Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 1
Niels-
Henning allur
Mesti bassasnillingur Evrópu
kvaddur Menning
Viðskipti og Íþróttir í dag
Viðskiptablaðið | Hugmyndirnar hitta fjármagnið Bankagjöld lægri hér
Skógrækt | Að planta trjám er gleði og gaman Leiðbeiningar um nýrækt
Íþróttir | Uppskeruhátíð í körfuboltanum Jafntefli Chelsea og Arsenal
Opið í dag 13-17
Sumarhátíð!
Bagdad, Kut. AP, AFP. | Jalal Talabani,
forseti Íraks, greindi í gær frá því að
meira en fimmtíu lík hefðu verið
slædd upp úr Tígris-ánni, skammt
frá höfuðborginni Bagdad. Höfðu
sumir verið afhöfðaðir, aðrir skornir
á háls. Kom fram í máli Talabanis að
talið væri að um væri að ræða fólk
sem uppreisnarmenn af kvísl súnní-
múslíma rændu í bænum Madain, um
20 km suður af Bagdad, fyrir nokkr-
um dögum.
Fregnir af atburðum í Madain hafa
verið mjög misvísandi og efasemdir
vöknuðu um það um helgina, þegar
íraskar hersveitir fóru þar á vett-
vang, að nokkrar gíslatökur hefðu átt
sér þar stað. „Hryðjuverkamenn
frömdu þarna glæp. Það er ekki rétt
að segja að ekki hafi verið um neina
gísla að ræða. Fólk var hneppt í gísl-
ingu. Og þetta fólk var drepið og
ódæðismennirnir hentu líkum þess í
Tígris,“ sagði Talabani hins vegar
um þessi mál í gær. „Við höfum nöfn
hinna látnu og líka glæpamannanna
sem frömdu verknaðinn.“
Nítján hermenn teknir af lífi
A.m.k. þrjátíu biðu bana í ofbeld-
isverkum í Írak í gær, m.a. leiddu
uppreisnarmenn nítján íraska her-
menn inn á íþróttaleikvang í bænum
Haditha, um 220 km norðvestur af
Bagdad, þar sem þeir voru síðan
skotnir til bana.
50 lík fundust í Tígris
Quito. AFP, AP. | Þingið í Ekvador samþykkti í gær
að víkja Lucio Gutierrez, forseta landsins, úr emb-
ætti og hætti her landsins einnig stuðningi við
hann. Gutierrez yfirgaf forseta-
höllina í Quito og hugðist halda,
að því er talið er, til Panama en
herinn stöðvaði för hans. Sagði
rannsóknardómari, Cecilia de
Armas, seint í gærkvöldi að Guti-
errez væri í haldi og að hann yrði
ákærður fyrir að hafa skipað lög-
reglu og her að brjóta á bak aftur
með valdi götumótmæli gegn
honum sem undanfarna daga
höfðu færst í aukana í höfuðborginni Quito.
Þingið samþykkti að setja Gutierrez af með 62
atkvæðum gegn engu en hann var kosinn forseti
2002. Var Alfredo Palacio varaforseti útnefndur
forseti í hans stað og sór þegar embættiseið.
Vaxandi spenna hefur verið í Ekvador undan-
farna daga og hafa götumótmæli verið daglegt
brauð síðustu vikuna í Quito. Óánægja með Guti-
errez á rætur að rekja til þess að hann vék öllum
hæstaréttardómurum úr starfi fyrir áramót. Sögðu
andstæðingar forsetans að um væri að ræða til-
raun hans til að sölsa dómsvaldið undir sig, slíkt
bryti hins vegar gróflega í bága við stjórnarskrána.
Götumótmæli í Quito hafa verið að færast í
aukana síðustu daga og til átaka hefur komið.
Lucio Gutierrez
Forseti
Ekvador
settur af
London. AFP. | Breska götublaðið The Sun hefur lýst
yfir að það styðji Verkamannaflokk Tonys Blairs í
þingkosningunum 5. maí. Þetta þykir fréttnæmt af
því að The Sun er söluhæsta blaðið í Bretlandi og
Blair lagði sérstaka áherslu á það fyrir kosning-
arnar 1997, er hann komst til valda, að fá blaðið til
liðs við sig. Vísbendingar höfðu verið um að blaðið
kynni nú að snúa baki við Blair, en Trevor Kav-
anagh, ritstjóri þess, staðfesti í gær að The Sun
styddi flokk hans áfram. „Þetta eru síðustu kosn-
ingar Tonys Blairs og hann á skilið að fá eitt loka-
tækifæri til að uppfylla loforð sín,“ segir The Sun.
The Sun styður
Blair áfram
Morgunblaðið/Golli
Gleðilegt
sumar
ÞINGMENN Framsóknar-
flokks hyggjast taka saman og
birta opinberlega upplýsingar
um eignir sínar og hlutabréfa-
eign, ásamt upplýsingum um
önnur launuð störf og aðild að
hagsmunasamtökum. Jónína
Bjartmarz, þingmaður flokksins,
greindi frá þessari ákvörðun
þingflokksins á Alþingi í gær.
Einnig kom fram í þinginu að
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra hefði ritað formönnum
allra stjórnmálaflokka bréf og
óskað eftir tilnefningum í nefnd
til að fjalla um lagaramma stjórn-
málastarfsemi. Á nefndin að fjalla
um hvernig hátta skuli eftirliti
með fjárreiðum stjórnmálaflokka.
Jónína sagðist jafnframt hafa
sent forseta Alþingis bréf þar
sem óskað er eftir því við forsæt-
isnefnd að sem fyrst verði settar
reglur um opinbera upplýsinga-
gjöf um fjárhag, eignir, hagsmuni
og tengsl þingmanna. Slíkar regl-
ur myndu auka trúverðugleika
þingsins. Í umræðum á þingi
fagnaði Halldór Ásgrímsson því
að forsætisnefnd myndi fjalla um
þessi mál. Nefndin hefði fyrir
löngu getað sett slíkar reglur.
Formenn annarra þingflokka,
sem rætt var við í gær, taka því
flestir vel að upplýst verði um
eignir þingmanna. Einar K. Guð-
finnsson, Sjálfstæðisflokki, segir
það sjálfsagt mál að skoða þessi
mál en þau geti reynst flóknari
en virðist við fyrstu sýn.
Ætla að gefa upp
eigin eigur og tengsl
Alþingi/10/30
Framsóknarþingmenn vilja reglur um upplýsingagjöf um fjárhag þingmanna
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
♦♦♦
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra segir í samtali við
Morgunblaðið að hann eigi nú
2,33% hlut í útgerðarfyrirtækinu
Skinney-Þinganesi hf. Hluturinn
er arfur eftir foreldra hans og
samsvarar um 15,1 milljón króna
að nafnvirði. Hann segir jákvætt
ráðstafi þingmenn sparnaði í
hlutafé. Þeir eigi þó yfirleitt
sáralítið í fyrirtækjum./10
Eign í Skinney-
Þinganesi 2,33%
STOFNAÐ 1913 106. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is