Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 18

Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 18
18 VIKUBLAÐIÐ 23. JÚLÍ 1993 Efst á baugi er vinnuheitið á tímaritinu sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor og ífjálshyggjumaður hefur hugsað sér að gefa út, fái hann hljómgrunn hjá sálufélögum. I minnisblaði til áhugafólks segir Hannes; „ég treysti mér til þess að takast ritstjórn á hendur þessa 18 mánuði [en síðan ætti að sjá til með ffamhald útgáfunnar] og leggja mitt af mörkum til að treysta fjárhagsgrundvöll með því að tala við nokkur stórfyrirtæki um aug- lýsingasamninga.“ Hannes þekkir sitt heimafólk og skrifar kokhraust- ur að hann muni ná milli 100 og 200 þúsund krónum út úr S til 6 stórfyrirtækjum í hvert blað á þeim 18 mánuði sem blaðið á að koma út til reynslu fyrsta kastið. Hannesi ætti ekki að verða skotaskuld úr því að ná auglýsinga- samningum við stórfyrirtæki því að tímaritið Efst á baugi „styður einkafyrirtæki og einkaíf amtak, þar á meðal stórfyrirtækin" en er á „mótí verkalýðshreyfingunni og öllum feitum körlum með einok- unaraðstöðu." Hvort þetta þýðir að Hannes sé á móti gildvöxnum karl- peningi er ekki svo gott að segja tíl um, ekki síst þegar haff er í huga að uppáhaldsvinurinn, Davíð, er nú ekki nettur maður. Það styrkir þó þá skoðun að Hannes vilji hafa karlmenn öðruvísi en feita að í tímaritinu verður fastur þáttur um líkamsræktarstöðvar. Og mikið rétt, Hannes ætlar sjálfur að skrifa dálkinn um líkamsræktarstöðvar- nar enda sækir hann þær reglulega. En tíl að auka enn áhuga þeirra sem stórfyrirtækjum stýra ætlar tímaritíð að skrifa um forstjórabíla ,Audi, BMW, Mercedes Benz, Mitsubishi sportbílinn, Mazda sportbílinn, Nissan NX 100 o.s. frv., jeppana.“ Það mun örugglega ekki draga úr áhuga forstjóranna að „í hverju hefri fjallað um eitthvað, sem mættí einkavæða,“ og um fjár- festingartækifæri, þ.e. „leiðbein- ingar til manna um gróðatækifæri hér og erlendis.“ Stefha blaðsins ættí heldur ekki að fæla kaupsýslu- menn ffá tímaritinu enda „þorir [tímaritíð] að styðja Davíð Oddsson og aðrar ráðherra ríkis- stjórnarinnar þegar þeir gera góða hluti“ eins og að einkavæða Póst og síma og breyta ekki því ráðslagi að gefa útgerðarmönnum kvóta. Hannesi Hólmsteini er sérlega umhugað um orðstír Davíðs Oddssonar og hann hefur hugsað sér að gera forsætísráðherra að aðalefni eins tölublaðsins. Hannes hefur áður gert svipmynd af Davíð Oddssyni en það var kafli í bók sem hann skrifaði fyrir sænskt ffjáls- hyggjuforlag. Þar þakkaði Hannes Davíð fyrir alla mögulega og ó- mögulega hluti, til dæmis hversu góða fiskréttí reykvísk veitingahús bjóða upp á. Hannes er sár útí fjöl- miðla á borð við Ríkisútvarpið, Pressuna og Heimsmynd fyrir að fjalla um misfellurnar í stjóm- málastarfi Davíðs Oddssonar. Efst á baugi mun gefa hina hannesísku mynd af forsætisráðherra sem hann á skilið. Með svona vini þarf Davíð Oddsson enga óvini. Tíðni Hvað skyldi vera algengasta orð í íslensku? Islensk orð- tíðnibók er nýstárleg orða- bók sem gefin var út fyrir rúmu ári og birtir ýmsar forvitnilegar tölur um tíðni orða og orðmynda í ís- lensku, sem fengnar eru með viða- mikilli rannsókn á 100 texmm og textabrotum af ýmsu tagi. Meðal þess sem lesa má úr töfl- unum í bókinni er að samtengingin og er algengasta orð í íslensku en fast á hæla henni fylgir sögnin vera og þar á effir smáorðin að, t og á. Það verður hins vegar að leita aftur bókstafa og rittákna í 40. sæti í tíðniröðinni tíl að finna nafnorð. Þar trónir maður en kona er hins vegar í 106. sæti þótt reynd- ar sé það tíunda algengasta nafh- orðið. Það er ekki síður forvimileg vitneskja að algengusm orðin koma öll fyrir í hverjum einasta texta sem rannsakaður var og það sama á við um maður en affur á mótí voru engin dæmi um kona í fjórðungi textanna - við opnum með öðrum orðum tæplega bók nema rekast þar fyrr en síðar á orðið maður en í einni af hverjum fjórum bókum sem við lesum má búast við að kona sé hvergi nefhd. Reyndar eru nafh- orðin maður og staður þau einu sem koma fyrir í öllum texmnum og af lýsingarorðum er það einungis mikill. Algengusm sagnir koma hins vegar ffam í flesmm eða öllum textunum og eiga það sammerkt með mörgum svokölluðum smá- orðum og ýmsum fornöfnum. Auk orða og orðmynda