Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 28.07.1994, Qupperneq 4

Eintak - 28.07.1994, Qupperneq 4
ÓC/EÐFELLDASTA FRÉTT VIKUNNAR O Sigrútt Ása afskjánum til landsins helga © Hlín með sifjaspell til þúsund vatna landsins © Body Shop með aura til Rúanda © Áhugafólk með umferðarslys út á vegina Iréttamaðurinn I SlGRÚN ÁSA Markúsdóttir hverfur af skjánum í haust þar eð hún ætlar að bregða sér í nám til (sraels. Heitir námið eitthvað á borð við „Mid-East studies“. Sigrún Ása kemur eflaust margs fróðari til baka og getur þá útskýrt ýmislegt fyrir þjóðinni sem hún vissi ekki áður og hefur aldrei skilið í þeim atburðum sem átt hafa sér stað á Gazasvæð- inu og þar i kring... Ieðal þess sem íslenskar konur ætla að færa kyn- systrum sínum á Nordisk Forum í Finnlandi er einþáttungur sem saminn er um sifjaspell. Kolbrún Erna Pétursdóttir flytur þáttinn og samdi hann einnig ásamt Björgu Gísla- DÓTTUR. HLÍN Agnarsdóttir leikstýrði. Eftir að Nordisk Forum lýkur verður ein- þáttungurinn líklega hluti af fræðslupakka fyrir stofnanir og skóla. Hann fjallar í stórum dráttum um uppgjör konu gagnvart föður sínum og gleymist víst ekki svo auðveldlega að sýningu lokinni. Þær konur sem eru á leiðinni til Finnlands ættu ekki að láta hann fram hjá sér fara... w Amorgun byrjar verslunin Body Shop á Laugavegi og í Kringlunni að gefa eitt prósent af sölu dagsins til hjálp- ar flóttafólkinu í Rúanda og veitir ekki af, ef marka má fréttatíma síð- ustu vikuna. Body Shop-sjóðurinn í Englandi leggur fram sömu upp- hæð og fyrirtækjaverslanir í Eng- landi og Irlandi tekst að safna. Bú- ist er við að þaðan komi tvær millj- ónir króna... w Ahugahópur um bætta um- ferðarmenningu er að fara af stað með mikla auglýsinga- herferð undir kjörorðinu „Akstur er dauðans alvara“. Myndir munu birt- ast í blöðum fyrir verslunarmanna- helgina og jafnframt munu auglýs- ingar heyrast í útvarpinu. Eins og fólk rekur eflaust minni til var hóp- urinn stofnaður af nokkrum leikur- um og fjölmiðlafólki sumarið 1988. Skömmu síðar var auglýsingaherT ferð hrundið af stað þar sem kvað við annan og harðari tón í umferð- aráróðri. Þar var fólki ekki hlíft við staðreyndum um afleiðingar um- ferðarslysanna. Herferðin í ár mun án efa vekja sterk viðbrögð, rétt eins og sú fyrri. Þess má geta að VÍS styrkir áhugahópinn að þessu Smjör- lausar brauð- sneiðar Frá sjónarhóli bænda, búaliðs og yfirhöfúð allra framsóknarmanna íslands fyrr og síðar, hlýtur ógeð- felldasta frétt vikunnar að vera for- síðufrétt í bændablaðinu Tíman- um, sem birtist á föstudaginn síð- asta. Þar kemur fram að könnun Fé- lagsvísindastofnunar fyrir Land- læknisembættið hafi leitt það í ljós að sjöunda hver íslensk kona smyrji ekki brauðið sitt með smjöri. Ekki nóg með það, heldur skrapar þar að auki þriðja hver kona viðbitið af, fái hún brauðsneið með hollu íslensku smjöri. Hvílík hneisa. Aftast í frétt- inni kemur síðan fram að átta af hverjum tíu landsmönnum smyrji brauðið sitt með þunnu lagi, eða sleppi því alveg. Þetta er hræðilegt. Eins og margtuggið hefur verið í fjölmiðlum undanfarin ár, hefur sala landbúnaðarafurða dregist saman og ríkissjóður hefúr þurft að punga út stórum upphæðum til að fá bændur til að bregða búi, skipta um búgreinar, eða redda þeim fyrir horn þegar loðdýrin, fiskeldið eða ferðaþjónustan klikkaði. Nú er ástæðan komin. Nú vitum við hvers vegna íslenskur landbúnaður hefur átt í svo miklum erfiðleikum sem raun ber vitni. Nútímamaðurinn er hættur að smyrja brauðið sitt með meinhollu íslensku smjöri. Hins vegar halda bændur (að sjálfsögðu), sjómenn og iðnaðarmenn fast í gamlar og þjóðlegar hefðir og klína viðbitinu vel á brauðsneiðarnar sínar. En nú- tímakonur sem trúa á mátt nýald- arinnar, næpunnar og njóla- grautarins, hafa látið telja sér trú um að kolvetnin, sem þjóðin lifði á í hundruðir ára, setjist innan á æð- arnar þeirra og valdi þeim hjarta- áfalli langt fyrir aldur fram. Nú má ekki lengur fá sér smjör á brauðið eða rjóma á skyrið og heilbrigð- ismafían reynir líka að banna land- anum að borða slátur, á þeim for- sendum að hjartaáföll fylgi í kjöl- farið. Þessi innræting hefur þannig haft þær afleiðingar að sjöunda hver kona smyr ekki brauðið sitt. Hins vegar hefur karlkynið, að minnsta kosti þeir sem ekki vinna í skjóli skrifborðsins, betur staðist áróðurinn og notar sitt smjör hvað sem tautar og raular. Það eru sem- sagt íslenskar húsmæður sem hafa svikið bændurna. Nú er Bleik brugðið. © Lögreglustöðin í Garðabæ verður opnuð aftur segir sýslumaðurinn í Hafharfirði. Ástæða lokunarínnar óánægja lögreglumanna með kaup ogkjör. Óánægja lögreglumanna í Garðabæ með kjaramál sín urðu til þess að lögreglustöðinni sem nýlega var opnuð þar í bæ var lokað. Guðmundur Sophusson, sýslumaður í Hafnarfirði, vonast til að hægt verði að opna stöðina aftur eftir um það bil fjórar vikur. Bæjaryfirvöld í Garðabæ telja þörf á að löggæsla verði aukin í bænum og benda til dæmis á aukin tilfelli skemmdar- verka af völdum unglinga. EINTAK sagði frá því á mánudag að lögreglustöð- inni, sem nýlega var tekin í notkun, hefði verið lokað fyrir rúmlega mánuði síðan. Þrír lögreglumenn frá Hafnarfirði voru fluttir yfir til Garðabæjar til að sinna þar lög- gæslu. Samkvæmt ákvörðun dóms- málaráðuneytisins átti stöðin ein- göngu að vera opin milli klukkan átta til fimm á daginn. Lögreglu- mennirnir sem störfuðu á stöð- inni voru ósáttir við að missa vaktaálag sitt við flutningana sem ieiddi óhjákvæmilega til lækkun- ar í launum. Kjaradeila þeirra leiddi til þess að stöðinni var lokað og þeir fluttir aftur til fyrri starfa hjá Hafnar- fjarðarlögreglunni. Ástæðan sem Garðbæingar fengu fyrir lokun- inni var hins vegar sumarfrí lög- reglumanna. Guðmundur segir að nú sé bú- ið að semja við nýja lögreglu- menn frá Hafnarfirði um að flytja sig yfir á Garðabæjarstöðina. Þeir menn sem koma yfir munu vera í eldri kantinum, lögreglumenn sem þreyttir eru orðnir á miklu vaktaálagi og tilbúnir eru í ró- legra líf í Garðabænum. Ekki er nákvæmlega búið að ákveða hve- nær þeir geti tekið til starfa þar sem þeir eru nú í fríum. Sýslu- maður í Haínarfirði hefur þó lofað Garð- b NAFNSPJALD VIKUNNAR Nafnspjaldseigandi vikunnar að þessu sinni er iands- þekktur maður. Þetta er leikarinn Pálmi Gestsson sem er sjálfsagt einna þekktastur fyrir framfag sitt í sprelli Spaugstofunnar og síðar Gysbræðra. Þó Pálmi sé þekktastur fyrir spaugið getur hann líka brugðið sér f alvarleg og dramatísk hlutverk eíns og hann sýndi á liðnum vetri þegar hann lék aðalhlutverkið í upp- færslu Þjóðleikhússins á Gaukshreiðrinu. Pálmi held- ur sig hins vegar víð grínið á nafnspjaldi sínu, enda varla ann- að við hæfi því fyrirtækið sem hann er í forsvari fyrir heitir Kómedía hf. Það var stofnað snemma árs 1993 og hlutverk þess er meðal annars leikhús- rekstur. Ekki fer miklum fréttum af umsvifum Kómedíu enn sem komíð er. Alþjóðlegt merki fyrir leikhús eru tvær grímur, önnur brosandi, hin með skeifu. Pálmi hefur eins og skiljanlegt er valið að nota á nafnspjald sitt aðeins grímuna sem er kát í framan. Ef nafnspjaldið prentast vel geta lesendur séð að það er gríma Pálma sjálfs sem er á spjaldinu. ingum að stöðin verði aftur kom- in í gagnið áður en skólarnir heíja starfsemi sína í haust. Hlutverk lögreglunnar í Garðabæ er samkvæmt stefnu dómsmálaráðuneytisins að vera svokölluð grenndarlögregla, það er að koma á góðum kynnum við íbúa bæjarins, kynna þeim starf- semi sína og skapa trúnaðartraust milli lögreglu og bæjarbúa. Fulltrúi bæjarstjóra í Garðabæ segist hafa orðið var við mikla ánægju íbúa Garðabæjar með opnun lögreglustöðvarinnar enda væri sjálfsagt að þar væri stöð líkt og á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ, svo dæmi séu nefnd. Full þörf sé á löggæslu í bænum. Sér í lagi til að sinna umferð og einkum í kringum barna- og gagnfræðiskólana að vetrarlagi. Enn fremur hafa