Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Borgarfjörður | Tvísýnt virðist um
niðurstöðu sameiningarkosninga í
Borgarfirði, sérstaklega í minni
sveitarfélögunum. Formaður sam-
einingarnefndar hefur fulla trú á að
sameiningin verði samþykkt en odd-
viti Skorradalshrepps telur að úrslit-
in verði tvísýn. Íbúarnir greiða at-
kvæði á laugardag um sameiningu
sveitarfélaganna fimm norðan
Skarðsheiðar.
Vinna við að undirbúa sameining-
arkosningarnar hófst fyrir rúmum
tveimur árum að frumkvæði hrepps-
nefndar Borgarfjarðarsveitar. Árið
áður varð alger endurnýjun í
hreppsnefndinni og hafði listi þeirra
sem varð sjálfkjörinn sameiningar-
mál á stefnuskrá sinni.
Borgarfjarðarsveit, Borgarbyggð
og Hvítársíðuhreppur kusu samein-
ingarnefnd. Síðar óskaði Skorradals-
hreppur að taka þátt og síðast bætt-
ist Kolbeinsstaðahreppur í
Snæfellsnessýslu við. Sameiningar-
nefndin, þar sem oddvitar allra sveit-
arstjórnanna eiga sæti ásamt fleiri
fulltrúum, var einhuga um að leggja
málið fyrir kjósendur.
Stefnt var að atkvæðagreiðslu síð-
astliðið haust en Sveinbjörn Eyjólfs-
son á Hvanneyri, oddviti Borgar-
fjarðarsveitar og formaður
sameiningarnefndar, segir að ákveð-
ið hafi verið að bíða eftir landsátak-
inu sem til stóð að fara í nú í apríl.
Ekki hafi verið hægt að hætta við
þegar því hafi verið frestað fram á
haustið. „Við höfum lokið okkar
vinnu og vorum tilbúin,“ segir Svein-
björn.
Liðlega 3.500 manns búa á sam-
einingarsvæðinu. Sveitarfélögin eru
þó afar ólík. Borgarbyggð varð til
fyrir nokkrum árum með samein-
ingu Borgarness og nokkurra sveita-
hreppa í Mýrasýslu. Íbúar eru 2.600.
Í Borgarfjarðarsveit, sem varð til
með sameiningu nokkurra hreppa í
Borgarfjarðarsýslu, eru 670 íbúar. Í
sveitahreppunum þremur eru 60 til
100 íbúar. Sveinbjörn segir að þjón-
ustustig sé afar misjafnt. Borgar-
byggð hafi gott stoðkerfi og Borg-
arfjarðarsveit reyni einnig að halda
uppi þjónustu. Mesta breytingin
verði fyrir íbúa minnstu sveitarfé-
laganna sem geti gengið að almennri
og ákveðinni þjónustu í sameinuðu
sveitarfélagi. Á móti kemur að út-
svör, fasteignaskattar og þjónustu-
gjöld eru yfirleitt lægri í sveita-
hreppunum, sérstaklega
Skorradalshreppi sem er með lág-
marksútsvar og veitir afslátt af fast-
eignasköttum.
Aukinn slagkraftur
„Þetta gefur svæðinu öllu meiri
slagkraft, við að gera sig gildandi í
samkeppni sveitarfélaganna. Það
hefur sýnt sig að hlutirnir eru að
gerast þar sem sveitarfélög hafa
sameinast,“ segir Sveinbjörn. Fyrir-
tæki og fólk vilji setja sig niður þar
sem þjónustan er veitt.
Skólamálin eru viðkvæm við sam-
einingu sveitarfélaga. Á svæðinu
hafa verið reknir fimm sjálfstæðir
skólar en hreppsnefnd Borgarfjarð-
arsveitar hefur nú sameinað yfir-
stjórn Kleppjárnsreykjaskóla og
Andakílsskóla á Hvanneyri þannig
að skólarnir eru nú fjórir en starfs-
stöðvarnar fimm. Við undirbúning
sameiningar kom fram í athugun
óháðs aðila að hagkvæmt væri að
sameina skólana, meðal annars að
leggja niður Andakílsskóla og aka
börnunum frá Hvanneyri í skóla í
Borgarnesi. Sameiningarnefndin
leggur til að skólarnir verði reknir
áfram en að yfirstjórn þeirra verði
sameinuð eftir því sem þægilegt
þyki.
Reynslan af sameiningu sveitarfé-
laga sýnir að íbúar stærri sveitarfé-
laga taka yfirleitt íbúum minni sveit-
arfélaga opnun örmum en meiri
tortryggni gætir í smærri hreppum,
sérstaklega gagnvart þéttbýlinu. Út
frá því má gera ráð fyrir að samein-
ingin verði örugglega samþykkt í
Borgarbyggð og jafnvel Borgar-
fjarðarsveit sem hafði frumkvæðið
að málinu. Óvissara er um stöðuna í
sveitahreppunum þremur. Svein-
björn er bjartsýnn á að sameiningin
verði samþykkt, segir að oddvitar
hreppanna hafi staðið að niðurstöðu
sameiningarnefndarinnar og í því
hljóti að felast ákveðin afstaða.
Davíð Pétursson á Grund, oddviti
Skorradalshrepps, segist hafa staðið
að því að leggja málið fyrir íbúa
sveitarfélagsins. Sjálfur mæli hann
hvorki með sameiningu né á móti,
íbúarnir verði sjálfir að ráða þessu.
