Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
!"
!" # # $
% & #"$ %$
! Viðskiptablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang
vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Agnes Bragadóttir, fréttastjóri,
agnes@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110
Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
ÞETTA HELST…
BAUGUR Group
hefur fest kaup
á 121,5 millj-
ónum hlutabréfa
í Straumi fjár-
festingarbanka
og er það tæp-
lega 2% af heild-
arhlutafé bank-
ans. Eftir kaupin
eru 6,05% af heildarhlutafé
Straums í eigu Baugs. Að sögn
Skarphéðins Berg Steinarssonar,
framkvæmdastjóra norrænnar
fjárfestingar hjá Baugi, er
Straumur vænlegur fjárfesting-
arkostur og kaupin eðlilegur liður
í áhættudreifingu Baugs.
Baugur kaupir
í Straumi
ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði í gær um 0,4% og er
lokagildi hennar 4.031 stig. Bréf
Jarðborana hækkuðu um 5,3%,
Vinnslustöðvarinnar um 2,4% og
Össurar um 1,8%. Bréf Atorku lækk-
uðu hins vegar um 0,8% og Actavis
um 0,7%. Viðskipti með hlutabréf
námu rúmum 2,8 milljörðum króna.
Þar af voru viðskipti með bréf í Ís-
landsbanka fyrir 1,7 milljarða og
hækkaði gengi þeirra um 0,8%.
Hækkun í
Kauphöllinni
HEILDARGJÖLD meðalbanka-
viðskiptavinar á Íslandi eru mun
lægri en í nágrannalöndunum. Hér
á landi greiðir meðalviðskiptavinur
um 3 þúsund krónur í gjöld á ári en
í Danmörku, þar sem gjöldin eru
næst lægst, greiðir meðalviðskipta-
vinurinn ríflega 5 þúsund krónur á
ári. Í Svíþjóð og Noregi er taxtinn
enn hærri en þar borga viðskipta-
vinir yfir 15 þúsund krónur á ári að
meðaltali. Þetta var meðal þess sem
fram kom í erindi Elínar Sigfús-
dóttur, framkvæmdastjóra fyrir-
tækjasviðs Landsbankans, á ráð-
stefnu sem Félag kvenna í
atvinnurekstri og Félagið Auður
héldu í gær undir yfirskriftinni
Samkeppnishæfni fyrirtækja í
breyttri heimsmynd.
Í máli Elínar kom jafnframt fram
að lánveitingar Landsbanka Íslands
til erlendra aðila voru um síðustu
áramót orðnar 27% af heildarlán-
veitingum bankans og námu alls ríf-
lega 148 milljörðum króna. Til sam-
anburðar voru lánveitingar bankans
til erlendra aðila 9% af heildarlán-
veitingum bankans í lok árs 2002.
Þá námu lánveitingar alls um 19
milljörðum króna. Í krónum talið
hafa lánveitingar bankans til er-
lendra aðila aukist um 680% á
þessu tveggja ára tímabili. Miðað
við þær tölur sem hér er stuðst við
hafa heildarútlán bankans aukist
um 160%, nær þrefaldast, á tíma-
bilinu. Heildarútlán bankans námu í
lok síðasta árs um 550 milljörðum
króna en voru ríflega 211 milljarðar
í árslok 2002.
Hilmar Veigar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækis-
ins CCP, var einnig meðal ræðu-
manna og sagði hann að þar á bæ
gerðu menn ráð fyrir að tekjur af
leikjum fyrirtækisins yrðu um 800
milljónir króna á þessu ári.
Gjöld lægri hér en í
nágrannalöndunum
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Setti fundinn Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, var
meðal gesta á ráðstefnu FKA og félagsins Auðar.
