Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 11
FRÉTTIR
STRAUMUR fjárfestingarbanki
hefði ekki verið heppilegur meðeig-
andi Íslandsbanka að Sjóvá, enda í
samkeppni við bankann, segir Einar
Sveinsson, stjórnarformaður Ís-
landsbanka. Hann segir ásakanir
Straums um mismunun hluthafa ekki
eiga við rök að styðjast.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær seldi Íslandsbanki
66,6% hlut í Sjóvá.
Kaupandi var Þáttur
eignarhaldsfélag ehf.
sem er í eigu fjárfesting-
arfélagsins Milestone
ehf. en það eiga Karl
Wernersson og systkini
hans. Milestone ehf. á
nærri 13% hlut í Ís-
landsbanka.
Í fréttatilkynningu
frá Straumi Fjárfesting-
arbanka í gær var salan
á hlut Íslandsbanka í
Sjóvá harðlega gagn-
rýnd, sögð óeðlileg og
mismuna hluthöfum
bankans en Straumur er
stærsti hluthafi Íslands-
banka og hafði lýst yfir áhuga á að
bjóða í hlut Íslandsbanka. Hyggst
Straumur kanna réttarstöðu sína í
kjölfarið.
Einar segir aðspurður að ákvörð-
un um sölu á hlut Íslandsbanka í
Sjóvá byggist fyrst og fremst á
rekstrarlegum forsendum. Bankinn
innleysi 3,4 milljarða króna hagnað
fyrir skatta af selda hlutnum, auk
þess sem bankinn hafi fengið 3,5
milljarða í arðgreiðslur. Salan styrki
eiginfjárgrunn Íslandsbanka um ríf-
lega 15 milljarða króna, sem miðað
við núverandi eiginfjárstefnu bank-
ans skapi, að öðru óbreyttu, svigrúm
fyrir mögulegan 200 milljarða króna
útlánavöxt. Hann segir að ekki hafi
komið til álita að selja allan hlut
bankans í Sjóvá. „Það er mat bank-
ans að veruleg verðmæti og tækifæri
liggi í áframhaldandi samstarfi um
banka- og tryggingaþjónustu, sem
skilað hefur góðum árangri og bætt-
um kjörum fyrir viðskiptavini. Eign-
arhlutur Íslandsbanka í Sjóvá trygg-
ir að áfram verði haldið á sömu braut,
sem er ekki fordæmislaust, en KB
banki á til dæmis stóran eignarhlut í
VÍS.“
Þáttur heppilegur kaupandi
Einar segir að Þáttur eignarhalds-
félag sé að mörgu leyti heppilegur
kaupandi, miðað við þau skilyrði sem
stjórn Íslandsbanka setti fyrir söl-
unni. „Bankinn telur sig fá gott verð í
ljósi rekstrarafkomu félagsins og
verðmats óháðra aðila. Leitað var til
Morgan Stanley, viðurkennds er-
lends fjárfestingarbanka, sem var
stjórninni til ráðgjafar. Einnig hafa
óháðar greiningardeildir Lands-
banka og KB banka metið Sjóvá á um
tíu milljarða lægra virði en félagið er
metið á í viðskiptunum. Þessar sömu
greiningardeildir gáfu það út að sal-
an hafi verið góð tíðindi fyrir hlut-
hafa Íslandsbanka og verðhækkun
bréfa bankans á markaði endur-
speglar það. Tilboðið sem barst hent-
aði hagsmunum bankans, að upp-
fylltum þeim skilyrðum sem þóttu
mikilvæg fyrir bankann. Kaupandinn
deilir framtíðarsýn bankans um sam-
þættingu banka- og tryggingaþjón-
ustu, auk þess sem hann hefur
reynslu af einstaklingsþjónustu og
mun beita sér með virkum hætti í
stjórn félagsins. Kaupandinn horfir
einnig til þess að eiga félagið til langs
tíma og byggja það upp enn frekar en
hann getur þess utan ekki selt þriðja
aðila hluti sína í Sjóvá nema með
samþykki Íslandsbanka eða að upp-
fylltum mjög ströngum skilyrðum.
