Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 9

Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 9
VIKUBLAÐIÐ 23.JULI 1993 BILLINN " lWibfc£4+4»lJiC(*fal^ Jf æja, þá nálgast hún óðfluga, I helgin þegar allir ætla út úr I bænum. Kannski ert þú ný- inn að fa bílpróf og ætlar út úr bænum á bílnum sem þér hefur tekist að eignast með vinnu- þrælkun, sparsemi og kannski smáláni frá pabba og mömmu. Ef þessu er þannig farið ættirðu kannski að staldra aðeins við áður en þú fyllir bílinn af vinum þínum og brunar af stað. Ef þú ert karlkyns þá er miklu meiri líkur á því að þú að lendir í bílslysi en ef þú tilheyrir hinu „svo- kallaða" veikara kyni. Ekki móðg- ast strákar, þetta er ekki illa meint. Það væri bara betra fyrir ykkur sjálfa og alla aðra að þið gerðuð ykkur grein fyrir því að bílar eru ekki gerðir tíl þess að þið getið sýnt hvað þið séuð svalir. Það er líka alger óþarfi að nota bílinn sem eins konar framleng- ingu á ónefndum en afar mikilvæg- unt líkamshluta. Það er ekkert sér- lega svalt og hjálpar ekkert tíl upp á karlmennskuna að lenda í því að keyra á, valda slysi og jafnvel dauða. Hér er dagsönn dæmisaga: Fyrir réttu ári var Reykjavíkur- lögreglan kvödd að slysi og þegar hún kom á vettvang gaf að líta bíl með dekkin uppi, farangur úti um alla móa og fjóra töffara á víð og dreif um ættjörðina. Tveir voru meðvitundarlausir, tveir höfðu meðvitund. Leðurldæddir ffá hvirfli til ilja lágu þeir grátandi og kölluðu á mömmu sína. Hálftíma áður höfðu þeir lagt af stað úr bænurn í þeim tílgangi að skemmta sér ærlega. Enginn þeirra, ekki heldur bílstjórinn, gat beðið með að fá sér einn og enginn hafði séð ástæðu til þess að nota bflbeltí. Góð skemmtun? Mórallinn er: Keyr- ið í samræmi við að- stæður, alls ekki eftir að hafa drukkið og ekki án bílbeltis. Þá er aldrei að vita nema þetta gætí orðið hin skemmtilegasta helgi. ♦ ♦ OKUFERILS- SKRÁIN LEIÐ TIL ÞESS AÐ KOMA í VEC FYRIR UMFERÐARLACABROT N: HVERSU TÖFF ERTU? -"-Síí&il308semsiösuð- aldrinum 15 , VOrU 7% á aldrinum 17-20ára= H "Tm 28% á stæðan? ' ílver skyldi vera á- þeir eru i raun og veru? ■"ýlega byrjaði Lögreglu- stjóraembættið í Reykja- vík að tölvuskrá um- ferðarlagabrot eftir þeim einstak- lingum sem þau ffemja. Þeir sem eru teknir fyrir umferðarlagabrot fá punkta. Efdr að hafa fengið 4 - 5 punkta fa rnenn áminningu og ef syndaselirnir láta ekki af ósóm- anurn geta þeir átt von á því að missa bílprófið. Það er því eins gott að fara eftír settum reglum. Efþú ert tekinn fyrir að aka yfir á rauðu ljósi, keyra of hratt eða virða ekki stöðvunarskyldu kemur það fram í þessari skrá. Hilmar Þorbjörnsson sér um skrána sem komst í gagnið 1. mars sl. A þessum stutta tíma eru rnarg- ir komnir með nógu marga punkta til þess að fá áminningu. Stór hluti þeirra er í hópi yngstu ökumannanna og engin stúlka er í hópnum. Ökuferilsskráin á að verða tíl þess að þeir sem keyra glannalega og brjóta umferðarlögin annað hvort bæti ráð sitt eða, ef allt ann- að bregst, fari fyrir dómsstóla. Hilmar vill alls ekki að litið sé á skrána sem eitthvað refsikeyri á fólk. - Það besta við þetta er að við fáum þessa unglinga til þess að haga sér betur í untferðinni. Það er líka