Vikublaðið - 23.07.1993, Side 19
VIKUBLAÐIÐ 16.JULI 1993
Rithöndin
Átt drauma sem þú segir ekki frá
Skrifrin segir að þú sért í
sífelldri leit að þekkingu og
reynslu. Hugurinn er mjög
opinn. Þú hræðist ekki en athugar
hvaðeina sem þú rekst á eða að
höndum ber með hugarfari nátt-
úruffæðingsins sem ekki verður
undrandi á neinu og útilokar
ekkert. Þess vegna munu hvers
konar rannsóknarstörf hæfa þér
vel. Þú ert rólegur hversdagslega,
virðist stundum dálítið fjarhuga.
Vinir þínir boma stundum ekkért í
þér en þeim þykir samt mjög vænt
um þig. Þú munt eiga þína drauma
sem þú segir ekki frá. Það er eins
Amar Sævarsson í Hljómalind.
og smndum sé örþunnt gler milli
þín og þeirra sem þú talar við. Þér
mun þykja vænt um gróður og nát-
túruna.
Siðir og venjur virðast ekki
höfða til þín, en þú reynir samt að
fylgja þeim, svona í lágmarki, til að
hrella ekki þína nánusm. ímynd-
unarafl er ríkt og einhver skáld-
gáfa. Stundum rennur veruleiki og
ímyndun saman í huga þínum. Þú
átt létt með að umgangast fólk.
Tónlistar vilm helst ekld vera án og
hún þarf að hafa mikið „sving“.
Þú ert jákvæð persóna en virðist
ffemur óákveðinn, framtíðarsýn
þín breytist oft. En senniiega á
þetta eftir að breytast. Þú virðist
æðrulaus og læmr áföll ganga yfir
þig eins og öldu sem semr þig ekki
uin koll.
Þú hefur góða möguleika til að
fá mikið út úr lífinu.
Góða framtíð.
RSE
Dagskráin
Uppáhalds sjónvarps-
stöðin er MTV
Um næsm helgi eru nokkrar
myndir og þættir sem ég
myndi vilja horfa á í Sjónvarp-
inu og á Stöð tvö. En þar sem ég er ekki
með afruglara þá læt ég mér nægja að
horfa á Ríkissjónvarpið. Eftír fréttir
horfi ég örugglega á Blúsrásina og Bony
(þó að það séu nú ekki frábærusm þætt-
irnir sem ég veit um).
Á laugardaginn er nú frekar lítíð
skemmtilegt í sjónvarpinu- nerna
kannski tónlistarþættirnir. Á Stöð tvö
yfir helgina eru ágætir framhaldsþættir
og góðar myndir. Ég myndi nú segja að
skemmtilegasti myndaflokkurinn í Rík-
issjónvarpinu væri Simpsons, en hann
mætti vera lengri. Sjónvarpsdagskráin í
Ríkissjónvarpinu er ekki beint mikið
fyrir unglinga, heldur frekar fyrir eldra
fólk.
Hins vegar er dagskráin á Stöð tvö
oftast skemmtílegri því að þar eru eigin-
lega alltaf nýlegar myndir. Mér finnst
að Ríkissjónvarpið ætti að hafa ineira
efrii fyrir unglinga, því það eru ekki
nærri allir með afruglara að Stöð tvö.
Uppáhalds sjónvarpsstöðin mín er nú
reyndar MTV (sem er sjónvarpsstöð
þar sem meirihluti efriisins er tónlistar-
myndbönd). I skoðanakönnunum er-
lendis er Ml'V vinsælasta sjónvarps-
stöð unglinga.
Ef ég ætti að svara hvað mér fyndist
um útvarpsstöðvarnar þá finnst mér
einu skemmtilegu stöðvarnar vera Ut-
rás, FM 97,7 og Sólin, FM 100,6.
Þar er spiluð góð tónlist (rapp, hard
core og fl..). Þá er ekki heldur mikið um
þætti þar sem er talað allan tímann. Það
sem er aðallega að hinum útvarpsstöðv-
unum er að þær höfða ekki mikið til
unglinga.
