Eintak

Eksemplar

Eintak - 10.03.1994, Side 6

Eintak - 10.03.1994, Side 6
Skoðanakönnun Skáís fyrir eintak Aðeins þríðjungur styður stjómina Mikill meirihlutí þjóðarinnar andvígur ríkisstjóm Davíðs Oddssonar. Stjómin í minna uppáhaidi hjá krötum en sjátfstæðismönnum. Samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar sem Skáís gerði um síðustu helgi er mikill meirihluti þjóðarinnar andsnúinn ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust aðeins 35,7 prósent styðja stjórnina. 64,3 pró- sent sögðust andvíg þessari stjórn. Af öllu úrtakinu sögðust 12,3 prósent vera óákveðin í afstöðu sinni til stjórnarinnar og 2,6 pró- sent neituðu að svara. 54,8 prósent sögðust andvíg stjórninni en 30,4 prósent íylgjandi. Það er því ljóst að meirihluti þjóðarinnar er á móti stjórninni. Kratar óhressir Ef bórið er saman hvað fólk sagðist ætla að kjósa og hver afstaða þess gagnvart stjórninni væri, kem- ur í ljós að kratar eru eitthvað óhressir með þessa stjórn sína. Að- eins 56 prósent þeirra treystu sér til að lýsa sig fylgismenn hennar en 33 prósent sögðust vera henni andvíg- ir. Útkoman hjá Sjálfstæðisflokkn- um var skárri. 79 prósent sjálfstæð- ismanna treystu sér til að lýsa yfir stuðningi við stjórnina og aðeins 10 prósent sögðust á móti henni. Skiljanlega naut stjórnin tak- markaðs fylgis meðal stuðnings- manna stjórnarandstöðuflokk- anna. Þó sögðust 9 prósent Alþýðu- bandalagsmanna og Kvennalista- kvenna'styðja stjórnina. Ríkisstjórnin fær ekki mikinn stuðning frá þeim sem ekki gátu gert upp hug sinn gagnvart flokk- unum. 53 prósent þeirra lýstu sig andvíga stjórninni en aðeins 27 prósent fylgjandi henni. En hvernig stjórn vill fólkið? Þegar þátttakendur í könnuninni voru spurðir hvers konar stjórn þeir vildu helst urðu svörin næsta ólík. 28 prósent sögðust óákveðnir, 6,2 prósent neituðu að svara en 65,8 prósent nefndu sína óskastjórn. Vinsælasta samsteypustjórnin var viðreisn, það er núverandi sam- steypustjórn krata og sjálfstæðis- manna. 19,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu kusu helst þetta stjórnarmynstur. Fast á hæla við- reisnar kom samsteypustjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks með 15,4 prósent fylgi, en sem kunnugt er hefur verið rætt um þess konar stjórn sem líklegasta kostinn eftir kosningar. Sam- steypustjórn núverandi stjórnar- andstöðu, Framsóknar, Alþýðu- bandalags og Kvennalista, kom þar á eftir með 13,3 prósent fylgi. Fjórða samsteypustjórnin sem naut telj- andi vinsælda var eins konar breið vinstri stjórn, stjórn allra flokka nema Sjálfstæðisflokks, sem fékk atkvæði frá 10,2 prósent þeirra sem tóku afstöðu. Síðan komu þessar stjórnir í réttri röð: Framsókn og Alþýðu- bandalag, Alþýðuflokkur og Fram- sókn, Sjálfstæðisflokkur og Kvennalisti og loks nýsköpun, eða Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu- bandalag. Ef þetta val fólks er skoðað kem- ur í ljós að 32,8 prósent völdu sér stjórnir sem kalla má vinstri stjórn- ir, það er, stjórnir án Sjálfstæðis- flolcks. Stjórnir með hægri slagsíðu, það er Sjálfstæðisflokkur með ann- að hvort Framsókn eða Alþýðu- flokk innanborðs, fengu 35,3 pró- sent atkvæða. Og