Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 26
RAGNHEIÐUR Gestsdóttir er
handhafi Barnabókaverðlauna
menntaráðs Reykjavíkur 2005 fyrir
bestu frumsömdu barnabókina,
„Sverðberann“, sem kom út árið
2004. Verðlaun fyrir bestu þýðingu
barnabókar hlaut Guðni Kolbeins-
son fyrir þýðingu bókarinnar „Ab-
arat“ eftir Clive Barker. Steinunn
Valdís Óskarsdóttir afhenti verð-
launin við athöfn í Höfða í gær.
Þetta er í 33. sinn sem fræðslu-
yfirvöld í Reykjavík veita höfundum
og þýðendum barnabóka verðlaun.
Tilgangur verðlaunanna er að örva
metnaðarfullar ritsmíðar og þýð-
ingar fyrir börn og vekja athygli á
því sem vel er gert á þessum mik-
ilvæga vettvangi íslenskrar bókaút-
gáfu. Úthlutunarnefndin er skipuð
af menntaráði og í henni sitja: Katr-
ín Jakobsdóttir formaður, Hanna
Birna Kristjánsdóttir og Eiríkur
Brynjólfsson.
Í umsögn dómnefndar segir m.a.
að í „sögunni er glímt við sígildar
spurningar um gott og illt, mjúkt og
hart. Sverðberinn hlýtur barna-
bókaverðlaun menntaráðs Reykja-
víkur 2005 sem besta íslenska bókin
enda er hún vel skrifuð, söguþráð-
urinn spennandi og sögusviðið frum-
legt og heillandi“. Útgefandi Sverð-
berans er Mál og menning.
Í umsögn dómnefndar um þýð-
ingu Guðna Kolbeinssonar segir
m.a.: „Hann hefur unnið mikið afrek
með þýðingu sinni enda bókin löng
og efnismikil. Málið á sögunni er al-
mennt kjarnyrt og gott, oft er leyst
listilega úr erfiðum þýðingarvanda
og textinn er í heild sinni afar læsi-
legur.“ Útgefandi Abarat er JPV út-
gáfa.
Ragnheiður Gests-
dóttir verðlaunuð
fyrir Sverðberann
Morgunblaðið/Golli
Verðlaunahafarnir Ragnheiður Gestsdóttir og Guðni Kolbeinsson.
Barnabókaverðlaun Menntaráðs
Reykjavíkur 2005
26 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Hver þátttakandi hefur 10 mínútur til ráðstöfunar og
getur nýtt þann tíma að eigin vild (leikur, söngur, dans).
Í Þjóðleikhúsinu þri. 26/4 kl. 16:15
og mið. 27/4 kl. 16:15
Áhugasamir geta skráð sig með því að senda
tölvupóst á hlin@leikhusid.is eða með símtali
í s. 585 1231. Taka þarf fram nafn, símanúmer
og netfang. Skráningu lýkur föstudaginn 22.
apríl. Nánari upplýsingar er að finna
á www.leikhusid.is
Áheyrnarpróf
fyrir atvinnuleikara
ÞAÐ er ekki auðvelt að vera lítill
strákur og eiga vin sem enginn trúir
að sé til í raun og veru. Það fær Brói
litli að reyna þegar hann kynnist
Kalla á þakinu, skrýtnum karli sem
á hús uppi á þaki og er með þyrlu-
spaða á bakinu svo hann getur flogið
um eins og fugl. En svo gerast
ósköpin. Einhver kemur auga á
Kalla á flugi og stórfé er heitið þeim
sem getur upplýst ráðgátuna um
þennan dularfulla fljúgandi furðu-
hlut. Þegar tveir skuggalegir náung-
ar, sem svífast einskis til að komast
yfir verðlaunaféð, brjótast inn til
Bróa til að handsama Kalla eru góð
ráð dýr. En Kalli á þakinu hefur
reyndar ráð undir rifi hverju.
Svo er lýst sögunni af Kalla á þak-
inu eftir ástsælu sænsku skáldkon-
una Astrid Lindgren. Blásið verður
lífi í þennan skrítna og skemmtilega
karakter á stóra sviði Borgarleik-
hússins í dag kl. 14, þegar Sverrir
Þór Sverrirsson, betur þekktur sem
Sveppi, bregður sér í hlutverk hins
fljúgandi Kalla. Það er Óskar Jón-
asson sem leikstýrir þessu ævin-
týraverki.
„Hún er mjög litrík og fjörug,
þessi leiksýning, og full af brellum
og uppátækjum,“ segir Óskar og
bætir við að þannig sé Kalli/Sveppi
líka. „Kalli er dálítið sjálfumglaður,
hæfileikaríkur og veit af því. En
fyrst og fremst er hann stríðinn, og
mikill prakkari í honum.“
Óskar Jónasson stígur nú fram
sem leikstjóri á sviði eftir nokkurt
hlé, en undanfarin misseri hefur
hann verið áberandi sem leikstjóri
kvikmynda og sjónvarpsefnis. Hann
segir endurkomuna í leikhúsið afar
ánægjulega. „Þetta hefur verið ótrú-
lega fljótt að líða. Við erum búin að
vera að undirbúa sýninguna í allan
vetur, og þetta hefur liðið eins og
hendi sé veifað. Maður trúir því
varla að þetta sé að verða búið,“ seg-
ir hann.
Hann segir engar tvær sýningar
eins á Kalla á þakinu, enda mikið af
ævintýrum í gangi þar. „Þetta er
mjög gamansöm sýning fyrir börn á
öllum aldri, unga sem aldna,“ full-
yrðir Óskar að lokum.
