Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 12

Vikublaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 12
12 VIKUBLAÐIÐ 23. JULI 1993 I "útlöndutn gerist það stundum að fólk sem maður hittir fer að -tala um hve margar góðar hljómsveitir séu til á Islandi. Þetta eru þeir sem ekki byrja á að spyrja hvar Island sé eða fara að hlæja þegar maður segist koma ffá þessu skeri. Ef þessir erlendu tónlistará- hugamenn villtust hingað og færu að hlusta á útvarp kæmust þeir fljótlega að þeirri niðurstöðu að íslensk dægurtónlist væri í djúpum öldudal og hefði farið aftur síðan þeir heyrðu í þessarri frábæru ís- lensku hljómsveit „sem heitir nafni sem ekki er hægt að bera ffam. Það eru tvær stelpur í henni, önnur spilar á fiðlu og hin á saxafón." Ef lýsingin kveikir ekki á neinni peru hjá ykkur er það vegna þess að þið hlustið of mikið á útvarpsstöðvarn- ar, en farið of lítið á tónleika þar sem þær hljómsveitir eru sem ekki heyrast í útvarpi. Auðvitað eru til undantekningar. Górillurnar í samnefndum út- varpsþætti á ónefhdri útvarpsstöð hafa tvisvar og jafnvel oftar spilað lög af nýútkomnum diski gleði- sveitarinnar Ham. Það kom reyndar ekki til af góðu. Fyrra skiptið var eftir að górillurnar höfðu af sinni meðfæddu illgirni og skepnuskap talað illa um Ottarr Proppé, söngvara og textahöfúnd hljómsveitarinnar. Þar héldu þessir öðlingsmenn því ffam að það passi illa við ímynd Ottarrs Proppalings, eins og þeir kalla hann, að afgreiða í bókabúð. Þetta er mesti misskiln- ingur því Óttarr er mikill bók- menntamaður og sjást þess m.a. merki í textum hans sem eru undir áhrifum frá William Burr- oughs o.fl. undir- heimarithöfund- ■' Sigutjón stórsön, hinn kennimann, •gvari,, stundum kallaður Ivan Rebroff lslands, og uegi Ottar Proppé. Mynd: Björg Sveinsdóttir um sem Óttarr sér um að alltaf megi fá nóg af hjá Máli og menn- ingu. I hitt skiptið urðu þeir að spila Ham vegna þess að hlustandi, sem vann sér inn óskalag með því að gefa rétt svar við spurningu hjá þeim, vildi fá lag með þokkapiltun- um. Þeir félagar reyndu prútta við hann en án árangurs. Maðurinn vildi lag með Ham og honum varð ekki haggað. AF ÚTVARPSVÆNUM SVEITUM OC ÖÐRUM EKKI EINSVÆNUM Tregðu górillanna má kannski rekja til þess að Ham er ein þeirra fjölmörgu hljómsveita sem ekki þykja nógu „útvarpsvænar". Afurð þessara banda er því helst ekki spil- uð í útvarpi nema í skýrt afmörk- uðum þáttum á versta tíma. Það er undarlegt að engin þeirra hljóm- sveita sem fá helst náð fyrum eyr- um þeirra sem velja tónlist ofan í alsaklausan landann hefur nokkru sinni átt sjens í útlöndum. Sumar þeirra hafa reynt, en sjaldan við miklar undirtektir. Það verður þó að viðurkennast að eftir að Sykur- molarnir urðu frægir í útlöndum hafa þeir stundum verið spilaðir í útvarpinu. Upphefðin verður að koma að utan. APMEIKA ÐAÁ MANHATTAN Þeir félagar með „menningar- hálfvitann“ Óttarr eins og górill- urnar kjósa að kalla hann í broddi fylkingar, hafa látið sér þetta að kenningu verða og eru farnir til Manhattan að „meika'ða". I far- angrinum höfðu þeir birgðir af ný- útkomnum diskum sem spanna feril þeirra fram á þennan dag. Safhið ber hið