Kaupandi gekkst jafnframt inn á
veruleg stjórnunaráhrif Íslands-
banka sem minnihlutaeiganda en
samkomulag varð um að Íslands-
banki ætti rétt rúmlega þriðjungs-
hlut í Sjóvá, sem kemur í veg fyrir að
kaupandi geti breytt samþykktum
félagsins án samþykkis Íslands-
banka. Jafnframt var samið um að
tilteknar ákvarðanir verði ekki tekn-
ar í félaginu án samþykkis Íslands-
banka, en þar er um að ræða allar
stærstu ákvarðanir sem teknar eru í
slíku félagi.
Þar að auki tekur kaupandinn þátt
í stofnun öflugs fjár-
festingarfélags í eigu
Íslandsbanka, Þáttar
eignarhaldsfélags og
Sjóvár. Félaginu verð-
ur ætlað að auka verð-
mæti fyrir eigendur
sína með fjárfesting-
um í skráðum og
óskráðum hlutabréf-
um, bæði í eigin verk-
efnum og í samstarfi
við aðra fjárfesta.“
Straumur í
samkeppni
Einar segir að það
sé rétt að Straumur
hafi viðrað áhuga sinn
en það sé sín skoðun að Straumur
hafi ekki verið heppilegur meiri-
hlutaeigandi í Sjóvá, með Íslands-
banka sem minnihlutaeigeanda.
Stjórn Íslandsbanka hafi þurft að
taka afstöðu til tilboðs Þáttar eign-
arhaldsfélags ehf. og metið það þann-
ig að mikilvægast væri að tryggja
sölu á þeim hagstæðu kjörum sem
buðust.
„Íslandsbanki vildi eiga áfram
stóran hlut í Sjóvá til að tryggja
áframhaldandi samþættingu banka-
og vátryggingastarfsemi til hagsbóta
fyrir viðskiptavini. Straumur er ekki
heppilegur meðeigandi, félagið er
ekki í einstaklingsþjónustu og hefur
enga reynslu á því sviði. Straumur er
fjárfestingarbanki og samkeppnis-
aðili Íslandsbanka, ekki síst á sviði
fjárfestingastarfsemi.
Landsbankinn, annar samkeppnis-
aðili Íslandsbanka, á auk þess stóran
hlut í Straumi og fulltrúa í stjórn
Straums.“
Eðlilegir viðskiptahættir
Og Einar þvertekur þannig fyrir
að með sölunni á Sjóvarhlutnum hafi
hluthöfum Íslandsbanka verið mis-
munað. Um hafi verið að ræða venju-
leg viðskipti á eðlilegum viðskipta-
legum forsendum sem endurspeglist
í viðskiptakjörum. „Gera verður
greinarmun á hluthöfum bankans
sem slíkum og sem viðskiptamönn-
um félagsins. Sjónarmið um jafna
stöðu hluthafa eiga einungis við um
ákvarðanir er lúta að þeim sem eig-
endum hlutafjár í félaginu, en ekki í
viðskiptum þeirra við bankann að
öðru leyti. Enginn grundvöllur er
fyrir þeirri hugmynd að einstakir
hluthafar, til að mynda Straumur,
geti krafist þess að ganga inn í þau
fjölmörgu viðskipti sem viðskipta-
menn bankans, þar með talið stjórn-
armenn og hluthafar, eiga við bank-
ann á degi hverjum.“
Einar segir auk þess fjarri lagi að
tala um innherjaviðskipti í þessu
sambandi. „Innherjaviðskipti þurfa
að byggjast á upplýsingum sem inn-
herjar búa yfir en aðrir hafa ekki.
Verðmat á Sjóvá var byggt á opin-
berum gögnum, það er ársreikningi
félagsins árið 2004. Ársreikningar Ís-
landsbanka, þar á meðal frá Sjóvá,
voru lagðir fram 28. janúar 2005.
