Vikublaðið - 23.07.1993, Side 14
14
Mannréttindin
VIKUBLAÐIÐ 23. JÚLÍ 1993
JAFNRETTIÐ, STJORMALIN OG FRAMTÍÐIN
Ráðhcrraskiptin í ríkis-
stjóminni hafa mikið ver-
ið rædd undanfarið, ekki
síst vegna óánægju kvenna með
að gengið skyldi framhjá Rann-
veigu Guðmundsdóttur og tveir
karlmenn með litla reynslu af
Alþingi gerðir að ráðherrum.
Þessi umræða hefur komið upp í
flestum stjómmálaflokkum þeg-
ar ríkisstjómir hafa verið mynd-
aðar á undanfömum ámm. Kon-
ar hafa þá nær undantekninga-
laust verið óánægðar með út-
komuna.
I síðustu viku var einum millj-
arði ráðstafað til að minnka at-
vinnuleysi. Af þessum 1000
milljónum er einungis 60 millj-
ónum ætlað að auka atvinnu hjá
konum. 940 milljónir fara í eitt-
hvað annað. Hvemig upplifa
ungar konur íslenskt samfélag,
jafnrétti og stöðu sína við þessar
aðstæður? Vikublaðið hitti þrjár
ungar konur og reyndi að for-
vitnast um skoðun
þeirra á jafhréttis-
málum og stöðu
kvenna á Islandi.
STRAKAR
ÞURFAAÐ
VITA Af>
ÞEIR ERU
EKKERT
MERKILECRI
EN STELPUR
Inga Rut Jónsdóttir
er 17 ára og er í
Kvennaskólanum í
Reykjavík. I sumar
vinnur hún hjá Skóg-
rækt Reykjavíkur.
Finnst henni að stelpur
eigi erfiðara með að
koma sér áfram í þjóð-
félaginu en strákar?
„Það er náttúrulega
inikið misrétti á milli
karla og kvenna, það er
eins og karlar eigi að
geta miklu meira en
konur. Mér finnst það
ekki rétt, konur eru al-
AFRAMSTELPUR
veg jafn hæfar og karlmenn. Það
virðist vera auðveldara fyrir karla
að koma sér áfram þó það eigi.ekki
að vera svoleiðis."
Fá stelpur önnur skilaboð frd um-
hverpnu en strákar um hvað pær eigi
að gera í lífinu?
„Kannski ekki beint, en þegar
strákar og stelpur eru á mínum
aldri þá fá strákarnir að gera miklu
meira. Stelpur eru miklu vernd-
aðri, allavega er það þannig í mín-
um vinahópi. Stelpur eiga að vera
svo góðar, mega ekki neitt. Margar
stelpur sem ég þekki eiga eldri
bróður sem hefur fengið að gera
núklu fleira en þær. Stelpur mega
ekki neitt.“
Inga Rut
er alveg á hreinu.
r: Launamunurinn er osanngjarn. Það
Mynd. Ól. Þ.
Nú er mikið talað um að strákar
keyri illa. Heldur pú að strákar kom-
ist upp með meira en stelpur, t.d. í
sambandi við bíla?
„Það er ekkert endilega rétt, það
eru til stelpur sem keyra alveg jafh
illa, Auðvitað eru inn á milli vit-
leysingar en það eru stelpur inn á
milli sem keyra hratt.“
Kona og karl vinna sömu
vinnu en samtfcer hann
hterri laun
I haust fer af stað jafnréttisátak í
framhaldsskólunmn. Er pötfá pví?
,Já, ég myndi segja það. Strákar
þurfa að vita að þeir eru ekkert
merkilegri en stelpur. Það er alltaf
ætlast til að konur
geri allt á heimilinu
þó að þær séu úti-
vinnandi. Oft er
það þannig að kona
og karl vinna alveg
sömu vinnuna en
samt fær hann
hærri laun. Þetta er
ósanngjarnt, það er
alveg á hreinu.“
Stöndum við okk-
ur vel í jafnréttis-
málum?
„Nei, ég myndi
ekki segja það.
Astæðan er launa-
munurinn og þess-
ar ástæður sem ég
var að nefha. Það
eru fáir karlmenn
sem gera eitthvað á
heimilinu. Þar sem
systkini eru á líkum
aldri á stelpan yfir-
Ieitt að hjálpa
mömmunni í eld-
húsinu en ekki
strákurinn."
Tala krakkamir í
skólanum um jafn-
rétti?
.jafnrétti er eitthvað sem er lítið
talað um en það kemur alltaf inn í
umræðuna ef það er eitthvað órétt-
látt í gangi. Þá er mikið rifist. Mér
finnst samt áhuginn ekki vera mik-
ill.“
Gatirðu hugsað pér að skipta pér af
stjómmálum íframtíðmni?
„Eg myndi ffekar vinna að jafn-
réttismálum en fara út í stjórnmál."
Hvemig lýst pér á framtíðina á Is-
landi?
„Eg get nú ekki sagt að mér lítist
vel á hana. Það er rosalega erfitt
fyrir fólk að fá vinnu núna. Krakk-
ar sem fara ekki í skóla eiga mjög
erfitt því þau fá enga vinnu. Hvað
eiga þau að gera? Þú færð ekki
vinnu nerna í gegnum klíkuskap.