hógværa nafn: Saga rokksins 1988 - 1993. Diskunum dreifa þeir til áhugasamra Kana og þeirra sem eru líklegir til þess að geta hjálpað þeim á hinni þyrnum stráðu framabraut New York- borgar, því: „If you make it here, you'll rnake it anywhere“. I alvöruþrungnu lanjjlínuviðtali við Vikublaðið sagði Ottarr þetta ganga ágætlega, en þeir gerðu sér svo sem ekki miklar vonir. Enn væri lítið að frétta, þeir hefðu ver- ið að spila á klúbbum. Nú væru þeir ekki lengur fyrstir á hljóm- leikadagskránni heldur væru að færast aftar. Það væri góðs viti. „Spilamennskan hefúr gengið mjög vel,“ segir Óttarr hinsvegar. Hvers konar staðir erþetta sem þið hafið verið að spila á? „Þetta eru helvítis búllur.“ 6RÆSKULAUS KÍMNI OC GLEÐIN í FYRIR- RÚMI Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ham spilar í útlöndum. Aður hafa þeir hitað upp fýrir Sykurmolana á hljómleikaferðalögum. Það gerðu þeir bæði 1988 og 1989 og reyndu þá alltaf að kynna sig og komast í sambönd. Samhliða því að taka upp lög með hinum ódauðlegu textum Ottárrs sungnum á íslensku þá hef- ur hljómsveitin haldið þeim vana að taka lögin líka upp á móðurmáli rokksins, enskunni. Nú hafa orðið nokkrar manna- breytingar í hljómsveitinni. Ef marka má orð hins virta tónlistar- gagnrýnanda blaðs (næstum) allra landsmanna, Arna Matt, sem er einn helsm aðdánda hljómsveitar- innar þá sýnir „Saga rokksins...“ vel hve hljómsveitin er orðin þétt og spilamennskan góð. Hann segir þetta ekki hafa komið niður á húmornum. Hann er einmitt það sem skilur þá frá öðrum hljóm- sveitum sem spila tónlist af svipaðri tegund, þ.e. rokk í þyngri kantin- um. Þessi létta og græskulausa kímni kemur bæði fram í textunum og einnig í tónlistinni sjálfri. Hún hefur einnig birst í myndböndum þeirra, en eitt þeirra varð svo ffægt að vera bannað af þáverandi dag- skrárstjóra Sjónvarpsins, hinum ástsæla Hrafni Gunnlaugssyni. Honum þótti það of ósmekklegt. Merkilegt. Þó allt sé á huldu um yfirvofandi heimsffægð piltanna og plötusnúð- ar íslenskra útvarpsstöðva spili því ekki tónlist þeirra nema tilneyddir - enn - þá hefur „Saga rokksins..." runnið út í Hljómalindinni. Hins vegar hef ég engar óvilhallar heim- ildir um sölu disksins í ríki Clint- ons. Það er náttúrulega ekkert að marka það sem strákarnir segja sjálfir... - is Suniarniót Alþýöubandtilafjsins IVorðurlandi vestra verður haldið að Hólum í Hjaltadal 13. - 15. ágúst. Upplýsingar og þátttökutilkynningar: Jón Arnljótsson s. 95-38054 - Undirbúningsnefnd HEILSUNNAR VEGNA SUNDSTAÐIRNIR I REYKJAVÍK ERU OPNIR TIL KL. 22.00 í ALLT SUMAR ^ LOCCIR ^ m LESEND- URVIKU- BLAÐSINS HAFA VÆNT- ANLECA TEKIÐ EFTIR ÞVÍ AÐÁ SÍÐUSTU VIKUM HEFUR SÁRLECA VANTAÐ BÓK- MENNTACACN- RÝNI I BLAÐIÐ. ÁST/EDAN ER SÚ AÐ CACN- RÝNANDI BLAÐSINS HEFUR TEKIÐ SÉRFRÍFRÁ BÆÐI BÓKSÖLU OC SKRIFUM OC ER FARINN TIL MANHATT- AN MEÐCLEÐI- SVEITINNI HAM. HLJÓMSVEIT- IN HEFUR ÞANN CÆDA- STIMPIL AÐ VERA (NÆST- UM> ALDREI SPILUÐ í ÍS- LENSKU ÚT- VARPI OC ÆTTI ÞVÍ AÐ EICA MÖCULEIKA Á ERLENDRI CRUND. EYRU ÚT- LENDINCANNA ERU JÚ EIN- HVERN SVO ALLT ÖÐRUVÍSI SKÖPUÐ EN EYRU ÚTVARPS- PLÖTUSNÚÐ- ANNA ÍS- LENSKU.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.