Eintak - 27.01.1994, Blaðsíða 37
“En sé litið á nýjan styrkleikalista Alþjóðaskíðasam-
bandsins (FIS) kemurí Ijós að fremstþeirra sem keppa í
alpagreinum ereini kvenmaðurinn í hópnum. Hún erí
82. sæti. Hinir keppendumir eru í 127. og238 sæti.“
Karlmenn eru fórnarlömb alls konar þjóð-
og goðsagna hvað varðar kynfæri og kyn-
hegðun og það er kominn tími til að sagna-
brunnur sturtuklefans fái eitthvað mótvægi
sem er læsilegt, aðgengilegt og fræðandi.
Bækur
HILMAR ÖRN HILMARSSON
Typpannatákn
Karlafræöarinn
Kenneth Purvis
* * * *
Það er hreint ótrúlegt hvað okk-
ur karlmönnum hefúr tekist að
koma okkur upp mörgum góðum
komplexum í kynlífsumræðunni á
undanförnum árum. Einn aðal-
komplexinn byggir á því að okkur
hefúr verið innrætt að allt hvað
varðar kynlíf hafi um árþúsundin
snúist um þarfir karlmannsins og
heimsskoðun hans sem byggir á
„typpamiðju“ eða fallósentrík svo
maður sletti bókmenntahugtökum.
Okkur yngri kynslóðum karl-
manna hefúr verið boðið, með viss-
um semingi þó, að leiðrétta þetta
misrétti á undanförnum áratugum
og ég hef eins og aðrir ástundað
mýkt, skilning og sektartilfinningu
og lesið mér til óbóta flest meginrit
kynlífsumræðunnar til þess að
öðlast skilning á hlutverki og eðli
karldýra í nútímasamfélagi. Það er
kannski ekki furða þegar megin-
heimild manns um karleðlið hefur
verið bók hins sjálfsyfirlýsta karl-
mannahatara Shere Hite, Beyond
the Male Myth, að ég hafi helst
viljað flokka mig sem lesbíu, — því
það er ólíkt skárra að falla undir þá
skilgreiningu þegar kemur að því
hvernig maður dregst að konum,
en að teljast til testeróntrylltra villi-
manna sem tengja hvert holdris
hugsanaferlinu: nauðgun, niður-
læging, stríð.
Nú er loks komin út bók fyrir
karlmenn á öllum aldri sem vilja
kanna hleypidómalaust það sem
gerist fýrir neðan beltisstað, tengja
það við framrás sögunnar og fram-
förum í Iæknisfræði. Karlaffæðar-
inn er rituð af enska lækninum
Kenneth Purvis sem jafnframt
hefur háskólagráðu í lífefna- og
lífeðlisfræði og hefur stundað
„karlalækningar" í Englandi, Sví-
þjóð og Noregi, nú síðast við Ríkis-
sjúkrahúsið í Osló. Það er skemmst
frá að segja að þetta er virkilega góð
bók og tímabær, blandar saman
gamni og alvöru eins og oft vill
verða í góðri sjúkravitjun og lipur
þýðing Stefáns Steinssonar
læknis lætur mann fljúga fýrirhafn-
arlaust yfir bókina.
Purvis hefur skemmtilegan stíl,
þó húmor hans verði hættulega
norskur á köflum, — en líklega er
ég bara hrifnari af
sjálfsmeðvituðum og fyndnum
breskum tepruskap en skandina-
vískum líbóheitum. Og bókin er
uppfull af skemmtilegum, söguleg-
um tilvísunum sem sýna og sanna
að þrátt fýrir allt höfum við gengið
til góðs þegar kemur að skilningi
okkar á kynfærunum og verkan
þeirra, — Purvis fer yfir velflestar
goðsögurnar sem tengjast leyndar-
limnum og parar þær saman við
vísindalegar staðreyndir og athug-
anir á skapandi hátt. Á umliðnum
árum hefur orðið mikil vitundar-
vakning meðal kvenna um verkan
og ásigkomulag kynfæra þeirra, en
karlmenn eru enn þá illa upplýstir
um sambærilega hluti hjá sér og eru
oft logandi hræddir úti í horni með
ýmsa smákvilla sem létt mál væri að
laga ef þeir þyrðu í læknisskoðun.
