Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 4

Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 4
4 Syérnmálin VIKUBLAÐIÐ 23. JÚLÍ 1993 Landsbyggðin dregin í dilka Lífvænleg pláss efld en afskekkt byggð látin danka Stjórnvöld ætla að beita sér fyrir markvissari uppbyggingu lífvænlegra plássa úti á landi. Byggðir sem ekki eru taldar eiga framtíð fyrir sér verða sniðgengnar við uppbygg- ingu opinberrar þjónustu á landsbyggðinni. Stjórnar- og stjórnarandstöðuþingmenn í Byggðastoínun náðu samkomulagi um byggðaáædun sem mismunar landsbyggð- inni þannig að vaxtarsvæði verða efld á kostnað jaðarsvæða. Davíð Oddsson for- sætisráðherra vill þó ganga lengra og hefur lýst yfir vonbrigðum með niðurstöðuna. Páll Vilhjálmsson S síðustu viku kynnti Byggða- stofnun fyrstu stefoumótandi byggðaáætlun sem gerð hefur verið. Það hljómar undarlega að ríkisstofnun sem fer með byggða- mál og heyrir beint undir forsætis- ráðherra, sem aftur fer með yfir- stjórn efnahagsmála, skuli fyrst núna leggja ffam slíka áædun, en Byggðastofnun var komið á fót haustið 1985. Skýringin liggur sumpart í því „reddingarhlutverki" sem stofhunin hefur löngum gegnt fyrir einstök fyrirtæki og atvinnu- greinar og sumpart í því að í áætl- anagerð þarf að taka undir sum sjónarmið á kosmað annarra og stjórnmálamennirnar sem stýra stofnuninni hafa reynt að komast hjá þeim ágreiningi sem slíkt ylli. Byggðastofnun er rammpólitísk stofnun sem hefur tvo yfirboðara; forsætisráðherra og sjö manna stjórn sem er kosin beint af Al- þingi. Allir stjómmálaflokkar fyrir utan Kvennalista eiga fulltrúa í stjórninni og allir fulltrúarnir em úr landsbyggðakjördæmum. Það er augljóst að starfsemi Byggðastofn- unar tekur ffemur mið af vilja stjómarinnar en forsætisráðherra. Davíð Oddsson forsætisráðherra skrifaði Byggðastofhun bréf í febr- úar 1992 þar sem hann lagði lín- umar fyrir starfið að byggðaáæti- uninni. Þegar yfirmaður þróunar- sviðs Byggðastofhunar, Sigurður Guðmundsson, kynnti blaða- mönnum byggðaáætlunina síðast- liðinn föstudag sagði hann eins og í ffamhjáhlaupi að stofnunin hafi ekki farið fyllilega að tilmælum Davíðs. Það þótti ekki tiltökumál enda er forsætisráðherra þingmað- ur Reykvíkinga. Davíð vildi afdráttar- lausari tillögur Skýrsla Byggðastofnunar heitir „Breyttar áherslur í byggðamálum. Tillaga að stefhumótandi byggðaá- ætlun 1994-1997.“ Stofnunin legg- ur fram tillögu að þingsályktun sem kemur til umræðu á Alþingi í haust. í tillögunni em meginmark- mið nýrrar byggðastefnu skil- greind í þrem málsgreinum: Að treysta byggðina þannig að gæði landsins og aðrar auðlindir til lands og sjávar verði nýttar með hagkvæmum hætti. Að efla byggð á svæðum þar sem hægt er að reka fjölbreytt og arð- samt atvinnulíf og veita þjónustu að kröfum nútíma samfélags. Að draga úr fólksflutningum til höfuðborgarsvæðisins þannig að mannvirki þjóðarinnar nýtist skyn- samlega. Fyrsta málsgreinin er almenn yf- irlýsing og sú þriðja skýrir mark- miðið litlu betur. Kjami nýju byggðastefhunnar leynist í annarri málsgrein. Hugmyndin sem liggur til grundvallar er að efla nokkur þéttbýlissvæði á landsbyggðinni, byggja þar upp opinbera þjónustu og treysta atvinnulífið þannig að svæðin njóti stöðugleika