Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 15.09.1994, Qupperneq 14

Eintak - 15.09.1994, Qupperneq 14
Konur um víða veröld hljóta að hafa fyllst vonbrigðum yfir þessari mynd af kyntákninu Mi- chael Douglas. Hann er greini- lega ekki eins spengilegur um sig miðjan og maður hefði mátt ætla. Satt besta að segja er hann skreyttur allgóðu vara- dekki, sem vakandi auga myndavélarinnar lætur ekki fara fram hjá sér. Micheal hefur ef- laust talið sig óhultan fyrir myndavélum þar sem hann spókar sig hálfnakinn við sund- laugina við heimili sitt á eyjunni Majorka.O Breski leikstjórinn og leikarinn Kenneth Branagh sem gerði meðal annars Much Ado About Nothing er nú að gera kvikmynd um Frankenstein eftir frægri sögu Mary Shelley. Það er enginn annar en Robert de Niro, sem fer með hlutverk sköpunarverks vísindamannsins Vic- tors Frankensteins, en með önnur hlutverk fer eigin- kona Branagh Emma Thompson, sem fékk Óskarinn fyrir Howard’s End og Helena Bonham Carter sem lék i Room with að View. Branagh segir miklum tíma hafa verið eytt í að hanna útlit Frankensteins. „Við skoðuðum þær ógeðslegustu bækur sem ég hef nokkum tíman rekist á. Þær voru með myndum af alls kyns vansköpun og sjúkdóm- um. Meðal annars sáum við fólk, sem misst hafði hluta af andlitinu í slysum,” segir Branagh. Hann tekur þó fram að myndin eigi ekki að snú- ast um skrímsli og martraðir eins og tíðkast í gotneskum bókmenntum heldur fyrirbæri, sem leynast allt í kringum okkur og ekki síður hið innra. 0 Útlitið íþyngir jafnt háum sem lágum og þar eru fegurstu fyrirsætur engar undantekn- ingar. Cindy Crawford hefur löngum verið fyrirmynd ungra kvenna og hafa líkamsrækt- armyndbönd hennar selst í um fimm milljónum eintaka. Þrátt fyrir það hefur Cindy áhyggjur af útlitinu og þá sér- staklega appelsínuhúð sem á það til að myndast aftan á lærum hennar. Linda Ev- angelista er líka talin með fal- legri konum en samt finnst henni munnur sinn engin prýði. „Hann er lítill og skakk- ur,“ segir hún og ef hún færi í fegrunaraðgerð vildi hún helst fá glaðlegan og munúð- arfullan munn. Hjá Naomi CampbelI eru það fætumir sem angra hana. Kennir hún dansinum um en hún sótti ballettíma sem bam. © Þetta er engin önnur en Liv Tyler, dóttir hins kjaftstóra Steven Tyler, söngvara Airosmith, og konu að nafni Bebe Buell, sem var þekkt fyrirsæta á áttunda áratugnum. Þótt Liv sé aðeins 17 ára gömul er hún þegar farin að feta sig áfram í kvikmyndaheiminum. Hún lauk ný- lega við að leika í kvikmyndinni Si- lent Fall sem er þriller eftir leikstjór- ann Bruce Beresford. Nú er hún að leika í mynd sem heitir Heavy. Mótleikarar hennar eru meðal ann- arra Deborah Harry úr Blondie og kærasta Liv leikur ekki ónýtari maður en Evan Dando söngvari Lemonhead. Liv veit alveg hverjum hún á fagurt útlit sitt að þakka.„Ég hef augun og rassinn hennar mömmu en nefið, varirnar, kinnbeinin og fæturnir eru frá pabba,” fullyrðir hún. Liv vissi reyndar ekki hver pabbi hennar var fyrr en hún var orðin níu ára gömul. Foreldrar hennar höfðu aldrei búið saman og Buell neitaði Tyler að fá að umgangast dóttur sína fyrr en hann segði skilið við dópið sem fylgdi lífi rokkarans. Það gerði hann að lokum og nú eru þau afskaplega samheldin fjölskylda. 0 Halda mætti að hér væri óskars- verðlaunahafinn Tom Hanks að fara að leika DavIð Oddsson en svo er ekki. Þetta er mynd úr gömlum sjónvarpsþáttum sem heita Bosom Buddies og fór Hanks þar með eitt aðalhlutverka. Nú er verið að endursýna þættina og segja kunnugir þá fara mjög í taugarnar á leikaranum og sér- staklega þáttur þar sem hann fer í kvenmannsföt. Því hefur Hanks nú boðið fimm milljónir dala fyrir sjónvarpsréttinn yfir Bosom Buddies svo hann geti séð til þess að þættimir komi aldrei aftur fyrir almenningssjónir. Þeir hafa efni á svona pirringi þessir óskarsverðlauna- leikarar. O Kvikmyndaleikarinn Brad Pitt sem brilleraði í Thelmu og Louise og síðar í myndinni California hefur ekki alltaf verið barnanna bestur. Einhverju sinni þegar hann var nýfluttur til Los Angeles og var að rúnta með vinum sínum sá hann mann á útimatsölu- stað með mikla samloku á diski. Brad bað vini sína um að hleypa sér út úr bílnum, sem þeir og gerðu. Hann gekk lötur- hægt að manninum en þreif svo skyndilega það sem eftir var af samlokunni og þaut aftur inn í bílinn. Það var ekki eins og Brad hefði verið svona óskaplega hungraður heldur fannst honum þetta bara svona óskaplega fyndið. 