má þarna verða margs vísari um tíðni bókstafa og annarra rittákna, fyrir- ferð einstakra orðflokka og það hversu algengar mismunandi beyg- ingarmyndir em. Þótt bókin sé frá- leitt skemmtilestur má hafa af henni margvíslegt gagn, t.d. er hún góður stuðningur fyrir kennara sem sífellt em að búa ril hvers kyns æfingar handa nemendum sínum. Starfið Útilíf Skildi Helgu aldrei við mig Þær skipta þúsundum pizzurnar, sem framleiddar em á hverjum degi í Reykjavík. Það er af sem áður var. Það er lifibrauð margra að elda ofan í náungann og veita honum góðan viðurgjörning. Að baka pizzu er sérstök kúnst og reyndir og flínkir pizzugerðarmenn em ekki á hverju strái. Af sumum er það talin list að baka góða pizzu. Við létum verða af því að líta inn hjá Olafi Haraldssyni pizzugerðarmanni upp í Breiðholti og forvitnast örlítíð. Af hverju ert þú í matreiðslu en ekki einhverju öðru? - Þegar ég var 16 ára heyrði ég auglýst í hádegisútvarpinu að mat- svein vantaði á humarbát frá Grinda- vík og mig vantaði vinnu. Eg kunni náttúmlega ekkert að elda nema þetta venjulega, pylsur og bjúgu og svoleið- is. Eg hringdi og var bara sagt að mæta strax. Eg þaut náttúmlega heim tíl mömmu og tók létta kennslustund í því að sjóða spagettí. Hún lánaði mér svo matreiðslubók Helgu Sig- urðardóttur og hana hef ég aldrei skilið við mig. Þessi æfing gekk það vel að ég tók pokann minn og bókina. Þegar komið var um borð fóm nú flestir að sofa, þannig að mín fyrsta máltíð um morguninn, sem munstr- aður kokkur var auðvitað spagettí - allir voða ánægðir og nýi kokkurinn sló í gegn. Síðan fór ég í nám og var Sævar Jóhannesson „pizzuþeytari“ á Pizza Plús horfir til botns. Myndir: Ol.f Ólafur Haraldsson í Pizza Plús. lengst af matreiðslumaður á Hótel Lofteiðum. En hvað rak þig tít ípizzugerðina? - Kannski ævintýraþrá. Ég bjó í Svíþjóð um tíma og þar kynntíst ég þessu. Þá var hér á landi almennur samdráttur eins og nú og ekkert vit að fara út í svona ævintýri. En nú er maður komin ágætlega af stað og það verður ekki aftur snúið. Er tnikill munur á að elda á flottu hóteli og svo að vera ípizzunum? - Gífurlegur munur. Það sem mér finnst skemmtilegt við þetta er að maður er í núklu nánara sambandi við viðskiptavinina, heldur en þegar eldað er ofan í einhvern sem maður aidrei sér. Þessi pissubransi er líka mjög léttur og skemmtilegur og mik- ill húmor í gangi. En samkeppnin er gífurlega hörð. Menn keppast um að hafa sem lægst verð og það er ábyggi- Iega hægt að finna ódýrari pizzustaði en þennan. En við reynum að leggja áherslu á gæði og erum af og til að bjóða upp á nýjungar. Hvemig em launin? - Ha! Hvernig eru launin? Maður hefur náttúrulega ekkert út úr þessu. Þetta er nýtt fyrirtæki en ég er nokk- uð ánægður með viðtökurnar. Þetta er gífurleg vinna og langar vökur, en við vinnum þetta upp í rólegheitun- um og á seiglunni. 1 Hrossaræktin heillar Sjálfsagt hafa einhverjir brugðið sér á hestbak í sumarblíðunni að und- anförnu. Einkum þeir sem eiga sjálfir hesta. En þeir sem ekki eiga hesta láta sig dreyma um hálendisferðir á hestbaki. Það er nefnilega hægt að komast á hestbak um Iand allt fyrir þá sem vilja reyna sig í hestamennskunni. Tíðinda- maður Vikublaðsins átti þess kost að komast á hestbak vest- ur í Eyrarsveit á Snæfellsnesi á dögunum. Fullur af draumum um glæsilegan hest með glæsi- legum knapa sem ríður inn í sólar- lagið. En það er meira en að segja það að sitja hest sæmilega. Harð- sperrur eru enn að hrjá tíðinda- mann vorn, bæði innanlæra og í baki. En það er þess virði að komast í svona túr þó smtmr sé. Leiðsögumað- ur þarna í Eyrar- sveitinni er Illugi G. Pálsson frá Nausmm í Eyr- arsveit. Hann er alvanur hesta- maður enda hef- ur hann smndað Illugi G. Pálsson hestasveinn og leiðsögu- hestamennsku maður. Útlendingamirfara hægaryfir. allt ffá 6 ára aldri. Illugi sækir sjóinn og smndar almennan búskap, en hyggst setjast á skólabekk í haust í Bænda- skólanum og læra allt um hrossarækt. Illugi segir að Is- lendingarnir sem leigja hjá þeim hesta vilji fara hratt yfir, en útlendingarnir vilja taka það rólega, njóta náttúmnnar og heyra ýmsan ffóðleik um land og þjóð. Þrátt fyrir harð- sperrar mælir tíðindamaður okkar eindregið með hesta- ferðum af þessu tagi.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.