Eintak - 25.08.1994, Blaðsíða 20
■MríWjfífc
mtmm&zwí
Með
i kögglu
Undanfarin misseri hefur mikið
borið á meintri og sannaðri lyfja-
notkun meðal íþróttamanna. Is-
lenskir afreksmenn hafa ekki farið
varhluta af þessu og nú nýverið féll
þekktur frjálsíþróttamaður á lyfja-
prófi sem haldið var fyrir alþjóðlegt
mót erle'ndis. Á síðasta ári var tekin
upp h'ert reglugerð urn innflutning.
steralyljaf tt] fándsins og eihn af.
þeijn fyr9tu’’Sem var kærður, var nú-.<
verandi dslántjsnjeistaíi r vaxtar-1
Yækt, en í farairgri hans fundust um>
átt» þúsund steratöflur. f sumar:
hafq, þrjú mál konrið upp .vegna>
ólóglegs innflutnings á steralyfjúTn,,
en áð sögn þeirra sem til þekkja hér
á landi er ekki um skipulagða sölu-
starfsemi að ræða, heldur eru menn
að kaupa fyrir sjálfa sig og kunn-
ingja. Heimildamaður EINTAKS í
hópi vaxtarræktarmanna heldur því
fram að lyfjanotkun sé útbreidd
meðal afreksmanna hér á landi, ekki
aðeins í vaxtarrækt, heldur einnig í
greinum eins og knattspyrnu,
handbolta og körfubolta.
Hundrað þúsund
manns á sterum
„Kröfurnar sem almenningur
gerir til þessa fólks gerir það að
verkum að þeir verða sér úti um
hjálparmeðöl til að standast álagið
sem fylgir þrotlausum æfingum og
keppni,“ segir þessi heimildamaður.
Hann segir ennfremur að steralyfm
séu í raun skaðlaus, svo lengi sem
um ofnotkun sé ekki að ræða.
Heildarfjöldi þeirra sem taka inn
hormónalyf í Þýskalandi er talinn
vera að minnsta kosti hundrað þús-
und manns, að nrati sérfræðinga á
borð við íþróttalækninn Friedhelm
Beuker í Dusseldorf, en hann er
forseti sambands vaxtarræktar-
manna í Þýskalandi. Þetta er um
það bil sami fjöldi og sá sem notar
„hörð“ lyf á borð við heróín eða
kókaín.
Stór hluti neytend-
ninna eru unglingar
Reyndar hefur engin vísindaleg
rannsókn farið fram á notkun þess-
ara lyfja í Þýskalandi, en rannsóknir
í öðrum löndum eru taldar gefa
áreiðanlegar vísbendingar um út-
breiðslu þessara lyfja í Þýskalandi.
„Menn verða að gera sér grein fyrir
að þessi lyfjanotkun er þjóðfélags-
legt vandamál, ekki bundið við
íþróttir,“ segir Beuker.
Nákvæmustu rannsóknirnar til
þessa koma frá Bandaríkjunum,
þaðan sem „frístundadópið“ er
upprunnið. Þar hafa lyfjayfirvöld
áætlað að í hópi þeirra tveggja til
þriggja milljóna sem nota þessi lyf,
. séu um. hálf milljón unglinga. I
nafnlausri könnun í grunnskólum
ogmenntaskólum í Bandaríkjurtum
sqgðust um sex og hálft prósent
drengja og tvö og hálft prósent
s.stúlkna hafa neyft anabólískra stera.
j Tveir þriðju þfeirra úoru yngri cn UJ
' ára þígar lyfjanna var neytt f fyrsta
jskiptið. -
Elni tilgangurinn
að lítaoetur út
Þessi lyfjaneysta er ekki einskorð-
uð við bandaríska skóla, því af
rannsókn sem gerð var við Oxford-
háskólann í Englandi má telja að
um 100 þúsund ungir Bretar noti
hormónalyf. Flestir þeirra eru karl-
kyns og að sögn þeirra sem til
þekkja er tilgangurinn aðeins einn;
að líta betur út.
Emil Vrijman, læknir og for-
stöðumaður upplýsingamiðstöðvar
um lyfjanotkun í íþróttum í Hol-
landi, segir að anabólískir sterar séu
ekki lengur eingöngu notaðir til
þess að auka árangur í keppnis-
íþróttum. Hann segir að áberandi
stór hluti notenda komi úr efri
stéttum þjóðfélagsins, ólíkt vaxtar-
ræktarmönnum, og í hugum þeirra
séu þessi lyf jafn sjálfsögð í líkams-
rækt eins og lóðin og hlaupahjólið.
Veltan orðin um
500 milljónir marka
Þrátt fyrir hættulegar afleiðingar
steranotkunar hefur fjöldi notenda
aukist og með þeim stækkar sá
svarti markaður sem sér notendum
fyrir lyfjunum. Þar sem þessi efni
eru lyfseðilsskyld verða notendur
sér úti um þau í gegnum skipulögð
alþjóðasamtök og í gegnum auglýs-
ingar í vaxtarræktartímaritum er á
auðveldan hátt hægt að panta lyfin.
Skotið hefur verið á að velta þessara
viðskipta í Þýskalandi einu sé að
minnsta kosti ioo milljónir marka
og Beuker heldur því fram að raun-
veruleg velta sé að minnsta kosti
fimm sinnum meiri. Talið er að
markaðurinn í Bandaríkjunum sé
enn stærri, eða um þrír milljarðar
marka.
Sú starfsemi sem lögregla og
tollayfirvöld í hinum ýmsu löndum
hafa komið upp um, bendir til þess
að slíkar ágiskanir séu ekki fjarri
Islcridingar reyna
að smygla inn
steratöflum
Þrju mal
um tima
A skommum tima hefur
orðið uppvíst um þrjár
tilraunir til innflutnings
á steralyfjum til lands-
ins. Þetta gerðist 14.
maí, 27. júlí og nú síð-
ast 13. ágúst. í öllum
tilvikum var um notend-
ur að ræða og var fíkni-
efnadeild tollgæslunnar
á Keflavíkurflugvelli á
ferðinni í öll skiptin.O
sanni. 1987 var komið upp um
smyglstarfsemi með steralyf í Eng-
landi og velta þeirrar starfsemi var
metin á 40 milljónir punda. Árið
1991 tilkynnti þýska lögreglan um 58
tilfelli ólöglegrar verslunar með
steralyf, en tók það jafnframt fram í
skýrslu sinni að einungis lítill hluti
starfseminnar kæmist upp.
Austur-Evrópa tekin
við af Austurlöndum
Og einstök tilfelli sýna í hvaða
mæli þessi starfsemi er stunduð.
Lögreglan í Slésvík-Holstein í norð-
urhluta Þýskalands kom upp um
litla lyfjaverksmiðju í borginni
Ratzeburg, þar sem finna mátti 1,4
milljónir tafia ásamt nokkur hundr-
uð kílóum af efni sem átti effir að
móta í pilluform. Efnin áttu upp-
runa sinn að rekja til Póllands og
verð framleiðslunnar á svörtum
markaði var áætlað vera fjórar og
hálf milljón þýskra marka. Nokkr-
um dögum seinna var íþróttamaður
„Steranotkun er vaxandi vanda-
mál meðal venjulegm unglingau
segir Pétur Pétursson læknir.
Steranotkun ungmenna í heim-
inum er að aukast og sérstaka at-
hygli vekur að hlutfall venjulegs
fólks og svo affur íþróttamanna er
að breytast. Venjulegt fólk notar
stera í auknum mæli til að ná fram
betra' útliti og til að bæta sjálfs-
myndina.
Pétur Pétursson, læknir á Ak-
ureyri, hefur mikið- fjallað um
notkun steralyfja meðal íslenskra
vaxtarrætarmanna og hann segir að
notkun þessara lyfja meðal ungs
fólks sé stöðugt vaxandi vandamál.
„Þetta er velþekkt úti í Evrópu og
ekkert bendir til annars en að þetta
viðgangist hér einnig,“ segir hann.
„Kannanir erlendis hafa sýnt að
íþróttamenn eru að komast í
minnihluta þeirra sem nota þessi
lyf og það er ótrúleg staðreynd að
mínu mati. Þessir aðilar sem nota
lyfin gera sér ekki grein fyrir hætt-
unni sem þetta veldur, þeir eru síð-
astir til að sjá breytingar á líkam-
legu og andlegu atgervi sínu og það
eru oftast foreldrar eða makar, oft-
ast kærustur sem sjá hvað er á
seyði.“
Nú segir heimildamaður okkar að
t lagi sé að taka steralyfm, ogþau séu
skaðlaus svo lengi sem um ofnotkun
sé ekki að rœða?
„Ég er þeirrar skoðunar að ef um
heilbrigða einstaklinga sé að ræða
sé notkun þessara lyfja ofnotkun.
Svo einfalt er það. Sé einstaklingur-
inn hins vegar með of lítið magn
þessara hormóna í líkamanum þá
er ósköp eðlilegt að hann innbyrði
þessi lyf.“
Nú hafa borist fréttir af óprúttn-
um aðilum sem selja þessi lyf en hafa
eitthvað allt annað í umbúðunum,
svo sem penisillín og svo framvegis?
„Já, þetta hef ég heyrt. Þetta er
auðvitað stórhættulegt og gerir
þetta mál enn alvarlegra. Það er
nógu hættulegt fyrir líkamann að fá
inn í sig aukið magn hormóna þótt
ekki bætist við einhver óáran sem
enginn veit hvað er. 1 raun má segja
að öll Iyf sem ekki fara í gegnum
lyfsala séu varasöm, því maður er
ekki klár á því hvað þau inni-
halda.“ O
tekinn í fylkinu Westfalen með
rúma hálfa milljón sterataflna.
Fyrir nokkrum árum voru þessi
efni aðallega sótt til Austurlanda,
Frakklands og Spánar, en eftir fall
járntjaldsins hefur framboð þessara
efna frá Austur-Evrópu stóraukist.
Vaxandi framboð hefiir þrýst verð-
inu niður. „Vikuskammtur af ster-
um kostaði áður um 800 mörk, en
nú er hægt að fá hann fyrir 35, sem
þýðir að venjulegur unglingur getur
borgað þetta af vasapeningum sín-
um,“ segir Beuker.
Mikil gróðavon
Þrátt fyrir lækkað verð, er enn
mikil gróðavon falin í innflutningi
þessara lyfja. í mars í fýrra fann
þýska lögreglan rúmlega 700 þús-
und rússneskar steratöflur faldar
undir sæti í langferðabíl. Þessar töfl-
ur kosta um fjörutíu þúsund mörk í
Rússlandi, en í Þýskalandi hefði
gróðinn sennilega orðið á bilinu tíu
tii tuttugufaldur.
Þar sem mögulegur gróði er mik-
ill og refsingar eru minni en þegar
um venjuleg fikniefni er að ræða,
fjölgar þeim stöðugt sem vilja leggja
þessa verslun fyrir sig. „Innflutning-
urinn er tiltölulega einfaldur," segir
hollenskur smyglari sem blaðamað-
ur Stern talaði við. Hann er með á
sínum snærum ffamleiðanda í Pól-
landi, sem flytur vöruna til Ianda-
mæra Þýskalands. Þar tekur annar
aðili við lyfjunum og flytur þau til
fastra viðskiptavina í Mið-Þýska-
landi. „Áður fyrr vissum við ekki
hvers konar lyf hann myndi koma
með í næstu ferð. Nú vitum við ná-
kvæmlega hver þörfin er á hverjum
tíma og flytjum eingöngu það magn
í hverri ferð. Þar með stígur effir-
spurnin." Þessi smyglari flytur
•einnig lyf til Hollands, þar sem smá-
salar taka við þeim, eða þau eru seld
föstum viðskiptavinum. „Ég nota
sendiboða sem fá, auk þóknunar,
sína skammta frítt, þannig að kerfið
er næstum því vatnsþétt," segir
þessi hollenski smyglari.
Fölsk lyf á
markaoinum
En á þessum markaði eins og
annars staðar má finna maðka í
mysunni. Fundist hafa lyfjaglös
merkt með Testosteroni, sem hafa
reynst vera full af penisillíni og önn-
ur hormónalyf hafa verið bætt með
svefnlyfjum, eða jurtaolíu. Hol-
lenski smyglarinn segist reglulega
líta eftir gæðum framleiðslunnar.
„Ég hef engan áhuga á því að lenda í
fangelsi fyrir manndráp vegna lé-
legrar framleiðslu eða svikinnar
vöru,“ segir hann. Aðspurður hvort
það nagi ekki samvisku hans, að
viðskiptavinirnir geti einnig drepið
sig með ofneyslu ósvikinnar vöru,
svarar hann: „Það skiptir mig engu.
Ég er kaupsýslumaður og viðskipta-
vinirnir verða að vita hvað þeir eru
að láta ofan í sig.“ ©
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994