Eintak

Eksemplar

Eintak - 15.09.1994, Side 23

Eintak - 15.09.1994, Side 23
Japönsk matargerðarlist í Ingólfsstræti Unnusta kokksins, barns- móðir og hjálparhönd hans í eldhúsinu enda matreiðslumeistari eins og hann. Ragnar Baldursson Hann dvaldi íátta ár í Asíu að nema heimspeki, vann um tíma sem blaðamaður og fréttamaður á Ríkisútvarpinu en hefur nú stofnað japanskan veitingastað í Reykjavík í félagi með kínversku fyrirtæki. Makoto Nagayama Matreiðslumaður frá Japan er sestur að í eldhúsi Samurai í Ingólfsstræti þar sem áður var hannyrðaversiunin Hof. í næstu viku opnar japanskur veitingastaður sern keniur til með að heita, Samurai, í Ingólfsstræti ta, beint á móti íslensku óperunni. Að sögn Ragnars Baldurssonar eig- anda Samurai, verður staðurinn blandaður. „Við munum ekki eingöngu bjóða upp á hráa fiskrétti eins og sushi og sashimi heldur einnig ýmsa djúpsteikta rétti, til dæmis tempura og grillaða kjúklingapinna sem kallaðir eru yakitori. Það er út- breiddur misskilningur að japansk- ur matur sé eingöngu hrár fiskur. Japanskur matur er miklu fjöl- breyttari og við ætlumaö reyna að hafa tiltölulega breiða línu í matar- gerðinni, ekki bara hráan fisk.“ Matseðillinn verður byggður upp á smáréttum, en í Japan setjast menn yfirleitt niður og borða marga smáa rétti og drekka með japönsk vín, bjór eða sake. „Við verðum með japanskt sake og ætlunin er í framtíðinni að auka úrvalið af japönskum drykkjum. Matreiðslumeistari staðarins kem- ur að sjálfsögðu frá Japan og heitir Makoto Nagayama. Það er dálítið sniðugt að Makoto þessi er gömul hafnaboltastjarna í Japan og var auk þess í popphljómsveit áður en hann lagði fyrir sig matargerð. Honum til aðstoðar í eldhúsinu verður unnusta hans, sem einnig er matreiðslumeistari og heitir Reiko Yokoyama. Þeim til halds og trausts verða svo íslenskir kokkar." Ragnar segir að hægt verði að koma á Samurai og fá sér einn smárétt og eitthvað að drekka, eða þá sitja í rólegheitunum og borða fulla máltíð, allt eftir hentisemi hvers og eins. Ragnar segist hafa kynnst jap- anskri matargerðarlist þegar hann dvaldist í átta ár í Asíu og nam heimspeki. Fyrst fjögur ár í háskól- anuni í Tokyo og svo önnur fjögur ár í háskólanum í Peking. Hann segist hafa verið orðinn úrkula vonar um að einhver opnaði svona stað og því ákveðið að gera það sjálfur. Hann sé þó ekki einn með staðinn því á bak við hann standi kínverskt fyrirtæki, og um daglegan rekstur sjái Jóhannes Jóhannesson sem sé menntaður í hótel- og veitingarekstri. © Stórtónleikar á Skaganum Hljómsveitirnar Lipstick Lovers, Silfurtónar, 13, Jógúrt, Olympía og Bubbi Morthens koma frarn á Skagarokki ‘94 á föstudagskvöld. Tónleikarnir verða haldnir í Bíóhöllinni á Akranesi og hefjast þeir kl. 21.00. Þeir sem eiga veg og virðingu af skipulagningu þessara stórtónleika á Skaganum eru Bjarki Kaikumo söngvari Lipstick Lovers, og Óli Páll, tæknimaður á Rás 2, en tónleikunum verður útvarpað beint á rásinni um allt land. „Þetta er í annað