Morgunblaðið - 21.04.2005, Qupperneq 10
10 B FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
H
inn 30. mars
1926 fæddist
sölumaður.
Þessi sölu-
maður heitir
Ingvar
Kamprad og
sagan segir
að strax frá byrjun hafi hann vitað
hvar hæfileiki hans lá. „Eitt árið
seldum við blómanælur fyrir góð-
gerðarstarfsemi. Hann seldi fleiri en
nokkur annar. Hann er fæddur sölu-
maður,“ hefur einn fyrrum skóla-
félaga hans sagt um Kamprad en lík-
lega hefur hann ekki grunað að um
sjötíu árum síðar yrði þessi fyrrum
skólafélagi hans einn af auðugustu
mönnum heims, og gildir þá einu
hvort farið er eftir útreikningum
Veckans Affärer eða Forbes sem
setur Kamprad í sjötta sæti yfir rík-
ustu menn heims og metur auð hans
á 23 milljarða Bandaríkjadala, sem
samsvarar tæplega 1.500 milljörðum
króna eða 1,5 billjónum.
Byrjaði að selja eldspýtur
Það er sagt að snemma beygist
krókurinn og á það svo sannarlega
við um Ingvar Kamprad. Sagt er að
ferill hans sem athafnamanns hafi
hafist á því að selja eldspýtur þegar
hann var fimm ára en sagan hermir
að hann hafi pantað þær í magn-
pakkningum frá Stokkhólmi og selt
svo í smærri einingum til íbúa í þorp-
inu Agunnaryd í Smálöndum og
bændanna í nágrenninu með hæfi-
legri álagningu. Smám saman færði
hann út kvíarnar og tók að selja jóla-
kort, penna og fisk og þegar hann
var ellefu ára tók hann að selja fræ
til ræktunar.
Skólagöngu Kamprads lauk árið
1943 þegar hann var sautján ára en
hann ku hafa verið ágætis náms-
maður þrátt fyrir að hafa verið önn-
um kafinn við viðskiptastarfsemi
sína. Námsárangur hans var svo
góður að faðir hans gaf honum pen-
inga sem nota átti til áframhaldandi
náms. Hinn athafnasami unglingur
ákvað þess í stað að nota peningana
til þess að stofna fyrirtæki, sem
hann nefndi IKEA. Þetta nafn, sem
þekkt er í flestum löndum heims í
dag, er samsett á eftirfarandi hátt:
Ingvar Kamprad Elmtaryd Ag-
unnaryd, en Elmtaryd er nafn býlis
foreldra hans og Agunnaryd er
þorpið sem Elmtaryd tilheyrir.
Ekur um á Volvo
Kamprad er þekktur fyrir að vera
maður afar hagsýnn þótt sumir vilji
eflaust kalla hann nirfil og hagsýni
hans nánasarhátt. Hann er lítið gef-
inn fyrir prjál og hefur einfaldleik-
ann í fyrirrúmi eins og kannski sést
best á húsgögnum þeim sem hann
selur.
„Ég er svolítið nískur, en hvað
með það? Þegar ég er að fara að eyða
einhverjum peningum spyr ég mig
fyrst hvort viðskiptavinir IKEA
hefðu efni á því,“ hefur hann látið
hafa eftir sér en Kamprad hefur vak-
ið athygli fyrir að fljúga með lágfar-
gjaldaflugfélögum og gista á ódýrum
hótelum auk þess sem hann keyrir
um á tólf ára gömlum sænskum eð-
alvagni.
Eins og vel flestum er kunnugt
sérhæfir IKEA sig í sölu húsgagna
og húsbúnaðar á lágu verði. Fyr-
irtækið er meðal Svía stundum sagt
persónugera einnotahugsunarhátt-
inn, þ.e. þegar varan hefur verið not-
uð er henni hent og önnur keypt í
staðinn. Það var þó ekki fyrr en fjór-
um árum eftir stofnun IKEA að
hægt var að kaupa húsgögn hjá fyr-
irtækinu en fram að þeim tíma hafði
Kamprad selt ýmsan varning svo
sem veski, dúka, úr, skartgripi og
nælonsokka. Það var svo árið 1951
að hann sá möguleikana sem fylgdu
því að sérhæfa sig í sölu húsgagna og
hætti allri sölu á öðrum varningi.
Um leið ákvað hann að stækka
markaðssvæði sitt og fór að gefa út
vörulista. Þar með hafði grundvöll-
urinn að heimsins mesta hús-
gagnaveldi verið lagður.
Brunaútsalan mikla
En rekstur IKEA hefur ekki alltaf
verið dans á rósum. Þegar opna átti
fyrstu verslun fyrirtækisins í Stokk-
hólmi árið 1965 hafði Kamprad látið
setja upp tvö skilti fyrir utan húsið.
Annað þeirra var úr tré og hitt var
neonljósaskilti. Tréskiltið var hengt
þannig upp að það blakaði í vindinum
og ekki vildi betur til en svo að í einni
vindhviðunni sveiflaðist skiltið svo
hressilega til að það slóst í neon-
skiltið og braut það. Út frá því kvikn-
aði eldur og það er skemmst frá því
að segja að húsið brann til grunna.
Kamprad lét þetta þó ekki draga
úr sér kjarkinn, frekar en annað, og
opnaði nýja verslun í Stokkhólmi
sama ár. Hann auglýsti mikla bruna-
útsölu sem varð til þess að þúsundir
manns stóðu í biðröð fyrir utan
verslunina. Þegar fólkinu var svo
hleypt inn var örtröðin svo mikil að
ekki var nokkur von fyrir starfs-
fólkið að afgreiða allar óskir við-
skiptavinanna. Kamprad tók þá upp
á því að bjóða fólki að fara inn á lager
verslunarinnar og sækja sér þær
vörur sem það ætlaði að kaupa.
