Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Qupperneq 7

Vikublaðið - 23.07.1993, Qupperneq 7
VIKUBLAÐIÐ 23. JÚLÍ 1993 7 HVAR ER TJAL Nokkur ráð til þess að lifa af útihátíð Ert þú í hópi þeirra sem uppgötv'ar aldrei fyrr en á staðinn er komið að þú hefur gleymt öllu því mikilvæg- asta? Lástu í rúminu í viku eftir síðustu útihátíð, bugaður/uð á sál og líkama eftir skemmtunina. Vikublaðið er vinur þinn, vill þér allt hið besta og birtir í því tii- efni þennan lista yfir það sem þarf að hafa í huga ef þú ætlar að skemmta þér og hafa það gott um verslunarmannahelgina. Eft- ir að hafa lesið ráðleggingar eru þér allir vegir færir. 1. Góðfót Við búum á Islandi, á hjara ver- aldar þið vitið. Þó að það sé sól í dag er aldrei að vita nema það verði rok, rigning og jafnvel haglél á morgun. Gleymið því ekki regn- gallanum, það er miklu meira gam- an að skemmta sér nokkurn veginn þurr. Stórar lopapeysur eru bæði flottar og hlýjar. Föt og skór til skiptanna koma sér vel. 2. Tjald og svefnpoki Það er betra að hafa svefhpok- ann með og tjald líka, þó að við lof- um því ekki að það komist heilt heim ef þið ætlið á útihátíð. 3. Gottnesti Nesti að heiman er ódýrara en sjoppumaturinn á staðnum. Munið að áfengi fer illa í tórnan maga. 4. Tannburstinn Gleymdu ekki tannburstanum. Otannburstuð/aður og andfúl/1 nærðu þér aldrei í strák/stelpu. 5. Smokkurinn Vel á minnst: Ef þið ætlið að sofa hjá, notið smokkinn. Lausleg könnun þeirra sem þetta rita hefur leitt í ljós að kynlíf á útihátíðum sé yfirleitt misheppnað eða í besta falli ákaflega óspennandi. Kynlíf er nefnilega best þar sem hægt er að vera í friði og það er ekkert gaman að „gera'ða" í einhverjum runnan- unm á útihátíð. Eftir slíka reynslu er líklegt að þátttakendur fái krónískan móral, að ekki sé minnst á þann fráleita möguleika að fólk sem þekkist lítið eða ekkert sé að sofa saman án smokks. Slíkt gerir bara fólk sem hefur gleymt til hvers heilinn er ætlaður. I kjölfar slíkrar hegðunar fylgja ekki aðeins ólétm- áhyggjur heldur einnig hætta á sjúkdómum sem geta verið lífs- hætmlegir. 6. Viltu það raunvet'ulega? Umffam allt; gerið það ekki nema ykkur langi sjálf tdl, látið ekki aðra hafa áhrif á ykkur. Það er miklu betra að bíða aðeins með fyrsm kynlífsreynsluna og eiga góða minningu um hana en að minnast hennar með ógeði sem gemr gerst ef val á stað, smnd og því mikilvægasta, félaganum, er ekki vandað. 7. Ekki vaða Ef á eða lækur er á svæðinu þá borgar sig ekki að reyna að synda yfir, heldur ekki að vaða. Reynið slíkt alls ekki ef þið hafið dmkkið. í Guðs bænum stoppið þá sem gera sig líklega til slíkra æfinga. 8. Látið klifrið eiga sig Kliffið ekld í kletmm, a.m.k. ekki dmkkin. 