0 Forsetakosningar í Frakklandi Balladur og Delors líklegastir Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), Jacques Delors hefur mjög sótt í sig veðrið, sem væntanlegur for- setaframbjóðandi í Frakklandi. Edouard Balladur forsætisráð- herra hefur þó enn vinninginn, en mjótt er á munum. Forsetakosn- ingar verða haldnar í Frakklandi á næsta ári, en þó kosningabaráttan sé ekki hafin og enginn hafi lýst yfír framboði, þykir mönnum einsýnt hvert stefnir. í skoðanakönnun, sem birtist í Le Parisien í gær, voru franskir kjósendur spurðir hvort þeir bæru traust til helstu kandídatanna. 53 prósent kváðust treysta Balladur, sem er íhaldsmaður, en 52 prósent Delors, sem er sósíalisti. Delors, sem er fyrrverandi fjármálaráð- herra, lætur af störfum hjá ESB í desember. Hvorugur þeirra hefur Afríka sagt nokkuð um að hann ásælist stól Franpois Mitterrand í kosn- ingunum í maí næstkomandi og Balladur hyggst ekki einu sinni færa kosningarnar í tal fyrr en eftir ára- mót. Tveir fyrrverandi forsætisráð- herrar, miðjumaðurinn Raymond Barre og ný-gaullistinn Jacques Chirac, sem er borgarstjóri Parísar, sigldu í kjölfarið með 38 prósent og 37 prósent. Balladur, sem er samflokksmað- ur Chiracs, hefur fengið byr í seglin eftir að efnahagsbati fór að segja til sín, aðgerðir franskra hermanna í Rwanda hafa ekki sakað heldur og handtaka hryðjuverkamannsins Carlos sömuleiðis. Skoðanakönn- un í Le Figaro leiddi í ljós að Frakk- ar voru ekki jafnsvartsýnir á efna- hagsástandið og þeir voru fyrir misseri. © SÞ sakaðar um aðgerðaleysi Afrísk mannréttindasamtök saka Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um að framfylgja stefnu stór- veldanna fremur en að koma í veg fýrir að átök í álfunni breiðist út í þjóðarmorð. Það var Bibiane Gih- manyi-Mbaye, fulltrúi Lýðræðis- og mannréttindanefndar Afríku, sem notaði tækifærið við setningu ráðstefnu um friðarumleitanir í Afríku, sem haldin er í Addis Ab- aba, til þess að hvetja Öryggisráðið til þess að starfa með lýðræðislegri og ábyrgari hætti. „Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna lítur ekki á það sem hlutverk sitt að sjá til þess að átök í Afríku verði ekki að réttum og sléttum þjóðarmorðum...Það miðar ein- ungis að því að framfylgja stefnu hinna öflugustu meðal fastafulltrú- anna fimm,“ segir hún, en fastafull- trúa í ráðinu eiga Bandaríkin, Bret- land, Frakkland, Kína og Rússland. Mbaye kveður Öryggisráðið hafa sannað getuleysi sitt í fyrrum Júgó- slavíu og Rwanda og segir fulltrúa SÞ, sem sendir voru til Rwanda áð- ur en blóðbaðið hófst í apríl, ekki hafa haft vald til þess að stöðva átökin áður en þau mögnuðust. I upphafi fjöldamorðanna í apríl var fækkað í liði SÞ í Rwanda úr 2.500 manns í 450. Mbaye segir ekkert hafa verið gert á sérstökum fundi Öryggis- ráðsins um Rwanda til þess að stöðva fjöldamorð á um einni milljón manna og þar hefðu menn jafnvel skirrst við að nota orðið „f)öldamorð“. Mbaye telur að taka verði neit- unarvald Öryggisráðsins til endur- skoðunar og jafnframt þjóðir eða álfur heims hafi þar fulltrúa í sam- ræmi við fólksfjölda. 0 Rússland Sjómenn skotnir í landhelgi Rússneska landhelgisgæslan skaut á kínverskan fiskibát á þriðju- dag með þeim afleiðingum að tveir rnenn fórust. Þeir eru fyrstu fórnar- lömbin í vaxandi fiskveiðideilu umhverfis Kúríleyjar, en sent kunnugt er standa Rússar víðar í deilum vegna fiskveiðiréttinda. „Með þessu erum við að vara all- ar þjóðir við því að fara um haf- svæði okkar,“ sagði Míkhaíl Dem- úrín, talsmaður rússneska utanrík- isráðuneytisins. „Lanadamæra- verðir okkar munu grípa til hvaða aðgerða sem er til þess að verja lög- sögu okkar.“ Að sögn rússneskra yfirvalda voru sex skip staðin að veiðum í landhelgi og urðu skipstjórnar- menn þeirra ekki við tilmælum um að stöðva skipin, heldur reyndu þau að flýja. Þá var skotið yfir skip- in, en þegar það dugði ekki til var skotið á skipin. Báturinn, sem skotið var á, var frá kínverska alþýðulýðveldinu, en Rússar deila fyrst og fremst við Jap- ani um yfirráð yfir Kúríleyjum. Sovétmenn hernámu þær í Iok seinni heimsstyrjaldar, en í því fól- ust einu afskipti þeirra af Kyrra- hafsstyrjöldinni. Þeir hafa neitað umleitunum Japana um að fá þær afhentar á ný, en Japanir viðurkenna ekki yfirráð Rússa. © 14 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.