Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 14
14 B FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„VIÐ höfum verið að horfa til þess
að þróa annan fjölþáttökuleik á Net-
inu og á þeim forsendum tökum við
þátt í Seed Forum,“ segir Ívar Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri rekstr-
arsviðs og meðstofnandi CCP sem
þegar hefur vakið mikla athygli með
fjölþátttökuleiknum EVE-Online sem
slegið hefur rækilega í gegn. Hjá fyr-
irtækinu starfar nú 40 manna hópur
sem að sögn Ívars er áhrifarík blanda
af listamönnum, vísindamönnum og
sérfræðingum í hugbúnaðargerð.
Auk þess séu rúmlega 20 stöðugildi
hjá Símanum sem er samstarfsaðili
CCP og sjái um rekstur þjónustuvers
fyrir leikinn hér á landi ásamt því að
annast rekstur hýsingarmiðstöðvar
fyrir leikinn í London.
„Við sáum fyrir okkur að fara af
stað í næsta verkefni, sem yrði fjár-
magnað sérstaklega, seinni part
þessa árs. Síðan kemur það upp að við
erum valdir á Seed Forum og við
ákváðum að taka þátt í því og fara að
undirbúa jarðveginn og þreifa
kannski á fjármálageiranum fyrir
næsta verkefni. Ef hlutirnir fara að
snúast eitthvað hraðar og það er
hægt að tryggja frumfjármögnun á
næsta verkefni strax getum við ein-
faldlega flýtt þróun næsta verkefnis.
En um leið er hugmyndin að hámarka
virði þeirrar þekkingar sem er til
staðar í fyrirtækinu. Þetta er gíf-
urlega verðmikil sérhæfð þekking
sem hefur skapast innan CCP og það
væri illa farið með hana að fullnýta
hana ekki. Við viljum þannig há-
marka virði félagsins fyrir hluthaf-
ana þótt EVE sé í stöðugri þróun og
líftími leiksins sé langur.“
Ívar segir Seed Forum klárlega
vera góðan vettvang fyrir sprotafyr-
irtæki. „Ég held að þetta sé gífurleg
lyftistöng fyrir frumkvöðla og
sprotastarfsemi í landinu að fá vett-
vang þar sem óháð samtök, sem ekki
eru rekin með hagnaðarsjónarmið í
huga, komi saman góðum viðskipta-
hugmyndum og fjármagni. Og Seed
Forum er búin að greina fyrirtækin
vandlega þannig að þau sem taka
þarna þátt eru með góðar hugmyndir
og hæfa einstaklinga á bak við þær.
Það auðveldar mönnum að ná í al-
vöru fjárfesta. Það er því viðurkenn-
ing fyrir fyrirtækin að vera boðið að
taka þátt en um leið mikilvægt tæki-
færi fyrir þau,“ segir Ívar.
Þekking sem þarf að fullnýta
Morgunblaðið/Sverrir
CCP „Þetta er gífurlega verðmikil sérhæfð þekking sem hefur skapast inn-
an CCP og það væri illa farið með hana að fullnýta hana ekki.“
HARÐKORNA skósólar, kenndir
við Græna demantinn, eru íslensk
uppfinning sem nú er tilbúin til
fjöldaframleiðslu.
Harðkornin voru upphaflega þró-
uð til að nota í vetrarhjólbarða hér á
landi og eru nú framleidd víða er-
lendis. Sólarnir í skóm frá Græna
demantinum er búnir til með sömu
aðferð, sérstökum kornum er bland-
að út í náttúrulegt gúmmí til að auka
grip á sleipu yfirborði. Rannsóknir
hafa sýnt að grip harðkornaskósóla
er allt að 30 sinnum betra en skósóla
úr venjulegu gúmmíi.
Að sögn Óskars Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra GDTS, byggist við-
skiptahugmyndin á reynslu, þekk-
ingu og frammistöðu stærsta hlut-
hafans í fyrirtækinu síðastliðin 15
ár. „Undanfarin þrjú ár hefur starfið
einkum beinst að því að þróa við-
skiptahugmyndina. Þessu ferli er nú
lokið og fyrirtækið er nú tilbúið til
að hefja framleiðslu og sölu á harð-
kornaskó og sóla,“ segir Óskar.
Í október árið 2001 gengu Nýiðn,
handhafi einkaleyfis á harðkorna-
dekkjum og eigandi vörumerkisins
Græni demanturinn, og GDTS frá
samningi sem veitir síðarnefnda fyr-
irtækinu einkarétt á notkun vöru-
merkisins og frekari þróun, sölu og
markaðssetningu á harðkornaskó-
sólum í framtíðinni.
Og Óskar segir brýna þörf fyrir
skósóla úr harðkornagúmmíi, eða
fyrir „ósleipa skósóla, ef svo má að
orði komast. Föll og byltur eru
helsta orsök banaslysa og meiðsla á
bandarískum vinnustöðum. Alls
deyja um 1.500 manns af þessum
völdum árlega og um 300.000 slas-
ast. Af þeim sem detta í vinnunni
missa um 80% einn eða fleiri daga
úr vinnu og um 12% þurfa að leggj-
ast á sjúkrahús. Þessi slys valda
meðal annars beinbrotum, togn-
unum, höfuðmeiðslum og mænu-
skaða.“
Óskar bendir einnig á að skó-
markaðurinn í heild sinni sé gríð-
arstór, alls séu framleiddir 12 millj-
arðar skópara í heiminum á hverju
ári eða um 48 milljón pör á hverjum
degi. „Við viljum ná til okkar fjár-
festum til að kaupa hlutdeild í al-
þjóðlegu markaðstækifæri, með því
að nýta sér þessa einstöku tækni
sem getur skapað fyrirtækinu sér-
stöðu á markaðnum,“ segir Óskar.