og eigi sér lífvænlega ffamtíð. Það er sam- hljómur í tillögum Byggðastofhun- ar og áliti sveitarfélagsnefndar fé- lagsmálaráðuneytis sem skilaði áliti á síðasta ári og lagði tdl að sveitar- félögin yrðu færri og stærri. Til að áædunin nái fram að ganga þarf að mati Byggðastofnun- ar að; 1. efla samfelld atvinnu- og þjónustusvæði, 2. samræma starfsemi og ffam- kvæmdir ríkisins og binda lang- tímamarkmið ráðuneyta og stofn- ana í fjögurra ára áætianir, 3. færa verkefhi ffá ríki til sveit- arfélaga, en forsenda fyrir því er sameining eða náið samstarf sveit- arfélaga, 4. auka fjölbreytni og nýsköpun í atvinnulífi. Skýrsla Byggðastofhunar, sem telur 100 síður, útskýrir tillöguna Davíð Oddsson forsætisráðherra vildi ótvíræða skilgreiningu á vaxt- arsvæðum og jaðarsvæðum lands- byggðarinnar. Til að ná sátt um byggðaáætlun hafhaði stjóm Byggðastofnunar tilmælum Davíðs. Veit Egill Jónsson stjómarmaður í Byggðastofnun, þingmaður, bóndi og varaformaður Búnaðaifélagsins of lítið um landbúnað til að honum sé treystandi fyrir málefnum bænda? til þingsályktunar og sagði Guð- mundur Malmquist forstjóri stofn- unarinnar að aldrei hafi stjórn Byggðastofnunar fundað eins oft og meðan unnið var að lokaffá- gangi skýrslunnar. Hinn formlegi yfirmaður stofhunarinnar, Davíð Oddsson forsætisráðherra, er þó ekki ánægður með niðurstöðuna. I útvarpsviðtali síðastiiðinn laugar- dag sagðist hann hafa viljað sjá fast- mótaðri tillögur um vaxtarsvæði á landsbyggðinni. I bréfi sem Davíð sendi Byggðastofhun í febrúar 1992 segir að í áæduninni skuli „koma fram mat stofnunarinnar á því hvaða svæði landsbyggðarinnar teljist til vaxtarsvæða samkvæmt þeim skilyrðum sem stofnunin set- ur og þeim viðmiðunum sem hún telur eðlilegar." I uppkasti að skýrslunni, sem sent var til umsagnaraðila í vetur, voru svæði skilgreind sem vaxtar- svæði og jaðarsvæði. Uppkastið vakti sterk viðbrögð og að sögn Sigurðar Guðmundssonar, yfir- manns þróunarsviðs Byggðastofn- unnar, mátu menn það svo að aldrei myndi nást pólitísk samstaða um áætlun sem beinlínis tilgreindi hvaða byggðir yrðu settar útí horn. Kapp var lagt á að stjórn Byggðastofnunar stæði einhuga að skýrslunni og það tókst með því að auka svolítið á tvíræðnina um það hvaða byggðir skulu hljóta blessun hins opinbera og hverjar ekki. Hverjir eru í áhættu- flokki? I skýrslunni segir á einum stað að „þó að það sé æskilegt út frá mörgum sjónarmiðum að efla vöxt á öllum þéttbýlisstöðum lands- byggðarinnar er það markmið ein- faldlega utan þess sem hægt er að ná.“ Hér kveður við annan tón en þann sem löngum hefur hljómað í íslenskum stjórnmálum, að nauð- synlegt sé að viðhalda byggð hringinn í kringum landið. Mat Byggðastofnunar er að ekki séu nægilegir fjármunir til ráðstöfunar til að viðhalda óbreyttri byggð og skynsamlegra sé að veðja á færri og stærri pláss. Þeir sem búa á landsbyggðinni og velta fyrir sér hvort þeir eiga heimili í plássum sem þykja lífvæn- leg fá eftirfarandi viðmið ffá Byggðastofhun: Liggur plássið vel gagnvart fiski- miðum? Eru góðar samgöngur innan svæðis og við höfuðborgina? Býr staðurinn að hlunnindum svo sem jarðhita eða skilyrðum til úti- vistar og ferðamannþjónustu? Er nægilegur mannfjöldi í plássinu og