Aukin þekking á þessum þáttum
líffærafræðinnar getur aðeins
hjálpað okkur að takast á við ýmis
sammannleg vandamál, eytt ótta og
fordómum og um leið stuðlað að
betri heilsu og læknað ýmis hugar-
angur.
Karlmenn eru fórnarlömb alls
konar þjóð- og goðsagna hvað
varðar kynfæri og kynhegðun og
það er kominn tími til að sagna-
brunnur sturtuklefans fái eitthvað
mótvægi sem er læsilegt, aðgengi-
legt og ffæðandi. Þótt Karlafræðar-
inn sé engin allsherjarlausn, er
þetta góð byrjun og ég vona aðeins
að fleiri góð rit sama eðlis fýlgi í
kjölfarið. Það gæti kannski orðið til
þess að karlmenn geti rætt
ódrukknir og ódulbúið um typpið
á sér í kringum aldamótin. Og það
yrði stórt skref fyrir mannkynið.
íþróttir Jl
ARI MATTHÍASSON
Stefnt að 82. sœti
Ólympíuför SKlðAMANNA
Það er eðlilegt að þeir sem hafi
áhuga á íþróttum hugsi svolítið um
vetraríþróttir á veturna og sérstak-
lega þá vetur sem Ólympíuleikar
eru haldnir. Þá er rétt að kanna
hveijir séu okkar bestu keppnis-
menn í þeim greinum sem keppt er
í á leikunum. Auðvitað eiga þeir að
halda merki Islands hátt á lofti með
glæstum sigrum á erlendri grund
og sanna þar með fyrir öðrum
þjóðum að við erum einhvern veg-
inn öðrum fremri í því sem við tök-
um okkur fyrir hendur. Hér skal
ekkert til sparað og menn eru send-
ir í æfingabúðir vítt og breitt um
Evrópu og látnir æfa með fremstu
landsliðum álfunnar. Auk þess er
æft undir styrkri stjórn
landsliðsþjálfara í bestu skíðalönd-
um íslands.
Það sem vekur svo athygli er að
nú sextán dögum fyrir setningu
leikanna í Lillehammer hafa ein-
ungis fimm skíðamenn náð því lág-
marki sem Ólympíunefnd íslands
setti sem skilyrði fyrir þátttöku á
leikunum. Við fyrstu athugun
myndu auðvitað flestir ætla að
markmiðið væri að allir keppendur
kæmust á verðlaunapall eða að
minnsta kosti í úrslit, fýrst svo fáir
fara til Lillehammer.
En sé litið á nýjan styrkleikalista
Alþjóðaskíðasambandsins (FIS)
kemur í ljós að fremst þeirra sem
keppa í alpagreinum er eini
kvenmaðurinn í hópnum. Hún er í
82. sæti. Hinir keppendurnir eru í
127. og 238. sæti. Áuk þeirra keppa
svo tveir göngumenn ffá íslandi.
Ólympíunefndin íslenska setti
nefnilega lágmarkið fyrir þátttöku
að vera í hópi hinna 250 bestu.
Þetta var gert svo Júlíus Hafstein
þyrfti ekki að fara einn til Lille-
hammer fýrir íslands hönd.
Að ofansögðu er ljóst að það var
snjöll ráðstöfún hjá Ólympíunefnd
íslands að klæðast felulitum í Lille-
hammer, nefnilega hvítum skjól-
fatnaði frá Sjóklæðagerðinni.