Svo eru dæmi um fólk sem er búið
að læra og fær ekki heldur vinnu.
Ég get ekki sagt að framtíðin sé
björt, ég hef aldrei vitað neitt fara
batnandi með árunum." segir Inga
Rut Jónsdóttir.
EC CÆTI VEL
HU05AÐ MER Af>
FARA UT I,
STJORNMALIN
Ema Kaaber útskrifaðist frá
Kvennaskólanum í Reykjavík í
vor. Hún var á kafi í félagslífinu, sat
í skólanefnd, var ritari skólafélags-
ins og keppti með ræðuliði skólans
í MORFIS sem náði þeim árangri
að komast í fjögurra liða úrslit. I
liði Kvennaskólans voru eingöngu
stelpur að þessu sinni. En hvað ætl-
ar hún sér að gera í framtíðinni?
„Ég ætla að vinna í vetur og
safha fyrir skólanum. Ég vil ekki
hafa alltof mikil námslán á bakinu.
Annað haust ætla ég í Iögfræði."
Finnst pér að stelpur hafi jafna
möguleika á við stráka til að koma sér
áfram?
„Þetta fer batnandi en karlar
hafa betri tækifæri til að koma sér
áfram, sérstaklega í stjómmálum.
En það er ekki hægt að tala um
jafnrétti fyrr en laun em orðin jöfn
og það gerist kannski ekld á minni
lífstíð."
Ema telur það að einhverju leyti
Lögffteðin erfinn stökkpall-
ur inn á þing!
Hvers vegna bjóða stelpur sig síður
fram til starfa í jmis konar ábyrgðar-
stöður?
„Astæðurnar em margar, stelpur
hafa misjafnan metnað. Það dregur
úr hjá flestum en örvar aðrar, að fá-
ar em fyrir, til dæmis í stjórnum
nemendafélaga.“
Gætir pú hugsað pér að skipta pér
af félagsmálum í framtíðinni, til
dæmis stúdentapólitíkinni?
,Já, ég hef hug á því ef ég get því
lögfræðin er erfið. Ég gæti alveg
hugsað mér að fara út í stjórninál-
Erna Kaaber: Hef áhuga á stjómmálum og cetla ekki að vera til
skrauts! Mynd: Spessi.
tengjast því að konur ganga með
börnin, fari í barneignafrí og þær
em frekar heima þegar börnin eru
veik.
„Ég held að fyrirtæki láti konur
gjalda þess. Karlinn er frekar ráð-
inn ef tveir jafn hæfir einstaklingar
sækja um starf."
Fá stelpur önnur skilaboð frá um-
hverfinu en strákar?
,Já, alveg frá blautu barnsbeini.
Stelpur byrja snemma að passa
börn og með því er mikil ábyrgð
lögð á þær á meðan þegar þær eru í
raun sjálfar böm. Konur leyfa sér
minna og em tílfinninganæmari,
en karlmenn em ábyrgðarlausari.
Svo verða stelpur fyrir kynferðis-
legri áreitni á vinnustöðum og hafa
þess vegna allt önnur skilyrði á
vinnumarkaðnum en strákar."
in, lögfræðin er fínn stökkpallur
inn á þing!“
Hvað finnst pér um sérframboð
kvenna?
„Mér finnst allt í lagi með það.
Af hverju mega konur ekki hafa
sérstakan flokk? Karlar hafa ráðið
hinum svo lengi, það er allt í lagi að
jafna þetta upp.“
Myndir pú beita pér frekar fyrir
málefnum kvenna?
„Nei, ekkert sérstaklega. Það er
þó full ástæða til að bæta stöðu
bama, t.d. hvað varðar dagvistun-
armál. Og ég ætla ekki að vera til
skrauts," segir Erna Kaaber, með
allavega næstu fimm ára áædun á
hreinu.
Kannski á hún eftir að valda usla
í einhverjum flokknum þegar hún
lætur til sín taka?
Sagt með mynd
Höf. Hjörtur Gunnarsson og
Þuríður Hjartardóttir
Verðlaunagáta 34
Lausnir sendist Vikublaðinu, Laugavegi 3, 101
Reykjavík, merkt VERÐLAUNAGÁTA.
Skilafrestur er tvær vikur. Verðlaun fyrir mynda-
gátu 34 er bókin Hundshjarta, eftir Mikhaíl
Búlgakov, í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur.
Verðlaunahafifyrir nr. 32
Þegar dregið var úr réttum lausnum kom upp
nafnið Sigríður Oddsdóttir, Dunhaga 11, 107
Reykjavík. Hún fær bókina Oðurinn um Evu,
Sagnir af gyðjum og konum, eftir Manuelu Dunn
Mascetti.
Ráðning 32 myndagátu:
„Skotfierahaugar á hafisbotni í Helguvík stugga
viðmönnum um háskann afherliðinu.“
ATH: Nokkur brögð em að því að lausnir berist
of seint og em þær þá ekki með í útdrætti. Því
hvetjum við lesendur til að senda lausnir inn sem
fyrst.