Þetta var upphaf sjálfsafgreiðslufyr-
irkomulags þess sem er lykilatriði í
viðskiptahugmynd IKEA og sannast
þar með hið fornkveðna að fall er
fararheill.
Nasistatengsl
Kamprad hefur látið hafa eftir sér að
hjá fáum hafi jafnmikið farið úr-
skeiðis og gerst hefur hjá honum og
er bruninn í Stokkhólmi aðeins eitt
dæmi. Einn besti vinur hans á ung-
lingsárunum var Per Engdahl sem
var einn helsti leiðtogi nasista í Sví-
þjóð, bæði fyrir og eftir heimsstyrj-
öldina síðari og var hann meðal gesta
í brúðkaupi Kamprad árið 1950. Fyr-
ir um tíu árum síðan birtust fréttir
þess efnis í sænskum dagblöðum að
Kamprad hafi verið meðlimur í
sænskri ungliðahreyfingu nasista og
hefur hann aldrei neitað því en segir
það hafa verið stærstu mistök lífs
síns. Þegar sögusagnir þess efnis að
nasistahreyfingin hefði kostað stofn-
un IKEA komust á kreik brást
Kamprad hins vegar ókvæða við og
sagði: „Þeir gætu hafa sakað mig um
morð, en ekki um að hafa fengið pen-
inga að láni.“ Þessi orð lýsa hinum
hagsýna Kamprad betur en mörg
önnur.
Gillis þáttur Lundgren
Flatar pakkningar sem ekki taka
mikið pláss hafa um langa hríð verið
eitt af aðalsmerkjum IKEA. Þetta er
mjög einföld lausn en eins og svo
margt annað sem okkur þykir einfalt
í dag var hún ekki sjálfsögð. Það var
ekki fyrr en árið 1956 að þessi hug-
mynd varð til þegar Gillis Lundgren,
fjórði starfsmaðurinn sem ráðinn
var til fyrirtækisins var að reyna að
troða borði í farangursgeymslu bif-
reiðar. Það gekk frekar illa en allt í
einu fékk Lundgren þá snilld-
arhugmynd að taka fæturna undan
borðinu og leggja þá við hlið þess í
skottið. Flatir pakkar eru til hag-
ræðis bæði fyrir kaupendur sem og
fyrirtækið þar sem ódýrara er að
flytja þá auk þess sem fyrirtækið
getur haldið stærri lager sem eykur
hagræði í innkaupum. Þetta skildi
Kamprad og byrjaði hann að laga
hugmyndina að þörfum fyrirtæk-
isins. Auk þess hækkaði hann Lund-
gren í tign og gerði hann að hönnuði
hjá IKEA, sem ári áður hafði tekið
að hanna eigin húsgögn vegna harðr-
ar samkeppni við keppinauta sína.
211 verslanir
Ingvar Kamprad verður áttræður á
næsta ári en hann hefur búið í Sviss
ásamt síðari eiginkonu sinni, Marg-
aretha, um langa hríð. Snemma á ní-
unda áratugnum seldi hann hol-
lenskum sjóð fyrirtækið en sjóður
þessi er í eigu fjölskyldunnar og sjá
synir hans um reksturinn. Hann hef-
ur byggt fyrirtæki sitt upp á mjög
skilvirkan hátt og er IKEA leiðandi
á sínu sviði í heiminum og eitt
þekktasta vörumerki heims. Í dag
eru 211 IKEA verslanir í 32 löndum
um allan heim og hjá fyrirtækinu
starfa um 84 þúsund manns í 44
löndum. Velta fyrirtækisins á síðasta
ári nam 12,8 milljörðum evra sem
samsvarar ríflega einni billjón ís-
lenskra króna.
Kamprad hefur ávallt barist með
kjafti og klóm gegn því að setja fyr-
irtækið á hlutabréfamarkað enda er
svo sem lítil ástæða til þess þar sem
fyrirtækið er ekki í mikilli þörf fyrir
aukið fjármagn. Hans helsta ástæða
fyrir því er sú að fari IKEA á mark-
að muni það draga úr hraða og
skilvirkni við ákvarðanatökur sem
margir telja vera eina helstu ástæðu
hins öra vaxtar fyrirtækisins.
Kamprad er goðsögn í lifanda lífi á
heimaslóðum sínum í Smálöndum og
í Svíþjóð almennt. Hann heimsækir
æskuslóðir sínar á hverju sumri og
er honum ævinlega tekið afar vel
enda eru sveitungar hans afar stoltir
af honum. Sagt er að hann gangi um
og tali við alla og faðmi þá eins og
gamla vini sína.
Fall er fararheill
Uppi varð fótur og fit í
fjármálaheiminum
fyrir ekki svo löngu
þegar sænska vikurit-
ið Veckans Affärer sló
því upp á forsíðu að
Ingvar Kamprad væri
orðinn ríkasti maður
heims. Guðmundur
Sverrir Þór kynnti sér
feril stofnanda IKEA.
Reuters
Ríkasti maður heims? Ingvar Kamprad stendur fyrir utan höfuðstöðvar IKEA í Älmhult í Smálöndum.
! "
"# !#
$%
$! # %
$
$!
"
#
&"' $ "() *
#
(#"
"+
&") ,
# "(
$ -! *"()
#
+
*
"./0$"(#
# )1
*
#
"2
*
"
*#
334&"56 *
# ""
*
67! *
# "8!
*
#
*
sverrirth@mbl.is