ÓTTARR PROPPÉ
Egypskt myrkur
Type O Negative
Bloody Kisses
*
Þessi lítt þekkta thrashmetalsveit
ffá New York hefúr náð að lyfta sér
aðeins upp úr stöðnun thrash-sen-
unnar. Platan er tileinkuð þeim
sem hafa verið sviknir í tryggðum
og það heyrist. Hér ríkja drungaleg-
ir míníópusar innan um hugljúfari
ballöður. Einhver djúpraddaðasti
söngvari seinni tíma undirstrikar
djöfullegan bölmóðinn. Bloody
kisses er kærkomin tilbreyting þó
hún marki kannski ekki djúp spor í
tónlistarsöguna.
Hœtta á dansgólfi
Motorhead
Ace Of Spades Remix 12“
* K *
Lemmy og félagar hafa lengi
verið síðasta vígi þungarokksins og
nú er síðasta vígið fallið. Búið er að
gefa út dansmix af þungapönkslag-
aranum Ace of spades. Úffl Þótt
ótrúlegt megi virðast nær Motor-
headhjakkið að skína í gegnum æ-
randi diskóið. Bastarður þessi á að
geta komið jafnt dansóðum sem
hárþeyturum í brjálað diskóstuð.
Dansgólfið verður enn hættulegra
með tilkomu þessa.
Dúndurpopp
Pf.t Shop Boys
Very
* *
Upphleyptir takkar á appelsínu-
gulu plasthulstri, nafn hljómsveit-
arinnar svo gott sem ósýnilegt. Pet
shop boys hafa sjaldnast farið
troðnar slóðir. Konungar breska
(homma)diskósins eru í ang-
urværari kantinum á þessari plötu.
Lögin líða draumkennd hvert eftir
öðru. Þetta gerir að verkum að
Very virkar flöt í fýrstu. En hér róa
þeir kumpánar á kunnugleg mið
þegar betur er að gáð. Útsetningar
eru hlaðnar sem fyrr, djúp diskó-
alda knýr plötuna úr sporunum þar
til hún nær hámarki I Go west disk-
ógoðanna í Village People. Þetta er
dúndurpopp sem límist hægt og
sígandi á heilann.
Rislítil iðnvœðing
Revolting Cocks
Linger Ficken’ Good and Other
Barnyard Oddities
§
Revolting Cocks er ein eitt hugar-
fóstur Al Jourgensen og félaga í
Ministry. Þessi hljómsveit hefur
einbeitt sér að grófri Industrial
dansmúsík en sækir sér ímyndir úr
villta vestrinu. Síðasta plata þeirra,
meistarastykkið Beers, steers + que-
ers náði vel að blanda saman þess-
um hugðarefnum þannig að úr
varð dansvænt ferlíki, en hér fipast
Revco flugið. Linger ficken’ var að
sögn tekin upp samhliða Psalm 69
en þá hefur M/nisfry-platan fengið
allt púðrið. Það stendur ekki steinn
yfir steini á þessari plötu og ný út-
gáfa af do ya think I’m sexy jaðrar
við nauðgun. Ekkert sniðugt.
Óheflaðir Finnar
Radiopuhelimet
Jaameri
3f * 3f
Fátt heyrist í frændum okkar
Finnum hingað upp á sker þó þar í
landi blómstri rokkið. Radiopuhe-
limet er ein helsta rokkhljómsveit
Finna um þessar mundir og með
þeim betri í Evrópu. Jaameri er lítt
hefluð pönkrokkplata á hverri
keyrslunni linnir ekki. Það að text-
arnir séu illmeltanlegir okkur
Islendingum gerir bara að verkum
að tónlistin nýtur sín betur. Þegar
lagið heitir Musta pallo getur léleg-
ur texti varla spillt mikið fyrir ef
lagið svíkur ekki. Svo er á þessari
plötu.
Myrkur
Ingaló
Ríkissjónvarpinu
§
Þegar bíómyndin Ingaló var sýnd
í Stjörnubíói fyrir um það bil
tveimur árum var hún frekar slæm.
I dag er hún jafnvel enn verri. Eitt
er víst, myndin hefur ekki skánað
með aldrinum.