sinn sem við höldum Skagarokkið en við gerðum það líka í fyrra,“ segir Bjarki. „Hljómsveitirnar sem komu fram þá voru ekki eins þekktar en-engu að síður var meiriháttar stemmning.” Að sögn Bjarka eru þetta allt bönd sem eru að gera eitthvað skemmtilegt og skapandi, og inörg þeirra eru að vinna að efni sem gefið verður út fljótlega. I fyrra var fullt hús á Skagarokki en Bíóhöllin tekur um 400 áhorfendur. „Ég reikna með að það verði troðfullt hús en það er frábært að spila þarna,“ segir Bjarki. „Þetta er hús í eldri kantin- um og sviðið er stórt og hljómburðurinn góður. Það hafa verið uppi hugmyndir um að halda svona tónleika víðar urn landið en engar ákvarðanir verið teknar um það ennþá." Tónleikarnir standa til miðnættis og kostar 1200 kall inn. © Óli Páll TÆKNIMAÐUR OG Bjarki Kaikumo SÖNGVARI. Þeir standa fyrir stórum tónleikum á Skaganum. É POPP_ Fimmtudagur I Rósenberg spilar hljómsveitin Froskar og fiðrildi með Ólaf Ól- afsson TURBO í fararbroddi. Ólafur er sagður hafa allt að bera til að höndla heimsfrægðina. Röddinni í honum er líkt við hávaðann sem kemur úr þotuhreyfli og hann sagð- ur geta látið blokkir hrynja með einu öskri. Á Feita dvergnum verður Blústríó Geira Ólafs að spila. Þeir spila djassblús og segjast vera þeir bestu i bransanum. Haraldur Reynisson stórtrúbador verðurá Fógetanum íkvöld. Halli er Ijúfmenni sem fær alla i gott skap með undurblíðum söng sinum og gitarspili. i kvöld spilar 1000 Andlit á Gauki á Stöng. Þetta er sætasta hljóm- sveit landsins og tónlistin enn sæt- ari. Á tveimur vinum verður glimrandi Karaoke ikvöld. Smellið, skellið, fellið, rellið og sláið svo í gegn. Föstudagur Tveir vinir ætla að bjóða upp á Snigiabandið íkvöld. Þessi skemmtilega hljómsveit hefur ekki spilað lengi í Reykjavík og því upp- lagt fyrir aðdáendur þessarar sveitar að skella sér og htusta á þá félaga. Feiti dvergurinn býður gestum sin- um upþ á dúndrandi gleði. Þar verða engir aðrir en Goodfellas að spila. Þessi súpergrúppa er að hluta til gamla Centaur og spilar keyrslu rokk og ról. Á Gauknum spilar hljómsveitin Sól- dögg með Bergsvein rosarödd i fararbroddi. Hljómsveitin spilar so- ulskotna popptónlist og mun vera einkar lagið að fá fólk iham. I Turnhúsinu spila Skytturnar. Skytturnar eru þeir feðgar Gunnar og Jón. Þeir búa til ekta sixties stemmningu með þviað syngja, sþila á gítar og þianó. Kikið á þá sixties-feðga. Á veitingastaðnum 22 spilar Reynir löðrandi fina diskódans músik. Inn í þessa dilltónlist er skotið rokksmell- um og öðrum meiriháttar brellum. Fógetinn býður upp á gleði og skemmtisveitina Snæfríði og stubbana. Farið og skemmtið ykk- ur við að taka þátt ígleðinni. Útlagar spila fjöruga kántrý tónlist á Púlsinum. Laugardagur Á Feita dvergnum spilar hljómsveit- in Goodfellas. Bandið er þræl- þrusu gott og eflaust eitthvað fyrir þig ef þrælþrusugóð tónlist höfðar til þín. Á Púlsinum spilar Mannakorn. Þessi löngu landskunna hljómsveit spilar gamla smelli. Þeir félagar Magnús og Pálmi eru