athygli að Anita Briem er ekki ein
hér á landi. Fylgisveinn hennar heitir Dean og er
kvikmyndaframleiðandi og góðvinur bandaríska
leikstjórans Eli Roth sem er tíður gestur hér á landi.
Ekki er vitað hvers eðlis samband Anitu og Dean er
en hann virðist fylgjast vel með öllu hvað varðar
sambönd hennar við fjölmiðla hér og leiðbeindi
henni m.a. í myndatökunni fyrir 24stundir. bös
Og meira um umstangið varðandi Anítu, því sím-
inn hjá pabba hennar Gulla Briem, hefur varla
stoppað eftir að fréttist af komu stúlkunnar til
landsins. Stúlkan hefur erlent vinnuafl í kynning-
armálum og hafa fjölmiðlar landsins því brugðið á
það ráð að hringja beint í pabba gamla til að reyna
að fiska viðtöl. Gulli hefur tekið þessu óvænta um-
boðsmannshlutverki fagnandi og gert vel. bös
Hópur barna frá Afríkulandinu Úganda hefur gefið
út afskaplega skemmtilega útgáfu af Bjarkar-laginu
All is full of Love. Lagið var gefið út á safnplötu á
vegum Bitone-samtakanna er gefur sig út fyrir að
bæta líf og vonir barna landsins á aldrinum 8-18 ára
sem á síðustu árum hafa orðið að þola stríð, fátækt
eða veikindi vegna sjúkdómsfaraldra. Slóð er á þessa
frábæru útgáfu lagsins af heimasíðu Bjarkar. bös
Eina Hollywoodstjarna okkar Ís-
lendinga, Anita Briem, íhugar að
reyna fyrir sér í tónlistinni. Hún á
nú ekki langt að sækja tónlist-
arhæfileikana, enda dóttir Gunn-
laugs Briem trommara Mezzoforte
er tók við Íslensku tónlist-
arverðlaununum ár eftir ár sem
besti trommari landsins. Það má
því ætla að stúlkan hafi fengið
mikið tónlistaruppeldi á heimili
sínu, bæði hér heima og í London
þar sem pabbi hennar starfaði um
hríð sem atvinnu-hljóðfæraleikari.
„Ég hef spilað tónlist alla mína
ævi,“ segir Anita. „Ég lærði á flaut-
ur þegar ég var yngri og nýlega tók
ég upp gítarinn. Ég er búin að vera
að syngja og spila aðeins.“
Þegar hún er spurð nánar út í
þetta áhugamál sitt viðurkennir
hún að vera byrjuð að semja og
syngja sín eigin lög og áhuginn á
að leyfa því að blómstra einhvern
daginn leynir sér ekki. „Já, ég er
aðeins byrjuð og það er mjög gam-
an að vinna í því. En ég segi
kannski betur frá því seinna þegar
það er lengra komið.“
Anita fylgist eins vel með ís-
lenskri tónlist og hún getur fyrir
utan landsteinana og hafa erlendir
blaðamenn oft rætt við hana. Hún
segir blaðamenn spyrja mikið um
Sigur Rós og Björk. „Fólk erlendis
dáist mikið að tónlistarfólkinu
okkar sem er mjög áberandi úti í
heimi. Ég er ákaflega stolt af því.
Við erum með alveg ótrúlega ríkt
tónlistarlíf.“
Stúlkan gaf engar vísbendingar
um það hvort eða hvenær hún
hygðist fara í hljóðver eða plötuút-
gáfu. biggi@24stundir.is
Anita Briem íhugar að breiða úr sér í listum
Semur og syngur
sín eigin lög
Anita Hefur greinilega ekki bara áhuga á
leiklist og langar til að syngja.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
2 8 7 1 6 9 5 3 4
3 4 9 2 5 8 7 6 1
1 5 6 3 4 7 8 9 2
8 7 3 6 1 4 9 2 5
9 1 5 8 2 3 4 7 6
4 6 2 7 9 5 1 8 3
5 9 8 4 3 6 2 1 7
6 2 4 9 7 1 3 5 8
7 3 1 5 8 2 6 4 9
Hugsa sér, ekki ein einasta feilnóta!
a
Þangað til ég sé botninn og
get farið að byggja upp. Ég
vona alltént að menn muni leggja
höfuðið í bleyti.
Verður kafað dýpra í þetta mál?
Freyr Antonsson er upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar,
en hann hefur undanfarið unnið að innflutningi kafbáts
fyrir ferðamenn til siglingar um EyjafjörðFÓLK
24@24stundir.is fréttir
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór