Eintak - 15.09.1994, Page 10
-E INJAK
Gefið út af Nokkrum ísiendingum hf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Framkvæmdastjóri: Árni Benediktsson
Auglýsingastjóri: Örn ísleifsson
Dreifingarstjóri: Trausti Hafsteinsson
HÖFUNDAR EFNIS í ÞESSU BLAÐI
Alda Lóa Leifsdóttir, Andrés Magnússon,
Björn Ingi Hrafnsson, Bonni, Davíð Alexander, Glúmur Baldvinsson,
Gerður Kristný, Hannes Lárusson, Huldar Breiðfjörð, Jói Dungal,
Jón Óskar Hafsteinsson, Jón Kaldal, Jón Proppé,
Loftur Atli Eiríksson, Ragnar Óskarsson, Sigurjón Kjartansson,
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson, Sævar Hreiðarsson
og Þórarinn Leifsson.
Setning og umbrot: Nokkrir íslendingar hf.
Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi.
Verð í lausasölu kr. 195.
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 10 prósenta afslátt.
----------------------o---------------------------1
Fylgismenn
Jóhönnu fundnir
Loksins er komin niðurstaða í það hvað Jóhanna Sigurðar-
dóttir hyggst fyrir. Margir höfðu velt því fyrir sér hvað dvæli
orminn langa, en nú er hann sumsé að koma í ljós. Þó fyrr
hefði verið.
Þegar Jóhanna féll í formannskosningu fyrir Jóni Baldvini
kvað hún upp úr um það að sinn tími myndi koma. Sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem gerð var fyrir EINTAK og liirt-
ist í síðasta tölublaði, kom fram að framboð hennar, sem þá
var þó ekJd ljóst að af yrði, fengi tæplega n prósent atkvæða
og sjö þingmenn kjörna. Skoðanakönnun Félagsvísinda-
stofnunar bar að sama brunni. Hennar tími virðist vera kom-
inn.
Það er öllu óljósara hvers vegna hennar tími er kominn, því
Jóhanna hefur lítið haft sig í frammi að undanförnu. Nema
þá að það sé ástæðan. Það verður nefnilega að segjast eins og
er að þrátt fyrir að Jóhanna hafi vissulega átt sín pólitísku
baráttumál þá hefur pólitísk sannfæring hennar og grund-
vallarhugsun aldrei legið ljós fyrir. Það er helst að hægt hafi
verið að toga það upp úr henni að hún aðhylltist félags-
hyggju, en það er enginn neinu nær. Halldór Ásgrímsson,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Svavar Gestsson aðhyllast öll
félagshyggju, en það myndi enginn halda því fram að þau
væru pólitískir samherjar.
Menn vita það um félagshyggju Jóhönnu að hún vill vera
góð við lítilmagnann, en hún eða félagshyggjufólk almennt
hafa tæpast einkaleyfi á því. Svarið við því í hverju félags-
hyggja Jóhönnu felist er að finna hér að ofan í orðum hennar
á flolcksþingi Alþýðuflokksins, þegar hún sagði að sinn tími
myndi koma en ekki „oJckar". Jóhanna hefur alla tíð verið
lóner í pólitík og það verður hún áfram þrátt fyrir fylgið.
Eftir fyrrnefndar skoðanakannanir hefur það hins vegar
gerst að stuðningsmenn Jóhönnu eru að koma út úr skápn-
um í stað þess að opinbera sig aðeins í skoðanakönnunum.
Og hverjir eru það þá helstir? Nöfn Láru V. Júlíusdóttur,
Ólínu Þorvarðardóttur, Ragnheiðar Davíðsdóttur, Þorláks
Helgasonar og Ögmundar Jónassonar hafa verið nefnd í því
sambandi og sum þeirra jafnvel sem hugsanlegra frambjóð-
enda. Hvað á þetta fólk sameiginlegt fyrir utan það að geta
talist félagshyggjufólk? Jú, það er þekkt fyrir það að vera jafn-
miklir lónerar í pólitík og Jóhanna, en því verr gefast lónera
ráð sem þeir koma fleiri saman.
Galli framboðs Jóhönnu verður nákvæmlega sá hinn sami
og í ljós kom þegar Vilmundur heitinn Gylfason stofnaði
Bandalag jafnaðarmanna og Albert heitinn Guðmundsson
stofnaði Borgaraflolckinn. Þeir voru vissulega stórbrotnir ka-
rakterar, en hugmyndafræðin var ekki beysnari en svo að
flolckarnir lifðu ekki stofnendur sína. StjórnmálaflokJca verð-
ur að stofna um hugmyndir en ekJci menn. O
Ritstjórn og skrifstofur
Vesturgata 2,
101 Reykjavík
sími 1 68 88 og fax 1 68 83.
Þetta blað var unnið undir lifandi píanóglamri og skarkala af neðri hæðinni,
24 fílakaramellum, sex pökkum af meðalbrenndu Gevalia kaffi, (átta skeiðar á móti
einum lítra af vatni) og fersku haustlofti utan af Vesturgötu.
LESENDUR
Látið börnin leggja hjólunum
Björg Andrésdóttir hringdi
Mig langar bara til að minna for-
eldra á að það er kominn tími til að
börnin leggi hjólunum fyrir vetur-
inn. Það fer að styttast í næturfrost-
ið og þá verður mikil hálka á göt-
unum á morgnana, einmitt á þeim
tíma sem börnin eru á leið úr skól-
anum.
Eins er orðið það dimmt að það
er kominn tími til að börnin fari að
ganga með endurskinsmerki.
Þetta eru náttúrlega atriði sem
allir foreldrar ættu að gera sér grein
fyrir, en maður veit aldrei.
í blaðinu hjá ykkur hefur mikið
verið fjallað um Krossgötumálið
svokallaða. Þó að ég hallist að því
að átakið sé af hinu góða hefur um-
fjöllunin fengið mig til að velta dá-
lítið fyrir mér hverja eigi að styrkja
og hverja ekki. Auðvitað standa
líknarféiög og ýmis samtök sig mis-
vel í að vinna úr þeim peningum
sem þeim er látin í té. Til að vinna
Bœtum
umferðina
Mér finnst orðið tímabært að Is-
lendingar fari að læra að aka eins og
menn. Það gerist trekk í trekk að
það er svínað fyrir mann á götum
borgarinnar. Eins virðist mér að
menn séu farnir að aka oftar yfir á
rauðu ljósi en áður. Það skapar
auðvitað stórhættu í umferðinni og
er í raun ekkert annað en morðtil-
raun eða þá sjálfsmorðstilraun.
úr því fjármagni sem berst í svona
söfnunum eru auðvitað fengnir
fjármálamenn og þeir hljóta að
standa sig misvel. Og þar sem fjár-
málamenn eru mis snjallir ætti
maður að kynna sér hvernig er
staðið að fjármálum líknarfélaga
áður en maður styrkir þau, allavega
ef um stóran styrk er að ræða.
Sölvi Magnússon, Reykjavík
Annað sem mér finnst vera að
aukast er hreinn og beinn dóna-
skapur í umferðinni. Ef maður svo
mikið sem flautar á bíl er mjög lík-
legt að manni sé sýnd löngutöng,
þetta er vissulega mjög ógeðslegt.
Því miður virðist mér það vera
yngstu ökumennirnir sem eru hvað
hættulegastir í umferðinni og mað-
ur veltir því fyrir sér hvort það sé
ástæða til að hækka bílprófsaldur-
inn. Ég er ekki að segja að allir ung-
ir ökumenn séu slæmir, margir eru
nokkuð góðir ökumenn.
Ég vil einnig benda leigubílstjór-
um og strætisvagnabílstjórum á að
þeir eiga ekki göturnar en af öku-
lagi þeirra að dæma mætti ætla svo.
Það eru einmitt atvinnubílstjórarn-
ir sem ættu að vera til fyrirmyndar.
Óskar Axelsson, Reykjavík
Hver er
ábyrgð
btlasala?
Fyrir nokkrum dögum stóð bíll-
inn minn á plani bílasölu nokkurr-
ar hér í bæ, og ætiunin var að selja
bílinn. Eina nóttina var koppunum
stolið af bílnum. Þegar ég ætlaði
svo að fá koppana greidda hjá eig-
anda bílasölunnar, sagði hann að
bílasalan ábyrgðist ekki bílana sem
stæðu á planinu. Og benti mér á, að
þó það væri framið morð í garðin-
um hjá mér, bæri ég ekki ábyrgð-
ina. Þetta fmnst mér nú full hæpin
samlíking, þar sem bílasölueigand-
inn hefur ákveðið að taka bílinn
inn á sína einkalóð og selja hann,
hefði maður haldið að hann bæri
ábyrgð á honum. Það er allt annað
ef einhver fremur morð í garðinum
hjá mér. Við því er ekkert að gera
og rnorðið hefði getað verið framið
annars staðar. Hjólkoppunum
mínum hefði ekki verið hægt að
stela annars staðar en einmitt á við-
komandi bílasölu.
Því varpa ég fram spurningunni
um hver sé ábyrgð bílasala á bíl sem
stendur á plani fyrirtækis hans?
Með von utn svar
Guðmundur Harðarson,
Reykjavík
Líknarfélög
og fjársafnanir
Kvikmyndaleikstjórinn Niels
Gaup átti að vera fulltrúi
Norðmanna í dómnefnd
kvikmyndahátíðarinnar Nordisk Pa-
norama sem hefst hér á landi í
næstu viku. Gaup gerði myndina
Leiðsögumanninn, sem skartaði
meðal annars Helga Skúlassyni í
stóru hlutverki, en sú mynd sló
rækilega í gegn og var til dæmis til-
nefnd til Óskarsverðlaunanna árið
1988. Nú hefur Gaup hins vegar af-
boðað komu sína á hátíðina og
sent í sinn stað annan norskan
kvikmyndagerðarmann sem er svo
til óþekktur. Þetta þykir fremur
bagalegt því Gaup var lang þekkt-
asti dómnefndarmaðurinn og má
segja að hann hafi átt að vera
skrautfjöður nefndarinnar. í janúar á
næsta ári er fyrirhugað að Gaup
hefji tökur á bíómynd sem Christ-
opher Lambert á að leika aðalhlut-
verk í. Var sagt að Gaup væri önn-
um kafinn við undirbúning þessarar
myndar og gæti því ekki sinnt fyrir-
huguðum dómnefndarstörfum. Hér
heima hafa menn haft á orði að
þetta sé tómur fyrirsláttur og fjar-
vera Gaup sé liður í aðgerðum
Norðmanna vegna þorskveiða ls-
lendinga í Smugunni...
Ríkissjónvarpið leitar nú log-
andi Ijósi að einhverjum til
að taka við þætti þeirra Ingó
og Völu. En eins og kunnugt er
ákváðu þau
síðasta vor að
vera ekki með
þáttinn í vetur.
Þátturinn var
geysivinsæll og
vill Sjónvarpið
ekki missa
hann út af vetr-
ardagskránni. Heyrst hefur að lík-
legasti kandítatinn til að taka að sér
þáttinn sé Sigríður Arnarsdóttir
þula. Sigríður hefur starfað við þátt-
argerð hjá Plús-film og veit því
hvað málið snýst um. Og ekki þykir
skemma að vissulega hefur hún út-
litið með sér...
10
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994