Vikublaðið - 23.07.1993, Síða 20
Munið
áskriftarsímann
17500
S
Utvarpsþátturinn Górilla,
sem er á Aðalstöðinni-
milli 9 og 12 alla virka
daga, er að margra mati það
besta sem boðið er uppá í ís-
lensku útvarpi í dag.
Þar sem íslenskir fjölmiðlar fjalla
að verulegu leyti um fjölmiðlafólk
lá beint við að taka tali stjörnur
þáttarins, þá Davíð Þór Jónsson og
Jakob Bjarnar Grétarsson.
Þeir segjast ff ekar vilja hafa smá-
an og dyggan hlustendahóp en að
vera eitthvert útvarpstyggjó sem
allir gætu japlað á. Þeir hafa ýmsar
skoðanir á því hvað betur mætti
fara í íslensku útvarpi.
Hverjir eru Jakob og Davíð?
Jakob: Tja, þetta er erfið spurn-
ing. Hver er maður? „Eg er ekki
ég, ég er annar.“
Davíð: Við erum náttúrlega af-
urðir kringumstæðna okkar, við
erum öll fórnarlömb umhverfisins.
Jakob: Eg held að við séum í
grunninn algjörir Hafnfirðingar.
Davíð: A sínum tíma myndaðist
nokkuð stór hópur í Hafnarfirði
sem mótaði sitt eigið lida menn-
ingarsamfélag. Við erum sprotmir
upp úr því. Við erum sýnishorn af
ákveðinni tegund fólks af ákveð-
inni kynslóð Hafnfirðinga.
Nú emð þið landskunnir menn
enda Górillan sennilega vinsælasti iit-
varpsþátturinn í dag; er kalt á toppn-
um?
Jakob: Já, það er kalt og ein-
manalegt á toppnum. Það minnir
mig á þegar við vorum að keppa á
idíótísku fjölmiðiamóti í Hvera-
gerði á dögunum og mér var litið
upp á sviðið þar sem Hemmi Gunn
sat aleinn. Enginn var að horfa á
hann og það var ára einmanaleik-
ans í kringum hann. Eg benti Dav-
íð á þetta og sagði: „Sjáðu hvað það
er kalt og einmanalegt á toppn-
um.“ Ef það stefnir í að við verðum
einhverjir Hemmar Gunnar þá má
búast við að við verðum einmana.
Davíð: Við verðum líka að gera
okkur grein fyrir að aðstæður okk-
ar hjálpa okkur. Athugiði bara hvað
er á öðrum útvarpsrásum á sama
tíma og við. Við þurfum ekki að
vera góðir.
Hvernig stendur á því að þið kallið
þáttinn Górillu en ekki til dæntis
„Glatt á hjalla“ eða „Allt á fullu
spani“. Hefur þetta nafii einhveija
SÖgll?
Davíð: Flestir þættir heita ein-
hverjum frasanöfnum og því gerir
fólk engan greinarmun á þeim. Við
vorum því að leita að öðruvísi
nafni. Mér datt í hug gott alþjóð-
legt orð, vanilla - eitthvað væmið
og hallærislegt. En mér fannst
vanilla vera svo merkingarlaust orð
og rifjaði þá upp gamlan Herman-
brandara þar sem maður er staddur
inni í ísbúð með loðinn ís í hendi
og afgreiðslumaðurinn segir: „æ
fyrirgefðu, sagðirðu vanilla, mér
heyrðist þú segja górilla."
Eg hugsaði með mér: já útvarps-
þátturinn Górilla, það er nátt-
úrulega miklu meira í því. Górillan
er myndræn og gefur frá sér þetta
hræðilega hljóð. Górillan er eitt-
hvað sem menn vilja sjá en ekki
heyra. Þannig að ég sá að það var
allt í þessu nafni. Það stingur líka
svolítið í stúf.
Hver er tónlistarstefnan?
Jakob: A ég að svara þessu?
Davíð: Nei, þú veist ekkert um
tónlistarstefnu Górillunnar. Það er
ríkjandi mikill ágreiningur um tón-
Górillumar Jakob Bjamar Grétarsson og Davtð Þór Jónsson: Við emm ekkert útvarpstyggjó!
