24 stundir - 12.09.2008, Qupperneq 32
24stundir
? Þegar verkfall ljósmæðra kom til um-ræðu á Alþingi í fyrradag var einn ráð-herra Samfylkingarinnar viðstaddur enfimm fjarverandi. Aðeins samgöngu-ráðherra hafði tíma til að hlusta á upprifj-anir stjórnarandstæðinga á fögrum orð-um og yfirlýsingum Samfylkingar úrkosningabaráttu og stjórnarsáttmála.
Hvað sagði í þeim plöggum? Eitthvað um
bættan hlut kvenna í umönnunar-
störfum, muni ég rétt. Hvernig ætli mæt-
ingin í fyrradag hefði verið hjá for-
ystufólki Samfylkingarinnar ef flokkurinn
væri í stjórnarandstöðu? Eða ræðurnar,
maður lifandi! Öll sú heilaga vandlæting
og mærð sem við hefðum heyrt. Hvílíka
vini sem ljósmæður hefðu átt. Maður
klökknar við tilhugsunina. Þjóðin stendur
með ljósmæðrum. Þjóðin stendur ekki
með ríkisstjórninni. Ljósmæður hafa fært
sannfærandi rök fyrir því að tímabært sé
að leiðrétta kjör þeirra, með hliðsjón af
öðrum háskólamenntuðum. Þetta er
sanngirnismál, réttlætismál. Eitthvað fyrir
alvöru jafnaðarmenn. En ferðaklúbbur
Samfylkingarinnar hefur sagt sig frá mál-
inu, þó annað veifið heyrist viðtöl við ráð-
herra á faraldsfæti sem hafa hyldjúpan
skilning á baráttu ljósmæðra, en tala að
öðru leyti eins og þeim sé málið óviðkom-
andi. Hinir meintu jafnaðarmenn segja
pass. Pólitískt frumkvæði þarf að koma
frá Sjálfstæðisflokknum. Vilji er allt sem
þarf. Og okkar snöfurlegi heilbrigð-
isráðherra hefur áður sýnt röggsemi og
leyst mál á kvöldi. Hver klukkustund sem
ljósmæður eru í verkfalli er samfélaginu
til minnkunar.
Áfram ljósmæður
Hrafn Jökulsson
skrifar um réttlætismál
YFIR STRIKIÐ
Hvar eru
jafnaðar-
menn?
24 LÍFIÐ
Nýjasta breiðskífa Atómstöðv-
arinnar, Exile Republic, þykir sýna
mikla framþróun hjá
sveitinni til hin betra.
Atómstöðin fær
þrjár stjörnur
»26
Rokk-karlakórinn er á leið í hljóð-
ver að taka upp fjögur lög, þar á
meðal eitt frumsamið
jólalag.
Mikið framundan
hjá Fjallabræðrum
»30
Lesið dóminn um Journey to the
Center of the Earth og skoðið
myndirnar frá frum-
sýningunni.
Mynd Anitu Briem
fær þrjár stjörnur
»27
● Frumsýning
Fýsnar „Ég
hlakka gríðarlega
til, þetta er góður
endir á löngu ferli,
þannig að þú hitt-
ir á mig á góðri
stund,“ segir leik-
ritaskáldið Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir, en verk
hennar Fýsn verður frumsýnt fyrir
troðfullum sal Borgarleikhússins í
kvöld. Þá er von á öðru verki á fjal-
irnar eftir Þórdísi.
„Ef allt gengur að óskum verður
leikritið Dansaðu við mig frum-
sýnt í október. Þetta er þó ekki
dansverk, heldur er dansað á
helstu málefnum tilverunnar.“
● Tónleika-
maraþon
„Þetta verður
svolítið mara-
þon. Við er-
um með
klukkutíma
prógramm og
síðan tekur 20
mínútur að keyra á milli staða,“
segir Þórarinn Hannesson sem
ætlar að halda þrenna tónleika í
þremur byggðarlögum í kvöld.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Ólafsfjarðarkirkju kl. 19.30, þeir
næstu í Knappstaðakirkju í
Fljótum og þeir síðustu í Siglu-
fjarðarkirkju. „Þetta verður al-
veg órafmagnað þannig að það
fer lítill tími í að koma sér fyrir.“
● Kynbundinn
launamunur
„Þetta undir-
strikar það að nú
er brýnt að fylgja
eftir ákvæðum
stjórnarsáttmálans
um að draga úr
kynbundnum
launamun og að lyfta kjörum um-
mönnunarstéttanna,“ segir Kristín
Ástgeirsdóttir um þær fréttir stétt-
arfélagsins SFR að launamunur
kynjanna hafi aukist um 3% milli
ára. „Auðvitað er þetta tíma-
skekkja, við erum að glíma við
rótgróið kynjakerfi,“ segir Kristín.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við