Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 1
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
STOFNANDI IKEA ER KYNLEGUR KVISTUR | 10
SPROTAFYRIRTÆKI
SVIPMYND: HÖRÐUR BENDER | 24
Fall er
fararheill HUGMYNDIRNAR
HITTA FJÁRMAGNIÐ
Óendanlega
þolinmóður
KANADÍSKA álframleiðslufyr-
irtækið Alcan, eigandi álversins í
Straumsvík, hefur í tilkynningu
borið til baka frétt Financial Times
um að Alcan þyrfti að draga fram-
leiðslu sína í Evrópu saman um
20%. Samkvæmt FT eru það hátt
orkuverð og hátt gengi evru sem
neyða Alcan til niðurskurðarins.
Blaðið hefur eftir Richard Evans,
aðstoðarforstjóra Alcan, að stærst-
ur hluti álvera fyrirtækisins sé bú-
inn nýjum búnaði og hafi auk þess
hagstæða orkusamninga til langs
tíma. Þó séu nokkur þeirra gömul
og að þeim verði væntanlega lokað.
Ennfremur segir í frétt FT að um
sé að ræða þrjú af níu álverum Al-
can í álfunni sem samanlagt standa
fyrir 20% af framleiðslugetunni.
Í tilkynningu Alcan segir að þessi
frétt sé röng. Ekki standi til að loka
álverum. „Vissulega er hátt orku-
verð ógn við einhver álvera okkar
en þó er enn of snemmt að álykta að
þessum álverum verði lokað. Áliðn-
aðurinn í heild sinni hefur orðið
fyrir áhrifum af langtímakostnaði á
orku og sveiflum í evrunni. Þetta á
hins vegar ekki einungis við um ál-
iðnaðinn heldur hefur þetta áhrif á
allar orkufrekar iðngreinar,“ segir
Evans í tilkynningunni.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Alcan á Íslandi, segir að
ekki standi til að skera niður hjá
Alcan á Íslandi.
Þarf Alcan að
skera niður?
ENEX hf., sem er sameiginlegt
útrásarfyrirtæki orku- og ráðgjafar-
fyrirtækja á Íslandi, hefur samið við
raforkuveituna LaGeo í El Salvador
í Mið-Ameríku, um 8 megavatta
stækkun á 56 megavatta virkjun La-
Geo. Framkvæmdir munu hefjast í
maí og standa í 19 mánuði en verk-
efnið er 13 milljóna dollara, eða 800
milljóna króna, virði.
Lárus Elíasson, framkvæmda-
stjóri Enex, segist vongóður um að
geta átt frekara samstarf við LaGeo
á Mið-Ameríkusvæðinu og jafnvel
víðar. Hann segir að nýja virkjunin
muni nýta raforku úr afgangsvarma
í skiljuvatni frá 56 megavatta gufu-
aflstöðinni sem fyrir er og kennd er
við þorpið Berlín í El Salvador. La-
Geo fékk fjögur tilboð í verkið, frá
Ísrael, Ítalíu, Bandaríkjunum og Ís-
landi en tilboð Enex reyndist hag-
stæðast. „Einnig skipti miklu máli
sú jákvæða ímynd og reynsla sem El
Salvador-búar hafa haft af samstarfi
við Íslendinga um nýtingu jarð-
varma í gegnum árin. Og tengsl við
fyrrum nemendur Jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóðanna, sem rekinn er
á Íslandi sem hluti af þróunaraðstoð
Íslands, hjálpuðu til,“ segir Lárus.
Segir hann virkjunina í El Salva-
dor mjög svipaða Kröfluvirkjun og
upplýsir að reyndar væri á svipaðan
hátt hægt að nýta afgangsvarma í
Kröflu, en það sé reyndar ekki hag-
kvæmt sem stendur vegna markaðs-
aðstæðna hér á landi.
Enex hf. er útrásarfyrirtæki á
sviði umhverfisvænnar orku og út-
flutnings á íslenskri orkuþekkingu.
Það er í eigu flestra íslenskra fyr-
irtækja á orkumarkaði, bæði veitu-
fyrirtækja og ráðgjafarfyrirtækja.
Stærstir eigendur með jafnan hlut
eru Hitaveita Suðurnesja, Jarðbor-
anir, Landsvirkjun og Orkuveita
Reykjavíkur. Meðal annarra eru
Norðurorka, Nýsköpunarsjóður, Ís-
lenskar Orkurannsóknir og Íslands-
banki auk fjölmargra verkfræðistofa
og ráðgjafa á svið orkumála.
Lárus segir að Enex sinni ýmsum
verkefnum á sviði jarðvarmaráð-
gjafar, s.s. fyrir Alþjóðabankann,
sölu búnaðar og undirbúnings eigin
virkjana á erlendri grundu. Í eina
tíð var áhersla lögð á að selja til út-
landa þekkingu Íslendinga á orku-
málum í formi ráðgjafar en Lárus
segir slíkt ekki hafa gengið eins og
menn vonuðust til. „Við lítum á ráð-
gjöfina sem tæki til að afla þekk-
ingar á viðkomandi mörkuðum og þó
svo að við sinnum alltaf einhverri
ráðgjöf með, þá er Enex fremur
fjárfestir en ráðgjafi. Við þróum
verkefni í samvinnu við heimamenn í
hverju landi,“ segir Lárus og bendir
á að með því móti sé styrkur og
þekking Enex sameinaður við það
besta á erlendri grundu.
Sex virkjanaleyfi erlendis
Fyrirtækið nú sex virkjanaleyfi er-
lendis. Fjögur leyfanna eru í Þýska-
landi, í Geretsried og Wolfratshau-
sen, Kehl, Tutzing og Dudenhofen,
og hefur Enex leyfi til að byggja á
hverjum stað 3–20 megavatta raf-
orkuvirkjun með hitaveitu. „Boranir
munu líklega hefjast á Geretsried
svæðinu um næstu áramót,“ segir
Lárus. Um er að ræða u.þ.b. 30–40
milljóna evra (í kringum 3 milljarða
króna) fjárfestingu í hverri virkjun.
Tvö virkjanaleyfi Enex eru í
Bandaríkjunum, í Kaliforníu er ver-
ið að hefja tilraunaborun og í Alaska
er unnið að áreiðaleikakönnun.
„Við höfum unnið mikið markaðs-
og sölustarf á undanförnum árum
sem nú er að skila sér í framan-
greindum verkefnum auk þeirra
fjölmörgu verkefna sem eru á ýms-
um stigum allt frá þátttöku í útboð-
um til samningaviðræðna um sam-
eiginlegar fjárfestingar í löndum
eins og Kína, Eþíópíu, Slóvakíu, Pól-
landi og ekki síst Ungverjalandi þar
sem við unnum ráðgjafarverkefni
fyrir olíufyrirtæki í Ungverjalandi
um hitaveitu- og rafmagnsvirkjun.“
Enex reisir raforku-
virkjun í El Salvador
Afgangsvarmastækkun
við gufuaflsstöð á
stærð við Kröfluvirkjun
Eftir Soffíu Haraldsdóttur
soffia@mbl.is
LÁRUS Elíasson skrifaði undir samninga við LaGeo í El Salvador í vikunni
Hann segir að miklu hafi skipt sú jákvæða ímynd og reynsla sem El Salva-
dor-búar hafi af samstarfi við Íslendinga um nýtingu jarðvarma.
Hagstæðasta tilboðið
Fimmtudagur
21. apríl 2005