Við fylgjumst með einhverri In-
guló sem er svakalega reið yfir því
að fá ekki að fara á sveitaball. Hún
grípur til sinna ráða og fer á mörg
sveitaböll. Svo hittir hún alls konar
skuggaverur. Af röddunum má
þekkja að þær eru leiknar af þekkt-
um leikurum; Eggerti Þorleifs-
syni, Magnúsi Ólafssyni og Ing-
vari Sigurðssyni. Myndin er svo
illa lýst að það sést varla nokkur
skapaður hlutur nema í útiatriðun-
um. Samt má greina einhvern
óljósan söguþráð og ef grannt er að
gáð má jafnvel greina beinagrind af
einhverju sem gæti orðið góð, jafn-
vel oggulítið dramatísk saga. En öll-
um „pótens“ í þá áttina er slátrað
af... ja, hreiníega lélegri kvik-
myndagerð! Hvort sem það er
handrit, leikstjórn, klipping, taka,
hvað sem er, allt vinnur þetta sam-
an við að gera myndina vonda.
Meira að segja Eggert, sem er
þekktur fýrir að bjarga sér út úr
ótrúlegustu ruslmyndum, kemur
ekki nema í meðallagi hnarrreistur
út úr þessari. Og þá er nú mikið
sagt. Sólveig Amarsdóttir leikur
aðalhlutverkið og er jú þokkalega
sannfærandi sem einhvers konar
frekja.
Aðrir leikarar eru bara þarna og
reyna augljóslega að bjarga sér út úr
þessu sem best þeir geta.
Ingaló er mynd sem saman-
stendur af loðnum og sundurlaus-
um atriðum sem mynda leiðinlega
og óspennandi flatneskju. I raun
væri ekki svo galið að stilla Inguló
upp sem skólabókardæmi um
hvemig eigi ekki að gera myndir.
Hún er ekki einu sinni eftirminni-
leg fyrir hversu léleg hún er. Ég lét
alla vega blekkjast og horfði á hana
í annað sinn, hafandi séð hana í bíó
fýrir tveimur árum. Það er eins gott
að gæta sín á að sjá hana ekki í
þriðja skiptið þegar hún kemur út á
vídeói.
jBarnaelhi j
DAVÍÐ ALEXANDER, 9 ÁRA
Fín mynd
AlladIn
SambIóin
* * *
Mér finnst að það hefðu ekki átt
að vera þrír kossar í henni. Annars
er hún mjög vel gerð, skemmtileg
og spennandi. Það er allt í fínasta
lagi með íslenska talið, skemmtileg-
ar raddir.
Jón leiðinlegur
SPK
RIkissjónvarpinu
* *
Þetta er skemmtilegur spurn-
ingaþáttur með flínar spurningar.
Könnuðurinn skemmtilegur og svo
náttúrulega körfuboltinn. Mér
finnst gaman þegar einhver krakki
fær fullt af slími yfir sig. Snillings-
spurningar eru leiðinlegastar og
svo auðvitað Jón Gústafsson.
í l*gi
Með afa
Stöð 2
* * *
Þetta er frekar fínn þáttur. Sögu-
stundin er leiðinleg. Það er allt í lagi
með myndirnar sem krakkarnir
hafa sent þótt þær séu ekkert
sérstaklega skemmtilegar. Teikni-
myndir eru flestar mjög skemmti-
legar þótt það komi leiðinlegar inn
á milli.
„Sólveig Arnarsdóttir
leikur aðalhlutverkið og
er jú þokkalega sann-
færandi sem einhvers
konar frekja. “
„Þegar lagið heitir Musta
pallo getur lélegur texti
varla spillt mikið fyrir ef
lagið svíkur ekki. Svo er
á þessari plötu."
„Bloody kisses er
kærkomin tilbreyting
þó hún marki kannski
ekki djúp spor í
tónlistarsöguna. “
„Mér finnst að það
hefðu ekki átt að vera
þrír kossar í henni. Ann-
ars er hún mjög vel gerð,
skemmtileg og spenn-
andi.“
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994
37