tílgangurinn með skrán- ingunni. Við viljum ná tíl þeirra sem brjóta af sér og helst koma í veg fyrir að brotin verði fleiri, segir Hilrnar. Hvemig bafa menn tekið áminn- ingunni? - Yfirleitt mjög vel og oftast lofa þeir bót og betran. Vonandi verða þessar áminningar til þess að þeir átti sig á því að vegimir eru ekki búnir til fyrir þá eina. Aðalsteinn Ami Hallsson er Iamaður upp að höndum og hefur nær engan mátt í fingrunum. Fyrir átta árum lenti hann í bíl- veltu. Hann var far- þegi í bílnum og hentist út úr honum. Hann var ekki með bílbelti. Aðalsteinn leit svo á að það væri óþarfi að nota beltin í þéttbýli. Nú er hann á annarri skoðun. - Hefði ég notað augnablik í að spenna beltin sætí ég ekki í hjólastól nú, segir Að- alsteinn ákveðinn. Þeg- ar slysið varð hafði hann unnið sem verk- stjóri og framleiðslu- stjóri í frystihúsum í Færeyjum, á Vestfjörð- um og í Hafnarfirði. Hann hefur próf úr Fiskvinnslu- skólanum sem hann mun aldrei geta nýtt framar. Frystihús eru ekki hönnuð fyrir hjólastóla. Hvað getur þú ráðlagt ungum ökumimnum sem eru að fara út í umferðina, e.t.v. ífyrsta sinn lít á land? - Að reyna ekki að leika töffara. Vera þolinmóður og keyra þannig að þú komist ör- ugglega á leiðarenda. Þegar lagt er af stað út úr bænum er oft stuð á mannskapnum og menn með hugann við áfanga- staðinn í stað þess að hugsa um aksturinn. Svo þurfa strákarnir að sýna töffarastæla, sýna hvað druslan kernst. Spurningin er hvort þeir séu nógu miklir töffarar tíl þess að lifa við það að hafa valdið ævilangri örkumlun eða dauða, jafhvel besta vinar síns. Eg var sjálfur oft farþegi í bíl þar sem mér fannst bílstjór- inn keyra glannalega, en þorði ekki að segja neitt. Nú veit ég að það er miklu meira töff að taka ábyrgð á því manndrápstóli sem bíllinn getur verið og láta ekki álit annarra hafa of mikil á- hrif á sig. Mér finnst líka að í stað þess að hugsa „það kemur Aðalsteinn Ami Hallsson: Strákamir þuifa að sýna töffarastala, sýna hvað druslan kemst. Mynd: OI.Þ. ekkert fyrir inig“ þá ætti fólk að hugsa „af hverju ekki ég?“ og keyra í santræmi við það. Hverju breytti slysið fyrir þig? - Það breytti öllu. Þetta er eins og að fæðast upp á nýtt. Eg lá á Borgarspítalanum í marga ntánuði og hafði gott tældfæri tíl þess að hugsa um lífið og tilver- una. Viðhorf mín breyttust. Fyrir slysið var ég hátekjumað- ur, en nú lifi ég af örorkubótum og er nægjusamari en áður. Ver- aldlegir hlutir skipta niinna ntáli en innri hamingja. - Sá sem sat undir stýri þegar slysið varð var góður vinur minn þá og er það enn. Eg ásaka hann ekki en ég myndi ekki vilja skipta við hann. Fólk reynir oft að finna einhvern til þess að skella skuldinni á eftir svona slys, en ntér finnst mikilvægara að læra að Iifa með þessu. Eg þurfti að læra allt upp á nýtt, meira að segja að pissa. Samt hefði ég ekki viljað missa af þessarri reynslu. Ef þú byðir mér að spóla tíl baka ntyndi ég ekki þiggja það. Hins vegar hefði ég ekkert á mótí því að geta staðið upp úr stólnum. - Það sent mér fannst erfiðast eftir slysið var hvern- ig fólk tók mér. For- dómarnir eru enn svo miklir. Margir virðast halda að greindar- skerðing fylgi skertri hreyfigetu. Meira að segja fólk sem ég þekkti