Vikublaðið - 23.07.1993, Qupperneq 2
2
VIKUBLAÐIÐ 23. JULl 1993
BLAÐ SEM V I T E R í
Útgefandi: Alþýðubandalagið
Ritstjóri og ábm.: Hildur Jónsdóttir
Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson og Ólafur Þórðarson
Auglýsingar: Ólafur Pórðarson
Ritstjórn og afgreiðsla:
Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík
Sími á ritstjórn: (91J-17500
Útlit og umbrot: Leturval
Prentvinna: Prentsmiðjan Oddi hf.
Stöðugleikinn úr sögu
og þar með stjórnin
Þegar kjarasamningar voru gerðir á almenn-
um vinnumarkaði í vor var stöðugleikinn kjarni
þeirra. Með því að fallast á aðlögun að minnk-
andi þjóðartekjum tók forysta ASI á sig mikla á-
byrgð. Það sjónarmið var ríkjandi að bætt sain-
keppnisstaða atvinnuveganna, vegna minni
skatta og lægri launa, myndi skila sér í aukinni
atvinnu og bættum lífskjörum síðar meir þótt
kaupmáttur færi lækkandi í bráð. Skilyrði íyrir
því að stöðugleiki héldist og íslenskt atvinnulíf
næði að nýta sér bætta samkeppnisstöðu var svo
að ríkisstjórn landsins væri treystandi fyrir sín-
um hlut að samningunum. Það hefur nú komið
á daginn, eins og margur óttaðist, að orð standa
ekki hjá oddvituin stjórnarflokkanna.
Gengisfellingin á dögunum átti sér ekki efna-
hagslegar forsendur. Þrátt fyrir að viðskiptakjör
hafí rýrnað nokkuð er mikið veitt, og tam stefn-
ir í 250 þúsund tonna þorskafla. Jón Baldvin
Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins þykist
hafa lent í minnihluta innan ríkisstjórnarinnar í
sambandi við gengisfellinguna. Vikublaðinu er
spurn: Hvernig er hægt að lenda í minnihluta í
ríkisstjórn sem er samansett af tveimur jafhrétt-
háum flokkum? Er ríkisstjórnin málfundafélag?
Hvernig er hægt að sitja í ríkisstjórn með ó-
skerta sjálfsvirðingu eftír að hafa beygt sig und-
ir það að gengið sé þvert á meginstefhu stjórn-
arinnar um stöðugleika í efnahagslífinu?
Hinn villti verðbólgudans er að hefjast, segir
Björn Grétar Sveinsson formaður Verka-
inannasambandsins í blaðaviðtali, þegar vísitöl-
ur benda á tveggja stafa verðbólguhraða. Ríkis-
stjórnin heldur því ffam að hér sé bara um að
ræða hraðan verðbólguvals sem falli í hægan
takt með haustinu. En með haustinu er hætt við
að ótímabær gengisfelling og órói í verðlags-
málum hafi skapað þrýsting á nýja gengisfell-
ingu, og dansinn villist og tryllist þegar líður á
veturinn.
Ríkisstjórnin er vegna pólitískra ákvarðana
sinna í efnahagsmálum lent inn í vítahring sem
hún á erfitt með að losa sig úr. Einlægast væri
fyrir Davíð Oddsson forsætisráðherra að viður-
kenna mistök sín og uppgjöf strax og segja af
sér fyrir sig og ráðuneyti sitt. Hún hefur svikið
það loforð sem hún gaf ASI og VSI um stöðug-
leika í vaxta og verðlagsmálum. Þessvegna er
henni ekki treyst lengur. Þessvegna ber henni
að víkja. Nauðsynlegt er að kjósa að nýju til
þess að til valda komist ríkisstjórn með skýrt
umboð til þess að tryggja stöugleika og fram-
farir í landinu í góðri samvinnu og fullu trúnað-
artrausti við samtök atvinnulífsins í landinu.
KRAIAR. ELSKA h
-ELSKA MIG-FK
KRA7AR. ELSKA MIG-
-FLSKA MICrEKKl
KRATAR ELSKA
-EISKA MI
kfajar.
Sjónarhorn
„Gerðu-eitthvað- í- þessu“
-ismi vinnur á hjá ungu fólki
Alveg frá því ég man fyrst
eftir mér hefur hegðun
ungs fólks á íslenskum úti-
hátíðum verið hneykslunarhella.
Ég man að maður lagði snemma
við eyrun þegar verið var að fjarg-
viðrast í útvarpsfféttum út af fyll-
eríi og ósóma í Þjórsárdal, Húna-
veri eða í Hallormsstaðaskógi. A
hvaða Ieið var æska landsins eigin-
lega? Hvemig gátu máttarstólpar
þjóðfélagsins látið þessar sukkhá-
tíðir viðgangast?
Viðbrögðin við unglingasukkinu
vöktu hjá manni gífúrlega forvitni
og í brjóstinu kviknaði hræðslu-
blandin þrá eftir að fá einhvern-
tíma að verða þátttakandi í þessari
manndómsraun íslenskra unglinga.