Standa í harðkornaskóm
Morgunblaðið/Sverrir
GDTS „Við viljum ná til okkar fjárfestum til að kaupa hlutdeild í alþjóðlegu
markaðstækifæri með því að nýta sér þessa einstöku tækni sem getur skap-
að fyrirtækinu sérstöðu á markaðnum.“
LÍF-HLAUP, Bio-Gels Pharma-
ceuticals, er sprotafyrirtæki sem
stofnað var árið 1998 út frá lyfja-
fræði- og tannlæknadeild Háskóla
Íslands og hefur unnið að rann-
sóknum og þróun á lyfjaformum til
notkunar á slímhúðir svo og á
virkni fituefna á bakteríur, sveppi
og veirur.
Sprotafyrirtækin Líf-Hlaup og
LipoMedica sameinuðust í byrjun
árs 2005 en þau byggjast á rann-
sóknum rannsóknarhóps sem skip-
aður er dr. Peter Holbrook prófess-
or við tannlæknadeild Háskóla
Íslands, dr. Þórdísi Kristmunds-
dóttur prófessor við lyfjafræðideild
Háskóla Íslands, dr. Halldóri Þor-
mar prófessor emeritus við Líf-
fræðistofnun Háskólans og Skúla
Skúlasyni framkvæmdastjóra Líf-
Hlaup.
Líf-Hlaup hlaut verðlaun Int-
ernational Association for Dental
Research (IADR) og GlaxoSmit-
hKline (GSK) fyrir rannsóknir á
lyfjagjöf við herpes simplex sýk-
ingum í munni í mars á þessu ári.
Verðlaunaverkefnið snýr að þróun
á lyfjasamsetningu sem er virk
gegn herpes sýkingum í munni sem
leiða til sáramyndunar, þ.e. fruns-
um. „Þessi nýja lyfjasamsetning
hefur tvennskonar virkni, ann-
arsvegar veirudrepandi áhrif og
hinsvegar hvetjandi áhrif á end-
urnýjun vefjar sem hefur skaddast
við sáramyndun,“ segir Skúli
Skúlason, framkvæmdastjóri.
„Eftir að tilskilin leyfi hafa feng-
ist er áformað að prófa meðferð á
herpes frunsum í fólki með þessu
nýja lyfi. Það er mikil þörf fyrir ný
lyf sem gagnast í meðferð á herpes
simplex sýkingum. Nú eru á mark-
aði nokkur veiruhemjandi lyf sem
hefta framgang sjúkdómsins ef
meðferð er hafin tímanlega. Þessi
lyf virka hinsvegar ekki sem skyldi
eftir að sár hefur myndast og einn-
ig koma lyfjaónæmir veirustofnar
iðulega fram. Í þeim tilfellum eru
ekki til aðrar aðferðir en gamlar
forskriftir sem þurrka upp vessa
og hindra að frunsan breiðist enn
frekar út.“
Líf-Hlaup hefur einnig verið að
þróa lyfjasamsetningu við bólgu-
sjúkdómum í slímhúð og hefur
munnangur verið skoðað sér-
staklega, en það er sjúkdómur sem
margir Íslendingar þjást af á
hverjum tíma. Hingað til hefur
verið mikil vöntun á árangursríkri
meðferð við munnangri og þekkja
flestir meðal annars hinn hvimleiða
fjólubláa vökva sem notaður var
með takmörkuðum árangri. Sam-
setning Líf-Hlaups hefur sýnt góða
virkni í klínískri rannsókn hjá
sjúklingum með munnangur, þar
sem 70% einstaklinga fengu bata
við 3 daga meðferð með lyfja-
samsetningu Líf-Hlaups.
„Það kemur sér mjög vel að vera
valinn til að taka þátt í Seed For-
um International og gefur okkur
kost á því að kynna félagið fyrir
vænlegum fjárfestum hér heima og
í New York síðar í sumar. Við von-
umst til að ná eyrum fjárfresta
þannig að hægt verði að tryggja
áframhaldandi þróun og markaðs-
setningu á þeim verkefnum sem
við erum að vinna að, annars vegar
lyfi gegn herpessýkingum í munni
og hins vegar munnangri,“ segir
Skúli.
Morgunblaðið/Sverrir
Líf-Hlaup „Áformað að prófa meðferð á herpes-frunsum á fólki.“
Vinna að lyfjum
gegn herpes-sýking-
um og munnangri
Vaxtarsprotar í
íslensku viðskiptalífi
Níu sprotafyrirtæki, átta íslensk og eitt norskt/íslenskt taka þátt í Seed Forum
Iceland-fjárfestingaþinginu sem haldið verður á Nordica hóteli í Reykjavík 28.
apríl en alþjóðleg dómnefnd fjárfesta valdi þau til þátttöku á þinginu þar sem
leiða á saman vænleg sprotafyrirtæki og fjármagn. Fyrirtækin níu sem hér
verða kynnt eru AGR, Bio-Gels Pharmaceuticals, CCP, Globodent, GDTS,
Navamedic, ND á Íslandi, ORF Genetics og SimDex.
SPROTAFYRIRTÆKI