Eintak

Eksemplar

Eintak - 10.03.1994, Side 9

Eintak - 10.03.1994, Side 9
Reykjavkurnætur I Flúðu af landi brott frá skuldunum Tveir Portúgalar heilluðu fólk upp úr skónum og fengu það til að lána sér fé Tveir ungir Portúgalar Alvaro Texeira og Arthur Rodriguez sem störfúðu hér á landi um nokkurt skeið, hurfu af landi brott 1. mars síðastliðinn, með skuldaslóð á eftir sér. Alvaro hafði fengið stúlku til að gerast ábyrgðarmaður á 150.000 króna víxli fyrir sig og var aðeins búinn að borga 50.000 krónur af honum þegar hann lét sig hverfa. Að sögn stúlkunnar var féð notað til að kaupa notaðan amerískan bíi fyrir Arthur. Auk skuldarinnar við stúlkuna virðist Alvaro hafa fengið lán hjá kunningjum svo skiptir þúsundum króna. Honum var jafnframt sagt upp starfi sínu á kaffihúsinu Sólon íslandus vegna I úast má við aukinni sam- kkeppni kaupmanna í ferm- "ingargjafabransanum á næstunni. Radíóbúðin mun um miðjan mánuðinn opna verslun við hliðina á Dóminós pizzastaðnum við Grensásveg og hugmyndin er að bjóða þar meðal annars upp á hljómtækjasamstæður sem fluttar verða inn i gámavis. Fyrirmyndin er fengin frá svonefndum afsláttar- vöruhúsum í Bandaríkjunum sem fagna velgengni sinni af því að var- an er seld á sértilboðum og geymslu og fjármagnskostnaði er þannig haldið í lágmarki... INGER ANNA ElKMAN Útvarps- prestur er í fríi frá Ijósvakanum til að einbeita sér að sálfræðinámi við Háskóla íslands og undirbúa sig undir að eignast sitt fyrsta barn í júní. „Ég veit ekki hvort þetta er strákur eða stelpa, en ég held það verði strákur, „segir lnger.“ því ég held að ég sé miklu meiri stráka- mamma.“ Hún segist ekki reikna með að fara í útvarpið aftur fyrr en hún er búin að átta sig á hversu mikill tími og orka fer í móðurhlut- verkið. „Ég er samt með fullt af nýj- um hugmyndum en ég væri senni- lega óþolandi fyrir hlustendur því ég fjalla svo mikið um það sem ég er að ganga í gegnum og hætt er við að fátt annað en ungbörn og bleyjuþvottur kæmust að I þáttun- um“... Þann 25. mars næstkomandi verður karaokekeppni fjöl- miðlanna haldin á Tveimur vinum. Það er í sjálfu sér ekki í frá- sögur færandi. En tilkynning um keppnina barst eintaki með sím- bréfi frá Foldaskóla! Neðst í tilkynn- ingunni er tekið fram að hún hafi verið send til 13 fjölmiðla „og ég veit ekki hvað og hvað“, eins og segir orðrétt. Hvers vegna faxtæki Foldaskóla var notað með tilheyr- andi kostnaði til að boða til keppn- innar er ekki vitað en kannski ætla fulltrúar skólablaðsins að senda lagvísa fulltrúa sína til leiks... Isíðasta eintaki var sagt að Matthías Johannessen hefði fengið Ijóð birt eftir sig í Tímariti Máls & menningar á þessu ári. Það er ekki rétt. Hann hafði áður fengið Ijóð birt í fjórða hefti árið 1986. stuldar, skömmu áður en hann hélt utan. Kærasta Arthurs tók lán íyrir hönd þeirra beggja og situr hún nú ein uppi með það. Féð hafði meðal annars verið notað til að greiða Visa-reikning sem þau komu sér upp saman. Skuld Arthurs við stúlkuna nemur um 250.000 krón- Greiði gegn greiða Stúlkan sem gerðist ábyrgðar- maður Alvaros er á þrítugsaldri og vill ekki láta nafn síns getið. Hún segir Alvaro hafa komið vel fyrir sjónir í fyrstu. Hann er á 24. aldurs- ári og kom hingað til lands haustið 1992 þar eð hann halði kynnst ís- lenskri stúlku í Portúgal sumarið áður. Litlu síðar fékk hann vinnu sem þjónn á Sólon íslandus. „Ég hafði verið að láta mig dreyma um að setja á stofn bar í Portúgal. Alvaro og Arthur virtust vera þaulkunnugir börunum og diskótekunum þar og sögðust geta hjálpað mér. Þegar hann bað mig um að gerast ábyrgðarmaður á víxli fyrir sig, hugsaði ég mig vel um enda er þetta í fyrsta og eina skiptið sem ég hef skrifað upp á víxil fyrir einhvern. Ég leit á þetta sem greiða gegn greiða sem ég gæti þurff á að halda ef ég flytti út. En smám sam- an fór ég að átta mig á því hvers konar menn þetta voru og efast um heilindi þeirra,“ segir stúlkan. „Féð var notað til að borga upp í bíl af gerðinni Dodge Charger fyrir Art- hur sem kostaði alls 280.000 krón- ur. Alvaro hafði þá þegar keypt sér bíl af gerðinni Mustang á 250.000 krónur. Þeir fengu lánað fé af mjög mörgum án þess að neinir pappírar bæru þess vitni. Stuttu eftir að þeir voru farnir út kom nágranni þeirra á Sólon Islandus að leita að Alvaro. Hann ætlaði að innheimta 30.000 króna skuld og annan kunningja hans bar einnig að garði sem átti inni hjá honum 25.000 krónur. Það er ótrúlegt hvað þeir gátu gengið langt.“ Eins og fyrr sagði varð starfsferill Alvaros heldur endaslepptur á Sól- on Islandus. „Ég rak Alvaro fyrir þjófnað nokkru áður en hann sneri aftur heim til sín. Þetta er ekki sá fyrsti sem rekinn er héðan vegna þjófn- aðar. Ég held að Alvaro hafi haldið til Portúgals vegna brottvikningar- innar. Það er ekkert auðvelt að fá vinnu núna í Reykjavík,11 segir Edda Jónasardóttir sem sér um fjármálin á Sólon Islandus. Hún vill ekki láta uppi hve hárri upphæð Al- varo stal, eða hvort stjórn staðarins ætli að kæra manninn. Helgi Daní- elsson hjá RLR kannast ekki við að hann hafí verið kærður. Situr eftir með 250.000 króna skuld Arthur sem er tveimur árum yngri en Alvaro kom hingað til Íands í september af sömu ástæð- um, það er, vegna kynna sinna við íslenska stúlku. „Arthur skuldar mér 250.000 krónur og það eina sem hann hefur látið mér í té eru 10.000 krónur. Hann átti að borga fyrstu afborg- unina í janúar og gerði það ekki,“ segir stúlkan sem stendur á tvítugu. „Það eru ýmis önnur gjöld sem bætast ofan á upphæðina. Þegar ég bjó með Arthur, Alvaro og vinkonu minni var símreikningurinn til dæmis skrifaður á mig. Hann var allt í einu orðinn 14.000 krónur eft- ir aðeins tvær vikur. Það lenti á mér að borga þá upphæð. Við stelpurn- ar vorum í vinnu úti í bæ frá morgni til kvölds og höfðum ekki haft nokkurn tíma til að liggja í símanum." Stúlkan kynntist Arthuri á disk- óteki í Algarve síðasta sumar þegar hún var þaríleyfi. „Við hittumst eins oft og við gát- um en auðvitað kynntumst við ekkert að ráði því við höfðum stutt- an tíma,“ segir hún. „Þegar ég kom heim hringdum við oft hvort í ann- að. Við ákváðum að hittast í Lond- on um miðjan september og leita okkur að vinnu. Arthur sagðist ætla að sjá um að finna húsnæði og ég átti ekki að þurfa að hafa neinar áhyggjur af fjármálum. Ég tók þó með mér væna fjárupphæð ásamt Visa-kortinu. Það var eins gott, því peningar Arthurs kláruðust fljótt og á endanum var ég farin að sjá fyrir okkur báðum. Mér fannst það ekkert mál enda er ástin svo blind. Atvinnan lét á sér standa og hús- næðið var ótryggt. Eina nóttina höfðum við ekkert þak yfir höfuðið og ráfúðum bara um göturnar. Við fórum heim eftir þriggja vikna dvöl, Valið stóð á milli Islands og Portúgals og við afréðum að fara til íslands. Ég leit bara á það sem stoppustöð enda dauðlangar mig að dvelja í útlöndum. Visa-reikningurinn eftir Eng- landsdvölina nam 180.000 krónum og ég varð að taka lán til að geta greitt liann. Við bjuggum heima hjá foreldrum mínum til að byrja með en þegar við fluttum að heim- an varð ég einnig að taka lán íyrir tveggja mánaða fyrirframgreiðslu fyrir húsaleigu og uppihaldi okkar beggja. Lánið nam alls 300.000 krónum.“ Það var fyrrverandi unnusta Art- Alvaro Texeira Rekinn af Sólon íslandus vegna stulds. Arthur Rodriguez „Gerbreyttist til hins verra þegar hann kynntist Alvaro,“ segir fyrr- um unnustan. hurs sem kynnti hann fyrir Alvaro. Hún hafði kynnst honum lítillega rétt áður en hún hélt út um sumar- ið. Arthur fékk vinnu í uppvaski á Kaffi List en hafði mikinn áhuga á að hasla sér völl sem plötusnúður. Unnusta hans kostaði hann til London í þeim tilgangi að kaupa plötur. Hún segir hann ekki hafa haft neina þolinmæði til að pota sér áfram í þeim bransa þegar heim kom og gafst því fljótlega upp. „Mér