tilfelli skemmd- arverka aukist mikið að undan- förnu. Sem dæmi má nefna að bifreiðar starfsfólks Flugleiða sem það leggur gjarnan á planinu við Bitabæ áður en það heldur til Keflavíkur með rútu, hafi æði oft orðið fyrir barðinu á skemmdar- fýsn bæjarbúa og beinist þá grun- ur helst að unglingum. Flugleiðir hafa oft kvartað við bæjaryfirvöld að starfsfólk þar á bæ komi oft að bílum sínum rispuðum og speglalausum. Svipaða sögu er að segja af strætisvögnum Garða- bæjar en seturnar í þeim eru iðu- lega rifnar af sætunum. © Fimmtudagurinn 21. júlí Ég er að hugsa um að hætta afskiptum af stjórnmálum. Ef til vill vegna þess að það er sjálthætt. Það hefur enginn lengur áhuga á stjórnmálaskoðunum mínum. Mér líður eins og Sigmari B. Haukssyni sem sífellt er að lýsa skoöunum sínum á mat og drykk þrátt fyrir að öllum mönnum sé hjartanlega sama um hvaða bragð hann finnur. Eða Ólafur M. Jó- hannesson sem hefur haldið úti fjölmiðla- gagnrýni í mörg ár í Mogganum án þess að nokkur maður taki mark á henni. Ég ætla ekki að lenda í því sama og þessir menn. Þess í stað ætla ég aö finna mér nýjan vettvang. Ég ætla að Föstudagurinn 22. júií fara að yrkja. Stend ég einn á regnvotu stræti og deiii hugsunum mínum með sjálfum mér eins og hállur maður að tala við hállan mann hrekk svo upp og legg í langferð í leit að hinum helmingnum dregst að Lynghaga banka upp á Laugardagurinn 2f. júlí en það erenginn heima Maðurinn er alltaf einn Sunnudagurinn 24. júlí sérstaklega efhann heitir Hannes Ólmstríðufullt náttmyrkrið umlykur herbergið og hvolfist inn í huga mannsins sem liggur máttvana við gaflinn á rúminu og heldur dauða- haldi í gulnaða Ijósmynd. Starir. Tveirfélagará sólbjörtum degi halda utan um axlir hvor ann- ars og hvessa augun á móti framtiðinni. Óhræddir. Augu þeirra mætast. Hins unga drengs með hátt enni og vatnsblá augu og hins svarteygða manns sem liggur kjur eins og hann óttist að minnsta hreyfing geti ýft upp sár tap- aðrar vináttu. Um stund flýgur sú hugsun um huga hans að eitthvert svar leynist íþessum björtu augum. En þegar hann telursig vera að finna það hristir ungi maðurinn hausinn og saman ganga vinirnirinn í eitthvert allt annað myndasafn. Eftir liggur maðurinn og starir brostnum augum á mynd af grasstráum og Mánudagurinn 2f>. júlí moldarbarði sem er fyrir löngu fokið burt. Eins og Ijóðin hafa streymt út úr penna mínum undanfarna daga þá er allt frosiö í dag. Eftir að hafa setið við skriftir fram eftir öllu kvöldi er á blaðinu upphaf að tveimur kvæðum. „Hvar hafa orð mín mætti sínum glatað" og „Enginn grætur heimspeking“. Ég erorðinn helsttil djarftækur til annarra manna verka. Til aö áminna mig setti ég saman þessa vísu: Hann Hannes er lítill Hann er tæplega fertugur trítill Með augun svo falleg og skær En spurningum Hansa Þriðjudagurinn 26. júlí Enginn nennir að ansa... Eftir að hafa verið skáld í fjóra daga nenni ég því ekki lengur. Alveg eins og Solshenítsin Hann hefur fundiö fyrir kalli fólksins. Hann get- ur ekki setið einn í fjallakofa sinum í Bandaríkj- unum og skrifað á meðan fólkið hans kallar á leiðsögn. Alveg eins og ég. Ég get ekki fengið af mér að sitja hér einn með hugsunum mínum. Ég þarf út á þjóðvegina að taia við fólkið. Finna langanir þeirra og þrár. Leita lausna á meinum þjóðar minnar og leiða hana aftur á rétta braut. Eg mun hins vegar ekki sækjast eftir pólitiskum embættum eða pólitískum metorðum. Mín Miðvikudagurinn 2/. júlí staða verður ekki pólitísk heldur þjóðfélagsleg. Ég ók í einum rykk norður á Melrakkasléttu í nótt, sofnaði í bílnum á einhverjum vegi úti í hundsrassi en hrökk uppvið að bíll þaut fram hjá mér í morgunsárið. Út um svefndrukkin augun sá ég að þetta var Jóhanna Sigurð- ardóttir á leið að hitta fólkiö. Mitt fólkl Ég sló mig fimm sinnum í framan, startaöi og gaf bensínið í botn. Ég ætla ekki að láta helvítið . hana Jóhönnu stela frá mér þjóðinni. 4 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.