eru fjölmenn landbúnaðarhéruð í næsta nágrenni? Byggðastofnun hefúr allmikla reynslu af sjávar- plássum og stofnunin telur að út- gerðarstaðir með fxrri en 800- 1000 íbúum eigi litla möguleika, nema ef þeir eru í því betra vega- samgöngum við stærri byggð eða í nálægð við góð fiskimið. Samkvæmt upplýsingum ffá Hagstofu eru 35 pláss á landinu sem hafa íbúafjölda á bilinu 200 - 1000. Samtals búa á þessum stöð- um um 16 þúsund manns. Mörg þessara plássa eru „hólpin" í þeim skilningi að þau uppfylla skilyrðin sem tíunduð eru í skýrslunni sem forsendur fyrir byggð. Nokkur pláss á sunnanverðum Vestfjörðum og Norð-Ausmrlandi eru á mörkum þess að falla undir skilgreininguna á jaðarsvæði. Jarð- göngin á Vestfjörðum breyta litiu fyrir syðri firðina: Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal. Endur- bætur á veginum yfir Hálfdán greiða fyrir samgöngum milli þess- ara byggða og það mun fara eftir á- huga og getu forsvarsmanna þess- Um styttingu s Vikublaðinu hefur að undan- fömu verið að hefjast umræða um hugmyndafræði Alþýðu- bandalagsins að frumkvæði Stein- gríms Sigfússonar varaformanns flokksins. Þetta er tímabært frum- kvæði. Það verður ekki séð að Al- þýðubandalagið bjóði um þessar mundir upp á neinn trúverðugan valkost gegn markaðshyggjunni sem er drotmandi stefna í íslensk- um stjórnmálum í dag. Það er eins og þessi flokkur hafi ekki náð vopnum sínum effir að hrunið mikla varð austan jámtjaldsins. Hér verður aðeins fjallað um einn þátt varðandi hugsanlega hug- myndaffæði flokksins. Eitt af því sem oft vill gleymast, þegar rætt er um samfélagsmál, er umfjöllun um vinnutíma, þ.e. þann tíma sem það tekur almennan laun- þega að vinna fyrir kaupi sínu eða lífsviðurværi, og gildir þá einu hvort um er að ræða stjórnmála- menn eða aðila vinnumarkaðarins. Vinnutími á Islandi er einn sá lengsti sem þekkist, en enginn læt- ur sig varða um það nema einstaka heilbrigðisstarfsmenn sem enginn ráðandi maður hlustar á. Stöku sinnum er minnst á vinnuþrældóm innan sviga, en því fylgir engin al- vara. Það er aldrei minnst á vinnu- tíma í tengslum við kjarasamninga eða inni á alþingi. Þó er sannleik- urinn líklegast sá að stytting vinnu- tímans er eitt af brýnustu verkefh- um í íslenskum þjóðmálum í dag og tengist meira og minna mörg- um öðrum vandamálum bæði efha- hagslegum og félagslegum. Fyrir tveimur árum kom út í Bandaríkjunum bók, sem ber titil- inn The Overworked American eftir hagffæðinginn Juliet B. Schor, þar sem m.a. er bent á að ffam- leiðni hafi tvöfaldast þar í landi síð- an 1948, en það hafi ekki skilað sér til launþega í styttri vinnudegi, heldur hafi það valdið annars vegar atvinnuleysi, sem fari vaxandi, en hins vegar lengingu vinnutímans hjá þeim sem hafa vinnu. Tæknin, sem átti að létta okinu af hinum vinnandi manni, hafi þvert á móti þyngt það ýmist í formi vinnuþræl- dóms eða atvinnuleysis. Er ekki eitthvað svipað að gerast á íslandi? Við erum nú stödd í kreppu, dæmigerðri marxískri kreppu, þar sem stóraukin tækni veldur aukinni ffamleiðni og þar með offram- leiðslu en kaupgeta minnkar vegna lækkandi kaupmáttar. Tæknin, nú síðast sjálfvirknin, ryður starfsfólki burt en léttir ekki störfin. Svar markaðshyggjunnar er aukið