Eintak - 10.03.1994, Síða 40
Af
hverju
vill Albert
bíða þang-
að til hinir
eru búnir
að leggja
fram sína
lista?
0 Meðdómarar setja ofan í við Hrafn 0 Röskva klofnar
Hann vill
vita hvort
hann verður
á öðrum
hvorum
þeirra.
Samskiptaörðugleikar Hrafns
Bragasonar, forseta Hæstaréttar,
og lögmanna, eru orðnir svo alvariegir
að menn í stéttinni segjast ekki sjá aðra
lausn en að Hrafn víki úr starfi. Og það eru
ekki bara lögmenn sem hneykslast hafa á
framkomu Hrafns. Heimildir EINTAKS herma
að aðrir dómarar við réttinn hafi séð sig
knúna til að gera formlega samþykkt þess
efnis að Hrafn megi ekki tjá sig í fjölmiðlum
eða senda frá sér tilskrif í nafni réttarins án
þess að meðdómendur hans gefi til þess
leyfi. Nú bíða menn bara eftir þvi hvort Hrafn
skilji fyrr en skellur í tönnum...
Röskva hélt meirihluta sínum í stúd-
entaráði í kosningum innan Háskólans
fyrir hálfum mánuði og mun því ein-
hver úr þeirra hópi verða næsti formaður
Stúdentaráðs. Fljótlega eftir að úrslit voru
Ijós mynduðust tvær fylkingar innan raða
Röskvu um tvo líklegustu kandídatana í
embættið, en það eru líffræðineminn Einar
Gunnar Guðmundsson og íslenskunem-
inn Brynhildur Þórarinsdóttir. Er
mönnum mikið um að koma sínum fram-
bjóðanda að og er víst ýmsum töluvert heitt í
hamsi. Þetta er spaugilegt vegna þess að
Dagur Eggertsson, sem leiddi lista
Röskvu til sigurs í stúdentaráðskosningun-
um, skrifaði grein í Stúdentablaðið í vetur
þar sem þessi núorðið fleyga málsgrein kom
fyrir: „Þar sem lífið er plott er lágkúran lög-
mál“...
Reykjavíkurborg
Bjargar Stálsmiðjunni
aftur frá gjaldþroti
Reykjavíkurhöfn gaf Stálsmiðjunni 43 milljónir og hyggst bæta um betur með því
að kaupa dráttarbrautirnar til að losa fyrirtækið úr greiðslustöðvun
Stálsmiðjan hf. yíirtók rekstur
Slippfélags Reykjávíkur hf. á
slippnum við Reykjavíkurhöfn
undir lok árs 1988. Tveimur vikum
síðar, 12. janúar 1989, var samþykkt
í Hafnarstjórn að falla frá forkaups-
rétti á lóðum Slippfélagsins við
Mýrargötu. Með þeirri samþykkt
var Hafnarstjórn í raun að færa
Stálsmiðjunni um það bil 43 millj-
ónir króna að gjöf. Forkaupsréttar-
ákvæðið fól nefnilega í sér að lóð-
irnar fengjust á 7.590 krónur en
Þá erum við laus við hann Stein-
grím. Við eigum eftir að sjá hann
skokka inn i stjórnarráðið þegar
Kristján Ragnarsson heimtar
gengisfellingu en hann mun eng-
an skaða gera. Hann verður með
eitthvert plagg frá hagdeildinni í
töskunni en það mun engin taka
mark á þvi frekar en þegar Jó-
hannes endasentist með sams
konar plögg. Ekki þegar Kristján
biður um gengisfellingu. En
Steingrímur mun aftur geta stað-
ið á tröppunum við stjórnarráðið,
lýst yfir yfirvegaðri stefnu Seðla-
bankans og strokið aftur hárið.
En hann mun ekki lengur geta
dælt peningum í vonlaus ævintýri
eins og fiskeldi og loðdýrarækt.
Eina sem Seðiabankastjórar geta
eytt peningum i eru tveggja millj-
arða hús undir sjálfa sig, lista-
safn, flygla, myntsafn, laxveiði,
bókasafn og geirfugl. Ekkert af
þessu kostar viðlíka þeninga og
Steingrími tókst að sóa þegar
hann var forsætisráðherra. Og
þeir munu eiga vel saman, Stein-
grímur og Davið; eyðslusami for-
sætisráðherrann og eyðslusami
borgarstjórinn. Davið mun skilja
ráð Steingrims en Steingrímur
getur ekkert sagt honum það
sem honum hefur ekki dottið i
hug áður.
Lalli Jones
AUSTURSTRÆTI ÞÓRÐARHÖFÐA1
SÍM117371 SÍMI 676177
Verð kr. 39,90
mínútan
þær voru keyptar árið 1992 á
43.519.000.
