Eintak - 15.09.1994, Side 32
Mörg óvænt úrslit í 1. umferð meistarakeppninnar
Styrkleikalisti FIFA
Topptíu
AC Milan hiaut skell
Evrópumeistarar AC Mil-
an hlutu slæman skell í evr-
ópsku meistarakeppninni
sem hófst í gærkvöld. Milan,
sem lék án tíu sterkra leik-
manna vegna meiðsla og
leikbanna, átti allan tímann
við ramman reip að draga
en heimamenn í Ajax frá
Amsterdam náðu þó ekki að
skora fyrr en í seinni hálf-
leik. Þar voru á ferðinni hol-
lenski landsliðsmaðurinn
Ronald de Boer og fmnski
landsliðsmaðurinn Jari
Littmanen.
Leikmenn Ajax fögnuðu
gríðarlega í leikslok enda
sigurinn sögulegur. Ajax var
að leika sinn fyrsta Evrópu-
leik í níu ár og fundu glæsi-
lega leið til endurkomu, sig-
ur á sjálfum meisturunum
sem þarna töpuðu sínum
fyrsta Evrópuleik síðan í úr-
slitunum gegn Marseille í
hitteðfyrra.
í hinum leiknum í D-riðli
gerðu Salzborg og AEK frá
Aþenu markalust jafntefli.
í A-riðli sigruðu ensku
meistararnir í Manchester
United sænska liðið Gauta-
borg með fjórum mörkum
gegn tveimur. Sænsku
meistararnir komust yfir í
leiknum en jafnt var 1:1 í
leikhléi. I sama riðli hófu
Spánarmeistarar Barcelona
keppnina með sigri á Tyrk-
landsmeisturum Galatas-
aray. ©
Mark gegn
MEISTURUNUM.
Finninn Jari Littmanen
gerði annað mark Ajax
gegn AC Milan.
Hnefaleikar
Holyfíeld læknast með
aðstoð Benny Hinn
Evander Holyfield, fyrrum
heimsmeistari í hnefaleikum, var
neitað um leyfi til að keppa aftur í
gær. Leyfið fékkst ekki þar sem
enn er talið á reiki hvort heilsa
hnefaleikamannsins leyfi aftur
keppni. Holyfield, sem lengi hefur
átt við erfið veikindi að stríða,
segir hins vegar að heilsan og
hjartslátturinn sé kominn í samt
lag, þökk sé guði og Benny Hinn!
Holyfield tók kristni fyrir
nokkrum árum og hefur æ síðan
talað um endurfæðingu sína.
Hann hefur verið í reglulegri
meðferð hjá hinum fræga sjón-
varpspredikara og segist nú vera
fær í flestan sjó. Fyrir tveimur ár-
um varð Holyfield fjórði maður-
inn til að vinna þungavigtartitil-
inn tvisvar en síðan hefur hann
þjáðst að hjartakvilla sem enn sér
ekki fyrir endann á. ©
Benny Hinn
Gerir kraftaverk víðar en á
íslandi.
Enn þarf lan Wright að punga út peningum
Sektaður fyrir dólgs-
lega framkomu
Enski framherjinn lan Wright
hefur enn einu sinni komist í kast
við lögin vegna óprúðmannlegrar
framkomu sinnar. I þetta sinn hef-
ur hann verið sektaður um tæpa
milljón króna vegna framkomu
sinnar á síðasta tímabili í leik Ar-
senal gegn QPR. Leikurinn, sem
fram fór þann 27. apríl, endaði með
jafntefli, 1:1, og er framherjanum
gefið að sök að hafa móðgað áhorf-
endur á umræddum leik með
dólgslegum hætti, orðum og bend-
ingum ýmiss konar.
Þetta er í þriðja sinn á tæpum
tveimur árum sem Wrigth þarf að
punga út háum fjárhæðum vegna
dólgslegrar og óprúðmannlegrar
framkomu sinnar. I janúar árið
1993 fékk hann þriggja leikja bann
fýrir að slá andstæðing niður og
hálfu ári síðar þurfti hann að greiða
fimm milljónir í sekt fyrir að gera
aðsúg að línuverði í bikarúrslita-
leiknum gegn Sheffi-
eld Wednesday. Hann
gæti jafnvel verið í
enn frekari vandræð-
um komist enska
knattspyrnusam-
bandið að þeirri nið-
urstöðu að ummæli
Sfm höfð voru eftir
honum á laugardag
séu refsiverð. Wright
lét ummælin falia eftir
leikinn en í honum
hlaut hann fjórðu
áminningu sína í jafn-
mörgum leikjum.
Verði niðurstaða
knattspyrnusam-
bandsins á þá leið að
ummælin séi refsiverð
verður niðurstaðan
líklega sú að hann þurfi enn að seil-
ast í veski sitt og þar að auki verða
settur í tímabundið leikbann. ©
Slappir
Skagamenn
Heppnir að tapa
ekki stærra
1x2
Getraunasíðan
Meistarakeppnin
Staðan í A ríðli
Man. Utd. 1 4:2 2
Barcelona 1 2:1 2
Galatasaray 1 1:2 0
Gautaborg 1 2:4 0
/ B-riðli sigruðu heimaliðin, Dyn-
amo Kiev og Paris Saint Germain,
i leikjum sínum.
Staðan í B ríðli
Paris S G. 1 2:0 2
Dynamo Kiev 1 3:2 2
Spartak M. 1 2:3 0
Bayern Munchen 1 0:2 0
/ C riðli gerðu Hadjuk Split og
Benfica markalaust jafntefli og
sömuleiðis Anderlecht og Steua
frá Búkarest.
Staðan í C ríðli
Anderlecht 1 0:0 1
Benfica 1 0:0 1
Hadjuk split 1 0:0 1
Steua 1 0:0 1
/ D-riðli sigruðu Ajax AC Milan
eins og greint var frá hér að fram-
an en auk þess gerðu Ausria Salz-
borg og AEK frá Aþenu marka-
laust jafntelfi i Vin.
Staðan í D ríðli
Ajax 1 2:0 2
AEK Aþena 1 0:0 1
Austria 1 0:0 1
AC Milan 1 0:2 0
Leikimir í meistara-
keppninni í gærkvöld.
Man. United - Gautaborg 4:2
Ryan Giggs 2, Andrei Kanchelskis,
Lee Sharpe - Stefan Petterson, Stef-
an Rehn.
Barcelona - Galatasaray 2:1
Ronald Koeman, Guillermo Amor -
Turkyilmas.
Dynamo Kiev - Spartka M. 3:2
Viktor Leonenko 2, Sergei Rebrov -
Nikolai Pisarev, Andrei Tikhorov.
PSG - Bayern Munchen 2:0
George Weah, Daniel Bravo.
Anderlecht - Steua Búkarest 0:0
Hadjuk Split - Benfica 0:0
Aust. Salzborg - AEK Aþenu 0:0
Ajax - AC Milan 2:0
Ronaid de Boer, Jari Littmanen.
PIZZAHUSID
Ian Wright
Virðist eiga í miklum vandræð-
um með sjálfan sig.