Það æxlaðist svo að ég komst aldrei
lengra en á tiltölulega meinlaus
mót í Vaglaskógi. Einu sinni kom-
um við skólausir heim úr Vagla-
skógi við lítinn fögnuð aðstand-
enda. Við höfðum látið einhverja
brandarakalla stela af okkur skó-
tauinu meðan við sváfúm úr okkur.
Þetta minnir á fréttir um að
unglingar hafi skilið eftir vagnhlöss
af viðleguútbúnaði í Þjórsárdal
eftir útihátíðina þar nýverið. I yfir-
fullum kjöllumm neysluheimila
sinna hafa þeir gripið með sér tjöld
og svefnpoka og ekki hirt um
draslið á heimleið enda átt fullt í
fangi með sig sjálfa eftir hátíða-
höldin.
Ekki held ég að við höfúin verið
hótinu skárri þegar við vomm ung
heldur en unga fólkið í dag. Við
vomm heppin að því leyti að
Jtrýstingurinn á' það að byrja full-
orðinshegðun hófst ekki fyrr en við
vomm orðin 15-17 ára. Nú virðist
það næstum vera orðin kvöð á
bömun að finna á sér í 12 ára bekk
þegar fagnað er fullnaðarprófi úr
bamaskóla. I rauninni em engin
unglingsár lengur milli barns og
fullorðins. Það er stokkið beint af
barnsaldri yfir í heim hinna full-
orðnu. Þetta er áhyggjuefni vegna
þess að heilsa og tilfinningalíf eru í
veði þegar börn á aldrinum 11-13
ára em undir sterkum hópþrýstingi
að hefja kynlíf og neyta áfengis og
tóbaks.
Börn nútímans verða að hafa
sterkan skráp. í Bandaríkjunum er
talið að börn hafi séð um sjö þús-
und morð í sjónvarpi áður en þau
komast til fullorðinsára. Full-
orðinshegðunin er þeim ljós frá
unga aldri og þar sem þau em því
vönust að fá allt sem þau óska sér
þá temja þau sér það sem er spenn-
andi og forboðið í heimi fullorð-
inna við fyrsta tækifæri. Ef það á að
breyta hegðun barna og unglinga
þarf fyrst og ffeinst að beina
sjónum sínum að fyrirmyndunum,
hegðunarinynstri fullorðinna.
Enga linkind
Það þýðir hinsvegar ekki að af-
saka beri slæma hegðun unglinga
eða sóðaskap í umgengni þeirra við
landið. l'ölffæðin sýnir okkur að
ungt fólk veldur slýsum í unt-
ferðinnj umfram aðra aldurshópa
og að allt of margir unglingar fara
illa á því að hefja neyslu ávanabind-
andi efna.
Við þessu á að bregðast. Það
hvílir engin kvöð á æsku landsins
að endurtaka mistök okkar sem á
undan hafa gengið. Slæm foreldra-
hegðun er ekkert skálkaskjól fyrir
þá sein á eftir koma. Ungt fólk
gengur í skóla og á margra kosta
yök í listum jafút sem vísindum
höfúm við safnað vel mcnntuðu
ungu fólki til mögru áranna, þótt
við höfum líka sankað að þeim
skuldum. Ungu fólki á Islandi er
engin vorkunn og það getur sem
best keppt að því að verða föður-
og móðurbetrungar.
Æskufólk geri sig
sýnilegt
Hver kynslóð æskufólks verður
að gera upp við foreldrakynslóðina.
Vega hana og meta, hafúa henni
eða fallast á hennar forsendur. Það
stoðar lítið að sleppa ffam af sér
beislinu í algleymi á einni útihátíð.
Þegar heim er komið bíður það
verkefúi að glíma við ffamtíðar-
horfur í þjóðfélagi sem býr við
stöðnun í efnahagslífi og minnk-
andi þjóðartekjur.
Það var hressandi að sjá í sjón-
varpi um daginn samtal nokkurra
ungmenna sem voru ákaflega
frjálsleg og óþvinguð nema einn
ungur sveinn sem þuldi frjáls-
hyggjuformúlur eins og upp úr
kveri. Hjá þessu unga fólki er
heimurinn undir og ekki boðlegt
annað en Island verði opið og
háþróað. Það gerir sér hinsvegar
grein fyrir því að tími „slappaðu-
af-ismans“ er liðinn og vandamál
atvinnuleysis og efnahagsþróunar
J kalla á „gerðu-eitthvað-í-þessu-
' isma“ meðal ungs fólks.
Athyglisvert er að innan Háskóla
íslands hefúr Röskva vísað veginn í
átt til þess sem ætti að verða meðal
íslenskra jafúaðarmanna. Kannski
er þar að finna þann sameiningar-
kraft sem skipta mun sköpum í
íslenskum stjórnmálum á komandi
árum.
Ungt fólk á Islandi þarf að vera
sýnilegt. Bæði sem einstaklingar og
hópur. Unga fólkið þarf að láta
finna fyrir sér, láta heyra í sér,
koma sínu á framfæri. Það þarf að
gera eitthvað í þessu! Komi það
ekki úr felum „slappaðu-af-ismans“
verður dauflegt á íslandi.
Sjáumst í Galtalækjarskógi!
Höfúndur er framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins