Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 49 DAGBÓK 256Mb kr. 3.490,- 512Mb kr. 5.990,- 1.0Gb kr. 9.990,- PQI SD minniskort Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509 www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is Opið hús að Álakvísl 61 Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali. Opið hús að Álakvísl 61, 110 Reykjavík., í dag á milli 14 og 15 Höfum fengið til sölu fallegt parhús á efri hæð við Álakvísl. Íbúðin, sem hefur verið tekin til ganggerðar endurnýjunar, er öll hinn glæsilegasta. NEÐRI HÆÐ: Komið er inn í rúmgott hol með flísum, falleg gestasnyrting með sturtu. Stofan og sólskál- inn eru með fallegu Káhrspark- eti, Jatoba. Eldhús með glæsi- legum kirsuberjainnréttingum og tækjum, flísar milli efri og neðri skápa og borðkrókur. Flísalögð gestasnyrting með vönduðum sturtuklefa. GÓLFEFNI: Á hæðinni er vandað Káhrsparket, Jatoba. Úr holi er vandaður hringstigi milli hæða. EFRI HÆÐ: Hol. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, skápur úr kirsuberjavið í einu þeirra. Glæsilegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með náttúrusteini, falleg innrétting og baðkar. GÓLFEFNI: Káhrsparket Jatoba og náttúrusteinn á baðherbergi. Úr holi er hring- stigi upp á risloft. RISLOFT: Stórt parketlagt herbergi með opnanlegum glugga. Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn og skipt um allar innréttingar, gólfefni, sólbekki og rafmagn endurídregið að hluta og skipt um alla rofa og tengla svo nánast er um nýja eign að ræða. BÍLGEYMSLAN er 30 fm, með skilveggjum og nýtist því vel. Verð 27,8 millj. Sölustóri Fasteignakaupa Páll Höskuldsson tekur vel á móti gestum. Gsm 864 0500 Junior Chamber International (JCI) eralþjóðleg hreyfing fyrir ungt fólk áaldrinum 18 til 40 ára með áhuga ogmetnað til að efla stjórnunarhæfileika sína með virkri þátttöku í málefnum þjóðfélags- ins á jákvæðan hátt. Hjá JCI hafa lífsgæði fólks forgang og undirstaða starfsins er að byggja upp einstaklinginn, gefa honum tæki- færi til að vaxa í starfi og leik og þannig gera hann hæfari til að takast á við stjórnun og ábyrgð í félagsstarfi og athafnalífi. Í alþjóða- hreyfingunni (JC International) eru 200.000 virkir einstaklingar í meira en 6.000 aðildar- félögum í 110 löndum,“ segir Gísli Elís Úlfars- son. Hvað gerið þið í JCI? „Við hittumst, lærum og þroskumst. Við sköpum jákvæðar breytingar. Við lærum að verða betri leiðtogar. Við leiðum verkefni á sviði viðskipta, einstaklings, samfélags og alþjóðasamstarfs. Við trúum á framfarir al- þjóða samfélagsins og sköpun jákvæðra breyt- inga. Við sýnum gott fordæmi.“ Hvernig starfar JCI? „Við hittumst á félagsfundum, landsþingum og alþjóðlegum þingum og skiptumst á hug- myndum og þekkingu. Við sköpum og skipu- leggjum verkefni fyrir okkur sjálf og samfélag okkar. JCI á erindi við alla sem eru á aldrinum 18– 40 ára sem vilja efla sig sem leiðtogar, ræðu- menn, verkefnisstjórar og/eða almennt í mann- legum samskiptum. Við störfum óháð trúar- og pólitískum skoðunum.