Sem kunnugt er fékk Stálsmiðjan
greiðslustöðvun 2. mars síðastlið-
inn sem rennur út 23. mars en fyrir-
tækið hefur átt í erfiðleikum allt frá
þeim tíma sem það yfirtók rekstur
slippsins. EINTAK hefur áreiðan-
legar heimildir fyrir því að þær
hugmyndir hafi nýlega verið rædd-
ar í alvöru að Hafnarstjórn kaupi
húseign fyrirtækisins við Mýrar-
götu 2, en brunabótamat hennar
nemur 212.660.788. Formaður
Hafnarstjórnar, Guðmundur Hall-
varðsson segist hins vegar ekkert
kannast við slíkar hugmyndir en
bendir á að vangaveltur séu uppi
um að kaupa dráttarbrautirnar.
Gamall samningur frá 1945 milli
Hafnarstjórnar og Slippfélagsins í
Reykjavík hf. kveður á um að Hafn-
arstjórn hafi forkaupsrétt að eign-
arlóðum Slippfélagsins við Mýrar-
götu, þar sem er athafnasvæði
slippsins og dráttarbraut, frá og
með árinu 1958 með fimm ára upp-
sagnarfresti. í samningnum er
kveðið á um fast lóðarverð, 30,00
krónur á fermetrann, sem er óverð-
bundið með öllu.
Þegar lagður var á stóreigna-
skattur upp úr miðri öldinni var
matið hækkað en Slippfélagið undi
því ekki og fór með málið fýrir
dóm. Hæstiréttur staðfesti með
dómi 1953 að þessi upphæð stæðist
enn og heildarverðmæti lóðanna
væri 759.000 krónur. Síðan hafa tvö
núll verið tekin aftan af krónunni
þannig að verðmæti lóðanna í dag
væri 7.590 krónur samkvæmt þess-
um forsendum. Þegar upp komu
hugmyndir í Hafnarstjórn árið 1970
að kaupa lóðina á þessu verði og
leigja hana aftur, eins og algengast
er á hafnarsvæðinu, kúventi Slipp-
félagið í málflutningi sínum og
krafðist þess að lóðirnar yrðu
metnar miklu hærra. Svo fór að
forkaupsrétturinn var ekki nýttur á
þessum tíma.
Athafnasvæði Stálsmiðjunnar hf.
Hafnarstjórn féll frá forkaupsrétti á lóðum Slippfélagsins hf. við
Mýrargötu þegar Stálsmiðjan hf. tók yfir rekstur slippsins fyrir fimm
árum. Tveimur og hálfu ári síðar voru sömu lóðir keyptar á margfalt
hærra verði en forkaupsréttarákvæðið sagði til um til að forða fyrir-
tækinu frá gjaldþroti. Nú á að kaupa dráttarbrautirnar.
Hafnarstjórn féll svo frá for-
kaupsrétti sínum þegar Stálsmiðjan
yfirtók eignir Slippfélagsins um
áramótin 1988-1989. Með þeirri
samþykkt missti Hafnarstjórn af
því tækifæri að fá lóðirnar á innan
við eina milljón. Á sama tíma skipti
stjórnin á hlutabréfum Reykjavík-
urhafnar í Slippfélaginu fyrir hluta-
bréf í Stálsmiðjunni og eignaðist
þar með 7-8 prósenta hlut í fyrir-
tækinu.
Svo þegar ljóst er að Stálsmiðjan
er að komast í þrot samþykkir
Hafnarstjórn 15. júní 1992 að kaupa
þessar lóðir á fullu verði og leigja
Stálsmiðjunni þær aftur.
Á nokkrum árum voru því færð-
ar rúmar 43 milljónir króna frá
Hafnarstjórn til Stálsmiðjunnar.
Björgunaraðgerðir Hafnarstjórnar
áttu þannig stóran þátt í því að
koma í veg fyrir gjaldþrot fyrirtæk-
isins. Vegna kaupanna var tekið lán
hjá Landsbanka Islands upp á 44
milljónir á kjörvöxtum til 10 ára.
Stálsmiðjan átti að afhenda lóð-
irnar veðbandalausar en í afsalinu
segir að hið selda sé afhent veð-
bandalaust en kaupanda sé kunn-
ugt um þinglýstar kvaðir á hinu
selda. Þeim kvöðum, sem hlaupa á
tugmilljónum, hefur ekki verið af-
létt. Ekki hefur verið farið fram á
riftun kaupsamningsins vegna'þess.
Greiðslustöðvun Stálsmiðjunnar
rennur út 23. mars og ljóst er að
stutt er ígjaldþrotið nema fyrirtæk-
inu takist að losa um verulegar
eignir. Sú lausn hefur verið ofarlega
á blaði hjá stjórnendum fyrirtækis-
ins að selja húseignina við Mýrar-
götu 2. Heimildir EINTAKS herma
að samningaviðræður við Hafnar-
stjórn þar um séu á lokastigi.
Hvorki Hannes J. Valdimarsson,
hafnarstjóri, né Skúli Jónsson,
framkvæmdastjóri Stálsmiðjunnar,
vildu staðfesta það.©
Kaupin
voru
redding
segirformaður
Hafnarstjómar
Guðmundur Hallvarðsson,
alþingismaður, hefur verið for-
maður Hafnarstjórnar í tæp átta
ár. Hann sagði í samtali við EIN-
TAK að lóðamál innan slippsins
hafi verið slík katastrófa .að það
hafi tekið menn mörg ár að átta.
sig á lóðamörkum og eignar-
hluturn.
„Ég verð að rifja þetta upp og
vil engu svara um þetta atriði á
þessari stundu,“ sagði Guð-
mundur þegar hann var spurður
hvers vegna Hafnarstjórn féll frá
forkaupsrétti sínum árið 1989.
„En auðvitað voru lóðakaupin
1992 redding. Það hvarflar ekki
annað að mér en að viðurkenna
það. Við gerðum okkur grein
fyrir því að höfn án slipps getur
ekki gegnt hlutverki sínu. Það
hefur líka verið stefnan að við
ættum lóðirnar á hafnarsvæðinu
og svo þótti okkur verra að
missa þetta fyrirtæki úr rekstri
slippsins. En ég sé núna að það
hefði verið betra að kaupa upp-
tökutækin, slippana sjálfa og
leigja svo þá aðstöðu út.“
Hefur kotnið til tals að Hafnar-
stjórn kaupi húseign Stólsmiðj-
unttar við Mýrargötu 2?
„Nei, ég kannast ekki við það
enda höfum við ekkert við fleiri
fasteignir að gera. Ég veit þó að
stjórnendur fyrirtækisins hafa
hug á að selja húsið, Það hefur
hins vegar komið til tals að við
látum verða af því að kaupa
upptökutækin og þá værum við
að fara sömu leið og aðrar hafn-
ir.“©
Albert Guðmundsson
Býður sig fram ef
hann finnur gott fólk
„Ef ég fæ gott og traustvekjandi
fólk með mér á lista mun ég gefa
kost á mér,“ segir Albert
Guðmundsson, sem kveðst bíða
átekta þangað tíl hinir flokkarnir
eru búnir að leggja fram sína lista
en um leið og þeir hafi gert það
muni hann fara að líta í kringum
sig í leit að samstarfsaðilum. Þegar
hafa nokkrir menn komið til tals
við Albert og lýst yfir áhuga sínum
á að sitja á listanum, en hann segir
öf snemmt að tala um hverjir þetta
séu.
Albert segir að sá málefnagrund-
völlur sem komi til með að liggja að
baki framboðinu verði byggður á
þeim grunni sem hann hafi áður
skapað í störfum sínum í borgar-
stjórn og sem þingmaður og ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins.
Hann kveðst ekki hafa nokkrar
áhyggjur af því að framboð sitt
muni sundra hægrimönnum í
borginni og virka sem vatn á myilu
sameiginlegs framboðs minni-
hlutaflokkanna.
„Kjósendur eiga að velja þá sem
þeir treysta best en ekki einhverja
sem flokksmaskínurnar vilja troða
ofan í þá,“ sagði Albert Guð-
mundsson að lokum. ©
Vandað vikublað á aðeins 195 kr.
Fréttir
4 Kröfuhafar í BB-byggingavörur
krefjast riftunar á húsakaupum
6 Alþýðuflokkurinn
hruninn
6 Ríkisstjórnin í
dúndrandi minnihluta
8 Portúgalskir kvenna-
menn svíkja út fé og
flýja af landi brott
11 Meirihlutinn vill viðræður um
inngöngu í Evrópusambandið
18 Einkunnabækur ráðherranna
Greinar
16 Missir sveindómsins
22 Nekt
24 Félagsskítar, flokkaflakkarar
og aðrir óhollir
26 Karlar í
kjólum
28 Svipar Geir-Í
finnsmálinu til
Guilford-máls-
ins?
Fólk
2 Fallistínn Guðmundur Árni
14 Örsaga, ævi Fjölnis Braga-
sonar
32 Jóhanna Jónas
33 Honey B & The
T-Bones
33 Sjö litlar
Bjarkir
33 Saga Kokks Kyrj-
an Kvæsis
34 Dauðatangó
34 Steinn Ármann,
áfengi, ástir og kynlíf
35 Magnús Jónsson
leikari
35 Trommustúlk-
urnar í Dafínu
35 Páll og Bonsaitrén hans
36 Halldór Ómar í Regnbogan-
36 Einar með
Leifi heppna
39 Banvæn Há-
skólapartí
Krítík
Morðgáta á Manhattan
★ ★ Hc
Reisubókarkorn Hrafns
A * *
Mykistavia Valikohtauksia
* *
Sesam, opnist þú
* * *
„Allt eru þelta ciiihvers
kotuir grofhýsi, grafhýsi
ofítn jitrdar, ekki döpur
lieldttr litrík og i nú~
timolokustíl. “
Guðboigur Bergsson
um syningu briu
Þórnrinsdóttui i Nýlistasafnimi.