sambræðslu- stjórnir Sjálfstæðisflokks og annað hvort Alþýðubandalags eða Kvennalista fengu 5,4 prósent fylgi. Draumórastjórnir Það voru hvorki fleiri né færri en 19 prósent þátttakenda sem vildu fá meirihlutastjórn síns flokks. Og til að þessir draumar rætist þarf mikið að ganga á. Alla vega fýrir stærsta einstaka hópinn sem vildi meiri- hlutastjórn Kvennalista, en það voru 7 prósent þeirra sem tóku af- stöðu í könnuninni. Kvennalistinn þyrfti að bæta við sig þingmönnum sem nema rúmum Sjálfstæðisflokki til að ná þessu marki. Sjálfstæðismenn komu næstir, en 6 prósent þeirra sem tóku afstöðu vildu meirihlutastjórn hans. Hinir flokkarnir, Framsókn, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag, fengu 2 prósent fylgi hver við sína meiri- hlutastjórn. Af þessum óskastjórnum öllum má sjá, að sú stjórn sem tekur við eftir næstu kosningar verður aldrei óskastjórn margra. En þannig er það oftast í fjölflokkakerfi. © Það er skammt á milli vátíð- inda frá heilsubælinu Gym 80 eins og það er kallað í síma- skránni. Sterkasti maður heims, JÓN PÁLL SlGMARSSON, lést þar við æfingar sínar eins og kunnugt er en skömmu áður hafði einn af eigendum stöðvarinnar, Jóhann MÖLLER yngri, orðið bráðkvaddur heima hjá sér. Almannarómur sagði að ofneysla stera tengdist dánaror- sök þeirra, án þess að það hafi ver- ið staðfest opinberlega. Á dögun- um gerðist það síðan að 44 ára maður fékk hjartaáfall eftir æfingar í stöðinni en að sögn GUÐGEIRS JÓNSSONAR, eins af eftirlifandi eigendum Gym 80, var maðurinn aðeins búinn að stunda líkamsrækt þar í tvo mánuði... inkaaðilar, sem eru í sam- keppni við kirkjugarðana um útfararþjónustu, telja sig hlunnfarna af klerkastéttinni. Þeir tsegja að þrestarnir vísi aðstandendum látinna nær undan- tekningalaust á hiö nýstofnaða fyrir- tæki kirkjugarð- anna í Reykjavíkur- prófastsdæmi, Út- fararstofu kirkju- garðanna, til að sjá um jarðarfarir. Þeim finnst þetta sérstaklega súrt í þroti vegna þess að eftir að kirkjugörðunum var bannað að seilast í kirkjugarðs- gjöldin til að greiða niður útfarirnar hafa þeir hækkað verðið hjá sér um tugi þúsunda. Nú er svo komið að það er ekki lengur ódýrast að leita til kirkjunnar á þessum markaði. Prestar hafa fengið sendar gjald- skrár einkaaðilanna sem staðfesta það en halda samt uppteknum hætti. Bent hefur verið á að hags- munir presta felist í því að hafa yfir- menn kirkjugarða góða því þaðan berast rífleg framlög til bygginga og viðhalds á kirkjum landsins... kolfallin Fylgi stjórnarinnar er enn minna en samanlagt fylgi stjórnarflokkanna, þvi afþeirn, sem afstöðu tóku til hennar, voru 35,7% fylgjandi henni, en 64,3% andvigir. 12,3% að- spurðra voru óákveðnir, en 2,6% neituðu að svara. Utan við bogann sést tala þingsæta, en innan svigans er breyting frá siðustu r, kosningum. innan bogans gefur ''oj að lita fylgi hvers flokks i hundraðshlutum, en innan svigans hlutfall atkvæða þeirra í síðustu kosn- ingum. Samkvæmt skoðanakönnun Ská- ís er meirihluti stjórnarinnar fallinn á þingi, þar sem stjórnarflokkarnir fengju 28 þing- menn kjörna, en stjórnar- andstaðan 35. Skoðanakönnun Skáís fyrir eintak um fylgi flokkanna Alþýðuflokkurinn minnkar um helming