Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
MENNTUN ER LÍFSBJÖRG
Skýrsla Carol Bellamy, yfirmannsBarnahjálpar Sameinuðu þjóð-anna, UNICEF, sem kynnt var í
Genf fyrr í vikunni, leiðir í ljós að um
hundrað milljón einstaklingar á barna-
skólaaldri í heiminum ganga ekki í
skóla. Þeim hefur fækkað um 15 millj-
ónir frá því fyrir fjórum árum, sem
sýnir að hægt er að stemma stigu við
þessum vanda – en betur má ef duga
skal. Í skýrslunni kemur ennfremur
fram að ef ekki tekst að koma fleiri
stúlkubörnum til náms en hingað til
mun ekki takast að sjá til þess að öll
börn í heiminum eigi kost á barna-
skólamenntun árið 2015, en það er yf-
irlýst markmið UNICEF.
Eins og Carol Bellamy vísaði til er
skýrslan var kynnt „snýst menntum
um fleira en lærdóm. Í sumum löndum
er hún lífsbjörg, ekki síst hvað stúlk-
um viðkemur“. Hún benti á að stúlka
sem er ekki í skóla er líklegri til að
verða eyðni að bráð og síður fær um að
sjá fyrir og ala upp heilbrigð börn.
Rannsóknir sýna ennfremur að mennt-
aðar stúlkur giftast seinna, eiga færri
börn og eru færari um að sjá þeim far-
borða þar sem þær skapa meiri verð-
mæti bæði innan heimilisins og utan. Í
fátækustu löndum heims er það fyrst
og fremst hlutskipti kvenna að sjá um
fjölskyldurnar og koma börnunum til
manns, svo mjög miklu máli skiptir að
þær séu læsar og skrifandi og meðvit-
aðar um mikilvægi menntunar fyrir
framtíð barna sinna. Gögn sem UNI-
CEF hefur aflað sýna að tveir þriðju
hlutar þeirra barna sem engrar skóla-
göngu njóta nú eiga mæður sem ekki
fengu heldur að fara í skóla.
Stúlkubörn eiga mjög undir högg að
sækja hvað menntunarmöguleika
varðar í ýmsum heimshlutum og ráða
þar rótgrónir fordómar gagnvart kon-
um og hlutverki þeirra í samfélaginu
ferðinni. Aðgerðir UNICEF á sviði
menntamála sýna þó og sanna að ef
átak er gert til að koma stúlkubörnum
í skóla nýtist það drengjunum ekki síð-
ur. Það er því til mikils að vinna að
„brjóta niður þá múra sem koma í veg
fyrir skólagöngu stúlkna“, eins og
Bellamy sagði.
Fyrir tæpu ári kom Cream White,
yfirmaður menntamála Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, hingað til lands
til að halda erindi um þýðingu mennt-
unar stúlkna í tengslum við þróunar-
mál. Þá var haft eftir honum í samtali
við Morgunblaðið að afar mikilvægt
væri að allar þjóðir heims héldu „því
til haga að menntun er réttur hvers
barns, öll börn ættu að hafa í það
minnsta möguleika á að gera eitthvað
með líf sitt“. Með þeim möguleika er
girt fyrir svo margvíslegan annan
vanda í þróunarlöndunum; alnæmisvá,
vatnsskort og skort á hreinlætisað-
stöðu.
Menntun barna í öllum álfum heims
er því ekki einungis undirstaða fram-
fara í lífi þeirra sjálfra, heldur einnig
grundvöllurinn fyrir því að heilu sam-
félögin séu sjálfbjarga um nauðþurftir
– og eigi samhliða því möguleika á að
skapa þegnum sínum þær aðstæður er
bætt geta lífskjör þeirra til mikilla
muna. Því fé sem Íslendingar láta af
hendi rakna til menntunar í þróunar-
löndunum er því svo sannarlega vel
varið, menntamál eru sá málaflokkur
sem hvað afdrifaríkust áhrif hefur á
framtíðarhorfur heilu samfélaganna.
SEINAGANGUR EÐA AFSTÖÐULEYSI?