fannst Arthur gerbreytast við að kynnast Alvaro og það til hins verra. Skyndilega var hann orðinn ástfanginn af bílnum sín- um. Hann var orðinn númer eitt og Alvaro númer tvö. Svo kom ég,“ segir hún. „Mér fannst ég allt í einu vera komin í mömmuhlutverk. Mér þótti sem ég bæri ábyrgð á Art- huri því ég hafði komið með hann hingað. En um jólin hafði sam- bandið þynnst svo illilega út að við hættum saman,“ segir stúlkan. Hún flutti út ásamt vinkonu sinni. Arthur og Alvaro fóru hins vegar að leigja ásamt tveimur öðr- um Portúgölum. Arthur var mjög áreiðanlegur Þórdís Guðjónsdóttir cigandi Kaffi Listar segir Arthur hafa staðið sig mjög vel í vinnu og ber honum góða söguna. „Arthur var mjög áreiðanlegur. Hann mætti vel og virtist góður strákur. Ég vissi ekki að hann væri á leiðinni aftur heim til sín. Hann átti ekki að vinna þá helgi sem hann fór svo við söknuðum hans ekki fyrr en hann var kominn úr landi,“ segir Þórdís. Hún segir jafnframt að Arthur hafi verið búinn að fá það kaup sem hann átti inni greitt fyrirfram og um það bil 16.000 krónum betur. „Við, eigendur staðarins, vildum hjálpa Arthuri því við vissum að bíllinn hans þurfti á viðgerð að halda. Það hvarflaði ekki annað að okkur en að treysta honum. Við ætlum ekkert að gera neitt mál út af þessum peningum, enda eru þetta okkar mistök. Við sáum það eftir á að þá hefur vantað peningana til að koma bílunum úr landi, eða sjálf- um sér,“ segir Þórdís. Þeim félögum virðist hafa legið lífið á að komast burt áður en nokkur kæmi í veg fyrir það. Góð vinkona Alvaros sem ekki vill láta hafa of mikið eftir sér, segir hann hafa sagt sér að hann ætlaði að halda utan á fimmtudaginn 3. mars fyrir viku en var svo farinn af landi brott þriðjudaginn 1. mars. Stungu landa sinn af Stúlkurnar tvær, sem þeir Arthur og Alvaro skulda peninga, fóru til RLR í þeim erindagjörðum að kæra þá. „Við fengum þau svör að það væri ekki hægt því enginn hefði neytt okkur til að skrifa undir, sem er auðvitað alveg satt,“ segir sú sem var ábyrgðarmaður Alvaros. Hún segir þá Arthur og Alvaro hafa lifað mjög hátt og alltaf virst eiga peninga til að kaupa áfengi og skemmta sér. „Ég spurði einhverju sinni Al- varo hvernig hann færi eiginlega að því að fjármagna það sem hann leyfði sér. Hann svaraði því til að það væri enginn vandi að stinga peningum undan á Sólon Islandus. Ég spurði hann þá hvort hann stundaði það en hann vildi ekkert við það kannast,“ segir hún. „Gamlir amerískir bílar, eins og þeir sem Alvaro og Arthur keyptu sér hér á landi og fluttu út, eru mjög vinsælir í Portúgal og þar geta þeir selt þá fyrir þrefalt það verð sem þeir greiddu fyrir þá hér.“ Fyrrverandi kærasta Arthurs seg- ir aílt kaupið hans hafa farið í að fjármagna bílinn sem og í að taka bílpróf sem hann gerði hér á landi: „Ég sá ekkert af hans kaupi fara til heimilisins og aldrei átti hann pen- ing þegar ég minntist á skuldirnar sem við áttum að greiða.“ Hinni stúlkunni bárust spurnir af því að skömmu eftir að Arthur og Alvaro voru, farnir burt, hafi systir annars þeirra tveggja Portú- gala sem leigt höfðu með þeim, hringt á vinnustað hans og spurt starfsfólkið hvort það vissi hvort hann væri ekki á leiðinni heim. Hún hafði nefnilega átt von á hon- um en hann hafði ekki enn birst. Þessi Portúgali virðist því líka hafa ætlað að halda heim. Hann hafði beðið um fyrirframgreiðslu frá vinnuveitendum sínum en hafði enga fengið. Þegar Alvaro og Art- hur héldu til Keflavíkur, sögðu þeir honum að þeir væru að fara til Ak- ureyrar að kaupa vín. Þeir stungu hann einfaldlega af. Stúlkan segist óneitanlega vera reynslunni ríkari af samskiptum sínum við Portúgalana tvo: „100.000 krónur eru auðvitað pen- ingar, en heldur vil ég hafa þá skuld á bakinu en samvisku þessara manna“. O FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994 ð

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.