Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Bónus Gildir 21.–24. apr. verð nú verð áður mælie. verð KF grillsósur kaldar, 200 ml .................. 99 159 495 kr. ltr KF hrásalat, 350 g ............................... 99 139 283 kr. ltr Laxabitar roð- og beinlausir .................. 699 999 699 kr. kg Saltfisksporðar .................................... 499 799 499 kr. kg KS lambasúpukjöt, 1 fl. ........................ 399 499 399 kr. kg Pepsi í gleri, 250 ml ............................. 49 0 196 kr. ltr Appelsín í gleri, 275 ml ........................ 49 0 178 kr. ltr KF kartöflusalat, 350 g......................... 99 139 283 kr. ltr KF grill lambaframpartssneiðar .............. 599 998 599 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 21.–23. apr. verð nú verð áður mælie. verð Marmaraostakaka, 8 manna................. 879 998 879 kr. stk. Borgarnes framhryggjarsneiðar.............. 1314 1752 1314 kr. kg Stjörnu kartöflusalat 390 gr. ................. 179 239 459 kr. kg KF úrb. hangiframpartur ....................... 1259 1779 1259 kr. kg KF reyktar svínakótilettur ...................... 840 1528 840 kr. kg Svínalundir kjötborð............................. 1398 1778 1398 kr. kg Maís stubbar, litlir, 8 í pakka................. 298 398 37 kr. stk. Maís stönglar, stórir, 4 í pakka .............. 298 398 75 kr. stk. Macain súkkulaðiterta, 510 gr. ............. 356 448 698 kr. kg Borgarnes grill lærissneiðar................... 1415 1887 1415 kr. kg Hagkaup Gildir 20.–24. apr verð nú verð áður mælie. verð Bezt grísakótilettur m/beini, koníaksl. .... 975 1498 975 kr. kg Bezt grísahnakki úrb., koníaksl. ............. 975 1498 975 kr. kg Kjötb. nautaribeye ............................... 2279 2849 2279 kr. kg Kjötb. nautalundir ................................ 3183 3979 3183 kr. kg Holta ferskar kjúklingalundir ................. 1467 2095 1467 kr. kg Sól appelsínu-, ávaxta- og eplasafi........ 249 319 249 kr. ltr Néstle Nesquick ís ............................... 299 347 399 kr. ltr Freschetta brickoven pepperoni pizza .... 399 598 798 kr. kg Innfl. Kjúklingabringur .......................... 1299 1499 1299 kr. kg Nettó Gildir 20.–24. apr verð nú verð áður mælie. verð Nettó þurrkryddaðar lambagrillsneiðar ... 844 1 1 kr. kg Bautabúrs brauðskinka ........................ 641 1 1 kr. kg Myllu samlokubrauð ½......................... 89 132 132 kr. stk. Matfugls kjúklingamánar – allar teg. ...... 398 499 499 kr. kg Nettó ofnsteik...................................... 799 1 1 kr. kg Úrbeinuð grísasteik í neti ...................... 799 1 1 kr. kg Steiktar kjötbollur ................................ 299 469 469 kr. stk. Úrbeinaður svínahnakki........................ 799 1 1 kr. kg Rauðvínsleginn svínahnakki.................. 999 1 1 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 20.–24. apr. verð nú verð áður mælie. verð Camembert, 150 g .............................. 198 239 1320 kr. kg Höfðingi, 150 g ................................... 198 298 1320 kr. kg Bautabúrið, bacon í bunkum ................. 745 1064 745 kr. kg Bautabúrs dönsk sælkerasteik .............. 896 1299 896 kr. kg Matfugl, steiktir kjúklingaleggir .............. 942 1178 942 kr. kg Vínber, rauð og græn............................ 199 299 199 kr. kg Appelsínur .......................................... 89 149 89 kr. kg Ostakaka hindberja, 800 g ................... 799 1069 999 kr. kg Matfugl kjúklinga snitsel ....................... 942 1178 942 kr. kg Spar, Bæjarlind Gildir 20.–26. apr. verð nú verð áður mælie. verð Gulrófur .............................................. 169 98 98 kr. kg Pepsi Max, 50 cl. ................................. 49 89 98 kr. ltr Nauta fille, úr kjötborði......................... 1875 2678 1875 kr. kg Lamba Prime F+, úr kjötborði ................ 1348 2450 1348 kr. kg Nautahamborgarar, 10x80 g................. 499 998 499 kr. kg Kolding sinnep, sætt, 450 g ................. 31 153 69 kr. kg Helwa Franch Wafers kex, 110 g............ 89 148 809 kr. kg Mc Vities Hobnobs Nobbly kex, 300g .... 55 183 183 kr. kg Lambasaltkjöt, ódýrt ............................ 298 398 298 kr. kg Þín Verslun Gildir 21.–27. apr. verð nú verð áður mælie. verð Maryland kex, 4 teg.............................. 89 113 587 kr. kg Merrild 103 kaffi, 500 g ....................... 339 389 678 kr. kg Búr brauðskinka .................................. 1390 1738 1390 kr. kg F&F baconbollur .................................. 303 379 303 kr. pk. Findus Tex Mex réttur, 700 g ................. 349 399 488 kr. kg Holber bruður, 400 g............................ 139 178 347 kr. kg Jacobs pítubrauð, 400 g ...................... 109 168 272 kr. kg Grísasteik, ostar og gosdrykkir  HELGARTILBOÐIN|Neytendur@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Baby Ruth-kaka 3 eggjahvítur 1 dl sykur 20 Ritzkex 100 g saltaðar hnetur 1 tsk. lyftiduft Eggjahvítur, sykur og lyfti- duft er stífþeytt. Ritzkexið sett í lítinn plast- poka, honum lokað og síðan er kexið mulið með kökukefli. Það sama er gert við söltuðu hnet- urnar. Þessu er svo blandað varlega saman við eggjahvítuhræruna. Sett í hringlaga form og bakað í heitum ofni við 175°C í 35 mín. Þegar kakan er bökuð á að hvolfa henni á kökudisk og hún látin kólna inni í plastpoka. Suðusúkkulaði er brætt í vatns- baði og smurt ofan á. Spínatpæ Smjördeig 500 g frosið spínat 2 dl sýrður rjómi 1 egg rifinn ostur hvítlauksrif salt og pipar Smjördeigið er flatt út og sett í eldfast mót. Spínatið er soðið í litlu vatni í nokkrar mín- útur. Síðan er vatnið sigtað frá og látið renna af. Gætið þess að sigta vatnið vel frá. Ýta á það með skeið þegar það er í sigtinu til að ná sem mestu vatni í burtu. Sýrða rjómanum, egginu og kryddinu er blandað saman og spínatinu sömuleiðis. Osturinn er rifinn niður og honum blandað saman við. Bak- að í ofni. Hægt er að nota brokkolí í stað spínatsins og einnig má steikja fjóra lauka í stað spín- atsins og bæta einni msk. af hveiti saman við. Ég er gjörsneydd áhuga ámatreiðslu og hef ekk-ert ímyndunarafl þegarkemur að matargerð. Það verður bara að viðurkennast og helst er ég á því að rekja megi þetta áhugaleysi til tímaskorts. Eldavélin er nánast upp á punt í pínulitla eldhúsinu mínu og það er alltaf það sama á borðum þegar ég held saumaklúbba, eitthvað sem ég er viss um að mér tekst að gera skammlaust. Baby Ruth-kakan mín klikkar til dæmis aldrei,“ segir Ragnheiður Hall, söng- og tón menntakennari, þar sem við stöndum inni í miðri Hagkaupsverslun í Skeifunni. Ragnheiður hefur undanfarin sex ár rekið söng- og leiklist- arskólann Sönglist með vinkonu sinni Erlu Ruth Harðardóttur. Sönglist er í samstarfi við Borg- arleikhúsið, þar sem skólinn er rekinn, og fara sýningar fram á Litla sviðinu. Í skólanum starfa þrír söngkennarar og sjö leiklist- arkennarar. Lífrænt í uppáhaldi Ragnheiður tekur sér í hönd hand- körfu enda segist hún aldrei þurfa að gera „stórinnkaup“ þar sem hún búi einsömul. Eftir að hafa skellt undanrennu í körfuna, tekur hún beina stefnu á hillurnar sem geyma lífrænar vörur og segist vera komin á uppáhaldssvæðið sitt í búðinni. Hún teygir sig eftir kornfleksi úr bókhveiti í efstu hilluna og epla- og ananassafa frá Voelkel. „Þetta er morgunmaturinn minn. Ég fæ mér alltaf kornfleks og lýsi á morgnana og drekk svo þennan fína safa til að skola lýsisbragðið.“ Pokar af þurrkuðum ávöxtum, blönduðum hnetum og súkkulaði með „bio“-merkinu á fá líka að fljóta með í körfuna úr lífrænu hillunum. „Ég er alveg svakalegur sælgæt- isgrís og til að friða samvisku mína, tel ég sjálfri mér trú um að þetta súkkulaði sé ívið hollara en annað. Þegar ég hef tak á sjálfri mér, borða ég mjög hollan mat, en svo þess á milli þegar mikið álag er í vinnunni, hættir mér til að detta niður í nammisukk og meiri óhollustu.“ Ragnheiður segist vera lítið fyr- ir mjólkur- og brauðvörur, en hún þurfi þó alltaf að eiga Úrvals- flatkökur, sem eru sykurlausar, og hringlaga kartöflukökur frá Drangabakstri, sem hún segist borða í hádeginu með osti og smjöri. Þrettán grænmetisréttir Aðalmáltíð dagsins borðar söng- kennarinn svo um klukkan þrjú á daginn þar sem kennsla stendur oft yfir langt fram á kvöld. Máltíð dagsins er oftar en ekki keypt á matsölustaðnum Á næstu grösum við Suðurlandsbraut. „Þar er frábær og spennandi matur á mjög góðu verði. Á hverj- um degi eru þrettán grænmet- isréttir í boði auk salata og ger- og sykurlausra brauða úr grófu heil- hveiti, byggi, sólblóma- og sesamfræjum og vatni. Ég kaupi alltaf minnsta skammtinn af þrem- ur og fæ afgreiðslukonuna Vigdísi Andersen gjarnan til að raða í bakkann fyrir mig því hún hefur smakkað matinn og veit hvað mér líkar. Fyrir þetta borga ég 550  HVAÐ ER Í MATINN?|Söngkennarinn Ragnheiður Hall kaupir í matinn fyrir einn Er alveg svakalegur sælgætisgrís Á meðan nammi og lífrænt ræktaðar vörur vega salt í huga söngkennarans Ragnheiðar Hall þvertekur hún fyrir að kunna nokkuð fyrir sér í eldhúsinu. Jóhanna Ingvarsdóttir fór með henni í matarinnkaupin. Morgunblaðið/Eyþór Kornfleks úr bókhveiti er í uppáhaldi hjá Ragnheiði sem og aðrar vörur í „lífræna“ horninu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.