þekktir fyrir vandaða og góða tónlist og fara varla að breyta þvi íkvöld. Dos Pilas spilar á Tveimur vinum í kvöld. Það eru margir búnir að bíða eftir þessu lengi og þeir hinir sömu skella sér líklega ikvöld. það er frítt inn. Turnhúsið býður upp á live sixties stemmningu. Skytturnar spila og fá hvern sem er í stuð. Á Gauknum treður upp hljómsveitin Sóldögg. Þeirsem ekki komust i gær, ættu að nota tækifærið og fara i kvöld og láta gleðina taka öll völd. Kántrýbær á Skagaströnd bjóða upp á hljómsveitina Útlaga. Tilvalið að smella sérirútuna með pelann i strengnum, taka stefnuna á Kántrý- bæ og stiga sveitadansa. Snæfríður og stubbarnir endur- tekur g/eðina frá ígærá Fógetan- um. Hólmgeir spilar diskórokk á 22 og fær ótrúlegasta fólk til að renna sér fótskriðu á gólfinu eða taka búkbylt- ur. Hljómsveitirnar Fánar og Brimkló ásamt Björgvini Halldórssyni munu leika á siðsumardansleik á Hótel Selfossi. Þessir heiðursmenn hafa undanfarnar helgar leikið á Hótel íslandi við mikla lukku gesta. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að bregða sér aðeins út fyrir bæjar- mörkin og búa til stemmningu á Selfossi. SUNNUDAGUR Á Gauki á Stöng spila hinar nostal- gíuskotnu Borgar- dætur .Tónlist þeirra er svo Ijúf að hún nær alla leið upp í hárs- rætur. Tveir vinir bjóða upp á Karaoke. Skellið ykkur, drekkið ykkur full. Gleymið ykkur. ímyndið ykkur að þið séuð eitthvað og syngið. Verðið enn fyllri, endið allsber. Farið svo heim að sofa og mætið afslöppuð í vinnuna morguninn eftir. Alveg eins og i siðustu viku. Fógetinn er duglegur við að kynna nýja trúbadora og klikkar ekki í kvöld frekar en vanalega. Kynntur verður maður að nafni Kolbeinn Þorsteinsson og gitarinn hans. POPP_ Fimmtudagur Sinfóníuhljómsveit fslands hefur starfsárið með sérstökum viðhafn- artónleikum íkvöld. Er hljómsveitin með þeim að gefa til kynna að sjálft tónleikahaldið sé hafið. Efnisskrá tónleikanna er samansett afað- gengilegri og glæsilegrí tónlist sem öllum ætti að hugnast. Tónleikarnir hefjast kl.20.00 í Háskólabiói. Fimmtudagur Sinfóníuhljómsveit íslands er með tónleika i Háskólabíói ikvöld. Efnisskráin er samsett úr hinum og þessum verkum. Tónleikarnir hefj- ast kl.20.00. Fimmtudagur Sinfónían spilar í Háskólabíói. Efn- isskráin er samsett úr hinum og þessum verkum. Tónleikarnir hefj- ast kl.14.30. StefnumíMnðn „Hœ! Ertþú sá settt ég er leita að, tuttugu ogfjögurra til þrjá- tíu ára gamall, heiðarlegur á alla vísu? Þá rnáttu gjarnan svara mér. Ég veit ekki hvað ég á að segja, en aldrei að vita hvernig okkur kemur saman. Ókey, bœ, bce. ó n I i s t G a u k s n n s t u u FIMMTUDAGUR 15. september FÖSTUDAGUR 16. september LAUGARDAGUR 17. september SUNNUDAGUR 18. september MÁNUDAGUR 19. september ÞRIÐJUDAGUR 20. september MIÐVIKUDAGUR 21 RASK AGGISLÆ & TAMLASVEITIN AGGISLÆ & TAMLASVEITIN AGGI SLÆ & TAMLASVEITIN SPOON SP00N ALVARA FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 23

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.