Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 53
MENNING
Fjarðargötu 17 - Hafnarfirði
Sími 520 2600 - Fax 520 2601
Netfang as@as.is
Heimasíða http://www.as.is
Kári Halldórsson, löggiltur fasteignasali,
Jónas Hólmgeirsson, Eiríkur Svanur Sigfússon,
Birna Benediktsdóttir, Melkorka Guðmundsdóttir.
Laufey Lind Sigurðardóttir.
Opið virka daga kl. 9–18
LINNETSSTÍGUR 2 - HAFNARFIRÐI
Vel staðsett lyftuhús með stæðum í
bílageymslu í miðbæ Hafnarfjarðar
Nýkomnar í einkasölu
glæsilegar íbúðir við
Thorsplan í Hafnarfirði.
Íbúðirnar eru þriggja og
fjögurra herbergja, auk
tveggja rúmgóðra þakíbúða.
Íbúðirnar skilast fullbúnar
án gólfefna í ágúst 2005.
Byggingaraðili Fjarðarmót ehf.
Verð frá kr. 25,0 millj.
4ra herbergja íbúð 3ja herbergja íbúð Þakíbúð
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast suðurhluta Króatíu
og hinni fallegu borg Dubrovnik í vikuferð 12. –19. maí á frábærum
kjörum undir öruggri leiðsögn fararstjóra Heimsferða. Boðið verður upp
á fræðandi og skemmtilegar kynnisferðir um þessa perlu Adríahafsins
og ægifagurt nágrennið.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Netverð á mann.
Verð kr. 4.900
Netverð á mann pr. nótt, m.v. gistingu
á 3 stjörnu hóteli í tvíbýli
með morgunverði.
Hvítasunnuferð
Dubrovnik
Perla Adríahafsins
12. maí
frá kr. 29.990
ÞAU sorgartíðindi hafa flogið um
heimsbyggðina að Niels-Henning
Ørsted Pedersen hafi látist í svefni
aðfaranótt hins 19. apríl, tæplega 59
ára gamall. Með honum er horfinn af
sjónarsviðinu einn litríkasti djassleik-
ari er Evrópa hefur alið – eftirlæti
manna á borð við Sonny Rollins, Bill
Evans, Count Basies og Oscars Pet-
ersons. Sjálfur kveð ég stórbrotinn
vin og samstarfsfélaga, en hér hélt
hann vel á annan tug tónleika á rúm-
um aldarfjórðungi.
Ég kynntist Niels-Henning fyrst á
gamla Montmartre í Store Regne-
gade árið 1967, en þá lék hann þar í
hrynsveitinni með Kenny Drew og
Tootie Heath; sólistar Dexter Gordon
og Johnny Griffin. Auðvitað þekkti ég
hann vel áður – af plötum. Hann hafði
þá hljóðritað ýmsar skífur sem til-
heyra klassíkinni í dag; með snill-
ingum allt frá Bud Powell til Albert
Aylers. Hversu margar plötur hann
hljóðritaði um ævina veit ég ekki, en
þær nálgast þúsundið í mínu safni.
Síðast er við hittumst í Höfn gaf hann
mér ótrúlega upptöku er hann gerði
með Sonny Rollins árið sem við
kynntumst. Sú er enn óútgefin.
Niels-Henning kom fyrst til Ís-
lands 1977 með tríói sínu, þar sem Ole
Koch Hansen lék á píanóið og Alex
Riel á trommur. Þá spilaði hann sig
inn í hjörtu íslenskra djassunnenda
og þar býr hann enn. Árið eftir hélt
Jazzvakning fyrstu stórtónleika sína í
Háskólabíói – að sjálfsögðu með tríói
Niels-Hennings: Philip Catherine á
gítar og Billy Hart á trommur. Þetta
voru tímamótatónleikar í íslenskri
djasssögu því fjöldi ungra tónlistar-
manna ánetjaðist þar djassinum; má
þar nefna Friðrik Karlsson og Björn
Thoroddsen, sem er eini íslenski
djassleikarinn, fyrir utan Gunnar
Ormslev og Pétur Östlund, er hefur
hljóðritað með Niels-Henning. Því
átti að breyta á 30 ára afmæli Jazz-
vakningar í september nk. þar sem
Niels ætlaði að leika með ýmsum
stórdjassistum íslenskum. Af því
verður ekki, en áhrifa hans mun gæta
hér svo lengi sem djassvakning ríkir
á Íslandi.
Þegar nánir vinir deyja hverfur
hluti af manni sjálfum. Sjaldan ber
svo vel í veiði að fyrir utan minning-
arnar um óteljandi samverustundir, í
gleði jafnt sem sorg, geti maður horf-
ið á vit vinanna í mögnuðum lista-
verkum. List Nielsar er vel varðveitt
á plötum þótt fæstar þeirra séu
merktar nafni hans. Sú fyrsta er bar
NHØ-nafnið var Jaywalkin, með Ole
Koch, Philip og Billy Higgins. Þar má
m.a. finna sömbuna frægu er hann
samdi fyrir dóttur sína: Min lille
Anna. Síðan komu þær ein af annarri.
Ég nefni aðeins tríóplöturnar með
Philip og Billy Hart frá Montmartre,
To a brother, This is all I ask og dú-
ettskífurnar mörgu með píanist-
unum: Oscari Peterson, Kenny Drew,
Michel Petrucciani, Mullgrew Miller
að ógleymdum landa hans Kenneth
Knudsen. Þeir hljóðrituðu saman
skífuna Pitcuers, sem var í miklu
uppáhaldi hjá Niels-Henning.
Niels var umdeildur bassaleikari
og trúarhópur hins djúpa bassatóns
sakaði hann oft um að fórna tóninum
á altari tækninnar. Aftur á móti við-
urkenndu allir að hann ætti ekki í erf-
iðleikum með að ná þeim tóni fullorð-
inn sem á æskualdri. Það sönnuðu
upptökur hans og Ray Browns með
Oscari Peterson á Montreux 1977.
Aftur á móti hafði Niels byggt bassa
sinn þannig að hann gat leikið það á
hann sem gítaristar léku á sitt hljóð-
færi. Það var honum nauðsyn til að
koma tónhugsun sinni á framfæri.
Hann æfði gjarnan heima með því að
leika sellósvítur Bachs og fór létt með
að slá Paganini á bassann. Samt var
tæknin aukaatriði. Hin norræna
draumkennda djasshugsun mótaði
feril hans – og engin tilviljun að uppá-
halds rithöfundur hans væri William
Heinesen, þótt Gerpla væri honum
einnig kær.
Þegar mesti bassasnillingur Evr-
ópu er kvaddur reikar hugurinn til
konu hans Sólveigar, sem tvisvar
heimsótti Ísland í fylgd hans, og
dætranna þeirra Kristínar, Önnu og
Maríu. Vini, sem aldrei brást, skal
þakkað og verk hans lifa svo lengi
sem sveifla og ljóð setja mark sitt á
tónlist mannkynsins.
Niels-Henning látinn – en lifir þó
eftir Vernharð Linnet
Nils Henning Ørsted Pedersen
Fáðu úrslitin
send í símann þinn