Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.2005, Síða 14
14 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 10. september 2005
Hann afi minn gamli, hann Panniaq,
dó fyrir þrem dögum.
Það hryggir mig mjög.
Ég sakna gamla mannsins.
Í dag raular mamma með sjálfri sér.
Hún er ekki hrygg lengur.
Í gær varð móðursystir mín
léttari að sveinbarni.
Mamma er glöð.
Hún segir afi sé kominn til okkar aftur.
Nýja barnið var látið heita Panniaq.
Ég fór með móður minni
að heilsa upp á kornabarnið, afa minn.
Víst hefur snáðinn augu gamla mannsins,
en Panniaq afi minn
gaf aldrei frá sér þvílík hljóð
þegar hann var svangur.
Endurholdgun:
Point Hope, Alaska, 1837
Höfundur er fransk-kanadískur indíáni sem er þekktur af sögnum sínum
af norðlægum ættbálkum indíána, inúíta, o.fl.
Jacques L. Condor-Maka-Tai-meh
Hallberg Hallmundsson þýddi.