Vikublaðið


Vikublaðið - 23.07.1993, Side 6

Vikublaðið - 23.07.1993, Side 6
VIKUBLAÐIÐ 23.JULI 1993 Ólíkar væntingar til sameiningar sveitarfélaga Ihaust verða haldnar kosningar í öllum kjördæmum landsins utan Reykjavíkur um sameiningu sveitarfélaga. Markmið stjómvalda er að fækka sveitarfélögum úr tæplega 200 niður í 40-50. Formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga álítur óvarlegt að ætla að sveitarfélögum fækki meira en sem nemur 60-70 sveitarfélögum. Sérstakar uindæmanefndir á-starfssvæðum allra landshlutasamtaka sveitarfélaga gegna lykilhlut- verki í undirbúningi fyrir kosningarnar sem haldnar verða 20. nóvember. ' Umdæmanefhdirnar leggja; til nýja sveitar- félagaskipan hVers landshluta, sem-síðah \?erður kosið um, og haf* umsjón með kynningu og hag- ' kvæmnisathugunym þar sem þeirra erþorf; i Vinnan við tillöghr að sameiningu syeitarjélaga er hvað lengst komin á Ausfurlandi. Albert Ey- : mundsson á'Hpfn í Hornafirði segir að umdæma- nefndin muni leggja tdl að á AuSturlandi verði 8 sveitarfclögí stað 30 eins og nú er. ' Samráðsnefhd um sameiningarmál sveitarfcl- aga, sem félagsmálaráðherra skipaði fyrr á þéssu ári, hélt blaðamannafund í fyrradag sem markar upphaf kynningarátaks Samráðsnefndarinnar og umdæmanefndanna. Formaður samráðsnefndar- innar, Bragi Guðbrandsson aðstoðarmáður félags- málaráðherra, sagði að sameining sveitarfélaga væri flókið og viðkvæmt inál enda lúti hún að grundvallarskipun samfélagsins. Stjórnvöld leggja á það áherslu' að sveitarfélögin verði færri og öflugri til að þau geti í auknum mæli tekið að sér verkefni sem núna eru á könnu ríkis- valdsins. Stærstu mála- flokkarnir sem rætt er um að færist yfir á hendur sveitarfélaga eru grunnskólinn og heilsugæslan. Hreppar voru skipu- lagðir skömmu eftir að Island byggðist og þjónuðu vel sínu hlutverki í landbún- aðarsamfélagi sem einkenndist af sjálfs- þurft og fábreytni. Umræðan um sam- einingu sveitarfélaga er margra áratuga gömul en hefur skilað litlum árangri. Samband íslenskra sveitarfélaga leggst eindregið gegn því að Alþingi lögbjóði sameiningu og eru kosningarnar í nóv- ember málamiðlun milli þeirra sem vilja gefa sveitarfélögum algjört sjálfdæmi um það hvort þau sam- einist eða láti það ógert og hinna sem vilja að Alþingi og ríkisvald ákveði ein- hliða nýja skipan sveitarstjórna. - Ef kosningarnar leiða ekki til þess að sveitarfélögum fækki verulega gemr verið að menn missi þol- inmæðina og lög- þvingi sameiningu, er álit Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar bor- garfiilltrúa í Reykja- vík og formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Markmið stjórnvalda er að sveitarfélögum fækki úr tæplega 200 niður í 40-50 og minnstu sveitar- félögin telji ekki færri en eitt þúsund íbúa. Vilhjálmur álímr það góðan árangur ef kosningar- nar í haust leiði til þess að sveitarfélögum fækki um 60-70 og verði þá um 120. Aðspurður sagði Bragi Guðbrandsson að ekki kæmi til þess að fámennari sveitarfélög myndu hindra eða hægja á þeirri þróun að ríkisvaldið færi verkefni til sveitarféjaga. - Það gætu örðið tvær tegundir ^af svcitar- félögupi. Stór og öflug sem fá verkefhi til sín og svo Jítil og varimétmg sveitarfélög sem ekki hafa bolmagn tii að taka að sér verkefni frá ríkinu, ségir Bragi.. . ■ - • Þann 20. nóyember'gryiða íbúar flestra sveitart . lélaga atkvæði u'm tiflögur umdæmanefrida.’'Ef meirihluti viðkomándi sveitarfélaga sajnþykkir , sameiningu ,munu sveitarstjómir hrinda, hénpi í framkvæmd, » Hljoti tillaga urndæmanefndar ekki meirihluta í hlutiaðeigandi sveitarfélögufn en þó meirihluta í tveim þriðju þeirra er heimilt áð sameina þari sem samþykkja, ef lanilfræðilegar aðstæðpr koma ekki í veg" fyrir það. Verði ekki af sameiningu er umdæmanefrid heimilt að leggja ffam nýja tillögu fyrir lj. jariúar 1994. pv Nú í sumar ætlar Pizza Roma að bjóða upp á þrennskonar tilboð. B: C: 16" pizza m/3 áleggsteg., 21 kók, salat, kokteilsósa og franskar - kr. 1500. - 9“ pizza m/3 áleggsteg., og stór dós af kók - kr. 790.- 16" pizza m/3 áleggsteg. - kr. 990.- Nýtt! Hvítlauksbrauð kr. 150.- Hvítlauksbrauð m/osti kr. 190.- Athugið nýjan opnunartíma frá 11.30 -14.00 og 16.30 - 22.00. Njálsgötu 26 - Sími 629122 RIP P E N píanó Stórlækkað verð. Vegna breytinga á rekstri Rippen píanóverksmiðjunnar getum við boðið nokkur RIPPEN píanó (minni gerðina) á stórlækkuðu verði. Mjög góðir greiðsluskilmálar. VISA/EURO ye'tAÚvn LElFS H. MAGNUSSONAR GULLTEIGI6-105 REYKJAVÍK • SÍMI91 - 688611

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.