Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 10

Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 10
10 VIIÍUBLAÐIÐ 23. JÚLÍ 1993 tyAA ÍA^fv \/£Aa£- vfv4? Bjami Einarsson 14 ára Ég verð í bænum, - ég má ekki fara neitt. Ætli ég fari ekki í sveitina með pabba og mömmu. Ari Normann Sverrisson 14 ára Mig langar í Galtalæk og mig lang- ar líka að ganga á fjöll. Þórunn Sigurðardóttir 16 ára Ég verð í brúðkaupi hjá bróður mínum í Þýskalandi, en ég gæti líka Sonja Magnúsdóttir 16 ára Bubble Flies: Morðóðir kleinuhringir. Mynd: Einar Snorri TÖKUM VIP AF POPPHÆN5NUNUM s Alabbi um daginn og rakst ég á tvo meðlimi hljómsveitar- innar Bubble Flies, þá Dav- íð og Palla. Þetta var harkalegt samanstuð. I sárabót fýrir skaðann leyfðu þeir mér að bjóða sér upp á pizzu og taka við þá viðtal. Hvernig byijaði þetta allt saman? Bubble Flies: Þetta byrjaði allt saman þegar guð rak Adam og Evu úr Paradís, en ef þú ert að reyna að spyrja að því hvernig þetta byrjaði hjá okkur þá vorum við að skemmta okkur og Palii var að reyna að sanna söngkunnáttu sína fyrir okkur allt kvöldið. Við ákváð- um að skella saman bandi vegna ó- vefengjanlegra hæfileika hans. Eða þannig sko. Það var Þórhallur sem hóaði okkur saman. Hann langaði til þess að búa til meira en ein- göngu elektróníska dansmúsík. Þá talaði hann við okkur og við ákváð- um að rotta okkur saman í þesssa hljómsveit, Bubble Flies. Þá gerð- ust undrin. Lagið Strawberries varð til. Hvemig mynduð þið skilgreina tónlistarstefnu ykkar? Bubble Flies: Funkítekknópopp- rokkdjassdansærslvitleysingatón- list. Samlíkingu má finna í mexík- anskri kjötkássu, samansoðningi úr alls kyns hlutum, ætum sem óæt- um. Við gætum kannski gerst svo djarfir að segja að við séum frum- kvöðlar á þessu sviði, eins konar uppfinningamenn. Nafnið Bubble Flies, liggur einhver saga að baki þess? Bubble Flies: Það var fram- haldssaga í Familie Journal sem hét þetta, hún íjallaði um morðóða kleinuhringi sem áttu við gelgju- skeiðsvandamál að stríða. Svo ég spyrji nú svolítið amalega. Hverjir eru eiginlega Bubble Flics? Bubble Flies: Hér erum við. Eg meina hvað heitiði? Bubble Flies: Æ, láttu ekki svona, þú veist það alveg. Allt í lagi, hver spilar á hvað? Bubble Flies: Davíð spilar á gít- ar, Palli þenur raddböndin og yrk- ir, Pétur og Þórhallur eru galdra- menn rafpíanóanna og trommu- heilanna og svo er Robbi upptöku- maðurinn okkar. Lítil rödd hvíslaði að mér að þið Vteruð aðfara að gefa út plötu, erþað satt? Bubble Flies: Nei! Nú? Bubble Flies: Við erum að fara að gefa út disk með fjórum frum- sömdum lögum í stíl við Strawberries og einni hljóðblönd- un á einhverju laganna. Heimsfi-œgð, hugsið þið eitthvað um slíkt? Bubble Fiies: Hva, eru það ekki bara örlög? Nei. Annars eru að gerast ferskir hlutir í íslenskri tón- listarmenningu. Við erum partur af þeirri bylgju ungra hljómsveita sem munu taka við af öllum popp- hænsnunum sem hafa einokað markaðinn á Fróni og þessar ungu hljómsveitir ntunu færa okkur nær því sem er að gerast fyrir utan landhelgi. Það eru örlög! Eruð þið mjög tníaðir? Bubble Flies: Já, við erum allir í Vottum Jehóva, Veginum og Krossinum ásamt einhverjum minni söfhuðuin. Hvað eruð þið gamlir? Bubble Flies: Meðalaldur hljóm- sveitarmeðlima er 21,75 ár á góviðrisdögum. Samband ykkar við Leo Castelli hefur mikið verið rcett í fjölmiðlum undanfamar vikur. Hvað hafið þið að segja um það? Bubble Flies: Það var bara á fag- legum grundvelli, við snertum hann nánast ekki neitt. Nú, þetta blað gengur víst itt á verslunamtannahelgina. Það liggur þá beinast við að spyija ykkur hvarþið vcrðið untrœdda helgi. Bubble Flies: Við verðum á árs- hátíð félagsins 303, sem sam- anstendur af unnenduin nútíma danstónlistar. Þar munum við leika okkar ljúfu tóna fyrir dansi. Það tíðkast víst að hljómsveitir þakki fyrir sig aftan á plötuumslög- um. Vijiði ekki taka forskot á sæluna og þakka fyrir ykkur fyrst þið emð í blaði? Bubble Flies: Jú, sérstakar þakk- ir fá Timothy O'Leary, Edith Massey, J Mascis, Morrisey, An- archist Cookbook, Logi geim- gengill og Perry Como. 1 lok íslenskra viðtala við erlenda listamenn er ein klisja í hávegum hófð. Hér er hún í beimferðu formi: Háv dú jú læk æsland sófar? Bubble Flies: Hér höfum við haldist við í rúman fimmtung aldar og líkar bara vel, sérstaklega í Reykjavík. Við höldum að hún sé einstök í heimi hér. Nú?! Hólmar Þ. Filipsson IHEF ALLTAF i SUNdlf) MIKID ; Þ ■ \vö ár í röð hefur söngkona úr Menntaskólanum í _M_ Reykjavík sigrað í Söngvakeppni framhaldsskólanna. Kristbjörg Sólmundardóttir söng- kona úr MR, sigraði að vísu aldrei þá keppni, en það hefði hún örugg- lega getað. Hún hefur ekki bara frábæra rödd, heldur líka skemmti- lega sviðsframkomu. Hvenær byrjaðirðu að syngja? -Ég hef alltaf sungið, var t.d. í kór Oldutúnsskóla og fór með honum til Astralíu, Hong Kong og Tælands. Síðan söng ég með Tún- fiskunum og á skemmtunum í MR. Hefitrðu /ært söng? -Já, ég er búin að vera í Söng- skólanum í Reykjavík í tvö og hálft ár og taka fimm stig af níu. Nií ersú tónlist scm þú hefur sung- ið opinberlega til þessa meira í ætt við Kristbjörg Sólmundardóttir: Við í Yrju leggjum niikið upp úr fhnmundarsöng, það er svo ts- lenskt. Mynd: Spessi. djass og dægurlög, þú hefitr ekki viljað læra djasssóng? -Nei, ég hef meiri áhuga á óp- erusöngnum. Það er meiri framtíð í honum. Ég stend á tímamótum núna, þarf að velja á milli djassins óg óperunnar. Ég lauk stúdents- Iprófi frá MR í vor, svo nú get ég farið að leggja meiri áherslu á sönginn. Núna er ég í hljómsveit sem heitir Yrja. Það gekk svo vel með lagið Bombaldi Togga baróns að við ákváðum að halda áfram. Við erum sex í hljómsveitinni, ég, Margrét Sigurðardóttir söngkona - hún vann í Söngkeppni framhalds- skólanna í fyrra - og fjórir strákar sem spila á gítar, bassa, trommur Iog hljómborð. Ytja, afhvetju þetta nafit? -Það er svo íslenskt. Við röddum mikið og leggjum mikið upp úr fimmundarsöng sem setur mjög ís- lenskan svip á þetta. Við spiluin ; líka tónlist eftir aðra, t.d. Zeppel- in, Janis Joplin, Lenny Kravitz og Grýlurnar. Við erum að fara af stað í spilamennsku, himm upp fyrir Todmobole á Tveimur vinum laugardaginn 24. júlí og verðum ; með eigin tónleika þar 5. ágúst. Gæturðu hugsað þér að lifa án : sóngsins? Nei, alls ekki. Söngurinn er mitt hlutverk í lffinu. - is

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.