Næstu sýningar á leikritinu verða
um helgina, laugardag og sunnudag,
kl. 14.
Prakkarinn fljúgandi
Morgunblaðið/Golli
Leiksýning byggð á ævintýrum Kalla á þakinu, sem Astrid Lindgren skap-
aði á sínum tíma, verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í dag.
Leikhús | Kalli á þakinu frumsýndur í Borgarleikhúsinu í dag
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
eftir skáldsögu Astrid Lindgren
í þýðingu og staðfæringu Davíðs
Þórs Jónssonar.
Leikarar: Sveppi (Sverrir Þór
Sverrisson), Sigurbjörn Ari Sig-
urbjörnsson, Örn Gauti Jóhann-
esson, Arnmundur Ernst Björns-
son Backman, Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir, Margrét
Pétursdóttir, Jakob Þór Ein-
arsson, Edda Margrét Erlends-
dóttir, Rafn Kumar, Sigurður
Óskarsson, Jakob Þór Einarsson,
Laddi (Þórhallur Sigurðsson),
Þröstur Guðbjartsson og Leifur
Eiríksson.
Tónlistarstjórn: Karl Olgeirsson.
Leikmynd: Stígur Steinþórsson.
Búningar: Helga Rós V. Hann-
am.
Lýsing: Kári Gíslason.
Hljóð: Jakob Tryggvason.
Förðun: Þórunn Hulda Vigfús-
dóttir.
Hár: Gummi Mojo/Monroe.
Danshöfundur: Birna Björns-
dóttir.
Leikstjórn: Óskar Jónasson.
Kalli á þakinu
ÞAÐ finnst mörgum við hæfi á tíma-
mótum að staldra við og líta um öxl
yfir farinn veg. Elín Gunnlaugsdóttir
tónskáld fagnar fertugsafmæli um
þessar mundir og í dag kl. 17 verða
tónleikar af því tilefni í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar, þar sem verða
flutt einleiks-, kammer- og söngverk
Elínar.
Kammerhópurinn Camerarctica
leikur, ásamt Mörtu G. Halldórs-
dóttur sópran, Hlín Pétursdóttur
sópran, Miklósi Dalmay píanóleikara,
Eydísi Franzdóttur óbóleikara og
Magneu Árnadóttur þverflautuleik-
ara.
„Þetta er yfirlit yfir kammerverk
mín síðustu fimm árin,“ segir Elín um
tónleikana. Spurð um það hvernig
tónskáldi tónleikagestir muni mæta á
tónleikunum, segist Elín hafa komist
að forvitnilegri niðurstöðu eftir að
hún settist niður til að skrifa nokkur
orð um verkin á efnisskránni. „Ég
komst að því að ég er bókmenntalegt
tónskáld. Ég sæki hugmyndir meira í
bókmenntir en annað. Og ætli ég sé
ekki impressjónískt tónskáld líka.
Það eru bæði bókmenntaleg og
myndræn áhrif í verkunum mínum.
Verkið Spil, er kannski það eina sem
er alveg absolút tónlist.“ Elín segist
heppin, hún sé oftast beðin um að
semja verk. Þá kvikni oft neisti við
það að sækja í bókmenntirnar, og
hugsa um það sem hún hefur lesið í
gegnum tíðina. „En íslensk náttúra
hefur líka mikil áhrif á mig.“ Elín seg-
ir það erfitt fyrir sig að segja til um
þróunina í tónlistinni sinni á þessum
tíma. „Ég held að ég sé alltaf að
breytast. Mér finnst þetta stöðug leit,
og maður þarf að kafa inn á við. Ég
veit hvert mig langar að fara í verk-
um mínum og vinn að því. Mig langar
að halda í ákveðinn einfaldleika, en
skrifa um leið stærri verk. Í þessu hef
ég verið að vinna og mér finnst sú
vinna endalaust ferðalag – sem betur
fer, því þetta er skemmtilegt.“
Elín segir ágætt að nota tímamótin
til uppgjörs af þessu tagi, og gott að
byrja næsta kafla fersk og klár, – en
maður þarf þó að skoða sjálfan sig
reglulega til að eiga ekki á hættu að
festast í sama farinu. „Þegar ég fór til
náms í Hollandi spurði kennari mig í
fyrsta tíma hvað hefði mest áhrif á
mig. Ég svaraði því að það væri nátt-
úran. Hann sagði að ég væri í kolvit-
lausu landi, því í Hollandi væri sagt
að guð hefði skapað heiminn, en
manneskjan hefði skapað Holland.
Það er nefnilega líka gott að sækja
stundum í það sem liggur ekki bein-
ast við. Maður þarf að ögra sjálfum
sér.“
Verkin sem flutt verða á tónleik-
unum eru: Spil II fyrir tvær þver-
flautur (2000), Sumarskuggar, fyrir
sópran, klarínettu og píanó (2001/
2002), Ásjónur kvöldsins fyrir óbó
(2002), Ferð fyrir píanó, flautu, klar-
ínettu, og strengjakvartett (2003/
2004), Sálmar á atómöld fyrir sópran,
flautu, klarínettu og strengjakvartett
(2004).
Aðgangur er ókeypis.
Langar
að halda
í einfald-
leikann
Elín Gunnlaugsdóttir, önnur frá hægri, með Camerarctica í Skálholti.
Tónlist | Afmælistónleikar Elínar Gunnlaugsdóttur í dag
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is