Valgerður Einarsdóttir.
S
g hef aldrei getað skilið
hvers vegna fólk er að leggj-
ast í útilegur. Á flestum
heimilum er þolanlega hlýtt, renn-
andi vam, salerni og annað það sein
telst tíl þarfa hins siðmenntaða
manns. I útilegum er blautt og kalt.
Hreinlætisaðstaða engin og maður
er alltaf í vandræðum með það sem _
tilheyrir salernum. Slíkt líf er ekki
fyrir homo urbanus. Bændurnir eru
flestír löngu búnir að gefast upp á
þessu og hafa moderniserað býli
sín. Mér skilst á Baldri að þeir eigi
nú enn í erfiðleikum með þetta allt
saman sérstaklega ef sér í huggu-
legan kindarass.
En þó svo ég muni ekki til þess
að hafa nokkurn tíma verið spennt-
ur fyrir því að yfirgefa notalegan
klið borgarinnar til að leggjast út þá
hef ég þó einstaka sinnum látið mig
hafa það ef sérstaklega hefur staðið
á. Þannig var að sjálfsögðu enginn
maður með mönnum þegar ég var
ungur nema hann hefði farið á ein-
hverja úti„skemmmn“ um verslun-
armannahelgi.
Bindindismótið taldist þó ekki
með. Það var fyrir aumingja og þá
sem enn héngu í pilsfaldinum. Ja,
eða vom bundnir þar. En við hinir,
karlmennirnir, við átmm að halda á
vit ævintýranna. Leita til fjalla með
skottið fullt af brennivíni og hug-
ann bundinn við það hvort tækist
nú loksins að liggja einhverja stúlk-
una. Hjá sumum gekk það en marg-
ir fóru flatt á brennsanum í skott-
inu. Menn vom kannski búnir að
koma einhverri ungmeyjunni ofan í
poka hjá sér en þá sá Bakkus til þess
að þó svo andinn væri að sönnu
reiðubúinn þá var holdið afar veikt.
Og hélst þannig hvað sem reynt
var. Margar slíkar sorgarsögur eru
til. Eg hef oft furðað mig á því að
þeir hjá áfengisvarnarráði skuli ekki
benda á þetta í sinni agitation. Eg
hef meira að segja slagorðið tilbúið:
„Þeir sem fá sér fleiri en þrjá, spelk-
ur verða á hann að fá.“
Eða eitthvað í þeim dúr.
Þetta fer ekki vel með kvenfólkið
heldur. Eg þekki eina sem hefrir
ekki hugmynd um hvar á landinu ^
hún var þegar hún, 17 ára að aldri,
fór á útisamkomu urn verslunar-
mannahelgi. Hún veit bara að hún
lagði af stað og koin heim 4 dögum
síðar. Búið! Eg hef grun um að hún
hafi verið í Galtalæk en eldci viður-
kennt það.
Ég fór einu sinni á svona sam-
komu og fékk staðfestar allar rnínar
gmnsemdir um hrellingar náttúr-
unnar. En það er nú samt margs
skemmtílegs að minnast, svona eft-
irá. Eg man eftir einum kunningja
mínum sem hefur alltaf haft önnur
náttúmviðhorf en ég. Hann fór al-
veg yfimm á náttúmfegurðinni eða
hvað hann nú kallaði þetta, tætti sig
úr hverri spjör og hljóp nakinn inn
í skóg sem þarna var. Eða kjarr-
lendi. Okkur félögum hans leist nú
ekki meira en svo á þetta því hita-
stigið fer niður undir ffostmark á
svona stöðum á næturna. Það tókst
að ná í hann og koma honum ofan í
poka en hann hefur ekki verið vel
góður eftir þetta. Reyndar er hér
um að ræða kunnan mann í þjóðlíf-
inu og nokkuð þekktan á erlendri
gmnd en meira fáið'i mig ekki til að
segja! Góða helgi.