Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.plusferdir.is N E T Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is *Verðdæmi miðast við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman. Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar. 1. júní, 6. júlí og 17. ágúst Feneyska Rivieran á Res Madrid í 7 nætur. Verð frá 46.620 kr.* 63.620 kr. ef 2 ferðast saman. Verð miðast við að bókað sé á netinu, ef bókað er í síma eða á skrifstofu bætast 2.000 kr. við hverja bókun. FJÁRREIÐUEFTIRLIT Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra hefur óskað eftir því hjá for- mönnum allra stjórnmálaflokka á Alþingi að þeir tilnefni fulltrúa í nefnd til að fjalla um lagalega um- gjörð stjórnmálastarfsemi. Nefndin á m.a. að fjalla um hvernig hátta skuli eftirliti með fjárreiðum stjórn- málaflokka. Þá hyggjast þingmenn Framsóknarflokksins taka saman upplýsingar um eignir sínar. Stofnvísitala þorsks lækkar Stofnvísitala þorsks er nú 16% lægri en hún var á síðasta ári sam- kvæmt fyrirliggjandi niðurstöðum úr stofnmælingu botnfiska. Síðustu fjórir árgangar þorsks hafa verið lé- legir utan einn árið 2002 sem var nærri því að vera í meðallagi. Ný stjórn SPH kjörin Ný stjórn Sparisjóðs Hafnar- fjarðar var kjörin á aðalfundi sem haldinn var í gærkvöldi. Í henni sitja Eyjólfur Reynisson, Ingólfur Flyg- enring, Páll Pálsson, Trausti Ó. Lár- usson og Þórður Magnússon. Umrót í Ekvador Þingið í Ekvador setti í gær for- seta landsins, Lucio Gutierrez, af og var hann í gærkvöldi sagður í haldi hersins. Hann á í vændum að verða ákærður fyrir að hafa skipað her og lögreglu að brjóta á bak aftur götu- mótmæli undanfarna daga sem beindust gegn honum. Blóðbað í Írak Jalal Talabani, forseti Íraks, segir að meira en fimmtíu lík hafi verið slædd upp úr Tígris-ánni, skammt frá Bagdad. Kom fram í máli Tal- abanis að talið væri að um væri að ræða fólk sem uppreisnarmenn af kvísl súnní-múslíma rændu í bænum Madain, um 20 km suður af Bagdad, fyrir nokkrum dögum. Uppreisn- armenn skutu ennfremur nítján íraska hermenn til bana. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " #         $         %&' ( )***                          Í dag Sigmund 8 Daglegt líf 32 Fréttaskýring 8 Umræðan 33/41 Erlent 14/17 Bréf 41 Minn staður 20 Minningar 42/44 Akureyri 22 Myndasögur 48 Landið 22 Dagbók 48/50 Höfuðborgin 24 Staður og stund 50 Austurland 24 Leikhús 52 Listir 26 Bíó 54/57 Neytendur 27/29 Ljósvakamiðlar 58 Forystugrein 30 Veður 59 Viðhorf 32 Staksteinar 59 * * * UMHYGGJA, félag foreldra lang- veikra barna, og UNICEF á Íslandi hafa tekið höndum saman um átak til styrktar starfsemi samtakanna og munu á næstu dögum dreifa íslensku teiknimyndinni Litlu lirfunni ljótu inn á 105 þúsund heimili í landinu. Um er að ræða stærsta upplag sem dreift hefur verið af nokkurri mynd hérlendis. Útgáfa myndarinnar var sérstaklega unnin fyrir átakið og er hún talsett á sjö tungumálum. Slag- orð átaksins er Sumar gjafir skipta öll börn máli – Sumargjöf Umhyggju og UNICEF. Með myndinni fylgir gíróseðill að upphæð tvö þúsund kr. þar sem viðtakanda gefst tækifæri til að styrkja málefnið. Dreifing myndarinnar stendur yfir 22. apríl til 5. maí. Hagnaður átaksins er áætlaður 45% af tekjum og rennur hann beint til Umhyggju og UNICEF, sem skipta honum bróðurlega á milli sín. Umhyggja mun annars vegar nota þá fjármuni sem félaginu falla í skaut til að efla styrktarsjóð félags- ins, en hlutverk hans er að styrkja langveik börn og fjölskyldur þeirra sem lent hafa í verulegum fjárhags- eriðleikum. Hins vegar mun Um- hyggja fjármagna stöðugildi sér- fræðings sem veitir fjölskyldum langveikra barna sálfélagslegan stuðning. Meðal verkefna sem UNICEF vinnur að í þróunarlöndunum er að sjá til þess að ungbörn fári nauðsyn- lega næringu og umhyggju, að veita börnum góða grunnmenntun og lífs- nauðsynlegar bólusetningar og bætiefni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Aðstandendur átaksins kynna verkefnið. F.v. Einar Benediktsson, stjórnarformaður UNICEF á Íslandi, Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, og Jón Kristinn Snæhólm og Leifur Bárðarson, talsmenn Umhyggju. Litla lirfan ljóta á leiðinni inn á 105 þúsund heimili Styrktarátak Umhyggju og UNICEF – barnahjálpar SÞ hafið STÉTTARFÉLAG sálfræðinga á Íslandi hefur fellt samkomulagið sem Bandalag háskólamanna, BHM, og ríkið gerðu sín á milli í febrúar sl. um breytingar og framlengingu á kjarasamningi. Meira en 90% þeirra sálfræðinga sem greiddu atkvæði felldu samkomulagið. Af 24 aðildar- félögum BHM hefur talning at- kvæða farið