“ Hvaða dagskrá verður í tilefni af 45 ára af- mælinu? „JCI Ísland var stofnað 5. september 1960 og er því 45 ára á þessu ári. Fjölbreyttum verk- efnum mun verða hrint úr hlaði af því tilefni. Heimsforseti JCI, Kevin Cullinane, er í heim- sókn þessa dagana og mun hann heimsækja JCI félaga og samstarfsaðila og vekja athygli á fjölbreyttum verkefnum JCI. Málþing var hald- ið á Grand Hótel í gær, en það fjallaði um mat atvinnulífsins á félagsstarfi starfsmanna þeirra og hvernig félagsstarf/sjálfboðið starf er metið í starfsumsóknum. JCI stendur fyrir útnefningu 10 framúrskar- andi ungra Íslendinga á ýmsum sviðum. Sú út- nefning er forkeppni að alþjóðlegu verðlaunum JCI sem kallast „The Outstanding Young People of the World“, eða TOYP, þar sem á hverju ári eru valdir 10 einstaklingar hvaðan- æva úr heiminum sem þykja mest framúrskar- andi. Árið 2003 komst Íslendingur fyrst í þenn- an flokk, en það var Kristín Rós Hákonardóttir sem JCI Ísland hafði sama ár útnefnt sem „Framúrskarandi ungan Íslending“. JCI Ísland leitar nú að tilnefningum á einstaklingum sem þykja framúrskarandi á sínu sviði og hafa ekki fengið viðurkenningu sem skyldi, munu um- sóknir þeirra sem tilnefndir verða hér heima sendar út í alþjóðlegu keppnina. JCI Ísland mun nú í annað sinn standa fyrir samkeppni um bestu viðskiptaáætlunina. Sam- keppnin er opin fyrir ungt fólk að fertugu og við hvetjum unga frumkvöðla á Íslandi til að senda inn sínar viðskiptaáætlanir,“ segir Gísli Elís Úlfarsson. Félagsstarf | JCI á Íslandi 45 ára í ár Sköpum jákvæðar breytingar  Gísli Elís Úlfarsson er fæddur á Ísafirði árið 1969 og er bú- settur þar ásamt fjöl- skyldu sinni. Hann var kosinn landsforseti JCI Íslands á lands- þingi sem haldið var á Húsavík í september 2004. Gísli starfar sem framkvæmda- stjóri fjölskyldufyrir- tækisins Hamraborgar ehf. á Ísafirði. Hann var ásamt konu sinni einn af stofnfélögum JCI Vestfjarða sem var stofnað á ný árið 1998. Gísli átti sæti í landsstjórn JCI Ís- lands 2004. Kristilegur kærleiki ÉG sá í sjónvarpinu 17. apríl leikna mynd um sannsögulega at- burði. Myndin heitir Magdalenu systurnar og fjallar um ungar stúlkur sem áttu að hafa brotið af sér gegn kirkjunni og voru settar í klaustur á Írlandi til þess að vinna þar í þvottahúsum. Þær sættu þar mjög illri meðferð og voru gjör- samlega brotnar niður. Þó höfðu þær ekkert til saka unnið annað en að hafa eignast börn utan hjónabands, verið nauðgað eða verið sætar stúlkur og mikil pilta- gull og þar með voru þær lokaðar inni. Peningarnir sem komu fyrir þeirra þrældóm í þvottahúsinu hirtu nunnurnar og lifðu í vellyst- ingum. Þessi mynd hefur snert marga og svo er um mig líka. Þessum illræmdu þvottahúsum sem voru víða í klaustrum á Ír- landi var ekki lokað fyrr en 1996. Það er skelfilegt til þess að vita að svona skuli hafa viðgengist á ný- liðnum árum. Því miður hefur kristin trú þó víða verið misnotuð í gegnum tíð- ina og einnig var það hér á Íslandi þegar konum var drekkt vegna þess að þær voru ófrískar eða fólki misþyrmt og það drepið í nafni kristinnar trúar. Jesús er kær- leikur fyrir mér og ef við eflum með okkur umburðarlyndi, kær- leik og skilning náum við langt í lífi okkar og eins líka til að hjálpa öðrum. Við erum ekki komin í þennan heim til þess að vera með hroka eða dæma aðra því guð mun aldrei refsa okkur fyrir gjörðir okkar heldur munum við sjálf gera það ef við hegðum okkur illa. Kærleikskona. Orða vant MÉR er orða vant um framkomu Halldórs Blöndal en þó ætla ég að segja þetta. Halldór