Kvennalistinn vinnur mikið á og Framsókn stækkar. Sjálfstæðisflokkurinn mlnnkar og Alþýðubandalagið vinnur ekkert á í stjórnarandstöðu. Ef niðurstöður skoðanakönnun- ar sem Skáls gerði fyrir EINTAK um helgina gengu eftir í kosning- um, myndu ríkisstjórnarflokkarnir hljóta afhroð. Alþýðuflokkur myndi missa helming þingflokksins eða fimm þingmenn. Sjálfstæðis- menn myndu missa þrjá þingmenn og 36 manna þingmeirihluti stjórn- arinnar myndi breytast í 28 manna minnihluta. Af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni sögðust 8,5 prósent ætla að kjósa Alþýðuflokkinn. Hann tapar því tæplega helmingn- um af fylgi sínu frá síðustu kosn- ingum. Þá fékk hann 15,5 prósent atkvæða og tíu menn kjörna. Hann fengi aðeins fimm samkvæmt nið- urstöðum könnunarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 33,2 prósent atkvæða og 23 þingmenn kjörna. I síðustu kosningum fékk flokkurinn 38,6 prósent atkvæða og 26 þingmenn kjörna. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar missti hann þrjá þingmenn. Kvennalistinn vinnur mest á Sá stjórnarandstöðuflokkur sem vinnur mest á samkvæmt könnun- inni er Kvennalistinn. 1 síðustu kosningum fékk listinn 8,3 prósent atkvæða en fengi nú 15,5 prósent eða næstum helmingi fleiri at- kvæði. Þingmannatala flokksins myndi tvöfaldast. Hann fengi tíu þingkonur í stað fímm. Framsóknarflokkurinn vinnur líka vel á samkvæmt þessari könn- un. I síðustu kosningum fékk flokkurinn 18,9 prósent atkvæða en fengi nú 24,4 prósent. Þingmenn hans yrðu sextán í stað þrettán. Eini stjórnarandstöðuflokkurinn sem ekki virðist græða á óvinsæld- um ríkisstjórnarinnar og lægð rík- isstjórnarflokkanna er Alþýðu- bandalagið. I kosningunum fékk flokkurinn 14,1 prósent atkvæða og fengi nú 14,0 prósent. Hann stend- ur því í stað og sömuleiðis þing- styrkur hans. Hann fengi níu þing- menn eins og áður. Viðreisn fallin Samkvæmtþessum niðurstöðum myndi ríkisstjórn Davíðs Oddsson- ar falla í kosningum sem færu fram ídag. Eftir þær kosningar yrði Sjálf- stæðisflokkurinn eftir sem áður eini flokkurinn sem gæti myndað tveggja flokka stjórn. Og hann hefði tvo kosti. Annars vegar Fram- sóknarflokkinn með 39 manna þingmeirihluta og hins vegar Kvennalistann með tæpum meiri- hluta, 33 þingmönnum. Þá gætu stjórnarandstöðuflokk- arnir þrír myndað trausta stjórn með 35 manna þingmeirihluta. 0 Ólafur Ragnar Grímsson Engir brestir í fylgi Alþýðubandalagsins „Þessi könnun sýnir svipaðar tölur um fylgi flokkanna og aörar kannanir hafa sýnt að undanförnu, nema hvað fylgi Kvennalistans virðist fara minnk- andi. Það sama á við um andstöðuna við ríkisstjórnina. Tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru á móti henni eins og verið hefur um tveggja ára skeið og stjórnarflokkarnir eru mjög langt frá því að halda meirihluta sínum á Al- þingi. Þessi könnun staðfestir það sama og aðrar kannanir hafa sýnt í rúmlega tvö ár að Alþýðubandalagið heldur sinu fylgi frá síðustu þingkosningum og gott betur. Það eru engir brestir í fylgi Alþýðubandalagsins." Steingrímur Hermannsson Sýnist enn eiga eftir að halla undan fæti „Ég fagna því að sjálfsögðu að fylgi Framsóknarflokksins er gott. Mér þykir vænt um að gagnrýni okkar á núverandi ríkisstjórn og ábendingar okkar um það sem betúr mætti fara og betur ætti að gera virðast fá hljómgrunn. Ég undrast ekki lítið fylgi stjórnarinnar og þykir satt að segja orðið alvarlegt hvað hún er aðgerða- lítil í þeirri stöðu sem við erum núna. Mér sýnist enn eiga eftir að halla und- an fæti hjá stjórninni og botninum sé ekki náð. Þessi könnun er auðvitað vísbending um að það þurfi að kjósa sem fyrst og mynda nýja ríkisstjórn." Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Býst allt eins við kosningum á árínu „Mór sýnist við geta vel við unað, því samkvæmt könnuninni erum við þriðji stærsti flokkurinn og það er ekki slæmt hlutskipti. Andstaðan við ríkis- stjórnina sýnir það sem þarf nú ekki nema heilbrigða skynsemi til að sjá, en það er að stjórnin er algjörlega heillum horfin. Ég held að almenning- ur sé búinn að átti sig á því eftir þess- ar síðustu uppákomur í landbúnaðar- málunum að þetta er ekki ríkisstjórn nema að nafninu til, hún getur ekki verið starfhæf eftir þau ósköp öll. Ég hef ekki mikla trú á því að þessi ríkis- stjórn komist í gegnum næsta vetur og býst allt eins við alþingiskosning- um á árinu." Friðrik Sophusson Ánægjulegt hve margir sjálfstæðis- menn eru ánægðir með stjórnina „Mér finnst nauðsynlegt að það komi fram að það er erfitt að meta svona könnun nema að hafa saman- burð í könnun sem er nákvæmlega eins, því gildi skoðanakannana felst fyrst og fremst í því að bera saman þróun þeirra. En mér sýnist fylgi Sjálf- stæðisflokksins vera nokkuð svipað og það hefur verið í könnunum síð- ustu mánuði og fylgi ríkisstjórnarinnar sömuleiðis. Ég held það hafi ekki far- ið framhjá nokkrum manni að milli stjórnarflokkanna hafi verið nokkrar deilur undanfarið. Ég hef hins vegar þá trú að nú þegar búið er að leysa búvörudeiluna, þá sé auðveldara fyrir ríkisstjórnina að sýna þann árangur sem hefur náðst í erfiðu árferði. Nefni ég þar til sögunnar stöðugt verðlag, verðbólga er sú minnsta sem hún hefur verið á iýðveldistíma, vextir hafa lækkað, erlendri skuldasöfnun hefur verið hætt, og svona má áfram telja. Það er hins vegar athyglisvert og ánægjulegt hve margir af fylgjendum Sjálfstæðisflokksins eru ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar.“ Petrína Baldursdóttir Lítið fyigi krata við stjómina ekki nýt'ðindi „Það ber að taka skoðanakannanir hæfilega alvarlega, en þær eru að sjálfsögðu ákveðin vísbending. Við höfum verið á þessu róli f síðustu könnunum svo þetta kemur mér síð- ur en svo á óvart. En þetta er um- hugsunarefni fyrir flokkinn. Ríkis- stjórnin hefur, allt frá því að hún var mynduð, átt á brattann að sækja meðal landsmanna, þannig að það er ekkert nýtt. Búvörudeilan hefur líka skaðað fylgi ríkisstjórnarinnar. Það gefur auga leið að svona deilur vekja tiltrú almennings á stjórnmálamönn- um og held ég að þær hafi óneitan- lega haft töluverð áhrif í þessari könn- un. Lítið fylgi stuðningsmanna Alþýðu- flokksins við stjórnina eru ekki ný tíð- indi. Það var mjög umdeilt meðal þeirra þegar flokkurinn fór út í þetta stjórnarsamband, þannig að þetta kemur ekki heldur á óvart." © 6 FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.