Ástæða er til að óska Háskólanum íReykjavík til hamingju með lóð þá
í Vatnsmýrinni sem ákveðið hefur ver-
ið að verði framtíðaraðsetur skólans.
Eins og Morgunblaðið hefur ítrekað
bent á er svæðið afar verðmætt og því
ekki nema eðlilegt að framsæknar
stofnanir samfélagsins fagni því að fá
að byggja þar upp starfsemi sína. Víst
er að Háskólinn í Reykjavík er verð-
ugur og verðmætur granni á miðborg-
arsvæðinu – vel til þess fallinn að efla
umhverfi sitt með margvíslegum hætti.
Það breytir þó ekki þeirri staðreynd
að enn og aftur er verið að bíta utan af
þessu mikilvæga byggingarlandi, án
þess að nokkuð liggi fyrir um heild-
arskipulag þess. Markmið borgaryfir-
valda við uppbygginguna og samþætt-
ingu svæðisins við hinn gamla
miðborgarkjarna eru enn í hæsta máta
óljós. Umræða um Valssvæðið fór fram
án þess að heildstæðar hugmyndir fyr-
ir allt svæðið lægju fyrir og nú er verið
að skipuleggja lóðina sem Háskólinn í
Reykjavík fær til umráða fyrir ofan
Nauthólsvík, án þess að borgarbúar
hafi nokkra hugmynd um hver marg-
umrædd heildarmynd þessarar verð-
mætu landspildu verður. Að auki hefur
þegar verið rætt um bletti undir íbúða-
byggð í námunda við Skerjafjörðinn.
Þrátt fyrir áralanga umræðu og átök
um svæðið hafa ekki verið kynntir
notkunarmöguleikar Vatnsmýrarinnar
eða hvaða hlutföll eiga að ráða ferðinni
við uppbyggingu á þeim ýmsu sviðum
verslunar, þjónustu, íbúðabyggðar,
veitingarekstrar og menningar- eða
menntastarfsemi – er hugsanlega eiga
eftir að mynda framhald þess miðborg-
arkjarna sem nú er fyrir hendi.
Ekkert hefur heldur verið kunngert
er sannar að þessi tiltekni blettur í
Vatnsmýrinni henti betur en aðrir bút-
ar hennar undir starfsemi Háskólans í
Reykjavík. Og jafnvel þótt sú reynist
verða raunin er ljóst að ýmsir aðrir
áhugaverðir möguleikar voru í stöð-
unni varðandi nýtingu svæðisins sem
auðveldara hefði verið að taka upplýsta
afstöðu til innan heildarsamhengis
heldur en í því samhengisleysi sem nú
er ríkjandi í skipulagi þessa verðmæta
byggingarlands.
Það þarf ekki annað en vísa til mats
ráðgefandi aðila á þeim tveimur svæð-
um sem Háskólanum í Reykjavík stóðu
til boða til að átta sig á verðmæti svæð-
isins – ekki einungis fyrir Háskólann í
Reykjavík heldur einnig þróun höfuð-
borgarinnar. Skólinn rökstyður m.a.
ákvörðun sína með því að í Vatnsmýr-
inni sé allt sem prýða beri gott há-
skólaumhverfi, t.d. nálægð við mið-
borgina, hátæknisjúkrahús, fræða- og
menningarsetur, listasöfn, menningar-
líf og fjölbreytt þjónusta, eins og kom
fram í Morgunblaðinu í gær.
Uppbyggingin á þessu nýja háskóla-
svæði mun verða hröð; gert er ráð fyrir
að starfsemi hefjist þar strax haustið
2008. Á meðan þróun þessa hluta mýr-
arinnar er orðin fyrirsjáanleg bólar þó
ekkert á tímaramma fyrir heildar-
skipulag Vatnsmýrar. Borgarbúar
hljóta að velta því fyrir sér hverju
þessi seinagangur eða afstöðuleysi til
heildarskipulags Vatnsmýrarinnar
sætir.