at- vinnuleysi annars vegar og vaxandi launaþrældómur hins vegar. Svar félagshyggjunnar ætti hins vegar að vera stytting vinnutímans, þar sem okinu væri létt af hinum vinnandi manni og atvinnuleysi útrýmt. I rauninni er stytting vinnutímans óhjákvæmileg afleiðing aukinnar framleiðni, hvernig sem að er farið. Það er bara spurningin hvort þessi vinnutímastytting er útfærð sem atvinnuleysi, eins og markaðs- hyggjan virðist stefna að, eða hvort svarið er almenn stytting vinnu- tímans, sem ætti að vera lausn fé- lagshyggjunnar. Það eru margvísleg rök sem hníga að því að vinnutími skuli styttur og verður hér fátt eitt talið. vinnutíma í fyrsta lagi er óhóflega langur vinnudagur heilsuspillandi. Um það hefur svo off verið minnst í al- mennum umræðum að óþarff er að fjölyrða um það hér. Eg vil aðeins benda á skrif Ólafs Ólafssonar landlæknis, en hann hefur marg- sinnis bent á sambandið milli vinnuþrælkunar og streitu. Stytt- ing vinnutímans er því fyrirbyggj- andi aðgerð gagnvart streitusjúk- dómum af ýmsu tagi, sem eru nokkrir algengustu og mannskæð- ustu sjúkdóma nútímans. I öðru lagi myndi stytting vinnu- tímans draga úr atvinnuleysi. Það hefur verið bent á að ef enginn ynni lengur en 40 stundir á viku í dag myndi ekkert atvinnuleysi vera á íslandi. Atvinnuleysið er þver- brestur í hagkerfi markaðshyggj- unnar, sem aldrei verður bættur með vaxandi framleiðni eða aukn- um hagvexti. Markaðskerfið (kapi- talisminn) hefur leyst það með heimsstyrjöldum. Félagshyggjan á að svara aukinni framleiðni með styttingu vinnutímans. Með þeim einum hætti getur hún orðið al- Guðmundur Helgi Þórðarson menningi til velfamaðar. Upplausn fjölskyldunnar hefur verið áhyggjuefni margra og hefur jafnvel verið talið eitt mesta mein nútímasamfélags og undirrót ann- arra vandamála, s.s. unglinga- vandamála, fikniefnaneyslu, of- beldis og afbrota. Ef sameina á fjöl- skylduna á nýjan leik þarf að stytta þann tíma sem fólk eyðir í launa- vinnu. Margt fleira mætti nefna, en þetta verður að nægja að sinni. Enda þótt margt hafi skolast til í hugmyndafræði Alþýðubandalags- ins hin síðari misseri, þá vil ég trúa því að enn vilji það vera félags- hyggjuflokkur sem berst fyrir jöfh- uði og lýðræði, en gegn kúgun og kaldrana markaðshyggjunnar. Ef flokkurinn ætlar að láta til sín taka á þeim nótum, er eitt af höfuðverk- efnunum að taka upp einarða og markvissa baráttu fyrir stuttum vinnudegi, baráttu fyrir því að auknir tæknilegir möguleikar komi öllum almenningi til góða, létti ok hins vinnandi manns, en hneppi hann ekki í sífellt harðari fjötra. Það eru tæknilegar forsendur fyrir styttingu vinnutímans. Það sem hefúr komið í veg fyrir það er íhaldssöm hagfræði og pólitík markaðshyggjunnar. Ef svo heldur fram sem horfir, munu engar fram- farir nokkru sinni skila sér til al- mennings með aukinni velferð eða hagsæld. Það á að vera sögulegt hlutverk félagshyggjuflokks eins og Alþýðubandalagsins að sjá til þess að aukin tækni og aukin frainleiðni komi öllum almenningi til góða með raunverulegum og jákvæðum hætti. Stytting vinnudagsins er þar eitt af grundvallaraðgerðunum í þeirri viðleitni. Höfundur er heilsugæslu- læknir í Hafharfirði.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.