Blöndal víki úr stól forseta Alþingis þar sem hann beitir sínu valdi á óraunhæf- an máta. Ég hef margoft séð hann beita þessu valdi sínu, óréttlæt- anlega. Tvívegis gagnvart Sig- urjóni Þórðarsyni, einu sinni gagn- vart Helga Hjörvar og nú síðast þegar hann gaf Lúðvík Berg- vinssyni orðið en tók það af honum aftur áður en tími hans var liðinn og með þvílíku offorsi og bjöllu- slætti að það hálfa hefði verið nóg. Ég horfi sem sagt alltaf á útsend- ingu frá Alþingi og ég endurtek, Halldór Blöndal víki bara úr þessu starfi vegna skapofsa síns. Mér finnst bara hann vera orðinn gam- all. Ég stend með Lúðvík. Kristjana Vagnsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 21. apríl Venjufesta er ekki siðgæði. Charlotte Brontë 1816 (Bretland) Önnur afmælisbörn dagsins: Jorge Andrade 1922 (Brasilía) Birgir Engilberts 1946 Venjufesta er ekki siðgæði. Charlotte Brontë Árbók bókmenntanna 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6 4. cxd5 exd5 5. Bg5 c6 6. e3 Be7 7. Dc2 Rbd7 8. Bd3 Rh5 9. Bxe7 Dxe7 10. O-O-O Rb6 11. Rf3 Be6 12. Kb1 O-O-O 13. Hc1 Kb8 14. Ra4 Rxa4 15. Dxa4 Hd6 16. Hc3 Hc8 17. Hhc1 Hc7 18. Re5 f6 19. Ha3 a6 Staðan kom upp á meistaramóti Evrópusambandsins sem fram fór fyr- ir skömmu í Cork á Englandi. Sig- urvegari mótsins, ungverski stórmeist- arinn Zoltan Gyimesi (2595) hafði hvítt gegn Anthony Fox (2123). 20. Bxa6! fxe5 21. Bd3 Hc8 22. dxe5 Hd7 23. Da7+ Kc7 24. Hxc6+! Þennan leik þurfti hvítur að sjá þegar hann fórnaði manninum í tuttugasta leik. Svörtum er nú öllum bjargir bannaðar þar sem eftir 24...Kxc6 yrði hann mát eftir 25. Hc3+ Dc5 26. Dxc5#. 24...Kd8 25. Hxc8+ Kxc8 26. Hc3+ Hc7 27. Da8+ og svartur gafst upp þar sem eftir 27...Kd7 28. Bb5 Hc6 29. Dxb7+ er svarta staðan að hruni komin. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Vesturlandsmót. Norður ♠Á96 ♥G86542S/Enginn ♦KD82 ♣-- Vestur Austur ♠1082 ♠KD75 ♥KD1093 ♥Á7 ♦3 ♦10976 ♣Á1093 ♣G74 Suður ♠g43 ♥-- ♦ÁG54 ♣KD8652 Spil dagsins er frá Vesturlandsmót- inu í tvímenningi, sem Ísak Örn Sig- urðsson og Hlynur Angantýsson unnu örugglega. Ísak varð sagnhafi í þremur laufum í suður eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 lauf 1 hjarta Pass 1 spaði Pass Pass 1 grand 2 hjörtu 3 lauf Pass Pass Pass Trompstuðningurinn í blindum stóð ekki undir væntingum Ísaks, en spilið var ekki alveg vonlaust. Vestur kom út með einspilið í tígli, sem Ísak tók heima til að spila laufdrottningu. Vest- ur drap og spilaði hjartakóng. Ísak trompaði, spilaði litlu laufi, sem austur tók með gosa og gaf félaga sínum stungu í tígli. Hjarta kom til baka, Ísak trompaði og lagði niður trompkóng. Nú var trompið komið og vörnin hefði fengið þrjá slagi. Því mátti ekki gefa nema einn á spaða. Ísak tók tvo slagi á tígul og endaði heima til að spila spaða að blindum. Vestur svaf á verð- inum og lét lítinn spaða og Ísak níuna. Austur tók með drottningu, en átti ekkert eftir nema spaða og varð að spila frá kóngnum. Sjaldgæf og lær- dómsrík staða. Alls spiluðu 25 pör í mótinu. Kristján B. Snorrason og Ágúst Guðmundsson urðu í öðru sæti, en teljast Vestur- landsmeistarar, því Ísak og Hlynur spiluðu sem gestapar. Þriðju urðu hjónin Matthías Þorvaldsson og Ljósbrá Baldursdóttir. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.