Eintak - 28.07.1994, Blaðsíða 26
ÉQ VEIT PAÐ EKKI
HALLGRÍMUR HELGASON
Út á landi og í bœinn
(með Jóhönnu Sigurðar)
Ég veit það ekki. Ég sit í rústum
gamla bæjarins á Sjöundá og er að
reyna að ná tengslum við „Morðin
á Sjöundá“ sem Gunnar Gunnars-
son notaði til að matreiða sinn
Svartfugl, en kannski er það veðrið,
20 gráðu logn og sól, eða útsýnið,
glóandi heitur Rauðasandur út-
þreiddur faðmur mót heilu hafi,
eða kannski heimsálfan handan
þess. Ég næ ekki alveg sambandi við
þessa atburði enda hér gróið yfir öll
sönnunargögn með grænu. Við
stöldrum við í korter. Léttklætt nú-
tímalíf á rústum harms og glæpa.
Við keyrum Barðaströnd og eyj-
um búinn Breiðafjörður liggur
hreyfingarlaus suður í Hólm og
undir Jökul, en útí Flatey glampar á
stuð í kvöldsólinni. Guðmundur
Andri og félagar í Spöðum að moka
upp íjöri í gamla félagsheimilinu.
Maður missir enn einu sinni af
hinu árlega Spaðaballi en reynir þó
að ná fjöruvotti af stemmningunni
og skellir sér í sjóinn undan aftöku-
stað Sveins Skotta. hvítur nár að
busla í þeim „Gamla Góða“ þegar
lögreglu- og sjúkrabílar geysast hjá
frá Patró í átt að slysum í Vatns-
firði. Sírenurnar bergmála í fjöllun-
um og alit í einu líður manni eins
og L.A., á Venice Beach að sóla sig
og „The Blackbird Gang“ búnir að
drepa tvo „at Seventh River Av-
enue“ einhvers staðar í bakgrunn-
inum.
Daginn eftir liggur leið í bæinn,
torsótt leið um Dali stútfulla af ætt-
armótum og salmonelfa-tilfellum
og stjórnmálamönnum á leið í sér-
framboð. Maður var reyndar búinn
að vara sjálfan sig við áður en mað-
ur fór úr bænum: Auðvitað gat
maður átt von á því að rekast á Jó-
hönnu Sigurðardóttur. Þetta var
svo vandræðalegt að sjá hana í
fréttum Stöðvar 2 koma aleina í
sinni rúmgóðu Toyotu niður á
Djúpavog, fyrrverandi ráðherra á
jogging-galla að sameina allt „fé-
lagshyggjufólk". Fún i bíl. Enginn
aðstoðarmaður. Enginn stuðnings-
tali.“ Hún gengur á röðina, en satt
best að segja missum við þolin-
mæðina áður en kemur að okkur
og við skjótumst upp hægri kant-
inn meðfram rununni, inn á mal-
bikaðan Þjóðveg eitt og brunum í
bæinn.
Ég veit það ekki. Af hvaða völd-
um — R-lista eða D — það er. En
Reykjavík er aftur orðin „inn.“
Hún er hætt að vera hallærislega,
Ijóta og líflausa Svefnborgin við
Sundin og er komin með stíl. Mið-
bærinn barmettur magi. Meir að
segja veðurguðirnir eru á þessu og
láta ljósið skína á turnþökin þó
rigni í öllum bláfjöllum í kring. Það
er gott að koma í bæinn og maður
nennir ekki út úr honum aftur um
þessa verslunarmannahelgi, alla
vega ekki á meðan Jóhanna Sigurð-
ardóttir dvelur enn á landsbyggð-
inni. Já, það er gott að koma í bæ-
inn, þó maður rekist náttúrlega af
algerri tilviljun á unnendur Davíðs
Oddssonar hér og þar sem byrja
að hnýta í mann fyrir síðustu grein
og þá er gott að flýja inná Café List
við Klapparstfg og setjast að bjór
með Óttari Proppé og láta hann
peppa mann aftur upp og fræða
mann að auki um nýjasta tekn-
óséníið frá New York, mjósleginn
fölan, born-again-christian og
sannarlega hvítan hvalreka á and-
og sandlausar Qörur poppsins: Mo-
by að nafni (barnabarn Hermanns
Melville (no kidding)) sem einn
manna hefur komist upp í one tho-
usand beats per minute. „Það nálg-
ast það svona hérumbil að mynda
hljóm...“ segir poppfræðingurinn
víðlesni og ég er hæstánægður með
það, svona nýkominn í bæinn, ós-
lasaður, salmonella-frír og laus úr
bílalest „félagshyggjufólks."
PS. Ef þið hyggið á ferðir um
verslunarmannahelgina, gætið þá
vandlega að því hvar Jóhanna Sig-
urðardóttir verður á ferð. Upplýs-
ingar þar að lútandi fást hjá Um-
ferðarráði og Vegaeftirliti.O
LeiMistarhátíð
áhugafólks
Leiklistarhátíð áhugafólks
verður haldin í Mosfellsbæ dag-
ana 25.-26. ágúst næstkomandi.
Bandalag íslenskra leikfélaga
skipuleggur hátíðina ásamt Leik-
félagi Mosfellsbæjar.
Búist er við að 12-15 leiksýn-
ingar verði settar upp á hátíðinni
og verður leikið í Hlégarði sem
og Bæjarleikhúsinu. Auk þess
verða útisýningar hér og þar um
sveitina. Ekki verður einungis
boðið upp á hefðbundnar leik-
sýningar heldur líka barnasýn-
ingar, revíur, tilraunaleikhús og
látbragðsleik.
Áhugaleikarar minna á að þeir
kallast amatörar á alþjóðamáli
en það er dregið að sögninni
„amo“ sem þýðir „að elska“. Þeir
vonast því til að sem flestir kom-
ist í Mosfellsbæinn til að sjá leik-
list sem einungis er gerð af elsku
til listagyðjunnar. ©
Margrét Einars-
dóttir hannar prjóna-
föt sem seld hafa verið í
versluninni Frikka og dýrinu í
sumar. Hún segist alltaf hafa
saumað og prjónað mikið í gegn-
um tíðina og þá aðallega á sjálfa
sig.
„Ég sauma aðallega úr náttúru-
legum efnum eins og bómull og
svo úr prjónaefnum," segir
Margrét.
Hún viðurkennir að sér finnist dá-
lítið furðulegt að rekast á fólk á
götum úti í fötum sem hún hafi
hannað.
Bæði kyn geta fundið eitthvað við
sitt hæfi hjá Frikka og dýrinu af
hönnun Margrétar og skiptir engu
hvort falast sé eftir kjól eða
prjónavesti.
Margrét nemur bókmenntafræði
við Háskóla íslands á veturna en
hefur hug á að leggja stund á
hönnun síðar meir.
„Ég hef mikinn áhuga á hönnun
fyrir leikhús," segir hún.
í næstu viku flytja Frikki og dýrið í
húsnæði að Laugavegi 12a þar
sem Diva var áður til húsa. Sú
verslun flytur í Móanóru, enda
eigendurnir hinir sömu. Margrét
hyggst bjóða upp á aukið úrval
fatnaðar á nýja staðnum og þá úr
fjölbreyttari efnum.©
u^jögur brúðkaup og jarðarfór
maður. En kannski vildi hún hafa
nóg pláss í bílnum fyrir allt „félags-
hyggjufólkið". Samt var hún búin
að fara 600 kílómetra og enn ekki
nokkur maður sem vildi einu sinni
fá far.
Við rekumst á hana í Bröttu-
brekku þar sem hún fer löduhægt
um brekkurnar, búin að safna tutt-
ugu bíla lest fyrir aftan sig, í óðri
önn „að sameina allt félagshyggju-
fólk“. Og jú, þetta er ekki svo vit-
laus aðferð fyrst hún vill á annað
borð vera ein í bílnum. Það kæm-
ust hvort sem er ekki nema þrír aft-
ur í og einn frammí. En hér er hún
búin að fanga tuttugu fjölskyldur í
þessari sérstæðu atkvæðasmölun.
Sumir eru reyndar tregir til og byrj-
aðir að flauta en af gamansemi slá-
umst við viljug aftast í hópinn til að
missa ekki af því þegar hún stoppar
bílinn þvert á veginum við gatna-
mótin í Norðurárdalnum og kemur
út á jogging-gallanum „að taka fólk
Mánudagur
P O P P
Hljómsveitin Out of space spilar á Amsterdam
og lýðurinn tryllist.
BAKGRtlNNSTÓNLIST
Jói Bald frá Búöardal leikur og syngur fyrir
gesti Fógetans þeim til mikillar gleði. Þeir allra
hressustu taka undir.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPIÐ 18.15 Táknmálsfréttir
18.25 Töfraglugginn Endursýndurþáttur. Páta
pensillterákostum. 18.55 Fréttaskeyti 19.00
Hvutti Pátturum hund 19.25 Undir Afríkuhimni
Nú eru bara20þættir ettir. 20.00 Fréttir og
íþróttir Hinn hárbeitti tréttamaður Sigrún Stef-
ánsdóttir sviptir hulunni af soravilpum samfé-
lagsins eins og venjulega. 20.25 Veður Fram-
hatdínæstu viku. 20.30 Gangur lífsins Meint-
ur framhaldsþáttur um vangetinn strák og tjöi-
skyldu hans. Hann heitir Corky og á óþolandi
systur sem er með gleraugu og unglingabólur.
21.20 Bíódagar baksviðs Heimildaþáttur um
gerö Bíódaga Friðriks Þórs. Það er enginn ann-
ar en hinn heimsfrægi Einar Örn Benediktsson
sem sér um gerð þessa þáttar. 21.50 Sterkasti
maöur heims Mynd trá keppninni sem tór fram
síðasta haust. Hinn útbtásni kra/taköggull
Magnús Ver Magnússon er meðai keppenda.
22.50 Blásýran freyðir Bandarisk sakamáia-
mynd gerð eltir sögu Agöthu Christie. Þaö þarf
mikið til að klúðra mynd sem gerð er ettir sög-
um hennar og það er óþarti að vera að saka
Bandaríkjamenn um það áður en myndin er
sýnd. 00.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
STÖÐ 214.00 Pabbi Vælumyndumstrák
sem vill ekki að stelpa sem hann sefur hjá eign-
ist barn sem hann gat með henni en hún vill
hins vegar ekki eyða því og eignast barnið þótt
hann viiji annað og þegar hún er búin að eign-
ast það vill hann taka ásig aukna ábyrgð en þá
vill hún það ekki þó að hann vilji það og þá bla
blabla, grenj, gráturog væl. 15.30 Bingó
Fjöiskyidumund um strák sem langar í hund og
forpldra sem vilja ekki leyfa honum það. Guð
má vita hvað það kemurbingói við. 17.00 Spé-
koppar 17.20 Andinn í flöskunni Hlægilega lé-
legur þáttur fyrir börn. 17.45 Táningarnir í
Hæðargarði Gröluroggelgjugums. 18.45 Kalli
kanína fimmtíu ára Hálfrar aldar afmæli kanín-
unnar síhressu haldið hátíðiega. 19.1919:19
20.00 Neyðarlfnan Það má hlæja að þessu.
20.50 Gott á grilliö 21.25 Seinfeld 21.50 Lit-
ið um öxl Gamlar barnastjörnur króaðaraf og
látnarskvelta úrkoppum viskunnar. 22.40
Piparsveinninn Sheriok Holmes ieysir saka-
mál afaikunnri snilld i óbeinni útsendingu.
00.25 Dagskrárlok
M Y N D L I S T
Anna María Osipow frá Finnlandi sýnir
myndverk I leir I Gallerí Úmbru.
Á laugardaginn var opnaði Þorfinnur Sigur-
geirsson sýningu á verkum sínum í Hafnar-
borg. Hann sýnir olíumálverk og blýantsteikn-
ingar. Þorfinnur nam í Myndlista- og handíða-
skólanum og í Kanada. Hann hefur sýnt víða
bæði heima og erlendis síðastliðin tiu ár. Sýn-
ing hans stendur yfir til 8. ágúst.
f kaffistofu Hafnarborgar sýnir Einar IVIár
Guðvarðarson steina og Ijósmyndir af stein-
um, þ.e. marmara frá Grikklandi, undir yfirskrift-
inni Steinalíf. Sýningin stendur til 3. ágúst. í
Sverrissal eru sýnd verk úr eigu safnsins til 8.
ágúst.
Jón Óskar er með athyglisverða sýningu á
pappírsverkum sinum í Birgi Andréssyni-Galler-
íi. Hið nýja gallerí er staðsett að Vesturgötu 20
og er sýningin opin eftir hádegi á fimmtudögum
og eftir nánara samkomulagi.
Ingibjörg Eyþórsdóttir hefur opnað af-
ar.. tja... athyglisverða sýningu í Galleríi Sæv-
ars Karls við Bankastræti. Þetta er þriðja einka-
sýning Ingibjargar en á henni eru fjögur mál-
verk, unnin með olíu, módellakki og blýanti á
striga. Ingibjörg hefur myndskreytt fjölmargar
bókakápur í gegnum tíðina.
Sýningu Ólafs Benedikts Guðbjartssonar
lýkur á anatómískum myndum í Galleríi 11 á
fímmtudaginn.
Hlynur Hallsson hefur opnað sýningu i Café
Karólínu á Akureyri. Hlynur stundar nú fram-
haldsnám í Hannover. Sýningin stendur til 26.
ágúst.
Þýska listakonan Reinhild Patzelf-Luders
hefur opnað sýningu á málverkum í Gallerí Úm-
'bru.
Þorri Hringsson er með sýningu á málverkum
í gullsmíðaverkstæði Ófeigs. Mjög skemmtileg
verk öll unnin á þessu ári. Þorri nam IMHÍ og í
Jan Van Eyck akademíunni I Maastricht. Sýn-
ingin stendur fram í ágúst.
Sigurður Kristjánsson hefur opnað sýningu í
Gallerí Greip. Sigurður er elsti núlifandi mynd-
listarmaður landsins og jafnvel Erró státar ekki
að slíkum titli. Sigurður sem er fæddur 1897
sigldi til náms út til Kaupmannahafnar árið
1918.1 Gallerí Greip verða jafnframt sýnd verk
eftir Kristján Fr. Guðmundsson en hann
26
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ1994