fyrir slysið tal- aði yfir ntig, eins og ég gæti hvorki heyrt né talað. Aðalsteinn keyrir sjálfur sérútbúinn bíl en honum er illa við að keyra í Reykjavík. - Frekjan og yfir- gangurinn í umferð- inni er svo mikill. Það er ekki það að ég van- treysti sjálfum mér, ég treystí bara ekki hinum bílstjórunum. Mér finnst vanta lok- uð svæði þar sem hægt er að sýna þennan töffaraskap, fa þetta kikk sem surnir virðast fá út úr því að keyra hratt. Bíla- brautirnar í Fjölskyldugarðin- um nýja eru mjög sniðugar. Það er jákvætt að krakkar geti æft sig sig að keyra litla bíla áður en þau fá bílprófið. Þá safnast ekki upp eins mikil spcnna og oft virðist hafa verið raunin. Eg hef sjálfur mjög gaman af torfæru- keppnum og er hrifinn af því hvað öryggið er í góðu lagi hjá þeim. Eftir að Aðalsteinn útskrifað- ist af Grensásdeild Borgarspít- alans meira en ári eftir slysið fór hann bæði í Tölvuskólann og í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hann hellti sér líka út í félags- rnálin og segist aldrei hafa ferð- ast jafn mikið. Aðalsteinn situr nú í Umferðarráði fyrir Ör- yrkjabandalagið og hann er einnig virkur félagi í SEM-sam- tökunum, Samtökum endur- hæfðra mænuskaddaðra. - Þetta er eina félagið á Is- landi sem vinnur að því að fé- lögum fjölgi ekki, segir hann sposkur á svip. Vonandi bætast engir nýir í hópinn eftir þessa verslunarmannahelgi. - is FIO L5K Y L D-UHATLP I COMLU HOFNINNI LAUGARDAÚINN 24. JULÍ, FRA KL. 10-18 ':mrm Fjölbreytt dagskrá á hátíðarsvæði Reykjavíkurhafnar á Faxagarði, Austurbakka og Miðbakka 8-18: Skemm/tiferðaskipið Funchal við Miðbakka. Danska varðskipið Vædderen við Faxagarð. Varðskipið Ægir við Austurbakka. 10.00-17.00: MARKAP5TORO með sjávarvörur á Austurbakka. SJÁVARRÉTTAVEITINCAHÚS á Austurbakka. 5ÝNINC á sjávardýrum. SALTFISKVERKUN Opið hús hjá Fiskkaupum í Grófarskála. TÍVOLÍ á Miðbakka. Ókeypis í boði Reykjavíkurhafnar frá kl. 10.00-14.00. 10.00-15.00: DORCVEIÐIKEPPNI við Grófarbryggju. Uppboð á aflanum við Faxamarkað kl. 15.30 10.50-11.50 06 15.15-15.45 BJÖRCUNARÆFINC áhafnaVædderens og Ægis. Danskar og íslenskar þyrlur taka þátt í æfingunni. 15.50-14.00: LÚÐRASVEIT VERKALÝÐSINS leikur sjómannalög. 12.00-14.00: EYJAHRINCURINN Hin árlega siglingakeppni Brokeyjar og Reykjavíkurhafnar. Keppendur ræstir stundvíslega kl. 12.00 með fallbyssu á Batteríinu. Verðlaunaafhending vegna siglingakeppninnar verður við Faxamarkað kl. 15.00. 14.00-17.00: SJÓTÍVOLÍ slysavarnadeildarinnar Ingólfs fyrir yngstu kynslóðina. 14.00-17.00: OPINSKIP Danski flotinn býður gestum að skoða varðskipið Vædderen við Faxagarð og Landhelgisgæslan býður gestum að skoða varðskipið Ægi við Austurbakka. 14.00-17.00: KAFFISALA kvennadeildar Slysavarnafélagsins á 4. hæð í Hafnarhúsinu. 16.00-18.00: DJASSTÓNLEIKAR á Austurbakka í boði Reykjavíkurhafnar. Hljómsveit Carls Möllers leikur. Hljómsveitina skipa: Carl Möller - píanó, Árni Scheving - víbrafónn, Þórður Högnason - bassi, Guðmundur Steingrímsson - trommur, BjömThoroddsen - gítar og söngkona Andrea Gylfadóttir. Frumfluttur verður Hafnarblús, sem saminn var af hljómsveitinni í tilefni Hafnardagsins. REYKJAVÍKURHÖFN

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.