- villtur útvarpsþáttur
Iistarstefnuna. Jakob vill helst spila
tónlist sem sveittir, skeggjaðir karl-
menn spila, sóðalegir og skítugir.
Jakob: En Dabbi vill spila ein-
hverjar stelpur sem hafa verið í
Gym-inu.
Davíð: Jakob heldur að þegar
tónlistarmenn séu farnir að líta vel
út þá sé tónlistin sjálf komin í ann-
að sæti á eftir útlitinu.
Jakob (grípur fram 0 : Hver er
sætur? Það er náttúrlega skilgrein-
ingaratriði, sumum finnst Bob
Dylan sætur.
Já, og Dr. Gunni er kytttröll í
Finnlandi.
Davíð: Höldum finnska tónlist-
armarkaðinum utan við þetta, hann
lýtur sínum eigin lögmálum.
Jakob: En burtséð ffá þessu þá
held ég að þegar þú ert farinn að
spila tónlist sem öllum geðjast, þá
sértu kominn með vonda tónlist.
Davíð: Þetta „eitthvað fyrir alla“
er ekki til. Þetta er eitthvað sem
allir geta umborið en enginn hefði
valið sér sjálfur. Þetta útvarp er
orðin sálarlaus velsmurð vél sem
keyrir áfram. Mannlega elementið
er horfið.
Jakob: Þessi þáttur nýtur kann-
ski vinsælda vegna þess að við erum
að gagnrýna hlutina eins og þeir
eru - þessa últra útvarpsmennsku
sem er ekkert annað en yfirborðið.
Og ef þessi þáttur okkar er vinsæll
þá sannar það bara að þessir amer-
ískmenntuðu markaðsffæðingar
sem segja: „Eitthvað fyrir alla“ eru
á villigötum. Aður en ég gaf mig í
að vera með þennan þátt með
Dabba var ég búinn að hneykslast
lengi á því hvílíkir blöðruselir voru
í útvarpi. Samt erum við langt frá
því að vera góðir útvarpsmenn, það
er hægt að gera miklu meira með
þennan miðil.
Þið hafið verið gagnrýndir harðlega
fyrir dagskrárliðinn „illt umtal". Er
ekki ómaklegt að ráðast á hrekklaust
fólk líti t bæ sem getur ekki borið hönd
fyrir höfiið sér?
Davíð: Eg held að það sé mjög
lítil illgirni fólgin í því að baktala
fólk opinberlega, það er viss mót-
sögn í því. Það er kannski mjög
langsótt að segja að þessi liður sé á-
róður gegn gróusögum, en samt er
hann það. Við tölum illa um full-
komlega venjulega menn úti í bæ
sem er ekki nokkur ástæða til að
tala illa um. Við tölum aldrei illa
um menn sem eru á mílli tannanna
á fólki, það gengur einfaldlega ekki
upp.
Nú eruð þið báðir í hljómsveitinni
Kátir Piltar. Segið okkur aðeins frá
henni.
Jakob: Kátir Piltar eru í raun
frekar fjöllistahreyfing en hljóm-
sveit og Davíð er meðlimur í Kát-
um Piltum þó að hann spili ekki í
hljómsveitinni. Hann er hagyrð-
ingur sveitarinnar og samdi t.d
hinn umdeilda texta við lagið
„Feitar konur“.
Davíð: Sko, Feitar konur var
misskilið eins og svo margt annað
sem ég hef gert og í raun ekki það
sem Kátir Piltar stóðu fyrir. Þetta
er eins og þegar þungarokksveitin
Extreme kom ffam með lagið
„More than words“ og allir héldu
að þeir væru voða ballöðupoppar-
ar. Svo voru þeir bara heavymega-
death töffarar.
Jakob: Kátir Piltar gerðu t.d
sjónvarpsmyndina „Hinir ómót-
stæðilegu“. Hrafn Gunnlaugsson
eyðilagði hana reyndar fyrir okkur.
Hrafn? Hvernig má það vera?
Jakob: Jú, þannig var mál með
vexti að Hrafn, sem þá var dag-
skrárstjóri, kom að þar sem verið
var að ldippa myndina og sá upp-
hafsatriðið þar sem Dabbi fer ham-
förum...