R
íkisendurskoðun telur
brýnt að brugðist
verði við erfiðri fjár-
hagsstöðu Háskóla
Íslands í nýútkominni
skýrslu sem stofnunin vann fyrir
menntamálaráðuneytið um stjórn-
sýslu- og fjárhag Háskóla Íslands.
Styrkja þarf fjármálastýringu Há-
skólans og auka eftirlit með rekstri
deilda og annarra starfseininga,
segir ennfremur í skýrslunni sem
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra kynnti í gær
ásamt þeim Páli Skúlasyni, fráfar-
andi rektor HÍ, og Kristínu Ingólfs-
dóttur, verðandi rektor HÍ.
Þau segjast vera ánægð með
skýrsluna og telja að niðurstöður
hennar kalli á víðtækar umræður
um fjármögnun háskólastigsins á
Íslandi og skipulag íslenskra há-
skóla.
HÍ hefur náð góðum árangri
Í meginniðurstöðum úttektarinn-
ar kemur einnig fram að Háskóli Ís-
lands hafi náð góðum árangri í
starfsemi sinni en ástæða sé til að
huga að breytingum á skipulagi
skólans ásamt því að bregðast þurfi
við erfiðri fjárhagsstöðu hans.
Í skýrslunni kemur fram að mikill
vöxtur hafi hlaupið í starfsemi HÍ á
undanförnum árum. Nemendum
hafi fjölgað verulega og mikil
áhersla hafi verið lögð á að efla
framhaldsnám og rannsóknir. Allt
þetta hafi leitt til umtalsverðs
kostnaðarauka í rekstri skólans sem
hafi að stærstum hluta verið mætt
með síauknum framlögum ríkisins
til kennslu á síðustu árum. Bent er á
að skólinn hafi einnig mætt vextin-
um með hagræðingu í starfseminni,
t.d. með stækkun nemendahópa og
fjölgun stundakennara.
Jafnframt kemur fram að fé til
rannsókna hafi nánast staðið í stað
að raunvirði, sem kunni að hafa
áhrif á möguleika skólans til að
þróast áfram sem öflugur rann-
sóknarháskóli sem stenst alþjóðleg-
an samanburð.
Bent er á að viðbrögð við þessu
geti einkum verið af þrennum toga.
Í fyrsta lagi að takmarka nemenda-
fjölda. Í öðru lagi að hemja kostnað
enn frekar og í þriðja lagi að afla
aukinna tekna t.a.m. með því að
taka upp skólagjöld.
Ríkisendurskoðun segir að þrátt
fyrir að útgjöld HÍ til launa hafi
aukist talsvert að undanförnu sé
ljóst að skólinn verði að teljast ódýr
í rekstri miðað við sambærilega há-
skóla í nágrannalöndum okkar.
Þetta megi skýra með mikilli skil-
virkni, hlutfallslega fáum fram-
haldsnemum og mörgum stunda-
kennurum. Skólinn hafi m.a.
brugðist við fjölgun nemenda með
því að stækka hópa sem sækja fyr-
irlestra og fella niður einstök nám-
skeið. Þó svo að fé til rannsókna
hafi nánast staðið í stað hafa afköst
í rannsóknum aukist.
Hlúa þarf að meistara- og
doktorsnámi í Háskóla Íslands
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra segir það
ljóst að fjárveiting til HÍ hafi aukist
verulega á undanförnum árum eða
úr 0,9% árið 2001 í 1,4% nú. Segist
hún vera ánægð með hvernig HÍ
fari með þau fjárframlög sem hann
fái frá ríkinu. „Það er greinilegt að
við erum að fá mikið fyrir það fjár-
magn sem við setjum í Háskóla Ís-
lands.“
Þorgerður Katrín segir skýrsl-
una sýna fram á að HÍ sé á góðri
siglingu en lengi megi gott bæta til
þess að Íslendingar verði fremstir í
flokki meðal þekkingarþjóða. Hún
kveðst vera sammála Páli Skúla-
syni í því að fjölga þurfi bæði meist-
ara- og doktorsnemum en það sé
ljóst að til þess að það megi verða
þurfi að auka fjárútlát til HÍ. „Sem
menntamálaráðherra vonast ég til,
og í rauninni krefst þess, að menn
skoði þessi mál gaumgæfilega. Því
við verðum að hafa metnað til þess
að halda ennþá hærra og stefna
lengra. Það gerist ekki nema við
aukum fjármagnið og það er hægt
að gera með ýmsum hætti eins og
skýrsla Ríkisendurskoðunar bendir
á,“ segir Þorgerður Katrín. Hún
mun skipa nefnd sem mun fara yfir
helstu áhersluþætti skýrslunnar.