Davíð segir að skoðanir séu skiptar
meðal íbúanna og segir tvísýnt um
niðurstöðu. Telur hann að það sama
gildi um fleiri sveitarfélög, sérstak-
lega þau minni.
Borgfirðingar greiða atkvæði um sameiningu héraðsins
Tvísýnt um niðurstöðu í
minnstu hreppunum
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
LANDIÐ
AKUREYRI
Ljósmyndir | Sýning á ljósmyndum Ragn-
ars Axelssonar (RAX), ljósmyndara á
Morgunblaðinu, stendur yfir þessa dagana
á Minjasafninu á Akureyri. Ber hún heitið
Framandi heimur. Þar gefur að líta mann-
lífsmyndir sem Ragnar hefur tekið á ferð-
um sínum víða um heim en þetta er í fyrsta
skipti sem myndir Ragnars eru sýndar á
Akureyri. Síðasti sýningardagur er næst-
komandi sunnudag, 24. apríl.
Morgunblaðið/RAX
Ein mynda RAX á sýningunni.
Barnaskemmtun | Fjölskyldustemmning
verður á Minjasafninu á Akureyri á sum-
ardaginn fyrsta, ilmur af lummum og kakói
mun fylla loftið í bland við kátínu krakk-
anna. Farið verður í útileiki við Minjasafn-
ið, sumarið sungið inn og sumarkort föndr-
uð. Einnig verður flutt stutt dagskrá um
sumardaginn fyrsta. Barnaskemmtunin
stendur frá kl. 15 til 17.
Skátamessa | Messa verður í Glerárkirkju
í dag kl. 11.00 en fyrir messu, eða kl. 10.30,
verður skrúðganga frá Verslunarmiðstöðinni
í Sunnuhlíð. Predikun er í höndum Péturs
Björgvins Þorsteinssonar djákna. Fjöl-
skyldum skáta sem og öðrum er hjartanlega
velkomið að taka þátt í skrúðgöngunni og
messunni. Þá verður haldin kynning á skáta-
starfi í dag að Hömrum milli kl. 14 og 16.
Kynningin fyrir krakkana er í formi ratleiks,
en á meðan fá foreldrar frekari upplýsingar
um starfið hjá umsjónarmönnum. Einnig fer
fram á Hömrum í dag undankeppni í kassak-
lifri, fyrir Íslandsmeistaramótið sem haldið
verður á Akureyri 30. apríl. Mótið er öllum
opið en keppt er í stúlkna- og drengjaflokk-
um, 13 til 15 ára og 16 til 18 ára.
NEMENDUR í 9. B í Lundarskóla unnu
stærðfræðikeppnina KappAbel á dögunum.
Keppni þessi á upptök sín í Noregi en þetta
er í fjórða skiptið sem hún fer fram á Íslandi.
Vinningsliðið frá hverju Norðurlandanna
keppir sem fulltrúi landsins í úrslitakeppninni
sem fram fer dagana 25.-27. apríl í Reykjavík.
Nemendurnir sem kepptu fyrir Lundarskóla
og náðu þessum glæsilega árangri, heita Ey-
þór Gylfason, Auðunn Skúta Snæbjarnarson,
Kamilla Sól Baldursdóttir og Sunna Þor-
steinsdóttir en kennari þeirra er Sigurveig
María Kjartansdóttir.
Alls tóku 45 bekkir þátt í keppninni, sem
skiptist þannig að tvær lotur voru í þrauta-
vinnu sem bekkurinn leysti og vann bekkja-
verkefni þar sem þemað var stærðfræði og
líkaminn.
Í bekkjarverkefninu þurfti að vinna tvær
ólíkar kynningar (munnlega- og myndræna
kynningu), faglega skýrslu og framvind-
uskýrslu.
Í lok annarar lotu komust 11 bekkir í und-
anúrslit til Reykjavíkur. Þar gilti bekkjaverk-
efni 50% og þrautavinna 50%.
Nemendur sem fóru sem fulltrúar bekkjar-
ins í Lundarskóla í úrslitakeppnina, kynntu
bekkjaverkefnið og leystu þrautaverkefni.
Þau urðu langhæst úr samanlögðum stiga-
fjölda bekkjaverkefnisins og þrautunum eftir
fyrri dag keppninnar og komumst því á sviðið
í Háskólabíói.
Þrjú efstu liðin kepptu þar og varð sigurinn
Lundarskóla. Sigurinn var sætur og mættu
aðrir í bekknum út á flugvöll til að fagna sínu
fólki við heimkomuna.
Markmið með KappAbel er að vekja áhuga
nemenda á stærðfræði og hvetja þá. Einnig að
reyna að vinna þannig að í stað þess að þeir
verði fráhverfir stærðfræði á unglingsárum þá
efli þeir skilning sinn, áræði og ánægju á
þessu sviði.
Glæsilegur árangur nem-
enda í stærðfræðikeppni
Morgunblaðið/Kristján
Sigurvegarar Nemendurnir fjórir sem kepptu fyrir Lundarskóla í stærðfræðikeppninni Kapp-
Abel, sitja framan við bekkjarfélaga sína og kennara. F.v. Eyþór Gylfason, Auðunn Skúta Snæ-
bjarnarson, Kamilla Sól Baldursdóttir og Sunna Þorsteinsdóttir. Sigurveig María Kjartansdóttir
kennari þeirra stendur lengst t.v. í öftustu röð.