fram í 22 og eru sálfræð- ingar þeir einu sem hafa fellt samkomulagið. Tvö kennarafélög munu væntanlega tilkynna sína nið- urstöðu á morgun, föstudag. Við gerð samningsins var það for- senda af hálfu ríkisins að hann yrði að vera samþykktur í öllum félögum til að öðlast fullt gildi. Halldóra Frið- jónsdóttir, formaður BHM, vonast til þess að þrátt fyrir þetta taki sam- komulagið gildi. Stéttarfélag sál- fræðinga sé lítið félag og þeir starfi á fáum stofnunum. Er Halldóra bjart- sýn á að í ljósi heildarniðurstöðunnar muni ríkið falla frá sinni upphaflegu forsendu. Ekki náðist í formann samninga- nefndar ríkisins, Gunnar Björnsson, vegna þessa máls í gær. Áhyggjur af faglega þættinum Brynjar Emilsson, formaður Stéttarfélags sálfræðinga, segist telja að sínir félagar hafi haft áhyggjur af faglegri hlið sameigin- legs stofnanasamnings. Þeir hafi ótt- ast að fá ekki inn í samninginn áfanga til sérfræðiviðurkenningar. Óánægjan hafi ekki snúið að launa- liðum samningsins og samfagnar Brynjar öðrum aðildarfélögum BHM og þeirra niðurstöðu. Brynjar segist vera ánægður með þátttöku sálfræðinga í atkvæðagreiðslunni, niðurstaðan sé mjög skýr. Vonast hann til að ríkið komi til samninga- viðræðna við sálfræðinga á svipuð- um nótum og Félag náttúrufræðinga samdi við ríkið. Á vefsíðu BHM í gærkvöldi var að loknum miðstjórnarfundi bandalags- ins komin afsökunarbeiðni Halldóru Friðjónsdóttur þar sem hún biðst af- sökunar á ummælum sem hún lét falla í garð sálfræðinga í frétt á vef- síðunni þegar niðurstaða atkvæða- greiðslunnar lá fyrir. Dregur hún ummælin til baka en ekki er upplýst um hvaða ummæli var að ræða. Voru þau tekin út af vefsíðu BHM. BHM vonar að samningur haldi Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is SENA, afþreyingarsvið Dags Group sem áður hét Skífan, hefur verið í viðræðum við þrjá aðila um bygg- ingu á nýju kvikmyndahúsi á höf- uðborgarsvæðinu. Þetta segir Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Senu, í samtali við viðskiptablað Morgunblaðsins í dag. „Ég get ekki á þessu stigi sagt hvar það mun rísa, en það verður í anda Smárabíós, sem hefur frá opn- un verið vinsælasta bíó landsins,“ segir Björn. „Við teljum að það sé þörf fyrir annað bíó í líkingu við það. Kvikmyndahúsin hafa verið að breytast með nýrri tækni og betri hús koma í stað þeirra sem eldri eru.“ Björn segir að Sena sé einnig að skoða þá möguleika sem fyrirtækið hefur á erlendum mörkuðum. Til að mynda hafi verið kannaður sá mögu- leiki að opna kvikmyndahús í öðrum löndum. Þá segir hann að Sena muni gefa út hátt í sextíu titla af íslenskri tónlist á þessu ári. „Eitt af því sem er ánægjulegt við útgáfuna í ár er hvað hún dreifist vel yfir árið, en um þriðjungur af þeim geisladiskum sem við gefum út verður kominn í verslanir fyrir haustið,“ segir Björn./8 Nýtt kvikmyndahús í anda Smárabíós Fjalla um söl- una á Sjóvá PÁLL Gunnar Pálsson, for- stjóri Fjármálaeftirlitsins, kannast ekki við að borist hafi sérstök erindi vegna sölunnar á 66,6% hlut Íslandsbanka í Sjóvá. Fjármálaeftirlitið muni engu að síður fjalla um þessi viðskipti, enda beri lögum sam- kvæmt að leita samþykkis þess á kaupum á virkum eignarhlut. Straumur fjárfestingar- banki hyggst kanna réttar- stöðu sína varðandi viðskiptin. Þórður Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri Straums, vildi ekki tjá sig um málið við Morgunblaðið í gær. HALLDÓR Ásgrímsson for- sætisráðherra upplýsti á Al- þingi í gær að hann hefði óskað eftir því við framkvæmdanefnd um einkavæðingu að birtar yrðu opinberlega tillögur ráð- gjafarfyrirtækisins Morgans Stanleys um sölufyrirkomulag Símans. „Ég hef óskað eftir því við framkvæmdanefnd um einkavæðingu að fjallað verði um möguleika þess að birta til- lögur Morgans Stanleys að sölufyrirkomulaginu,“ sagði hann. „Ég legg reyndar áherslu á að tillaga Morgans Stanleys verði birt sem og önnur meg- inatriði í skýrslu þeirra. Við höfum að sjálfsögðu ekkert að fela í þessu sambandi. Hins vegar inniheldur skýrsla Morg- ans Stanleys trúnaðarupplýs- ingar m.a. gagnvart þriðja að- ila, t.d. nöfn áhugasamra aðila, og fleira sem vitanlega er ekki hægt að opinbera.“ Ráðherra sagði að Ríkisend- urskoðun hefði hins vegar nú þegar ótakmarkaðan aðgang að skýrslu Morgans Stanleys. „Ríkisendurskoðun mun hins vegar nú þegar hafa ótakmark- aðan aðgang að skýrslunni, sem og öðrum gögnum þessa máls,“ sagði hann, enda hefði Ríkis- endurskoðun eftirlit með sölu Símans. Halldór Ásgríms- son forsætisráðherra Tillögur Morgans Stanleys verði birtar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.