Eintak - 10.03.1994, Side 18
Hvemig skiptust
einkunnir ein-
stakra fíokka?
Svona gáfu fylgjendur ein-
stakra stjórnmálaflokka ráð-
herrunum einkunnir.
6,3
Alþýðuflokkur
Stuðningsmenn Alþýðu-
flokksins eru hrifnir af ráðherr-
um ríkisstjórnarinnar. Þeir gefa
engum ráðherra falleinkunn. Sá
lægsti, Halldór Blöndal, rétt
sleppur íyrir horn og krækir sér í
5,0 í meðaleinkunn.
Það kemur sjálfsagt engum á
óvart að ráðherrar Alþýðu-
flokksins raði sér í efstu sætin.
Það er þó athyglisvert að for-
maðurinn sjálfur, Jón Baldvin
Hannibalsson, er fyrir neðan
þau Jóhönnu Sigurðardóttur
og Sighvat Björgvinsson. Öss-
ur Skarphéðinsson þarf síðan
að sætta sig við að hafa Friðrik
Sophusson fyrir ofan sig. Guð-
mundur Árni Stefánsson er
síðan sér kapítuli. Það er ekki
nóg með að hann fái verstu út-
reið allra ráðherra úr þessari ein-
kunnabók, heldur hafa flokks-
menn hans lítið álit á honum
þótt það sé vissulega meira en
fylgjendur annarra flokka hafa.
Aðeins bændahöfðinginn Hall-
dór Blöndal fær lægri einkunn
frá krötum.
Það sem sker kratana frá öðr-
um flokkum varðandi afstöðuna
til ráðherra sjálfstæðismanna er
að þeir hafa meira álit á Davíð
Oddssyni en fylgjendur stjórn-
arandstöðunnar og minna álit á
Þorsteini Pálssyni.
Einkunnir krata skiptust
þannig:
8,0 Jóhanna Sigurðardóttir
7.2 Sighvatur Björgvinsson
7,0 Jón Baldvin Hannibalsson
6.3 Friðrik Sophusson
6.2 Össur Skarphéðinsson
6,0 Davíð Oddsson
5,8 Ólafur G. Einarsson
5.8 Þorsteinn Pálsson
5.4 GuðmundurÁrni
Stefánsson
5,0 Halldór Blöndal
5A
Framsóknarflokkur
Framsóknarmenn eru mildari
í afstöðunni til ráðherra ríkis-
stjórnarinnar en hinir stjórnar-
andstöðuflokkarnir tveir. Þeir
gefa ráðherrunum 5,0 í einkunn
að meðaltali og samanlagt bjarga
þeir því frá falli.
Það eru óþekkir ráðherrar
sem skipa efstu sætin á lista
Framsóknar. Jóhanna Sigurð-
ardóttir hefur verið í stjómar-
andstöðu í öllum ríkisstjórnum
sem hún hefur setið í og Þor-
steinn Pálsson hefur verið í
óopinberri andstöðu síðan hann
sá á eftir formennskunni í Sjálf-
stæðisflokknum. Það sem sker
framsóknarmenn frá öðrum
flokkum er ást þeirra á Halldóri
Blöndal, hvort sem það er vegna
starfa hans eða eilífri ást fram-
sóknarmanna á Iandbúnaðar-
ráðherrum.
Það er ljóst að framsóknar-
menn eiga erfitt með að þola
Jón Baldvin Hannibalsson,
þann sem valdi sér það hlutverk í
lífinu að moka framsóknarflór-
inn. Guðmundur Árni Stef-
ánsson fær slæma útreið' hjá
Framsókn, en þó lítið eitt skárri
en hjá öðrum andstöðuflokkum
og Ólafur G. Einarsson á held-
ur ekki upp á pallborðið hjá
þeim frekar en hjá öðrurn
stjórnarandstæðingum.
Þá má benda á að framsóknar-
menn eru hrifnari af Davíð
Oddssyni en fylgjendur annarra
stjórnmálaflokka.
Einkunnir framsóknar-
manna skiptust þannig:
7.2 Jóhanna Sigurðardóttir
6,6 Halldór Blöndal
6.2 Þorsteinn Pálsson
5.2 Össur Skarphéðinsson
4.9 Friðrik Sophusson
4,9 Sighvatur Björgvinsson
4.4 Davíð Oddsson
3.8 Ólafur G. Einarsson
3.4 Guðmundur Árni
Stefánsson
2.9 Jón Baldvin Hannibalsson
Skoðanakönnun Skáís fyrir eintak
Heilöa Jóhanna
enn næst en,
Guðmundur Ami
Um síðustu helgi bað Skáís sex
hundruð manns að gefa ráðherrum
ríkisstjórnarinnar einkunnir 'eftir
frammistöðu þeirra í starfi. Niður-
stöðurnar eru forvitnilegar og þær
má lesa á næstu síðum.
Hér til hliðar er greint frá því
hvernig fylgismenn einstakra
flokka dreifðu sínum einkunnum,
en hér á eftir má lesa hvernig hver
einstakur ráðherra kom út.
Davíð Oddsson
Davíð Oddsson fær sjöttu bestu
meðaleinkunn ráðherranna, eða
5,2. Hann fékk næst oftast 10 í ein-
kunn en þó langtum mun sjaldnar
en Jóhanna Sigurðardóttir.
Hann var í fjórða sæti yfir þá sem
fengu oftast núll í einkunn og
sömuleiðis í fjórða sæti yfir þá sem
fengu oftast lægri einkunn en þrjá.
Hann skar sig á engan hátt úr varð-
andi þá sem fengu oft háar ein-
kunnir, eða meira en átta.
I þessu er fólgin aðalbreytingin
hjá Da.víð frá síðustu einkunnabók
Skáís sem safnað var saman í maí
1992. Þá fékk Davíð svipaða ein-
kunn og nú, eða 5,1. En þá var hann
mun untdeildari en hann virðist
vera í dag. Hann sópaði til sín mjög
háum einkunnum annars vegar og
mjög lágum hins vegar. Þá voru að-
eins 38 prósent af einkunnum hans
18
FIMMTUDAGUR 10. MARS.1994