Þreifingar um sölu hófust svo þegar í
febrúar og hugmyndir um kaupverð
breyttust ekki svo neinu næmi frá
þeim tíma. Engar upplýsingar um af-
komu Sjóvár á fyrstu þremur mán-
uðum ársins 2005 hafa verið lagðar
fyrir stjórn Íslandsbanka. Aðrar
verðmyndandi upplýsingar um Sjóvá
sem gæfu kaupanda forskot á aðra
hvað varðar verðmat á fyrirtækinu
hafa heldur ekki verið lagðar fyrir
stjórn bankans. Karl Wernersson
hafði enga aðkomu að málinu innan
bankans, þar sem hann ýmist vék af
fundi þegar málið var til umræðu á
stjórnarfundum eða sótti ekki stjórn-
arfundi,“ segir Einar Sveinsson.
Stjórnarformaður Íslandsbanka þvertekur fyrir innherjaviðskipti í sölunni á Sjóvárhlutnum
Straumur ekki heppi-
legur meðeigandi
Eftir Helga Mar Árnason
hema@mbl.is
Einar Sveinsson
HLUTHAFAR hafa ekki forkaupsrétt að eignum félagsins sem þeir eiga
hlut í að sögn Jóhannesar Sigurðssonar, prófessors í lögfræði við Háskól-
ann í Reykjavík. Hann segir þetta í tilefni af sölu Íslandsbanka á 66,6% hlut
í Sjóvá til fjölskyldu Karls Wernerssonar, stjórnarmanns
í ÍSB. „Hins vegar er óheimilt að selja einum hluthafa
eignina á betri kjörum en aðrir myndu fá. Að því til-
skildu að stjórnendur Íslandsbanka hafi gengið úr
skugga um að verð sé eðlilegt er þeim heimilt að gera
viðskipti af þessum toga við einstaka hluthafa,“ segir Jó-
hannes og vísar í 76. grein laga um hlutafélög sem segir
að stjórnum hlutafélaga sé ekki heimilt að hygla einum
hluthafa á kostnað annarra hluthafa.
Ennfremur segir Jóhannes að eigi kaupandi sæti í
stjórn félagsins megi hann ekki taka þátt í meðferð máls-
ins hjá stjórninni. Hann segir að hér sé ekki um innherja-
viðskipti að ræða þar sem hlutabréf í Sjóvá séu ekki
skráð. „Ef um viðskipti með bréf í Íslandsbanka væri að ræða gætu þessar
áhyggjur stjórnenda Straums átt við rök að styðjast,“ segir Jóhannes.
Hann segir að hafi Straumur ekki lagt fram formlegt erindi til stjórnar
um að fjallað yrði um málið á hluthafafundi sé stjórn Íslandsbanka með
fulla heimild til að taka ákvörðun um sölu á hlutabréfum í Sjóvá. „Hugs-
anlegt er að Straumur hafi ekki getað sett fram slíka kröfu vegna skilyrða
sem Fjármálaeftirlitið hafi sett Straumi vegna tengsla við Trygginga-
miðstöðina og þannig hindrað það frá því að gera tilboð. Hafi FME ekki
samþykkt söluna á hlut Straums í TM gilda skilyrði sem Fjármálaeftirlitið
setti Straumi um aðkomu að málefnum Íslandsbanka,“ segir Jóhannes Sig-
urðsson.
Óheimilt að mismuna hluthöfum
Jóhannes
Sigurðsson
iðunn
tískuverslun
Kringlunni,
sími 588 1680
Gleðilegt
sumar í
gallabuxum
frá
RALPH LAUREN
Smáralind
RALPH LAUREN
POLO JEANS
Stuttkápur
Sportkápur
Leðurjakkar
Rúskinnsjakkar
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið í dag, sumardaginn
fyrsta, frá kl. 12-16
www.urvalutsyn.is
Helios
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur og íslensk
fararstjórn. Barnaafsláttur er ekki veittur.
Ver›i› er netver›. Bóka flarf og grei›a sta›festingargjald,
e›a fullgrei›a fer› á netinu. Ef bóka› er
símlei›is e›a á skrifstofu, grei›ist
bókunar- og fljónustugjald, sem er
2.000 kr. á mann.
49.900kr.*
á mann m.v. tvo í stúdíói
eða 4 í íbúð m/1 svefnherbergi í eina viku.
Sumartilboð í júní og júlí
Fleiri eða færri?
Finndu verð á þinni ferð á:
Verðdæmi:
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
81
24
0
4/
20
05