Davíð: ...og undir því var spilað
lagið „are you bitter in my gar-
den?“ sem er að sjálfsögðu íslenska,
ertu bitur í minn garð? Hrafh segir
þá við leikstjórann: „ég hélt að það
væri alveg á hreinu með mína dag-
skrárstefnu að ég vil ekki sjá enska
texta.“ Asi leikstjóri reyndi að út-
skýra fyrir honum að þetta væri í
raun íslenska, en Hrafn sat við sinn
keip. Hann var sennilega svekktur
yfir að hafa ekki fattað brandarann
og í stað þess að viðurkenna það
neitaði hann að ræða málið frekar.
Þannig tókst Flrafni að eyðileggja
myndina með hreinum barnaskap
og lét klippa atriðið framan af.
Jakob: Hitt er annað mál að
þremur vikum fyrr hafði Ási verið
að gera myndband fyrir Sjónvarpið
með hljómsveitinni Strax - á
ensku. En mágur dagskrárstjórans
var ekki í Kátum Piltum og því fór
sem fór.
Að lokum samviskuspuming. Ef
þið ymiuð í Spumingu dagsins í
Górillunni, hvaða þijú óskalögmynd-
uðþið þá velja?
Jakob: Life during wartime með
Talking Heads, Dun Ringil með
Jethro Tull og Hinum megin með
Kátum Piltum.
Davíð: Eg myndi velja ísraelska
júróvísíonlagið Húbba húlle, Turn
me loose ineð Loverboy og
júgóslavneska sigurlagið 1989
Rock me baby.
KGB/SP
UTIDEILD
Utideild hefur aðsetur í
bakhúsi við Tryggva-
götu 12. Þar er líka
Unglingaathvarfið til húsa.
Vikublaðið bankaði uppá til þess
að forvitnast og hitti Hólmfríði
Bjamadóttur forstöðumann Uti-
deildar.
- Við leitum uppi unglinga sem
eiga við vandamál að stríða, reyn-
um að koma þeim til aðstoðar og
benda á leiðir til úrbóta, t.d. áfeng-
is- eða vímuefnameðferð þegar
þess er þörf. Svo er opið hús fjórum
sinnum í viku. Mánudaga, þriðju-
daga og miðvikudaga frá 16:00-
18:00 og fimmtudaga frá 20:00-
23:00, þá er vímuefnafulltrúi frá
Tindum á staðnum. Öllum er vel-
- UNCLINCAATHVARF. HVAD ERNÚ ÞAD?
Arlega er Porthátíð útideildar ogþessi mynd erfrá porttónleikunum íjýrra.
komið að líta inn og það er ekkert
skilyrði að vera á kafi í rugli og
vandamálum. A föstudagskvöldum
og fram á laugardagsmorgun erum
við í bænum.
Finnst þér ástandið hafa versnað
vegna atvinnuleysisms?
- Nei, það hefur a.m.k ekki orð-
ið nein stökkbreyting. Þeir krakkar
sem við þekkjum best ynnu ekki
hvort sem er. Mörg þeirra tolla illa
í vinnu. Atvinnuleysið gerir þeim
hins vegar erfiðara að taka sig á, fá
vinnu og koma sér út úr ruglinu.
Eg hef svolítið orðið vör við
aukna neyslu amfetamíns, sem er
mjög hættulegt efni. Eg hef líka á
tilfinningunni að ákveðinn hópur
hafi minnkað áfengisneysluna en
neyti þess í stað kannabissefna. Það
ber meira á áfengisneyslunni,
henni fylgja fleiri aflirot og ofbeldi.
Þeir unglingar sem eru í hassi eru
meira að brjóta sjálfa sig niður í ró-
legheitunum.
Gctur þú sagt mér eitthvað um
Unglingaathvaifið ?
Já, það er ætlað krökkum sem
eru félagslega einangruð af ein-
hverjum orsökum, eru t.d. lögð í
einelti. Þetta er lokaður hópur.
Unglingum er vísað til athvarfsins
t.d. af okkur, Sálfræðideild skóla
eða félagsráðgjöfum. Þetta er fyrir-
byggjandi starf því krakkar sem eru
félagslega einangraðir eru í áhættu-
hópi.
- is