Páll Skúlason fagnaði skýrslunni
mjög og þakkaði menntamálaráð-
herra fyrir að hafa haft frumkvæði
að henni. Hann segir skýrsluna
sýna fram á að starfsemi HÍ sé í
góðum farvegi. Hann segir b
hlúa vel að uppbyggingu og
meistara- og doktorsnáms
enda sé þar helsti vaxtarb
háskólans. Hann telur að til
HÍ verði öflugur rannsók
skóli á alþjóðlegan mæl
verði að koma til aukið fjárf
„Við erum á ákveðnum tíma
Það er ljóst að við munum ek
haldið áfram þessari uppby
sem nú er þegar hafin hjá
nema með verulega aukn
magni, það er alveg ljóst,
Páll.
Kristín Ingólfsdóttir, v
rektor HÍ, segist gera sér v
ýmsar leiðir til þess að bæ
fjárhagsstöðu skólans. T.a
fjárframlag ríkisins muni hæ
hún bendir á að fjárframlög
til HÍ séu lægri miðað við sa
lega skóla í nágrannalön
„Við þurfum líka að herða
Stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar
Brýnt að bre
erfiðri fjárh
Menntamálaráðherra segir skólann
vera á góðri siglingu – Er ódýr í rekstri
miðað við háskóla í nágrannalöndunum
Kristín
Ingólfsdóttir
P
S
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
FORMENN þingflokka Sjálfstæðis-
flokksins, Samfylkingarinnar,
Vinstri grænna og Frjálslynda
flokksins taka vel í hugmyndir um að
setja reglur sem skylda þingmenn til
að upplýsa um hlutabréfaeign og
önnur hagsmunatengsl við atvinnu-
lífið, líkt og Jónína Bjartmarz upp-
lýsti á Alþingi í gær að þingflokkur
Framsóknarflokksins ætlaði að setja
sér.
Einar K. Guðfinnsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins, segir
sjálfsagt að skoða hvort rétt sé að
setja reglur sem skylda þingmenn til
að upplýsa um fjárhag sinn, eignir
og eignarhlut í atvinnurekstri.
„Mér finnst sjálfsagt að fara ofan í
þessi mál,“ segir hann, en bendir á
að þetta sé þó miklu flóknara en
kannski virðist við fyrstu sýn. „Ég
held að mjög margar áleitnar
spurningar muni vakna, m.a. sem
lúta að persónubundnum réttind-
um fólks, ekki síst persónubundn-
um réttindum til að mynda maka í
þessu sambandi, sem hljóta að hafa
sinn sjálfstæða rétt.
Ég tel hins vegar sjálfsagt að
menn fari yfir þetta og skoði t.d. í
samhengi við það sem hefur verið
gert annars staðar.“
Aðspurður segist Einar eiga
hlutabréf, en einnig se
skulda, vegna eigna sinn
bönkum og sjóðum, eins
lánasjóði. „Ég tel hins v
að það geri mig á nok
vanhæfan t.d. til að fjall
efni Íbúðalanasjóðs.“
Einar kveðst einnig h
stofnfjáreigandi í Spari
ungarvíkur áratugum sa
geri hann þó ekki vanhæ
fjalla um málefni spari
fjármálastofnana í landin
„Það að þingmenn sé
lega eigendur í fyrirtæk
þá á margan hátt hæf
fjalla um efnahagsmál o
mál í landinu,“ segir Eina
Formenn þingflokkanna á Alþingi
Taka vel í upplýsingaskyld
um eignir þingmanna
Eftir Björn Jóhann Björnsson
og Örnu Schram