VERÐ á neysluvöru hefur að und-
anförnu hækkað heldur meira á
Íslandi en að meðaltali í ríkjum
Evrópska efnahagssvæðisins og á
evrusvæðinu. Verðbólgan, mæld
með samræmdri vísitölu neyslu-
verðs, á tólf mánaða tímabili fram
til mars sl., var 2,0% að meðaltali í
ríkjum EES, 2,1% á evrusvæðinu
og 2,5% á Íslandi. Þetta kemur
fram í frétt frá Hagstofu Íslands.
Mest var verðbólgan í þessum
löndum 6,6% í Lettlandi og 4,8% í
Eistlandi. Minnst var verðbólgan
0,5% í Svíþjóð og 0,9% í Finnlandi.
Í marsmánuði hækkaði sam-
ræmd vísitala neysluverðs í EES-
ríkjum um 0,5% frá í febrúar. Fyr-
ir Ísland hækkaði hún um 0,4%.
Samræmda vísitalan er frá-
brugðin okkar hefðbundnu neyslu-
verðsvísitölu, en samkvæmt henni
er verðbólga hér á landi 4,3%, að
því leyti að ekki er reiknað með
eigin húsnæði í þeirri samræmdu.
Í Morgunkorni Íslandsbanka
segir að ekki sé til samræmd vísi-
tala neysluverðs með húsnæð-
isliðnum inni í. Af þeim sökum sé
erfitt að bera saman verðbólgu
milli landa á þann mælikvarða sem
hér á landi er helst stuðst við. Þó
sé ljóst að verðhækkanir á íbúðar-
húsnæði hafi verið meiri hér á
landi en í flestum nágrannalönd-
um okkar að undanförnu og verð-
bólgan þess vegna vafalítið há hér
á landi í alþjóðlegum samanburði.
Verðbólga
eykst meira
hérlendis
' #(
)* $ +,'
)* $-# -
.*( $ /
,01!
2# ((
34(
'#$
! 5#(
2
"#
#
,-678*
& "
'#9$
5#:5# #9 -#*;
-$ <#5 #$5 #
/.#*=8
-*( $ ;
5#5:5*
-"
,* = (
>5?>
$"<
ATLANTSOLÍA hóf sölu á díselolíu
af sjálfsafgreiðslutanki við höfnina
á Akranesi síðstliðinn mánudag. Í
tilkynningu frá fyrirtækinu segir
að opnun tanksins marki mikil
tímamót fyrir Atlantsolíu þar sem
hann sé fyrsta skref fyrirtækisins í
sjálfsafgreiðsluþjónustu á Vest-
urlandi. „Fleiri slíkir tankar eru á
teikniborðinu en allir verða þeir út-
búnir kraftdælingu sem er ætluð
stórnotendum og minnkar áfylling-
artíma um 60%,“ segir í tilkynning-
unni.
Atlantsolía selur
olíu á Akranesi
HLUTHAFAR í breska mat-
vöruframleiðslufyrirtækinu Geest
Plc. hafa samþykkt kauptilboð
Bakkavarar Group frá 8. mars síð-
astliðnum í allt hlutafé félagsins.
Frá þessu var greint í tilkynningu
frá Bakkavör til Kauphallar Ís-
lands í gær.
Segir í tilkynningunni að fyr-
irhugað sé að samruni félaganna
fari fram hinn 13. maí næstkom-
andi og að fyrirhuguð greiðsla fyr-
ir hlutaféð muni eiga sér stað hinn
27. maí. Þá segir í tilkynningunni
að í kjölfar kaupa Bakkavarar á
öllu útgefnu hlutafé Geest Plc. sé
fyrirhugað að félagið verði afskráð
úr kauphöllinni í London (London
Stock Exchange) hinn 16. maí
2005.
Heildarverðmæti viðskiptanna í
tengslum við yfirtöku Bakkavarar
á Geest er um 694 milljónir punda,
eða um 83 milljarðar íslenskra
króna.
Hluthafar í Geest sam-
þykkja tilboð Bakkavarar
Morgunblaðið/Þorkell
Bakkabræður Ágúst og Lýður Guðmundssynir í Bakkavör Group.