9. Bíllinn og brennivínið Ef þið hafið bragðað áfengi þá látið þið auðvitað allan aksmr eiga sig. Nema hvað! 10. Forðist slagsmál Haldið ykkur í hæfilegri fjarlægð frá mönnum með hnífa og barefli og forðist slagsmálahunda. Ef þið lendið í slíkum brjálæðingum þá skuluð þið muna að lögregla og gæsla á svona hátíðum er þarna til þess að hjálpa ykkur og koma í veg fyrir slys. 11. Láttu ekki stelafrá þér Varið ykkur á fingralöngum. Þeir fara líka á útihátíðir og það er ákaflega auðvelt að stela frá þeim sem drekkur sig ofurölvi eða skilur verðmæti eftir í ólæsm tjaldi. Það er hægt að læsa tjöldum með hengilásum. Skiljið myndavélar og vasadiskó eftir heima og látið pen- ingaveskið aldrei úr augsýn. 12. Ráð gegn brennivíns- þjófum Gott ráð er að láta plastflöskur með vami eftir á áberandi stað í tjaldinu. Flestar ránsferðir em farnar í leit að áfengi. 13. Hafið aukahœla með Tjaldhælaþjófnað er ekki hægt að koina í veg fyrir og eina ráðið að hafa aukahæla í farangrinum. 14. Samhjálp gegn nauðgun Þú skalt ekki skilja vinkonu þína eða vin sem orðin em ofurölvi eftir eina/n. Fólk sem dáið hefiir áfeng- isdauða em nauðgumm auðveld bráð. Enn ein ástæðan fyrir því að stilla brennivínsdrykkjunni í hóf. A skipulögðum útihátíðum eiga að vera til staðar sérstök tjöld þar sem fólk gemr sofið úr sér. 15. Víman ervitleysa Ef einhver býður þér pillur, við emm ekki að tala um magnýl, þá skalm segja NEI TAKK. Það er aldrei að vita hvað um er að ræða og það getur verið eitthvað stór- hætmlegt. Það er a.m.k. ekki tdl- raunarinnar virði. 16. Landafjandinn Landslög gera ekki ráð fyrir að fólk undir tvímgu drekki. En ef þið emð á annað borð að drekka er betra að þekkja sín takmörk. Drekkið ekkert sem þið vitið ekki hvað er og brugg gemr verið stór- varasamt. Timburmenn eftir drykkju slfks vökva eru allsvakaleg- ir. Munið: Illa bmggaður landi er fjandi. 17. Varist Ijósmyndara Ommu þinni gætd sámað að sjá andlit uppáhaldsbamabamsins á forsíðu DV undir yfirskriftinni: „Æskan á villigötum - hrikaleg umgengni ölvaðra unglinga." Forðasm því blaðaljósmyndara, jafnvel þó þú sért bláedrú. Það er nefnilega haugalygi að ljósmyndin ljúgi ekki. Stillið ykkur líka um að reyna að vera sniðug fyrir ffaman sjónvarpstökuvélina. Ekki sjá ykkur knúin til að tala við Jón Ársæl, þó að hann sé á svæðinu. 18. Utihátíðir eru dýrar Það er dýrt að fara á útihátíð. Eyðið ekki öllu mánaðarkaupinu á einni helgi. Þó hún verði skemmti- leg þá gæti restin af mánuðinum orðið ansi daufleg ef ekkert er eftir af kaupinu, þ.e. ef þú varst svo ó- stjórnlega heppin að fá vinnu. 19. Takið hausinn með Að lokum það mikilvægasta: Skemmtun er aldrei þess virði að þurfa að hafa móral eða líða illa á sál eða líkama lengi á eftir. Það er hægt að setja þetta upp í einfalda jöfnu. Er fylleríð timburmannanna virði? Kynlífið ólétmáhyggjanna, að ekki sé minnst á kynsjúk- dómanna, virði? ÚALTALÆKJARSKÓÚUR í Galtalækjarskógi halda templarar 26. mót sitt. Dag- skránni er ætlað að höfða til allr- ar fjölskyldunnar, en það er engin ástæða fyrir unglingana að örvænta um að þeir skemmti sér ekki stórkostlega, þeir geta tjald- að alveg sér og mörg atriðin em sérstaklega fyrir þá. Þarna verð- ur Spaugstofan sívinsæla, Magnús Scheving eróbikfimi, Hörður Torfason og Geir- mundur Valtýsson mætir líka með skagfirsku sveifluna sína. Keppt verður í karokee, farið í minigolf og þeir sem em ungir í anda geta farið í Ævintýraland bamanna. Aðgangseyrir er 4800 fyrir unglinga og 5300 fyrir fullorðna. Börn yngri en 12 ára fá frítt inn. Haukur Hauksson ekki... kynna hljómsveitimar Jet Black Joe, GCD og Ný Dönsk og Bogomil Font mun heilla konur með silkiröddu og seiðandi fram- komu í Valaskjálf á fösmdags- kvöldið. Daginn eftir hefst svo hljómsveitarkeppnin. Hver hljómsveit hefur 15 núnúmr á sviðinu og á að spila a.m.k. eitt frumsamið lag. Meðlimir fyrst- töldu hljómsveitanna skipa dóm- nefndina. I verðlaun em stúdíó- tímar, svo það er eins gott að fara að stilla gítarana. NESKAUPSTAÐUR Ferðamálaráð Neskaupsstaðar heldur fjölskylduhátíð um helgi- na og er aðgangur ókeypis og ffí tjaldstæði. Þar verður keppt í í- þróttagreinum eins og sjóstanga- veiði, hjólreiðum, „street ball“ (gömbolta?), billjarð, bridds og svo verður líka sæsleðakeppni. Þeir sem þola ekki íþróttir geta far- ið í skoðunarferðir, horft á flugeldasýningu, bíó- myndir eða björgunaræf- ingu og farið á dansleiki. Á Neistaflugi '93, en það heitir hátíðin, koma frain: Hljómsveit Magneu, hinar austfirsku Ozon og Súellen, KK band og Randversfélagar og Bogonúl Font verður líka þarna. HALLÓ AKUREYRI Fjölskylduhátíðir virð- ast vera í tísku þetta árið því að á Akureyri verður líka ein slík. Þar rétt hjá verður líka Landsmót skáta og er gestum „Halló Ak- ureyri“, en svo heitir hátíðin, boðið þangað þann 1. ágúst til að skoða skátana. I bænum sjálfum verður líka ýmislegt um að vera, á grasfletinum fyrir neðan Leik- húsið verður Tívólí og margt fleira verður í boði fyrir börnin. Hinir eldri geta skemmt sér við undirleik Pláhnetunnar, Skrið- jöklanna og Pelikan á skemmti- stöðum bæjarins. Bæði föstu- dags- og laugardagskvöld verða dansleikir í 400 fermetra tjaldi í miðbænum fyrir þá sem ekki komast inn á skemmtistaðina. Effir lokun þeirra verður hægt að fara á Pakkhús þar sem hægt verður að djamma til fimm að morgni. Með góðum vilja verður örugglega hægt að halda enn lengur áffam en við förum ekkert út í það hér. ÞJÓRSÁRÞALUR Þjórsárdalurinn að jafna sig eftir hátíðina þar í byrjun júlí. Þar verður því engin útihátíð. VESTMANNAEYJAR Vesmannaeyingar halda sína þjóðhátíð um verslunarmanna- helgina. Meðal þeirra sem þar koma ffam eru SSSól, Tod- mobile og Pláhnetan sem spila á stóra pallinum. Yukatan, Bone China, Blúsmenn Andreu o. fl. Aðgangseyrir: Það kostar 6500 krónur inn á svæðið, en ef þú þarff að komast af fastaland- inu geturðu keypt pakkaferð: með Flug- leiðum á 10990 krónur, með Islandsflugi 11500, en með Herjólfi 9100 krónur. EIÐAR Þeir sem frekar vilja halda sig á fastalandinu geta t.d. farið á hátíð að Eiðum. Þar mun ATHUCIÞ: Samantektin er ekki fyllilega tæmandi. - is

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.